Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.2009, Blaðsíða 44

Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.2009, Blaðsíða 44
Um helgina fer fram leikurinn um góðgerðarskjöldinn á Eng- landi sem þýðir aðeins eitt. Ein vika er þangað til enska úrvals- deildin hefur aftur leik. Geta þá sparkunnendur um allt land og allan heim tekið gleði sína á ný þegar besta knattspyrnu- deild í heimi fer aftur af stað. En hverjir hampa titlinum í ár? Hverjir gera betur en í fyrra og hverjir yfirgefa úrvalsdeildina? DV spáir í spilin fyrir tímabilið 2009/2010 á Englandi. 44 föstudagur 7. ágúst 2009 chels aftur á toppinn Chelsea DV spáir Chelsea Englandsmeistara- titlinum á þessu tímabili. Liðið var í tómu tjóni á síðasta tímabili undir stjórn Brassans Luis Scolari þrátt fyrir frábæra byrjun. Endalausar erjur innan liðsins eyðilögðu möguleikann á Englands- meistaratitlinum þó liðið hafi svo sann- arlega blandað sér í baráttuna á seinni hluta tímabilsins eftir komu Guus Hidd- ink. Carlo Ancelotti er nú mættur til Vestur-Lundúna og hann kann að sigra. Hann er líka tiltölulega betri í ensku en Scolari en það vafðist mikið fyrir mönn- um þar á bæ að geta skilið Brassann geðþekka. Það má svo sem margt segja um Ancelotti en hann kann allavega að halda mönnum á mottunni og það er kannski nákvæmlega það sem Chelsea vantar núna. Styrkleiki þeirra í ár er að hafa nokkurn veginn sama liðið. Það hefur aðeins bætt við sig tveimur leikmönnum en aftur á móti ekki misst neinn frá sér. Titil- vonir þeirra hanga svolítið á að mórallinn haldist í lagi innan liðsins en hjá Chel- sea eru afar litlar breytingar og fyrir var mjög sterkt lið sem er til alls líklegt í ár. 1 LykiLmaður Frank Lampard FyLgist með Yuro Zhirkov komnir n Yuri Zhirkov frá CSKA Moskvu fyrir 18 milljónir punda. n Daniel Sturridge frá Man. City fyrir óuppgefna upphæð. n Ross Turnbull frá Middlesbrough á frjálsri sölu. n Andriy Schevchenko úr láni frá AC Milan. n Scott Sinclair úr láni frá Birmingham. Farnir n Franco Di Santo til Blackburn á láni. n Scott Sinclair til Wigan á láni. manChester united Hann er nú kallaður: „Sá sem ekki má nefna á nafn“ og „Þú veist hver“ Cristiano Ronaldo í Manchester-borg. Það eitt segir allt sem segja þarf. Fólk þar á bæ skelfur yfir brotthvarfi besta knattspyrnumanns heims sem hefur gjörsamlega átt ensku deildina með húð og hári síð- ustu þrjú árin en Manchester United hefur einmitt unnið titil- inn síðustu þrjú árin. Nýju leikmennirnir eru þrír og saman tekst þeim ekki að vega upp helminginn af því sem Ronaldo skilaði fyrir liðið. Meðaljón úr Wigan, ónothæfur vængmaður frá Frakklandi og meiðslapési úr fallliði. Gífur- leg einföldun á annars þremur ágætum knattspyrnumönnum sem sir Alex Ferguson hefur fengið til sín en að stórum hluta mjög satt og eitthvað sem United-menn þurfa að horfa til. Sir Alex horfir eflaust mikið til Waynes Rooney sem hefur síðustu tímabil dregið sig aðeins í hlé og leyft Ronaldo að skína. Rooney gerir nefnilega alltaf nákvæmlega það sem er liðinu fyrir bestu. Ef það er því fyrir bestu að hann sýni hvers hann er megnugur gerir hann það í ár. 2 LykiLmaður Wayne Rooney FyLgist með Michael Owen komnir n Antonio Valencia frá Wigan fyrir 15 milljónir punda. n Gabriel Obertan frá FC Bordeaux fyrir 4 milljónir punda. n Michael Owen frá Newcastle á frjálsri sölu. Farnir n Manucho til Espanyol fyrir óuppgefna upphæð. n Frazier Campbell til Sunderland fyrir 3,5 miljónir punda. n Lee Martin til Ipswich fyrir óuppgefna upphæð. n Rodrigo Possebon til Braga á láni. n Cristiano Ronaldo til Real Madrid fyrir 80 milljónir punda. liverpool Liverpool var ekki langt frá fyrsta Englandsmeistaratitilinum sínum í tut- tugu ár á síðasta tímabili. Á Anfield hafa menn hins vegar ekki látið kné fylgja kviði hvað varðar leikmannakaup til að komast yfir síðasta hjallann og landa þessum fjárans titli eftir langa bið. Einu kaup liðsins eru mjög góð, hægri bakvörðurinn Glen Johnson, en það er bara svo og svo mikið sem bakvörður skilar af sér. Í stað þess að kaupa frábæra leikmenn lét liðið frá sér einn sinn allra besta mann Xabi Alonso til Real Madrid en fékk þó drjúgan skilding fyrir. Þegar þetta er skrifað er Liverpool komið í viðræður um kaup á Ítalanum Alberto Aquilani frá Roma til að fylla skarð Spánverjans. Það eru aldrei jöfn skipti hvernig sem litið er á málin Það er viss styrkur hjá Liverpool að liðið hafi breyst lítið en líka veikleiki. Það vantar fleiri stórlaxa á borð við Tor- res og Gerrard. Þeir eru auðvitað ekkert minna en stórkostlegir en þeir tveir geta ekki borið heilt lið á herðunum í öllum keppnum, yfir fimmtíu leiki á ári. manChester City Auðvitað er hætt við að öll kaup Manchester City springi í andlitið á því og að liðið verði einfaldlega eitt mesta flopp sögunnar. Það var það eiginlega í fyrra. City er jú ekki einu sinni í Evrópu- keppni í ár með menn innanborðs á borð við Robinho, Gareth Barry, Tevez, Ade- bayor og Santa Cruz. Á meðan er Fulham með Tony Kallio og Simon Davies í Evr- ópudeildinni. Það verður þó bara að horfa á hvaða menn liðið er komið með. Og það er ekki eins og City hafi verið að byggja á ein- hverjum skítagrunni. Fyrir var fjári gott lið sem lék einfaldlega oft undir getu í fyrra. En með kaupum sumarins er liðið til alls líklegt þótt það sé eiginlega ekki öfundsvert hlutverk Mark Hughes, stjóra liðsins, að púsla þessu saman. Með komu Kolo Toure er liðið komið með prýðilega vörn. Það er með reynd- an markvörð, sterka miðjumenn til varnar og sóknar og framlínu sem stærstu lið í heimi myndu ekki slá hendinni á móti. Það er einfaldlega ætlast til þess að Manchester City blandi sér í fjögur efstu sætin og DV trúir að svo verði. arsenal Það er nokkuð augljóst að ef Manchester City ætlar sér fjórða sætið þarf eitt af þeim fjóru stóru að víkja. DV spáir því að það verði Arsenal. Lundúnaliðið sem getur spilað svo fallegan fótbolta hefur einfald- lega ekkert gert til þess að verja sæti sitt sem hefur orðið tæpara og tæpara undan- farin ár. Koma Andrei Arshavin í fyrra var sem vítamínsprauta í liðið og á hann eftir að reynast því drjúgur. Eins var framleng- ing Robins van Persie á samningi sínum eins og himnasending fyrir liðið. En þegar horft er á kaup liðanna sem ætla sér að vera í baráttunni í ár er Arsenal klárlega að tapa. Aðeins einn leikmaður hefur verið keyptur. Thomas Vermaelen frá Ajax sem varla er ætlað það hlutverk að leiða liðið til titils. Svo selur Arsenal Toure og Adebayor til City. Það seldi þar einfald- lega sæti sitt í meistaradeildinni. 5 LykiLmaður Cesc Fabregas FyLgist með Andrei Arshavin komnir n Thomas Vermaelen frá Ajax fyrir óuppgefna upphæð. Farnir n Kolo Toure til Man. City fyrir 16 milljónir punda. n Emmanuel Adebayor til Man. City fyrir 25 milljónir punda. 4 LykiLmaður Robinho FyLgist með Carlos Tevez komnir n Gareth Barry frá Aston Villa fyrir 12 milljónir punda. n Roque Santa Cruz frá Blackburn fyrir 17 milljónir punda. n Carlos Tevez frá Corinthians fyrir 25 milljónir punda. n Emmanuel Adebayor frá Arsenal fyrir 25 milljónir punda. n Kolo Toure frá Arsenal fyrir 16 milljónir punda. n Joleon Lescott frá Everton fyrir 22 milljónir punda. n Stuart Taylor frá Aston Villa fyrir óuppgefna upphæð. Farnir n Elano til Galatasaray fyrir 8 milljónir punda n Ched Evans til Sheffield United fyrir 3 milljónir punda. n Felipe Caicedo til Sporting á láni n Gelson Fernandes til St. Etienne fyrir óuppgefna upphæð. n Jo til Everton á láni. n Daniel Sturridge til Chelsea fyrir óuppgefna upphæð. n Joe Hart til Birmingham á láni n Darius Vassell til Ankaragucu á frjálsri sölu. n Sagt upp samningi við Danny Mills, Michael Ball og Dietmar Hamann. 3 LykiLmenn Steven Gerrard og Fernando Torres FyLgist með Ryan Babel komnir n Glen Johnson frá Portsmouth fyrir óuppgefna upphæð. n Alberto Aquilani frá Roma fyrir óuppgefna upphæð. Farnir n Jermaine Pennant til Real Zaragosa á frjálsri sölu. n Sami Hyypia til Bayern Leverkusen á frjálsri sölu. n Sebastian Leto til PAOK fyrir 1,3 milljónir punda. n Xabi Alonso til Real Madrid fyrir 30 milljónir punda.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.