Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.2009, Blaðsíða 41
helgarblað 7. ágúst 2009 föstudagur 41
hippamenning, fyrirhyggja
og heilbrigður lífsstíll
stemning að
nýta það gamla
„Ég mæli með því að fólk byrji á því að velja sér litaþema og
stemningu,“ segir Guðlaug Halldórsdóttir listakona þeg-
ar hún er spurð hvernig við getum flikkað upp á heim-
ilið með ódýrum hætti. „Svo er um að gera að grúska í
geymslum og skúrum og tína allt til sem til er í þeim
lit sem varð fyrir valinu og sauma púða úr gömlum
flíkum og efnum. Svo er hægt að kaupa servíettur
og kerti og jafnvel blóm í stíl eða klippa blómin úr
garðinum og setja í vasa til að poppa heimilið upp
og fá í það nýja stemningu,“ segir Gulla og bætir við
að kreppustemning sé frekar að nýta gamalt en að
kaupa nýtt. „Á þessum tímum þegar allt hefur hækkað
og kaupmáttur rýrnað mæli ég með að fólk hirði rennilása
og tölur úr flíkum og hlutum áður en þeim er hent. Og svo
pússa, fegra gamla grillið en ekki henda og kaupa nýtt. Vitur maður sagði
einu sinni að málning væri besta forvörnin gegn skemmdum á tré og steypu
og nú skiptir gott viðhald miklu máli til að hlutirnir endist lengur,“ segir Gulla
sem tekur að sér innanhúsráðgöf og bendir á meilið gullah@itn.is
gamli gallinn og túnfiskspasta
„Í árferði sem þessu er ekki á allra færi að kaupa árskort í ræktina
og nýjustu línuna í íþróttaklæðnaði,“ segir Arnar Grant og bæt-
ir við að hægt sé að finna sér hreyfingu í öllum verðflokkum.
„Því er einfalt að finna eitthvað sem hæfir veskinu. Sem dæmi
má nefna að það kostar ekkert að fara út að skokka, maður
kynnist nágreninu og fær góðan skammt af súrefni í kropp-
inn. Fyrir byrjendur er gott að byrja á að skokka styttri vega-
lengdir og einungis annan hvern dag. Hægt og rólega fjölgar
maður svo skiptunum og eykur vegalengdina. Með tímanum
öðlast maður aukið þol og eykur hraðann.“ Arnar segir algjör-
an óþarfa að fylgja nýjustu tísku í íþróttafötum og skóm. „Tískan
í íþróttafatnaði fer í hringi og því er gamli góði Adidasgallinn alveg
móðins í dag,“ segir hann og bætir við að hafa beri í huga að öll hreyf-
ing auki á matarlyst og því verðum við að borða rólega og í samræmi við þá hreyfingu sem stunduð sé. „Ég mæli með túnfiskspasta, sem er fullkominn heilsuréttur fyrir fáar krónur. Allt sem þarf er niðurskorinn laukur, niðurskornir sveppir og niðursoðnir tómatar látnir malla á pönnu og síðustu mínúturnar er sett ein dós af túnfiski í vatni á pönnuna og látið hitna í gegn. Sjóðið pasta og hellið sósunni yfir pastað og berið fram.“
ilmvatnsprufur
og áætlanir
„Matur fyrir gæludýr hefur hækkað ótrúlega mikið og því er
um að gera að finna þá verslun sem selur ódýrasta mat-
inn og birgja sig upp af honum,“ segir blaðamaðurinn
Anna Kristine Magnúsdóttir. „Einnig má muna að kis-
um og hundum finnst mjög spennandi að fá smávegis
af því sem mannfólkið borðar og því má gefa þeim af og
til sama mat og verið er að elda á heimilinu,“ segir Anna
Kristine sem er hafsjór kreppuráða. „Önnur ráð eru að
gera áætlun áður en bílferð hefst þar sem bensín er ekki
gefins, fá smekkmanneskju úr vinahópnum til að fara yfir föt-
in í fataskápnum og kenna okkur að raða saman réttu flíkunum,
leigja DVD í Krambúðinni við Skólavörðustíg á helmingi lægra verði
en flestar myndbandaleigur, drekka vatn í stað gosdrykkja og biðja um prufur
af ilmvötnum og kremum í snyrtivöruverslunum og apótekum.“
barnaland
og notuð föt
„Ég finn nú ekki mikið fyrir kreppunni en maður reynir að vera
skynsamur samt sem áður þegar kemur að kaupum,“ segir
Elísabet Thorlacius fyrirsæta og móðir. „Ég hef verið hepp-
in og hef fengið föt á strákinn minn hjá mömmu, vinkonum
og frænkum sem eiga stráka enda finnst mér ekkert að því að
barnið mitt sé í notuðum fötum á meðan þau eru vel farin,“
segir Elísabet og bætir við að það sé ekkert grín að kaupa blei-
ur í dag. „Þær eru fokdýrar en auðvitað kemst maður ekki hjá
því að kaupa þær nema maður sé tilbúinn að nota taubleiur og
ég er ekki að nenna því. Ég kaupi Euroshopper-bleiurnar sem eru
ódýrar og góðar. Ég er lítið að kaupa dót fyrir strákinn enda eru vin-
ir og ættingjar alltaf að gauka einhverju að honum og það er gott að eiga
góða að því börnum fylgir mikill kostnaður. Svo er gott að muna eftir Barnalandssíð-unni því þar er hægt að finna ódýrt dót og jafnvel gefins.“
náttfatapartí í stað upp-
skrúfaðra kokteilboða
„Þjóðin þarf að vera samstiga í því að dempa sig niður, til dæmis með því a
ð kaupa
smærri gjafir og muna að hugurinn er það sem skiptir máli,“ segir Ingibjörg
Reynisdóttir leikkona og bætir við að það sé hægt að föndra gjafir eða
jafnvel semja ljóð til að gera þær persónulegri. „Við verðum líka að
slaka á í vörumerkjaruglinu og gramsa í fataskápnum og skoða bet-
ur hvað þar er að finna og nýta. Það er sniðugt að taka myndir af
sér í mismunandi uppröðum af fötum sem maður fílar og skella
svo myndunum á innanverðan skápinn svo þú munir hvað var
flott saman næst þegar þú ert í vandræðum með að finna föt fyrir
eitthvert tilefnið.” Ingibjörg segir líka hægt að halda náttfatapartí
í staðinn fyrir uppskrúfuð kavíar- og kokteilboð ef hugmyndin sé
að lyfta sér upp. „Það þykir eflaust ekki kúl, við erum nefnilega enn
dálítið 2007 innst inni.“
skólabúningar, slátur og kurteisi
„Skólabúning í alla grunnskóla,“ segir Erna Margrét Ottósdóttir Laugdal athafna-kona þegar hún er innt eftir góðu kreppuráði. „Kæmi sér vel fyrir allar fjölskyldur í landinu. Það er eingöngu góður árangur af þessu fyrirkomulagi
í öðrum löndum,“ segir hún og bætir fleiri hugmyndum við:
„Taka fallega mynd af börnunum í góða veðrinu, framkalla
og setja í ramma og geyma til jólagjafa, taka slátur í haust,
kaupa ódýran en góðan ís hjá Gotta, leigja bækur og
myndir á bókasafni fyrir 2000 kr á ári, kaupa föt í Hjálp-
ræðishernum. Fallegt bros til náungans kostar líka ekki
neitt að ógleymdri kurteisinni.“