Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.2009, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.2009, Blaðsíða 15
borð við nokkrar utanlandsferðir á ári hverju þurfi að víkja. Það harmi börnin ekki ef jákvæður póll sé tek- inn í hæðina. Börnin læra Umræðan í samfélaginu um stjórn- málamenn, bankafólk og útrásar- víkinga hefur ekki verið sérlega já- kvæð undanfarna mánuði. Spurður hvaða áhrif bölvandi eða pirraðir foreldrar geti haft á börn sín seg- ir Gylfi: „Foreldrar eiga ekki að for- mæla fjármálafólki í neðsta víti frek- ar en einhverjum öðrum. Það er einfaldlega hluti af því að vera góð fyrirmynd. Aðgát skal höfð í nær- veru sálar,“ segir Gylfi sem bætir því við að auðvelt sé að kenna börnum sínum röng viðbrögð með því að bregðast við fréttum og umræðum með reiði og látum. Börn læri það sem fyrir þeim er haft. Samböndin sitja á hakanum Kolbrún Baldursdóttir segir langvar- andi áhyggjur eða reiði get leitt til þess að fjölskyldur liðist í sundur. „Á meðan líðanin er slæm situr allt annað á hakanum. Ef fólk hlúir ekki að samböndum sínum við aðra, til dæmis maka eða börn, langtímum saman endar það með því að fjöl- skyldan getur splundrast. Það er því mikilvægt að leita sér hjálpar,“ segir hún og bætir því við að fyrsta skrefið geti einfaldlega falist í því að leita að upplýsingum um jákvæða hugsun eða hvatningu á netinu, svo eitthvað sé nefnt. Gott geti reynst að lesa sér aðeins til áður en af stað er farið. Mikilvægt að hlæja Kolbrún segir engu að síður að margt sé hægt að gera til að létta lundina. Það þurfi ekki alltaf að fela í sér róttækar aðgerðir. „Ef þú ert til dæmis blankur og langar í eitthvað nýtt er hægt að taka fram skærin, fara í gegnum dótið sitt og breyta einni flík. Fólk finnur oft hluti sem það getur haft ánægju af þegar það fer að grafa. Svo er hægt að fara með dótið sitt á flóamarkaði og selja. Þú getur líka stofnað les- eða spila- klúbba með vinum þínum,“ segir Kolbrún. Hún segir hreyfingu líka mikilvæga til að létta á sálinni. „Það kostar ekkert að skella sér út í göngu eða hjóla í nágrenninu. Það getur hjálpað fólki,“ segir hún. fréttir 7. ágúst 2009 föstudagur 15 Berið virðingu fyrir reiðinni Hlífið börnunum Erfiðleikar í fjár- málum heimilisins eiga ekki erindi við börnin að mati sálfræðings. ráð gylfa Jóns til að svara börnunum: nHaldið fjármálaáhyggjum frá börnunum n Veitið börnum upplýsingar í samræmi við þroska n Segið þeim að þau þurfi engar áhyggjur að hafa, mamma og pabbi leysi málin n Snúið jákvæðu hlið kreppunnar að börnunum n Bölvið ekki fólki í návist barna, foreldrar eru fyrirmyndir n Leggið áherslu á samverustundir Aðgát skal höfð í nærveru sálar Gylfi Jón Gylfason yfirsál- fræðingur segir að börn læri það sem fyrir þeim er haft. 2 dálkar = 9,9 *10          Fyrir bústaðinn og heimilið Smáauglýsingasíminn er 515 5550 smaar@dv.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.