Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.2009, Blaðsíða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.2009, Blaðsíða 36
36 föstudagur 7. ágúst 2009 helgarviðtal Stendur sterkari eftir áföllin Þórunn Högnadóttir féll niður í mikið svartnætti þegar hún missti litla bróður sinn af slysförum fyrir tíu árum. Nokkrum árum síðar missti hún pabba sinn og nú nýlega missti Þórunn æskuvinkonu sína. Hún segir erfiðleikana hafa breytt sér. Í dag eyði hún ekki tímanum í fýlu og pirring heldur njóti lífsins og fólks- ins í kringum sig. Þ að var aldrei neinn draumur hjá mér að kom- ast í sjónvarp en ég hef alveg ofsalega gaman af þessu starfi,” segir Þór- unn Högnadóttir, förðun- arfræðingur, stílisti, sjónvarpskona og fyrrverandi þáttarstjórnandi Innlits/ útlits. Þórunn segir tilviljun hafa ráðið starfsvali hennar og að hún hafi kom- ið sjálfri sér á óvart með því hversu vel henni leið fyrir framan myndavélarn- ar. „Ég hef alltaf verið að breyta í kring- um mig og sem krakki var ég alltaf að færa og breyta, mála og raða upp á nýtt í hillurnar í herberginu mínu. Þetta byrjaði svo þegar Vala Matt kom í inn- lit hjá mér og hrósaði mér fyrir afslapp- aða framkomu fyrir framan myndavél- arnar. Um vorið var hringt í mig frá Skjá einum því þeir voru að leita að fólki til að vera með henni í þættinum, eitt leiddi af öðru og ég var þarna í fimm ár,“ segir Þórunn og bætir við að sá tími hafi verið ofsalega skemmtilegur. „Ég blómstraði alveg enda að gera það sem ég elska, það er að skapa og hjálpa fólki við að fegra heimilið. Það er ómetanlegt að sjá ánægjusvipinn á fólki eftir á og það er það sem ég fæ mest út úr. Það er svo skemmtilegt að sýna fólki hvað er hægt að gera án þess að eyða of miklum peningum í breyt- ingarnar.“ Erfitt að missa vinnuna Þórunn missti vinnuna þegar breyt- ingar voru gerðar á Skjá einum í fyrra- sumar og segir Þórunn uppsögnina hafa komið sér í opna skjöldu. „Það hafði verið mikið um mannabreyting- ar og þegar serían var að klárast var mér tilkynnt að samningur við mig yrði ekki endurnýjaður. Mér fannst svolítið ópersónulega staðið að þessu því ég hafði unnið við þáttinn svo lengi og leit á hann sem barnið mitt. En svona eru fjölmiðlarnir, eina stundina ertu inni en hina úti. Fólk fær engan fyrirvara. Þetta var samt æðislegur tími og frábært tækifæri fyrir mig.” Þórunn segist hafa átt erfitt með að kúpla sig út og gera sér grein fyrir að hún væri ekki lengur vinnandi kona heldur heima- vinnandi húsmóðir á atvinnuleysis- bótum. „Ég hafði verið með hugann við vinnuna allan sólarhringinn en var allt í einu komin í frí og átti bara að vera dóla mér. Mér fannst það mjög erfið umskipti og það tók mig örugg- lega þrjá mánuði að gera mér grein fyrir að ég væri atvinnulaus,“ segir hún en bætir við að hún hafi lært að meta að vera heima við. „Sérstaklega þeg- ar einkunnir barnanna fóru að rjúka upp. Það sló mig svolítið að sjá hversu miklu máli það skipti fyrir börnin að hafa mig heima.“ Svartnætti í kjölfar bróðurmissis Þórunn og eiginmaður hennar, Brand- ur Gunnarsson, eiga saman tvö börn, þau Tristan Þór og Birgittu Líf en fyr- ir á Þórunn soninn Aron Högna sem býr hjá ömmu sinni. „Ég missti bróðir minn og föður með stuttu millibili og þegar pabbi dó fór Aron Högni og bjó hjá mömmu til að veita henni stuðn- ing. Hann er bara á hóteli, hún hugs- ar svo vel um hann.“ Bróðir Þórunnar, Birgir Þór Högnason, lést af slysförum árið 1999 og hafði andlát hans mik- il áhrif á Þórunni. „Ég átti ofboðslega erfitt með að sætta mig við að hann væri dáinn og missti einfaldlega vitið. Við vorum mjög náin og ofsalega góð- ir vinir og þar sem hann var litli bróð- ir minn fannst mér eins og ég ætti að passa hann,“ segir Þórunn sem var með Tristan eins árs á þessum tíma. „Þetta var alveg svakalegt. Ég lokaði á alla mína nánustu og grét mig í svefn á hverjum degi á milli þess sem ég fór upp að leiðinu hans. Einu sinni mætti ég meira að segja með koddann minn upp í kirkjugarð og ætlaði að sofa við leiðið hans. Einn daginn tók ég svo ákvörðun að ég gæti ekki boðið fjöl- skyldunni upp á þetta lengur og fór að vinna í mínum málum. Það tók tíma en tókst á endanum með hjálp góðra manna.“ Fjórum árum síðar lést fað- ir Þórunnar eftir baráttu við veikindi. Hún segir föðurmissinn hafa verið erf- iðan en að hún hafi tekið þá ákvörðun að komast standandi í gegnum þá sáru reynslu. „Mér fannst svaklega erfitt og vont að missa pabba en ég var mun fljótari að jafna mig heldur en þeg- ar ég missti bróður minn. Ég var líka ákveðin í að gera fjölskyldunni minni þetta ekki aftur,“ segir hún og bætir al- varleg við: „Þegar ég hugsa til baka til þessa tíma skil ég ekki hvernig ég gat gert fjölskyldunni minni þetta enda ætlaði ég aldrei að gera þeim neitt. Ég bara réð ekki við neitt. Þetta var eigin- gjarnt af mér því ég lét eins og ég væri ein um að missa sem var ekki rétt. Ég áttaði mig bara ekki á því fyrr en ég var búin að leita mér hjálpar.“ Missti æskuvinkonu sína Þórunn er fædd og uppalin í Reykjavík en faðir hennar, Högni Björn Jónsson, var frá Vestmannaeyjum. Hann rak sitt eigið bifvélaverkstæði og var nýsestur í helgan stein þegar hann lést. Móðir Þórunnar, Hadda Halldórsdóttir, er frá V-Skaftafellssýslu og starfar hjá Póstin- um. „Ég var mikil pabbastelpa en eftir að hann lést urðum við mamma miklu nánari og í dag tölum við saman nán- ast á hverjum degi. Mamma er ótrú- lega sterk, búin að missa bæði son og eiginmann, og ég veit ekki um neina einustu manneskju sem er jafndug- leg og samviskusöm og hún. Ég er ekk- ert smá stolt af henni,” segir Þórunn og bætir við að sambandið við systur hennar Esther Gerði hafi einnig eflst við mótlætið sem mætt hafi fjölskyld- unni. Fyrir stuttu reið enn eitt áfallið yfir þegar Þórunn missti æskuvinkonu sína skyndilega. „Við vorum búnar að þekkjast síðan við vorum eins árs og bjuggum í sömu götu. Ég er eiginlega ekki búin að meðtaka það ennþá að hún sé farin,“ segir Þórunn og sárs- aukinn leynir sér ekki. Hún segir erf- iðleikana hafa gert sig sterkari og fyr- ir vikið horfi hún öðrum augum á þær efnahagsþrengingar sem Íslending- ar standi nú frammi fyrir. „Veraldlegir hlutir skipta engu máli en við þurfum stundum að banka í okkur til að muna það. Það er samt svakalegt þegar það þarf eitthvað svona til að maður átti sig.“ Tóku ekki þátt í góðærinu Þórunn segir fjölskylduna hafa að mestu sloppið við hremmingar í kjöl- far kreppunnar. Þau hjónin hafi verið skynsöm síðustu árin og ekki tekið þátt í eyðslusemi góðærisáranna. Það hafi því verið mikið sjokk þegar frétt þess efnis að þau væru í þann mund að missa hús sitt birtist á forsíðu Séð og heyrt. „Það var nú enn eitt áfallið. Mér fannst þetta virkilega óþægilegt því þótt margir væru að missa húsin sín höfð- um við gengið frá öllum endum áður en málið fór í nauðungarsöluferli. Það talaði aldrei neinn við okkur frá blað- inu og eins var farið með Arnar Gauta vin minn. Honum tókst að hlæja að þessu en mér fannst þetta hreint ekkert fyndið. Ég reyndi að gleyma þessu en það var erfitt því krakkarnir lentu í því að þurfa svara fyrir þetta í skólanum. Dóttir mín spurði mig hvort við mynd- um missa húsið, kennararnir voru að spurja krakkana út í þetta og vinirnir hringdu alveg í öngum sínum. Maður verður bara að hugsa þetta sem svo að þeim hljóti að finnast við svona merki- leg fyrst þeir birta svona fréttir af okkur. Við tókum ekkert þátt í þessu góðæri, hvorki við hjónin né Arnar Gauti, og því var þetta ljótt.” Þórunn og Brandur ráku fyrirtækið Face á þeim tíma sem hún missti bróður sinn. Þar sem hún hafi orðið óvinnufær eftir andlát hans hafi reksturinn ekki gengið en þau hjónin setið uppi með háar skuldir síð- an. „Við höfum verið að borga af þeim og höfum því ekki getað farið í þennan góðærispakka, sem betur fer kannski. Við höfum lifað spart þótt við leyfðum okkur eitthvað af og til. Við tókum alla- vega engin lán til að kaupa okkur ný húsgögn og erum til dæmis búin að aka sama bílnum í fjögur ár. Ef okkur vantaði eitthvað söfnuðum við fyrir hlutnum og erum því ekki með neinn skuldahala á eftir okkur. Ég hafði tekið þennan visaflippspakka þegar ég var yngri og lært af reynslunni,” segir hún en bætir við að samt sem áður finni þau fyrir kreppunni. „Maðurinn minn skipti um vinnu og launin mín lækk- uðu allsvakalega. Þetta eru viðbrigði en fyrir vikið lærir maður að meta þá peninga sem maður hefur.“ Býr til eigin sjónvarpsþátt Þórunn segist í kjölfar áfalla sem hún hafi orðið fyrir á lífsleiðinni hafa orð- ið ofsalega lífhrædd og að hún óttist sífellt að eitthvað komi fyrir hennar nánustu. „Ég má ekki heyra í sírenum án þess að óttast um börnin. Þetta er svakalega óþægileg tilfinning en ég veit ekki hvernig ég á að losna við hana og það er erfitt þegar áföllin eru alltaf að banka upp á.“ Hún segir það vissu- lega hafa verið áfall að missa vinnuna þótt það hafi verið ólíkt ástvinamiss- inum. „Það var erfitt að missa vinn- una enda í fyrsta skiptið sem ég er at- vinnulaus. Þetta er skrítin tilfinning,“ segir hún og bætir við að það sé erf- itt að finna vinnu eins og ástandið er í dag. Hún hafi þó ekki gefist upp og það sé aldrei að vita nema hún skapi sitt eigið starf. „Ég er alltaf að horfa í kringum mig og hef mikinn áhuga á starfi tengdu markaðs- og almanna- tengslum. Ég vil starfa í skapandi um- „við tókum ekkert þátt í þessu góðæri, hvorki við hjónin né arnar gauti, og því var þetta ljótt.“ Fjölskyldan Þórunn ásamt eiginmanni sínum, Brandi Gunnarssyni, og börnunum Tristan Þór og Birgittu Líf. Auk þess á Þórunn soninn Aron Högna.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.