Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.2009, Síða 12
Finnur Sveinbjörnsson, bankastjóri
Nýja Kaupþings, hefur verið nokkuð
í fréttum síðustu vikuna eftir að hann
fékk í gegn lögbann hjá sýslumann-
inum í Reykjavík vegna frétta RÚV
af útlánaskjali frá Kaupþingi rétt fyr-
ir bankahrun sem hafði verið lekið á
vefsíðuna Wikileak.org. Á miðviku-
dagskvöld rétt fyrir miðnætti birti
fréttasíðan Pressan síðan frétt af því
að stjórn Nýja Kaupþings hafi ekki
haft neitt með ákvörðun bankastjór-
ans um lögbannskröfu á fréttir Ríkis-
útvarpsins að gera.
Stjórn Nýja Kaupþings hélt stjórn-
arfund á þriðjudag þar sem sérstök
bókun var gerð um málið þar sem
það var harmað. Hulda Dóra Styrm-
isdóttir er stjórnarformaður Nýja
Kaupþings. Hún er sem kunnugt er
dóttir Styrmis Gunnarsson, fyrrver-
andi ritstjóra Morgunblaðsins. Berg-
hildur Erla Bernharðsdóttir, upp-
lýsingafulltrúi bankans, sendi síðan
póst til allra starfsmanna bankans
á miðvikudag þar sem hún tók fram
að Hulda Dóra hefði óskað eftir því
að bókuninni yrði komið áleiðis til
starfsmanna.
„Ég ætla ekki að blanda mér í
þessa deilu. Ég treysti því bara að
Kaupþingsmenn leysi þetta sjálfir,”
sagði Gylfi Magnússon viðskiptaráð-
herra í samtali við Vísi á fimmtudag.
Aðspurður sagðist Gylfi ekki eiga von
á því að þessi atburður hefði áhrif
á það ferli sem nú sé í gangi við að
koma bankanum í eigu kröfuhafa.
„Auðvitað er ekki gott fyrir bankann,
frekar en önnur fyrirtæki, ef það er
einhver ágreiningur innan stjórn-
endahópsins. En ég sé ekki ástæðu til
að ætla annað en að hann ráði bara
fram úr þessu,” sagði Gylfi.
Sjálfstæðismaður
Finnur varð bankastjóri þegar Hreið-
ar Már Sigurðsson lét af starfi eftir
yfirtöku Fjármálaeftirlitsins (FME) á
Kaupþingi síðasta haust. Hann hafði
stuttu áður verið skipaður í skila-
nefnd Kaupþings. Geir H. Haarde,
þáverandi forsætisráðherra, réð Finn
til forsætisráðuneytisins í febrúar
2008 en skömmu áður hafði Finni
óvænt verið vikið úr starfi banka-
stjóra hjá Icebank. Í febrúar 2008
vann forsætisráðuneytið að því að
kortleggja með hvaða hætti stjórn-
völd gætu komið að miðlun upplýs-
inga erlendis um íslensk efnahags-
mál. Réð Geir Haarde Finn til að
leggja hönd á plóginn við þetta verk-
efni.
Jón Sigurðsson, þáverandi stjórn-
arformaður FME, réð síðan Finn sem
formann skilanefndar Kaupþings við
yfirtöku FME á bankanum. Finnur
var skrifstofustjóri í viðskiptaráðu-
neytinu á árunum 1991 til ársins
1995 þegar Jón var iðnaðar- og við-
skiptaráðherra fyrir Alþýðuflokk-
inn. Heimildarmaður sem DV ræddi
við sagði að Finnur væri ekki flokks-
bundinn en að hann væri stuðnings-
maður Sjálfstæðisflokksins. „Hann
er í flokknum líkt og menn af hans
kynslóð,“ sagði heimildarmaður DV.
Hress og kátur
„Það er margt gott hægt að segja um
Finn. Hann er hress og kátur og kem-
ur ágætlega fyrir,“ segir starfsmaður
hjá Nýja Kaupþingi. Hann hefði þó ef
til vill þurft að vera meira afgerandi
hjá bankanum. Viðmælandi sem DV
ræddi við hafði á orði að starfsmönn-
um Nýja Kaupþings fyndist Finnur
ekki hafa gert hreint fyrir sínum dyr-
um vegna starfa sinna sem forstjóri
Icebank. Starfsmaðurinn sem DV
ræddi við var ekki sammála þessu.
Sagði Finn hafa svarað nokkuð vel
fyrir sig í DV þegar fjallað var um 850
milljóna króna kúlulán hans. Hann
segir að það hafi þó komið starfs-
mönnum Kaupþings á óvart þegar
Finnur var ráðinn til bankans. Þeir
hafi búist við að einhver innan Kaup-
þings yrði ráðinn líkt og hjá Lands-
bankanum og Glitni.
Glöggur og nákvæmur
„Finnur er alveg sérstaklega ná-
kvæmur maður. Það er bæði hans
helsti kostur og galli líka,“ segir Agnar
Hansson, forstöðumaður markaðs-
viðskipta hjá H.F. Verðbréfum. Agn-
ar starfaði með Finni hjá Icebank og
tók við forstjórastöðunni þegar Finn-
ur lét þar af störfum.
Fyrrverandi samstarfsmað-
ur Finns lýsti honum sem ákaflega
glöggum manni og nákvæmum.
„Hann er mjög fljótur að átta sig á
hlutum sem bornir eru fyrir hann.
Mjög vinnusamur. Hann fer yfir það
og les sem að honum er beint og ger-
ir það mjög vandlega,“ sagði hann
spurður um Finn sem samstarfs-
mann. Hann segir að Finnur hafi
þróast nokkuð hratt í viðskiptalífinu
þrátt fyrir að hafa unnið töluvert mik-
ið hjá hinu opinbera. „Hann hafði
einhvern tímann það viðurnefni að
vera kerfismaður komandi frá hinu
opinbera. Ég held að hann hafi fljót-
lega unnið sig út úr því hafi það ein-
hvern tímann verið réttnefni,“ segir
fyrrverandi samstarfsmaður Finns.
Hann telur aðspurður að Finnur
finni sig í starfi sínu sem bankastjóri
Nýja Kaupþings. „Ég er viss um að
hann klárar það verkefni vel. Þarna
er ekkert annað en bunki af vanda-
málum og flækjum sem þarf að leysa.
Með glöggskyggni, skipulagi og ög-
uðum vinnubrögðum hefur Finnur
það sem þarf í það,“ segir hann.
Fyrirliði hjá KR
Í samtali við DV lýsir Gunnar bróð-
ir Finns honum sem miklum fjöl-
skyldu- og útivistarmanni. „Hann
gengur á fjöll langt yfir meðaltali,“
segir Gunnar hlæjandi. Þau hjónin
hafi meðal annars ferðast til útlanda
til að ganga á fjöll. Finnur gangi rösk-
lega til verks í útivistinni líkt og í öðru
sem hann taki sér fyrir hendur. Finn-
ur er að mati Gunnars mjög ákveð-
inn og skipulagður að eðlisfari. Hann
hafi verið mjög góður námsmaður.
Finnur lærði hagfræði í Bretlandi og í
Bandaríkjunum. Hann og kona hans
Dagný stunduðu bæði meistaranám
í Minneapolis en hún er menntað-
ur verkfræðingur. „Finnur var mjög
metnaðarfullur námsmaður,“ segir
Gunnar um bróðir sinn.
Hann segir Finn taka starf sitt hjá
Kaupþingi með sama hætti og önnur
störf. „Hann er góður undir pressu.
Það hefur alltaf loðað við hann að
hann sé skipulagður og stundum sagt
að Finnur sé of skipulagður í því sem
hann tekur sér fyrir hendur. Geng-
ur ákveðinn til verks og heldur áætl-
un,“ segir Gunnar. Þessir kostir nýtist
honum vel í starfi sínu hjá Kaup-
þingi. Ef nefna eigi einhverja ókosti
segir hann að Finni hætti stundum
til að einfalda hlutina um of. Finn-
ur þótti efnilegur knattspyrnumaður
og var fyrirliði í yngri flokkum hjá KR.
Segir Gunnar að það lýsi Finni vel að
hann hafi valist til þess að gegna fyr-
irliðastöðunni. „Hann sækist eftir því
að taka leiðtogahlutverkið.“
Missti föður sinn eins árs
Finnur Sveinbjörnsson er fæddur
árið 1958. Sonur Agnesar Egilsdótt-
ur kennara og Sveinbjörns Finns-
sonar stýrimanns. Faðir hans lést af
slysförum þegar Finnur var nýorðinn
eins árs árið 1959. Var hann einungis
24 ára gamall þegar hann lést. Svein-
björn var stýrimaður á vitaskipinu
Hermóði sem fórst út af Reykja-
nesi með 12 manna áhöfn í febrúar
1959. Var honum lýst sem afbragðs
námsmanni. Sveinbjörn var yngstur
þeirra sem hafði lokið skipstjórnar-
prófi á varðskipum ríkisins árið 1957.
Í minningargrein um hann var hann
sagður í hópi þeirra ungu manna
hjá Landhelgisgæslunni sem mestar
vonir voru tengdar við í framtíðinni
vegna óvenjulegra mannkosta.
Sveinbjörg, systir Finns, fædd-
ist mánuði eftir að faðir þeirra lést.
Móðir Finns tók síðar saman við
12 föstudagur 7. ágúst 2009 fréttir
F15270709 finnursvei 23.jpg
eða
F15270709 finnursvei 05.jpg
Ljósmyndari: Valgarður Gíslason
DV0030130207 Bankar, fjármálastof 033.jpg
Ljósmyndari: Stefán Karlsson
Annas Sigmundsson as@dv.is
____________
Kassi:
KOSTAÐI ÞJÓÐINA YFIR HUNDRAÐ MILLJARÐA
annaS SiGMundSSon
blaðamaður skrifar: as@dv.is
„Finnur er alveg sér-
staklega nákvæmur
maður. Það er bæði
hans helsti kostur og
galli líka.“
Finnur Sveinbjörnsson, bankastjóri Kaupþings, er í erfiðri
aðstöðu eftir lögbannið sem hann fékk samþykkt á fréttaflutn-
ing og síðar yfirlýsingu bankastjórnar sem þvó hendur sínar
af ákvörðuninni. Honum er líst sem sérstaklega nákvæmum
manni og miklum leiðtoga. Hann var bankastjóri Icebank
þegar sá banki fór á fullt í endurhverf viðskipti við stóru við-
skiptabankana, viðskipti sem á endanum kostuðu Seðlabank-
ann 150 milljarða króna og stuðluðu að gjaldþroti hans.
Ráðinn í stjórnarráðið Stuttu eftir að
Finnur var rekinn úr Icebank réði Geir H.
Haarde hann í forsætisráðuneytið.