Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.2009, Side 23
fréttir 7. ágúst 2009 föstudagur 23
MORÐ Á ÍSLANDI
BAÐ SéR
vægÐAR ÁN
ÁRANguRS
n Aðfaranótt 2. október árið 1997
var maður ginntur upp í Heiðmörk
af ungum tvíburum sem hugðust
ræna hann. Mennirnir höfðu hist á
skemmtistað og plötuðu tvíbur-
arnir manninn með sér með því
að þeir ætluðu á annan skemmti-
stað. Í Heiðmörk lagði maðurinn
á flótta en árásarmennirnir náðu
honum og greip annar tvíburanna
stóran stein og barði með honum
hvað eftir annað í höfuð hans þrátt
fyrir að hann bæði sér vægðar.
Árásarmennirnir höfðu upp úr
krafsinu nokkur þúsund krónur
en þegar þeir óku af stað keyrði
hinn bróðirinn yfir manninn. Sá
sem lamdi manninn með steini
var dæmdur í sextán ára fangelsi.
Hann hafði verið greindur með
geðklofa á byrjunarstigi en ekki
var orðið við óskum um að hann
yrði vistaður á réttargeðdeild-
inni á Sogni. Hinn bróðirinn var
í héraðsdómi dæmdur til átta ára
fangelsisvistar en dómurinn var
þyngdur í tólf ár í Hæstarétti.
Barinn til Bana með hamri
n 9. nóvember árið 2000 var 27 ára karlmaður myrtur af viðskiptafélaga sínum í Öskjuhlíð. Þegar ekkert
spurðist til unga mannsins um daginn vöknuðu strax grunsemdir um að eitthvað óvenjulegt væri á ferð-
inni. Hvarf hans var frá upphafi rannsakað sem sakamál. Bíll unga mannsins fannst við Hótel Loftleið-
ir og þótti sýnt að hann hefði verið færður þangað eftir að farið var að grennslast fyrir um ferðir hans.
Blóð fannst í bifreiðinni. Gífurleg leit var skipulögð að manninum og tóku vinir og kunningjar hans þátt
í henni, meðal annars viðskiptafélagi hans sem lýsti í DV yfir örvilnan sinni yfir hvarfi vinar síns. Tæpri
viku eftir að ungi maðurinn hvarf var viðskiptafélaginn handtekinn, enda taldi lögregla að hann hefði
logið til um mikilvæg atriði er vörðuðu hvarf mannsins. Játaði hann fljótlega á sig morðið og að hafa
falið líkið í hraunsprungu á Reykjanesi. Morðinginn var háður fíkniefnum og fjármál hans voru í mikl-
um ólestri. Kom til deilna þeirra á milli í Öskjuhlíð vegna skuldbindinga sem hann hafði tekið á sig
vegna verslunar sem þeir voru að opna. Morðinginn sagði að fát hefði komið á sig og hann barið unga
manninn til bana með hamri. Hann var dæmdur til sextán ára fangelsisvistar.
MORÐINgINN hAtAÐI
fóRNARLAMBIÐ LeNgI
n Um klukkan hálf fimm að nóttu fimmtudaginn 9. maí
árið 1968 var maður skotinn til bana á annarri hæð húss-
ins á Tómasarhaga 25. Heimilisfólkið hafði vaknað við að
maður braust inn í íbúðina og þegar það kom að skaut
innbrotsmaðurinn eiginmanninn nokkrum skotum fyrir
framan eiginkonu hans, dóttur og son. Eiginkonan þekkti
morðingjann í sjón og með nafni. Lögreglan var því fljót
að hafa uppi á honum. Við vitnaleiðslur kom fram að
morðinginn hefði hatað fórnarlambið lengi. Hann hafði
ákveðið að fara til mannsins með byssu að vopni, ann-
aðhvort til að hræða hann eða vinna honum tjón. Eftir
að hafa bankað á dyrnar án þess að fá svar varð hann
ævareiður, braust inn og framdi ódæðið. Morðinginn var
dæmdur til sextán ára fangelsisvistar.
lamdi mann
til dauða með
slökkvitæki
n Sunnudaginn 7. október árið 2007 var
lögreglan kölluð út að íbúð við Hringbraut
í Reykjavík. Þegar lögregla kom á vettvang
var maður á vappi í íbúðinni, ákaflega
drukkinn. Í rúmi lá maður alklæddur með
sæng og kodda yfir höfði. Þegar lögreglu-
menn lyftu líninu af höfði mannsins komu í
ljós alvarlegir áverkar vinstra megin í andliti.
Blóðslettur voru á rúmgafli og veggnum við
höfðagaflinn. Duft úr slökkvitæki var í andliti
hans. Maðurinn lést af sárum sínum klukkan
23.30 um kvöldið. Hann var höfuðkúpubrot-
inn á þremur stöðum og hlaut af því miklar
heilablæðingar sem drógu hann til dauða.
Hinn maðurinn var sakfelldur fyrir að hafa
barið hinn látna til bana með slökkvitæki í
íbúð fórnarlambsins. Í aðdraganda voðaverks-
ins höfðu mennirnir báðir verið við neyslu
áfengis og lyfja. Upptökur úr myndavélum í
anddyri hússins sýndu hvar mennirnir áttu í
erjum. Morðinginn játaði aldrei verknaðinn en
var dæmdur í sextán ára fangelsi og þurfti að
greiða aðstandendum fórnarlambsins ríflega
hálfa milljón í miskabætur auk málskostnaðar.
MyRtI BARN
þvÍ hANN vAR
eINMANA
n Maður braust inn í bragga númer eitt við Há-
teigsveg laugardagskvöldið 3. maí árið 1947. Mað-
urinn var vopnaður saxi og ætlaði að ráðast á hvern
þann sem fyrir honum yrði. Í skálanum voru tvö
börn, átta ára stúlka og barn á öðru ári. Móð-
ir barnanna var í öðru húsi örskammt frá en
faðirinn hafði nýlega brugðið sér úr skálanum.
Morðinginn réðst fyrst á yngra barnið og banaði
því með mörgum stungum. Í því kom stúlkan að
honum og ætlaði að hjálpa barninu.
Þá réðst morðinginn á hana og skar
og særði hana illa. Henni tókst við
illan leik að komast út. Hún hljóp til
móður sinnar og gerði henni viðvart áður en það
leið yfir hana. Móðirin fór að skálanum og varð þá
fyrir árás morðingjans. Eftir mikil átök slapp móð-
irin og náði í hjálp. Lögreglan kom á vettvang og
handtók morðingjann. Yngra barnið lést en móð-
irin og stúlkan jöfnuðu sig eftir að hafa dvalið um
skeið á sjúkrahúsi. Við vitnaleiðslur sagðist glæpa-
maðurinn hafa verið einmana og vitað að lögregl-
an kæmi að hirða hann ef hann gerðist morðingi.
Hann var dæmdur til þess að sæta öruggri gæslu
ævilangt.
rifust um siðareglur víetnama
n Lögreglunni í Kópavogi barst tilkynning klukkan hálf ellefu sunnudaginn 15. maí árið
2005 um að maður hefði verið stunginn með hnífi að Hlíðarhjalla 65 í Kópavogi. Þegar lög-
reglu bar að garði stóð maður við innkeyrsluna að Hlíðarhjalla 63-73 og fylgdu lögreglu-
menn honum að Hlíðarhjalla 65. Í anddyrinu var hópur manna, bæði börn og fullorðnir,
sem hrópuðu að maður væri dáinn uppi á þriðju hæð. Þegar lögreglumenn komu upp á
stigapall þriðju hæðar hittu þeir fyrir konu og mann sem héldu á fórnarlambinu. Maðurinn
var þá látinn. Lögreglumenn handtóku árásarmanninn sem var áberandi ölvaður. Dán-
arorsök fórnarlambsins var stungusár á brjóstkassa. Hinn látni var einnig með stungusár
á hægri framhandlegg, skurðsár á hægri vísifingri og hægri hendi. Hinn látni hafði einnig
verið undir áhrifum áfengis. Mennirnir tveir voru báðir frá Víetnam og spruttu upp deilur
þeirra á milli um hvort siðareglur í heimalandi þeirra ættu að gilda í samskiptum Víetnama
sem búsettir væru á Íslandi. Morðinginn var dæmdur í sextán ára fangelsi. Hann var einnig
dæmdur til að greiða ekkju hins látna rúmlega sjö milljónir króna í skaðabætur og dótt-
ur hans tæplega fimm milljónir. Þá þurfti hinn dæmdi að greiða öðrum manni sem hann
stakk með hnífi hálfa milljón.
MyRtI MANN Og fLúÐI LAND
n 47 ára karlmaður var myrtur með búrhníf í íbúð sinni á Leifsgötu aðfaranótt miðviku-
dagsins 14. júlí árið 1999. Morðið uppgötvaðist hálfum sólarhring síðar þegar nágranni
hafði samband við lögreglu. Böndin bárust fljótt að manni sem hafði verið handtekinn um
nóttina, blóðugur í miðbænum. Hann var hins vegar flúinn af landi brott, hafði flogið til
Kaupmannahafnar undir fölsku nafni. Hann var handtekinn þar í borg 18. júlí. Í fyrstu ját-
aði maðurinn á sig morðið og bar því við að hann og fórnarlambið hefðu átt óútkljáð pen-
ingamál. Þeir hefðu neytt fíkniefna saman og deilur stigmagnast þar til fórnarlambið lá í
valnum. Maðurinn játaði einnig á sig verknaðinn í tímaritsviðtali en fyrir dómi kvaðst hann
saklaus. Hann var engu að síður dæmdur til sextán ára fangelsisvistar.
MORÐ eINA LeIÐIN tIL AÐ
LOSNA vIÐ eIgINMANNINN
n 27 ára kona myrti 38 ára eiginmann sinn sunnudaginn 25. janúar árið 1981 í íbúð þeirra í
Kötlufelli 11. Konan hellti yfir hann bensíni og kveikti í þar sem hann svaf ölvunarsvefni. Með
þessu stefndi hún um leið lífi annarra íbúa hússins í hættu. Hjónin bjuggu í íbúðinni ásamt
tveimur ungum börnum sínum, fimm ára dreng og sex ára stúlku, sem konan fór með út úr
íbúðinni skömmu fyrir verknaðinn. Sambúðarörðugleikar höfðu verið í hjónabandinu vegna
ofneyslu mannsins á áfengi og konan taldi þetta einu leiðina til að losna við eiginmanninn.
Þess má geta að hún sneri aftur til íbúðarinnar nokkru eftir íkveikjuna til að leita hjálpar en
það var orðið of seint. Hún hlaut fjórtán ára fangelsisdóm.