Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.2009, Page 24
24 föstudagur 7. ágúst 2009 fréttir
Enginn
sakfElldur
fyrir morðið
n Klukkan 7.15 að morgni fimmtudagsins
18. janúar árið 1968 var lögreglan kvödd að
bílastæði við Laugalæk, nokkuð fyrir norð-
an Sundlaugaveg, þar sem eitthvað þótti
athugavert við ökumann leigubifreiðar sem
þar var. Við athugun kom í ljós að maður-
inn, sem var 42 ára, var látinn eftir að hafa
verið skotinn í hnakkann. Þrátt fyrir mikil
réttarhöld var enginn maður sakfelldur
fyrir morðið.
Hnéspark í Höfuð
n Aðfaranótt laugardagsins 25. maí árið
2002 veittust tveir rúmlega tvítugir pilt-
ar að pilti á svipuðum aldri í Hafnar-
stræti með þeim afleiðingum að hann
lét lífið. Í ákæru kom fram að þeir hefðu
slegið hann mörg hnefahögg í andlitið,
skallað hann og sparkaði í höfuð hans
með hné. Einnig að hafa margsinnis
sparkað af afli í höfuð hans með hné
og fæti eftir að hann féll í götuna. Þeir
voru dæmdir í tveggja og þriggja ára
fangelsi. Sá sem fékk þyngri dóminn
var að auki dæmdur fyrir tvær aðrar
líkamsárásir.
ögraði
morðingjanum
n Þann 1.apríl árið 1979 drap 36 ára
maður 57 ára mann með því að stinga
hann með hníf í síðu og veita skurði á
maga og brjósti og að lokum tvo skurði
á hálsi. Fórnarlambið hafði ögrað morð-
ingjanum með því að spyrja hvort hann
þyrði að drepa sig. Ódæðisverkið var
framið í íbúð hins látna á efstu hæð
hússins á Hverfisgötu 34.
sEtti líkið í
baðkarið
n Að morgni 7. janúar árið 1967 braust 39
ára karlmaður inn í hús fyrrverandi eig-
inkonu sinnar á Kvisthaga 25 með því að
brjóta rúðu í útihurðinni með buffhamri.
Í húsinu var konan stödd ásamt börnum
og annarri konu. Eftir langt og ofsafeng-
ið rifrildi við fyrrverandi konu sína réðst
hann á hana og reyndi að hýða hana.
Hin konan réðst á manninn en hann skar
hana þá í fótinn með kjöthníf sem hann
hafði meðferðis. Þegar sonur hans fór úr
íbúðinni, rúmlega átta, réðst hann svo á
eiginkonuna fyrrverandi og stakk hana
til bana með hnífnum. Hann dró hana
síðan inn í baðherbergið og setti líkið í
baðkarið. Þegar þarna var komið höfðu
nágrannar konunnar hringt á lögreglu.
Morðinginn tók á móti lögreglunni á
tröppum hússins og hlaut hann sextán
ára fangelsisdóm.
kyrkti barns-
móður sína
n Lögreglunni í Reykjavík var tilkynnt
um hvarf 33 ára gamallar konu 5. júlí
2004. Rannsókn hófst strax næsta dag
og fljótlega vöknuðu grunsemdir um
refsivert athæfi og að ekki væru eðlilegar
skýringar á hvarfi hennar. Eftir ítarlega
vettvangsrannsókn í íbúð við Stórholt
í Reykjavík þar sem síðast var vitað af
henni var barnsfaðir hennar og fyrrver-
andi sambýlismaður handtekinn. Hann
játaði morðið og sagðist hafa varp-
að líki hennar fram af klettum á Kjal-
arnesi. Leitarhundar, þyrla og kafarar
voru notaðir við leit að líki konunnar.
Frekari rannsóknir á Kjalarnesi gerðu
frásögn hins handtekna ótrúverðuga og
þann 3. ágúst féllst hann á að vísa lög-
reglunni á líkið. Hann hafði komið því
fyrir í hraunsprungu utan við Hafnar-
fjörð. Líkið var í drapplituðum, sænsk-
um póstpoka úr næloni og var bund-
ið fyrir hann með gallabuxum. Pokinn
var þakinn grjóti. Maðurinn kvaðst hafa
slegið konuna nokkrum sinnum með
kúbeini þótt hann myndi ekki eftir því.
Hann viðurkenndi að hafa brugðið belti
um háls hennar og hert að. Í ljós kom við
krufningu að konan lést sökum kyrking-
ar. Maðurinn var dæmdur í sextán ára
fangelsi. Hann var einnig dæmdur til að
greiða börnum konunnar samtals 21,8
milljónir króna í bætur.myrti eigin-
konuna meðan
börnin sváfu
n Aðfaranótt mánudagsins 1. nóvem-
ber árið 2004 var lögreglunni í Kópavogi
tilkynnt um að manndráp hefði átt sér
stað í íbúð í fjölbýlishúsi í Hamraborg 38
í Kópavogi. Þegar lögreglumenn mættu á
vettvang beið þeirra maður á stigapallin-
um fyrir utan umrædda íbúð. Hann var
greinilega í uppnámi og sagðist hafa myrt
eiginkonu sína og hún lægi á gólfinu í for-
stofu íbúðarinnar. Maðurinn hafði banað
konunni með því að bregða þvottasnúru
um háls hennar og þrengja að. Tvö börn
þeirra hjóna voru í íbúðinni, fjögurra ára
gömul stúlka og eins árs drengur, en þau
urðu einskis vör og voru sofandi þegar lög-
regla kom á staðinn. Maðurinn var dæmd-
ur í níu ára fangelsi en málinu var skotið
til Hæstaréttar og þar var hann dæmdur í
ellefu ára fangelsi.
Örlagaríkir
ástarlEikir
n 1. október árið 1961 ákváðu hjón á
Laugarnesvegi 118 að stunda ástar-
leiki á svefnbekk frammi í stofu svo
þau vektu ekki krakkana. Eiginkonan
var drukkin og varð á að hrópa í sífellu
nafn annars manns en eiginmannsins.
Við það rann æði á eiginmanninn sem
barði konuna svo illa að dauði hlaust af.
Börnin höfðu vaknað við átökin. Mað-
urinn hélt þeim þó frá stofunni þar sem
atburðurinn hafði átt sér stað. Hann
hlaut sex ára fangelsi fyrir verknaðinn.
Vaknaði Við
samfarir í
Endaþarm
n Aðfaranótt 17. september árið 1981
svipti 28 ára maður annan mann lífi
með því að stinga hann með tvennum
skærum og hnífi, um eða yfir tuttugu
stungur ofan til á bringu og ofanvert á
kvið, þar á meðal í gegnum hjartað og
lifur og inn í lungu og maga. Að síðustu
rak hann önnur skærin á kaf í vinstri
augntóft þannig að þau stóðu langt
inn í heila. Í vitnisburði sínum sagði
morðinginn að hann og fórnarlambið
hefðu farið heim til þess síðarnefnda á
Grenimel 24 og gert sér þar glaðan dag.
Hann hefði hins vegar vaknað upp við
að maðurinn hafði við hann samfarir í
endaþarm. Morðinginn sagðist þá þurfa
að fara á salernið og var leyft það. Þegar
fram var komið náði hann sér í vopn,
sneri til baka og framdi morðið. Morð-
inginn fékk átta ára fangelsi.
Vafði kÖðlum
um háls konu
sinnar
n 52 ára maður svipti 27 ára eig-
inkonu sína lífi á heimili þeirra í
risíbúð á Klapparstíg 11 snemma
morguns þann 10. janúar árið 1988.
Hann misþyrmdi henni með spörk-
um í andlit og höfuð og vafði síðan
köðlum um hálsinn á henni þannig
að skjaldbrjóstið??? brotnaði og
hún kafnaði. Morðinginn
ætlaði að láta þetta líta út
sem konan hefði framið
sjálfsmorð en sannleikurinn
kom í ljós eftir að líkið var rann-
sakað. Hann var dæmdur í tíu ára
fangelsi.
stungu mann mörgum sinnum með melspíru
n Starfsmaður Esso-stöðvarinnar í Stóragerði hleypti tveimur mönnum inn í stöðina til að
gefa þeim kaffi fyrir opnun klukkan rúmlega sjö þann 25. apríl árið 1990. Ætlun mannanna
var að ræna stöðina. Annar þeirra sló þungum hlut í höfuð starfsmannsins sem féll til jarðar.
Starfsmaðurinn veitti ekki mótspyrnu þar sem hann óttaðist mjög um líf sitt. Þessu næst slógu
mennirnir hann aftur í hnakkann og tóku síðan til við að stinga hann mörgum stungum með
melspíru í brjóst og bak. Annar morðinginn lýsti þessu svo að hann hefði talið að melspírunni
væri stungið í gegnum fórnarlambið hvað eftir annað þar sem dynkir heyrðumst við hverja
stungu. Eftir þetta rændu morðingjarnir stöðina. Annar þeirra fékk sautján ára fangelsisdóm en
hinn sextán ára.
rifrildi um húfu olli morði
n Að kvöldi föstudagsins 13. september árið 1985 áreitti sextán ára unglingspiltur annan strák,
sem var ári yngri. Sá var með blettaskalla og var þess vegna ávallt með húfu á höfði. Sá fyrrnefndi
tók húfuna nokkrum sinnum af þeim yngri og kastaði henni í burtu. Eftir að sá eldri hafði spark-
að í bakið á honum, gerði sá yngri honum grein fyrir því að ef hann tæki húfuna af sér einu sinni
enn myndi hann drepa hann. Sá eldri hló og reif húfuna aftur af honum. Unglingurinn stóð við
yfirlýsinguna og stakk þann eldri í hjartastað. Atburðurinn átti sér stað fyrir utan skemmtistaðinn
Villta tryllta Villa við Skúlagötu. Strákurinn var dæmdur í fjórtán ára skilorðsbundið fangelsi.
myrti dóttur sína mEðan hún sVaf
n Mál móður sem varð dóttur sinni að bana og særði son sinn á heimili þeirra á Hagamel í lok
maí 2004 vakti óhug meðal landsmanna. Móðirin, sem þá var á fimmtugsaldri, varð tólf ára dóttur
sinni að bana á heimili þeirra á meðan dóttirin svaf og særði eldri bróður hennar með hnífi. Dreng-
urinn náði að komast alvarlega slasaður út af heimili sínu og heim til vinar síns og móður hans við
Kaplaskjólsveg. Móðirin var flutt á gjörgæslu og talið að hún hefði reynt að svipta sig lífi eftir að hafa
orðið dóttur sinni að bana. Ríkissaksóknari ákærði konuna fyrir manndráp og tilraun til manndráps.
Konan bar við minnisleysi um atburðinn. Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi móðurina seka. Hún
var einnig dæmd til að greiða syni sínum 1,5 milljónir króna í skaðabætur. Móðirin var metin ósak-
hæf og var vistuð á réttargeðdeild að Sogni.
myrti mann í
afbrýðissEmiskasti
n Lögreglan kom að manni liggjandi í blóði sínu
í kjallara á Snorrabraut 23 aðfaranótt sunnu-
dagsins 22. ágúst árið 1993. Maðurinn hafði verið
stunginn með fiskhnífi. Tvær konur tóku á móti
lögreglunni og var önnur þeirra sambýliskona
hins látna og hin fyrrum sambýliskona morðingja
mannsins. Morðinginn hafði frétt á Keisaranum
að fyrrum sambýliskona hans væri stödd í íbúð á
Snorrabrautinni. Hann fylltist afbrýðisemi, fór inn
á Snorrabraut, óð inn í íbúðina og myrti mann-
inn. Þetta var í annað sinn sem morðinginn svipti
mann lífi. Í þetta sinn rauf hann skilorð vegna
dóms fyrir fyrra morðið. Hann hlaut tuttugu ára
dóm.
Þurfti að drepa sál 67 ára manns
n Tæplega ellefu að morgni 17. nóvember árið 1988 kom lögreglan að líki manns þar sem
hann hefði legið í tvo daga í stofunni í íbúð sinni á Lynghaga 11. Maðurinn sem var 67 ára lá
á bakinu og sneri höfðinu upp að vegg sem búið var að rita á með blóði stórum stöfum „BA-
DER MEINHOF“ og vísir að krossi hermdarverkamanna PLO fyrir framan orðin. Á hálsi hins
látna var langur og djúpur skurður sem virtist vera eftir eggjárn, tíu hnífstungur voru á bak-
inu, til viðbótar við stungur við nára, getnaðarlim og lófa. Þá var búið að skera manninn á hol
og koma fyrir talstöð inni í honum. Morðinginn, sem var 38 ára, var handtekinn klukkan 18
sama dag. Hann hafði litið á verknaðinn sem nauðsynlegan þátt í verkefni sínu gegn meintu
samsæri ýmissa nafntogaðra einstaklinga. Hann kvaðst hafa þurft að drepa sál þess látna og
því hefðu aðferðirnar verið svona hrottalegar. Ákærði var úrskurðaður geðveikur og dæmdur
til að sæta öryggisgæslu á viðeigandi stofnun.
átÖk Eftir
drykkju
n Þann 23. júlí árið 2000 fannst 47 ára
maður látinn í íbúð við Leifsgötu. 38
ára kona var handtekin og ákærð fyrir
að drepa hann með því að herða bindi
að hálsinum á honum. Þau höfðu set-
ið að drykkju í íbúðinni ásamt
íbúðareiganda og kannaðist
konan við að hafa lent í átökum
við manninn. Héraðsdómur dæmdi
konuna í fjórtán ára fangelsi en Hæsti-
réttur mildaði refsinguna í tólf ár.
drap mann
með kjötexi
og slagHamri
n Aðfaranótt 18. febrúar árið 2002
réðst 24 ára karlmaður á 51 árs mann
á Víðimel. Veitti hann manninum fjöl-
marga höggáverka á höfuð með kjö-
texi og slaghamri. Líklegt var að
árásarmaðurinn hefði rekist á
fórnarllambið af tilviljun, en
árásarmaðurinn var und- ir
áhrifum fíkniefna þegar
verknaðurinn var framinn.
Hann var dæmdur í sextán
ára fangelsi.
banaði stúlku og Hótaði
lögreglumönnum
n Héraðsdómur Reykjaness dæmdi 24 ára mann í fjórtán ára fangelsi árið 2001 fyr-
ir að hafa banað stúlku í maí árið 2000. Hæstiréttur þyngdi refsinguna í sextán ár.
Maðurinn hrinti stúlkunni yfir 119 sentímetra hátt handrið á svölum á tíundu hæð
fjölbýlishúss við Engihjalla í Kópavogi. Maðurinn neitaði sakargiftum og hélt því
fram að stúlkan hefði fallið fram yfir handriðið eftir að hann ýtti á öxl hennar. Frá-
sögn hans stóðst ekki meðal annars vegna þess að þegar lík stúlkunnar fannst voru
smekkbuxur vafðar um ökkla hennar sem voru dregnar niður fyrir fallið. Maðurinn
var færður á Landspítalann í Fossvogi til líkamsskoðunar og hafði þar í hótunum við
lögreglumenn. Einnig tók hann upp á því að flauta og líkja með þeim hætti eftir falli
hlutar úr mikilli hæð með tilheyrandi dynk við lendingu. Maðurinn þurfti að borga
foreldrum stúlkunnar alls 1,7 milljónir í skaðabætur og útfararkostnað.
kyrktu áfEngis-
dauðan mann
n Þann 19. júlí árið 1977 drápu tveir
menn, 45 og 46 ára, fimmtugan karl-
mann í fangageymslu lögreglunnar á
Hverfisgötu 113 þar sem fjórir menn
voru geymdir. Þeir kyrktu manninn,
þar sem hann svaf ölvunarsvefni í
klefanum, með því að herða belti að
hálsi hans. Gleymst hafði að taka belt-
ið af öðrum þeirra áður en honum var
stungið inn. Þeir hlutu báðir átta ára
dóm.