Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.2009, Síða 30
um helgina
Evrópufrumflutningur Óperukórinn í Reykjavík og The New
England Youth Ensemble halda tónleika í Skálholtskirkju og Langholtskirkju dagana
12. og 13.ágúst. Það er Garðar Cortes sem stýrir sveitunum saman en þar verður flutt
óratorían The Vision of the Apocalypse eftir Virginia-Gene Rittenhouse. Hér er um
Evrópufrumflutning á verkinu að ræða en óratorían var frumflutt í Carnegie Hall
í New York árið 2004. Fyrri tónleikarnir eru í Skálholtskirkju klukkan 20.00
þann 12. og þeir seinni í Langholtskirkju klukkan 20.00 þann 13. ágúst.
gítardúEtt á
gljúfrastEini
Gítardúettinn Duo Nor leikur á
Gljúfrasteini á sunnudaginn. Dúett-
inn skipa þeir Ómar Einarsson og
Jakob Hagerdorn-Olsen. Á efnis-
skránni verður bæði frumsamið efni
og þekktar djassperlur, undir áhrif-
um latín- og sveiflustíls í útsetning-
um fyrir tvo klassíska gítara. Ómar
nam bæði klassískan gítar- og djass-
gítarleik við djassdeild FÍH Hann
hefur leikið með fjölmörgum af
kunnustu djassleikurum hér á landi.
Hagerdorn-Olsen er menntaður gít-
arleikari og kennari frá Det Konge-
lige Danske Musikkonservatorium
og Det Fynske Musikkonservatori-
um og nam svo djassgítarleik við
FÍH. Tónleikarnir hefjast klukkan 16
og er aðgangseyrir 500 krónur.
Einar már á
rósEnbErg
Einar Már Guðmundsson kemur
fram, ásamt fjölmörgum spila-
glöðum listamönnum, á sérlegu
skemmtikvöldi á Rósenberg á
sunnudagskvöldið. Einar Már fer
yfir sviðið í bundnu og óbundnu
máli og les meðal annars úr nýj-
asta verki sínu, Hvítu bókinni, -
greinasafni þar sem fjallað er vítt
og breitt um íslenskt efnahags-
líf og ástand íslensku þjóðarsál-
arinnar. Bók þessi hefur þegar
vakið gríðarsterk viðbrögð og
trónað á metsölulistum allt frá
útgáfudegi, enda hafa gagnrýn-
endur, jafnt sem almennir les-
endur, tekið henni afar fagnandi.
Meðal annarra sem koma fram
eru Gunnar Þórðarson, Gunnar
Bjarni úr Jet Black Joe og Toggi.
Dagskráin hefst klukkan 21 og
aðgangur er ókeypis.
Depp og Mann í toppformi
30 föstudagur 7. ágúst 2009 fókus
Leikstjórinn Michael Mann gerir
hvorki lélegar né leiðinlegar bíó-
myndir. The Insider, Heat, Miami
Vice, Manhunter og Síðasti mó-
híkaninn eru ágætis dæmi um það
gæðastöff sem Mann hefur sent frá
sér. Mann er fyrst og fremst stílisti
þegar kemur að kvikmyndagerð í
þeim skilningi að allar myndir hans
eru brjálæðislega smart, leikararn-
ir kúl og öll sjónarhorn útpæld með
tilheyrandi töffaratöktum í kvik-
myndatöku. Þessi snilli Manns
kemur sérstaklega vel fram í mögn-
uðum byssubardögum í Heat, Mi-
ami Vice og nú Public Enemies þar
sem Mann toppar allt sem hann
hefur áður gert í sinni bestu mynd
hingað til.
Public Enemies byggist á ævi-
sögu hins goðsagnarkennda
bankaræningja Johns Dillinger
sem fór hamförum í Bandaríkj-
unum í kreppunni miklu í kring-
um 1930. Þetta var gullöld banka-
ræningjanna þar sem Bonnie og
Clyde, Baby Face Nelson, Dillinger
og fleiri fretuðu blóðug nöfn sín á
spjöld sögunnar með Thompson-
vélbyssum.
Ferill Dillingers var með hinum
mestu ólíkindum, enda maðurinn
háll sem áll og gerði yfirvöldum líf-
ið endalaust leitt, ekki síst þar sem
fangelsi héldu honum ákaflega illa.
Líf og dauði Dillingers stendur
vel undir þessari löngu bíómynd
og það er eiginlega ekkert út á sög-
una að setja þótt á sumum stöð-
um sé farið nokkuð frjálslega með
sögulegar staðreyndir vegna þess
að það magnaðasta við þetta allt er
að það sem er lyginni líkast í mynd-
inni er satt og rétt.
Johnny Depp er bæði flottasti og
fallegasti leikari samtímans og hef-
ur fyrir lifandis löngu sýnt og sann-
að að ekkert hlutverk er honum of-
viða. Hann leikur Dillinger af sinni
stöku snilld og hefur ekkert fyrir því
að gefa þessum nafntogaða krimma
mannlega dýpt. Þótt myndin hvíli
fyrst og fremst á herðum Depp er val-
in manneskja í hverju rúmi þar sem
Christian Bale, sem er alltaf að verða
leiðinlegri, er veikasti hlekkurinn.
Útlit myndarinnar er óaðfinn-
anlegt en þetta tímabil hentar hin-
um stíliseraða leikstjóra auðvit-
að fáránlega vel vegna þess að í þá
daga höfðu menn alvörustíl. Karl-
menn klæddu sig eins og menn.
Voru í vestum með hatta og höfðu
einnig fyrir því að ræna banka eins
og menn, með Thompson-vélbyss-
um og ofbeldi en ekki með því að
eignast bankana og tæma þá síðan
eins og raggeitur með bókhalds-
brellum.
Public Enemies viðheldur vita-
skuld andhetjuljómanum sem hef-
ur fylgt Dillinger alla tíð án þess þó
að hefja skúrkinn til skýjanna. Þetta
er einfaldlega alvörubíómynd, ein
sú metnaðarfyllsta sem sést hefur
í bíó það sem af er sumri og skil-
ur mann eftir hristan og hrærðan,
enda ekki við öðru að búast þegar
Mann er í svona líka hörkustuði að
segja ferlega svala sögu dásamlega
kúl andhetju.
Þórarinn Þórarinsson
Public EnEmiEs
Leikstjóri: Michael Mann
Aðalhlutverk: Johnny Depp,
Christian Bale, Marion Cotillard
kvikmyndir
Public Enemies
Skilur mann eftir
hristan og hrærðan.
Þ
etta er mitt fyrsta leik-
stjórnarverk eftir útskrift,“
segir Hlynur Páll Pálsson
leikstjóri sem er nýútskrif-
aður úr Fræði og fram-
kvæmd í Listaháskóla Íslands. Hlyn-
ur leikstýrir Ævari Þór Benediktssyni
í einleiknum Ellý alltaf góð sem Þor-
valdur Þorsteinsson samdi. Verkið
er partur af sviðslistahátíðinni art-
Fart sem nú stendur yfir en það verð-
ur frumsýnt á sunnudaginn kemur í
heimahúsi í Þingholtunum.
Hlynur hefur upplifað ýmislegt
í gegnum tíðina og einhverjir muna
kannski eftir honum úr þekktri aug-
lýsingu fyrir tímaritið Séð og heyrt
með yfirskriftinni „Nekt selur“. Hann
hefur unnið sem tæknimaður í Þjóð-
leikhúsinu, textasmiður og brúðu-
gerðarmaður í Sögusafninu í Perl-
unni auk þess sem hann ferðaðist
vítt og breytt um Indland til þess að
skemmta börnum í SOS-barnaþorp-
um.
Björgvin Franz fyrstur
„Ég leikstýrði Ævari í útskriftarverk-
efninu mínu þannig að við þekkj-
umst nokkuð vel. Hann bað mig svo
um að leikstýra sér í þessu verki,“
en aðdáendur Dagvaktarinnar ættu
að kannst við Ævar sem ástmann
Georgs Bjarnfreðarsonar úr sam-
nefndri þáttaröð. Eins og áður kom
fram er það Þorvaldur Þorsteinsson
sem skrifaði verkið en þetta er í ann-
að skipti sem Ævar setur það upp.
„Ævar setti verkið upp fyrir sex
árum á Akureyri en hann langaði til
þess að sjá hvaða verkfæri og tækni
námið hefði fært honum,“ en Ævar er
í leiklistarnámi í LHÍ. „Honum þótti
spennandi að vinna með þennan
sama texta og þetta verk en líta á það
frá öðrum sjónarhornum.“ Það var
Þorvaldur sjálfur sem gaukaði verk-
inu að Ævari eftir að hafa séð hann
á sviði í menntaskólaleikriti en upp-
haflega var það samið fyrir annan að-
ila.
„Þorvaldur samdi verkið á sín-
um tíma fyrir Björgvin Franz Gísla-
son þegar hann var í skólanum. Þá
tíðkaðist að þegar nemendur voru
að vinna einstaklingsverkefni sín að
þeir fengju leikskáld til þess að semja
fyrir sig verk. Þetta er því í þriðja
skipti sem þessi einleikur er settur á
laggirnar.“
artFart í heimahúsi
Þetta er í fjórða skipti sem listahá-
tíðin artFart er haldin hér á landi en
Hlynur Páll Pálsson leikstýrir sínu fyrsta verki Ellý alltaf góð sem frumsýnt verður um
helgina. Móðir hans æpti upp fyrir sig í bíó þegar hún sá hann strípast í auglýsingu fyrir
Séð og heyrt á sínum tíma og hann gegnir hlutverki böðuls Jóns Arasonar í Sögusafni
Perlunnar. Hlynur hefur einnig ferðast vítt og breitt um Indland í hlutverki trúðsins Nóa
Strípalingur,
böðull, trúður
og leikstjóri
Hlynur Páll Pálsson
Ferðaðist víða um
Indland sem trúður.
Mynd Sigurður Þór
óSkArSSon