Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.2009, Page 33
helgarviðtal 7. ágúst 2009 föstudagur 33
Kaup milljarðamærings ganga
hægt
Hermann segir að ef Portsmouth, sem misst
hefur nokkra öfluga leikmenn í sumar, bæti
ekki við sig tveimur til þremur sterkum leik-
mönnum á næstunni gæti tímabilið orðið af-
skaplega erfitt. „Ég veit bara jafn mikið og
þú hvort eitthvað sé að gerast í þeim málum.
Staðan er svolítið óljós því kaupin hafa ekki
endanlega gengið í gegn hjá nýja eigandanum.
Á meðan svo er er ekki hægt að kaupa menn,
bara hægt að fá lánaða eða á „free transfer“.“
Þessi nýi eigandi Portsmouth heitir Sulaim-
an Al Fahim, milljarðamæringur frá Sam-
einuðu arabísku furstadæmunum, en hann
keypti liðið af öðrum ríkisbubba, Rússanum
Alexandre Gaydamak.
Al Fahim, sem er einungis þrjátíu og tveggja
ára gamall, var áður í eigendahópi Manchester
City og ku auðæfi hans veruleg. Því ættu leik-
mannakaup ekki að stranda á of léttri pyngju.
Hermann segir að eitthvað verði hins vegar að
fara að gerast því tíminn sé orðinn knappur.
„Mönnum finnst þetta taka svolítið langan
tíma. Við erum með ágætis hóp en ekki nógu
breiðan. Þetta eru allt hörkulið í þessari deild
þannig að þú þarft bæði sterkan og breiðan
hóp. Mótið er handan við hornið og eigandinn
þarf því að fara að sýna og sanna að hann hafi
eitthvað bakland.“
Harry Redknapp var framkvæmdastjóri
Portmouth þegar liðið vann FA-bikarinn vorið
2008 sem var einungis í annað sinn sem það
hefur tekist. Fyrra skiptið var árið 1939. Liðið
endaði jafnframt í áttunda sæti í deildinni sem
er besti árangur þess frá upphafi. Redknapp
hafði þá byggt upp gríðarlega gott lið, enda
fengið töluvert fjármagn til þess, en nokkrum
mánuðum seinna var hann farinn frá félaginu.
Tottenham bauð Redknapp stjórastöðuna á
White Hart Lane í október sem hann þáði.
„Þetta var of gott tækifæri fyrir hann til að
sleppa því,“ segir Hermann sem kunni afar
vel við Redknapp. „Kannski fann að það væru
farnir að minnka peningarnir í klúbbnum og
fannst meira spennandi að taka starfið hjá Tot-
tenham. Þar var nóg af peningum og hann gat
möndlað sitt eigið lið og fengið leikmenn sem
hann vildi fá. Í fyrrasumar var hann að lenda
í því að þurfa að selja nokkra leikmennn frá
Portsmouth og ekki fá að klára það sem hann
byrjaði á. Þetta var því kannski skiljanlegt á
vissan hátt.“
missti af leiK gegn aC milan
Tony Adams, fyrrverandi fyrirliði Arsenal og
enska landsliðsins, var í framhaldinu ráðinn
framkvæmdastjóri Portsmouth en hann hafði
verið aðstoðarmaður Redknapps. Hermann
fékk lítið sem ekkert að spila undir stjórn Ad-
ams og er á honum að heyra að enski varnar-
jaxlinn fyrrverandi hafi alls ekki verið tebolli
að sínu skapi.
„Menn hafa misjafnar skoðanir á hlutun-
um eins og gengur. Það var náttúrlega búið
að kaupa tvo vinstri bakverði sem voru búnir
að vera að spila eitthvað þegar hann tók við.
[Nadir] Belhadj er frábær leikmaður en bara
allt öðruvísi en ég. Það sem maður var kannski
svekktastur með var að fá ekki sénsinn einu
sinni þegar spilað var á móti liðum sem spila
meiri kraftabolta, eins og Stoke og fleiri lið. Ég
þarf ekki að spila alla leiki en að spila engan
leik er ég auðvitað hundfúll með. Ég fékk ekki
einu sinni tækifæri til að spila mig út úr liðinu.
Árið áður hélt vörnin hreinu í tuttugu og fjóra
leiki og við slógum með því met með nánast
sömu vörninnni allt árið. Mér fannst þetta því
ósanngjarnt en hann var auðvitað að reyna að
stilla upp besta liðinu að hans mati.“
Portsmouth spilaði gegn AC Milan í Evr-
ópukeppninni á meðan Hermann var utan við
liðið. Spurður hvort það sé svekkelsi sem eigi
eftir að plaga hann út ævina, að fá ekki tæki-
færi til að leika gegn því sögufræga liði, segir
Hermann svo ekki vera.
„Ég er búinn að vera í atvinnumennsku
nokkuð lengi og í rauninni aldrei verið á bekkn-
um, og eins og ég hef sagt áður þá er bekkjar-
setan ekki eitthvað sem maður hefur gaman.
En maður verður auðvitað bara að halda haus
og halda áfram að æfa af krafti og vera klár
þegar kallið kemur. En ég hef svo sem spilað á
móti Inter Milan bæði á heimavelli og San Siro
þannig að ...,“ segir Hermann og hlær.
„i´m saying really good things
about you.“
Portsmouth náði sér aldrei á strik undir stjórn
Adams sem varð til þess að hann var rekinn í
febrúar síðastliðnum. Þá tók við liðinu Paul
nokkur Hart, sem stjórnaði Notthingham For-
est 2001 til 2004 og Chesterfield í þrjú ár und-
ir lok níunda áratugarins, en hefur þess utan
ekki mikla reynslu af þjálfun. Honum tókst þó
ætlunarverkið: að bjarga Portsmouth frá falli í
vor. Liðið endaði í fjórtánda sæti í úrvalsdeild-
inni en útlitið var mjög svart þegar Hart tók við
af Adams.
Hermann ber nýja stjóranum vel söguna.
„Það er almenn ánægja með hann hérna.
Hann gerði líka vel eftir að hann tók við liðinu.
Klúbburinn er ennþá í efstu deild og það var
það sem skipti mestu máli úr því sem komið
var.“
Að því sögðu heyrist rödd á bak við Her-
mann og hann biður blaðamann að bíða
augnablik. Í ljós kemur að sá sem vill ná tali af
Eyjamanninum er umræddur Hart. Hermann
segir að hann sé í viðtali við dagblað. „Iceland-
ic newspaper?“ heyrist spurt um hæl. Þegar
Hermann jánkar því spyr Hart hvort hann sé
ekki jákvæður í sinn garð í viðtalinu. „I´m say-
ing really good things about you.“ Í kjölfarið
gefur stjórinn grænt ljós á að Hermann haldi
spjallinu áfram.
„Þú verður að skrifa mjög fallega um stjór-
inn svo hann sekti mig ekki,“ segir Hermann
og getur varla varist smá hlátri.
Eru mjög harðar reglur hjá félaginu? „Já,
maður er sektaður fyrir allan andskotann
hérna,“ segir Hermann og hlær. „En það er
bara flott mál. Það er gott að hafa aga á hlut-
unum.“
hinn íslensKi ryan giggs
Það stendur ekki á svari þegar blaðamaður
spyr hinn hálffertuga landsliðsfyrirliða hvort
hann sé enn að bæta sig sem fótboltamaður.
„Engin spurning. Þú ert alltaf að bæta við þig
reynslu og þú lærir eitthvað örlítið nýtt nánast
á hverjum degi, hvort sem er í varnarleik eða
sóknarleik.“
En hver ætli sé galdurinn við að vera í svona
góðu formi ennþá, hlaupandi kolbrjálaður út
um allan völl eins og átján ára unglingur að
kafna úr metnaði fyrir að sanna sig?
„Líklega bara að halda hungrinu. Þegar ég
mæti á æfingasvæðið vil ég vinna hvern ein-
asta leik, hvort sem það er ungir á móti göml-
um, Englendingar á móti útlendingum eða
hvað sem er. Maður hendir út úr sér snuð-
inu og fer grenja ef maður tapar. Svo um leið
og maður stígur yfir hvítu línuna á laugardegi
klukkan þrjú og flautan gellur - það er ... það er
alltaf mikið adrenalínkikk,“ segir Hermann og
lætur hugann augljóslega reika á meðan hann
segir frá. „Með fullan völl og níutíu mínútur til
að vera í slagsmálum við frábæra leikmenn.
Það er bara frábært. Og þetta eru náttúrlega
Hermann Hreiðarsson,
knattspyrnumaður Hjá portsmoutH
fæðingardagur: 11. júlí 1974
fæðingarstaður: Vestmannaeyjar
eiginkona: Ragna Lóa Stefánsdóttir
börn: Thelma Lóa Hermannsdóttir, 9 ára
Ída Marín Hermannsdóttir, 7 ára
stjúpbörn: Stefán Kári Sveinbjörnsson, 23 ára
Elsa Hrund Bjartmarz, 16 ára
ferill:
ÍBV (frá æsku til 1997)
Crystal Palace (1997-98)
Brentford (1998-99)
Wimbledon (1999-2000)
Ipswich (2000-03)
Portsmouth (2007-?) ÁRNA JOHNSEN
einbeittur Í leik með Portsmouth sem
Hermann hefur spilað með frá 2007.
mynd getty