Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.2009, Side 46
Sunderland
Það eiga fá lið í neðri helming
deildarinnar meiri peninga en
Sunderland og var það nú að setja
félagsmet með kaupunum á Dar-
ren Bent. Hann verður liðinu afar
drjúgur haldist hann heill bæði á
líkama og sál og gæti hann mynd-
að afar sterkt sóknarpar með Ken-
wyne Jones. Sunderland er með
fínasta fótboltalið og hefur alla
burði til þess að gera vel. Frábæran
völl og enn betri stuðningsmenn. Nú er komið að Steve Bruce að taka næsta
skref með liðið. Hann gerði það svo sannarlega hjá Wigan og var ekki furða að
Sunderland-menn hringdu í hið margnefbrotna ljúfmenni. Það er algjörlega
undir Bruce komið hvernig Sunderland gengur í ár.
11
LykiLmaður
Steve Bruce
FyLgist með
Darren Bent
46 föstudagur 7. ágúst 2009
bolton
Bolton hefur verið nokkuð sniðugt
á leikmannamarkaðinum. Svona
klassísk bresk kaup frá klassísk-
um breskum stjóra eins og Gary
Megson er. Vörnin mun styrkjast
gífurlega með komu Zat Knight
og einum eftirsóttasta bakverði
síðustu árin, Paul Robinson. Þá er
Sam Ricketts kominn frá Hull og
Sean Davis á miðjuna frá Port-
smouth. Breiddin er því orðin mun
meiri hjá Bolton og ætti liðið eftir öllu að geta gert ágætlega í ár. Það byggist þó
á að vörnin haldi og Jussi í markinu verði jafngóður og venjulega. Liðið verður
aftur á móti að fara að skora mörk í hverjum leik. Ekki bara stundum eins og
það hefur oft viljað vera hjá Bolton upp á síðkastið.
12
LykiLmaður
Jussi Jaaskelainen
FyLgist með
Grétari Rafni Steinssyni
13
LykiLmaður
Ryan Nelsen
FyLgist með
Franco di Santo
blackburn
Hann gerir það ekki alltaf á falleg-
asta mátann en Stóri Sam kann að
vinna fótboltaleiki. Hann bjargaði
Blackburn auðveldlega frá falli í fyrra
og fær nú heilt sumar til þess að und-
irbúa lið sitt fyrir átökin á komandi
tímabili. Hann hefur keypt svona
týpíska Allardyce-menn. Leikmenn
sem enginn eða fáir vita hverjir eru
en hann mun alltaf gera að leik-
manni sem hentar því liði sem hann
stýrir. Blackburn hefur vissulega
misst nokkra sterka leikmenn en
trúin á Allardyce er mikil og hann
veit nákvæmlega hvað hann syngur.
Varnarleikurinn verður þó virki hans
að vanda þar sem fyrirliðinn Ryan
Nelson verður að haldast heill.
Stoke
Það hefur ekkert lið á Englandi spil-
að leiðinlegri fótbolta í lengri tíma
en Stoke gerði í fyrra. Tony Pulis var
ekkert að horfa í fagurfræðina til að
halda liðinu uppi og það virkaði svo
sannarlega. Stoke er lið þar sem allir
leikmenn gefa sig alla í leikinn alltaf og það skilar sér alltaf á endanum. Stoke
hefur aðeins bætt við sig einum leikmanni og vissulega er mjög líklegt að liðs-
ins bíði erfitt annað tímabil. Heimavöllur þess er þó bara einfaldlega of sterk-
ur og leikmennirnir of áræðnir til að þannig verði. Hjá Stoke uppskera menn
laun erfiðis síns.
14
LykiLmaður
Thomas Sörensen
FyLgist með
Carl Dickinson
Wigan
Það er að koma bylgja af spennandi
þjálfurum á Englandi. Einn þeirra er
Roberto Martinez hjá Wigan sem hef-
ur stýrt skútunni hjá Swansea undan-
farin ár. Þar hefur hann gert frábæra
hluti og fær nú tækifærið í bestu deild
heims. Hann tók með sér markaskorarann Jason Scotland sem á þó enn eftir
að sanna sig í efstu deild. Að missa Antonio Valencia verður liðinu þó dýrt
og þá á eftir að sakna Emile Heskey sem fór síðasta janúar enn meira. Þetta
verður Wigan-liðinu afar erfitt tímabil en Martinez er klókur og heldur liðinu
uppi.
15
LykiLmaður
Paul Scharner
FyLgist með
Jason Scotland
18
LykiLmaður
Jimmy Bullard
FyLgist með
Daniel Cousin
Hull
Hull kveður úrvalsdeildina eftir
tímabilið og það gæti jafnvel endað
neðar en í 18. sæti. Hefði ekki verið
fyrir ótrúlega byrjun liðsins í fyrra
hefði það svoleiðis skítfallið. En það
bjargaði sér. Nú hefur Hull ekkert
gert til að bæta við mannskapinn og
er því einfaldlega á beinni leið niður.
Geovanni getur ekki skorað úr auka-
spyrnum í hverjum einasta leik. Það
verður lítil gleði í Hull í ár.
birmingHam
Birmingham sem hefur jójó-að á
milli deilda síðustu ár er komið
aftur á meðal þeirra bestu. Nú hef-
ur það yfir að ráða ágætis mann-
skap með Skotana James McFadd-
en og Barry Ferguson í fararbroddi en Ferguson sem hefur verið fyrirliði
Rangers og Skotlands síðustu ár er genginn í raðir liðsins. Eitt gerði liðið líka
rétt. Það fékk Joe Hart, markvörðinn unga, að láni frá City en Maik Taylor sem
varið hefur mark liðsins síðustu árin hefur fyrir löngu sannað að hann get-
ur ekkert í úrvalsdeildinni. Birmingham verður við fallið þrátt fyrir ágætan
mannskap en bjargar sér undir restina. Tæplega þó.
17
LykiLmaður
James McFadden
FyLgist með
Barry Ferguson
PortSmoutH
Þrátt fyrir að moldríkur fasteigna-
fursti hafi keypt Portsmouth hefur
þar ekkert gerst í leikmannamálum.
Liðið var ágætlega mannað í fyrra en
slapp samt rétt svo við fall. Nú hefur
Portsmouth misst Peter Crouch, Glen
Johnson, Lauren og Arnold Mvuemba svo einhverjir séu nefndir. Á móti eru
einungis komnir Aaron Mokoena og Steve Finnan. Það segir sig sjálft að liðið
vantar fleiri leikmenn. Eiginlega mun fleiri og þá mjög góða. Nóg á allavega
að vera til af peningum. Það verður að fara að eyða þeim svo ekki eigi illa að
fara hjá Hemma og hans félögum.
16
LykiLmaður
David James
FyLgist með
Hermanni Hreiðarssyni
WolveS
Wolves kveður deildina með
Burnley og Hull. Mick McCarthy
mætir til leiks með afar dapran
leikmannahóp sem á ekkert er-
indi á meðal þeirra bestu. Gaman
verður að fylgjast með hinum
unga Sylvan Ebanks-Blake sem
fór á kostum í næstefstu deild í
fyrra en meira er það ekki. Kaup liðsins endurspegla líka svo fjárhag liðsins að það er pínlegt. Týpískt kaup hjá illa
stöddu liði sem kemur upp í úrvalsdeildina. Meðaljóna og minna en það sem eiga ekkert erindi í úrvalsdeildina
frekar en liðið sem mun falla og það líklega með stæl.
20
LykiLmaður
Christophe Berra
FyLgist með
Sylvain Ebanks-Blake
burnley
Burnley var nú eiginlega lið ársins
á Englandi í fyrra. Eftir hörmulega
byrjun þess í næstefstu deild héldu
nú margir að það myndi frekar falla
heldur en að komast upp á meðal
þeirra bestu. Þjálfarinn Owen Coyle
virðist algjör snillingur í að leggja upp einstaka leiki eins og sást í bikar-
keppnunum á síðasta tímabili þar sem Burnley fór hamförum. Leikmanna-
hópurinn er þó engan veginn nægilega góður til að halda sér uppi en Burn-
ley mun vinna eftirtektarverða sigra á komandi tímabili. Svo er Jói Kalli líka
í hópnum.
19
LykiLmaður
Owen Coyle
FyLgist með
Jóhannesi Karli Guðjónssyni