Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.2009, Side 48
Þar til dauðinn aðskilur okkur
Þegar Indverjinn Buktyar Rustomji opnaði eigin læknastofu í Lancaster 1930
breytti hann nafni sínu í Buck Ruxton. Isabella, sambýliskona hans, var lífsglöð
kona sem naut þess að vera í félagsskap við annað fólk. Buck fylltist afbrýðisemi
og sakaði hana um framhjáhald.
Þegar Isabella hvarf, sem og þjónustustúlka á heimili hjónanna, trúði lögreglan
útskýringum Bucks til að byrja með.
Lesið um Buck Ruxton í næsta helgarblaði DV.
Svarta ekkjan
Út á við var Nannie Doss, frá Tulsa í Oklahoma, glaðlyndur og hamingjusamur nágranni, eiginkona og
móðir. En fyrir innan þá skel leyndist kaldrifjað morðkvendi sem nánast þurrkaði út alla fjölskyldu sína.
Fyrstu fórnarlömbin voru hennar eigin börn.
Æska Nancy „Nannie“ Hazle var ekki ham-ingjurík. Faðir henn-ar var stjórnsamur og
hneigðist til grimmlyndis og upp-
skar fyrir vikið hatur bæði dóttur
sinnar og eiginkonu. Nannie gekk
illa í skóla og skólaganga henn-
ar var óregluleg því föður hennar
hugnaðist betur að hún og syst-
kin hennar ynnu á bóndabýli
fjölskyldunnar en að þau sæktu
skóla.
Þegar Nannie var sextán ára
neyddi faðir hennar hana til að
giftast Charlie Braggs eftir aðeins
fjögurra mánaða kynni. Charl-
ie var einkabarn móður sinnar
og bjó hjá henni og hjónaleysin
fluttu inn til hennar.
Síðar skrifaði Nannie: „Ég gift-
ist samkvæmt ósk föður míns 1921
manni sem ég hafði aðeins þekkt í
fjóra eða fimm mánuði, sem átti
enga fjölskyldu nema ógifta móð-
ur sem hafði yfirtekið líf mitt full-
komlega þegar við giftumst.“
Fjögur börn, drykkja og
stórreykingar
Frá 1923 til 1927 eignuðust Nann-
ie og Charlie fjórar dætur, en álag-
ið var mikið og Nannie hóf að
drekka meira en góðu hófi gegndi
og reykti látlaust. Hjónaband-
ið var ekki hamingjuríkt og bæði
sökuðu hitt, sennilega með réttu,
um framhjáhald. Charlie átti til að
hverfa svo dögum skipti.
Snemma árs 1927 dóu tvær
dætra þeirra úr matareitrun.
Charlie grunaði Nannie um að
eiga þar hlut að máli og lét sig
hverfa ásamt elstu dóttur hjón-
anna, Melvinu, en skildi Florinu
sem þá var nýfædd eftir. Um svip-
að leyti lést móðir Charlies. Charl-
ie kom heim árið 1928 í fylgd
Melvinu og fráskilinnar konu
og barns hennar. Skömmu síðar
skildu Charlie og Nannie og hún
fór heim til móður sinnar ásamt
dætrum sínum tveim.
Ástarsögur og
stefnumótaþjónusta
Nannie sefaði einmanakennd
sína með lestri ástarsagna af ýmsu
tagi og las í þaula einkamálaaug-
lýsingar og svaraði sumum. Ein
auglýsing vakti sérstaka athygli,
frá Robert Harrelson, 23 ára verk-
smiðjustarfsmanni. Robert sendi
Nannie rómantísk ljóð og hún
sendi honum köku sem hún hafði
bakað.
Þau hittust og gengu í hjóna-
band árið 1929 og settust að í
Jacksonville og voru tvær eftirlif-
andi dætur Nannie hjá þeim. Þrátt
fyrir að Nannie kæmist að því ekki
löngu síðar að Robert var áfeng-
issjúklingur og á sakaskrá entist
hjónabandið í sextán ár.
Börn deyja
Melvina, elsta dóttir Nannie, eign-
aðist son, Robert Lee Haynes, með
eiginmanni sínum Mosie árið
1943. Tveimur árum síðar í kjöl-
far erfiðrar meðgöngu eignaðist
Melvina sitt annað barn, tveimur
mánuðum fyrir tímann og lést það
strax eftir fæðingu. Nannie hjálp-
aði til við fæðinguna og Melvinu,
þreyttri og undir áhrifum deyfi-
lyfja, fannst sem hún sæi Nann-
ie stinga hattnál í höfuð barnsins
og sagði Florinu og Mosie af því.
Hvað sem því leið gátu læknar
ekki útskýrt dauða barnsins.
Í kjölfarið fjarlægðust Mosie og
Melvina og Melvina hóf samband
við hermann sem féll Nannie
ekki í geð. Eitt sinn þegar Florina
heimsótti föður sinn eftir alvarlegt
rifrildi við móður sína dó Robert,
sonur Melvinu, í umsjá Nannie.
Robert Harrelson deyr
Robert Harrelson var einn þeirra
sem fagnaði lokum síðari heims-
styrjaldarinnar og eftir að hafa
drukkið ótæpilega nauðgaði hann
Nannie. Daginn eftir þegar Nann-
ie var að hirða um garðinn fann
hún viskíflösku Roberts grafna í
garðinum.
Nauðgunin kvöldið áður hafði
verið kornið sem fyllti mælinn
og brá Nannie á það ráð að setja
rottueitur í viskíið og dó Robert
hræðilegum dauðdaga sama
kvöld.
Þriðja eiginmann sinn, Arl-
ie Lanning, hitti Nannie fyrir til-
stilli einkamálaauglýsinga og
giftist honum eftir þriggja daga
kynni. Arlie Lanning lést af völd-
um hjartabilunar og skömmu síð-
ar brann heimili þeirra til kaldra
kola. Heimilið hefði runnið til
systur Arlies en þar sem það varð
eldi að bráð fékk Nannie trygging-
arféð.
Nannie flutti til Norður-Karól-
ínu en ekki fyrr en öldruð móðir
Arlies hafði andast í svefni. Nann-
ie flutti til Dovie, systur sinnar,
sem var rúmliggjandi og skömmu
eftir að Nannie bar að garði and-
aðist hún.
Móðirin fellur í valinn
Nannie beið ekki boðanna með
að finna nýjan eiginmann. Fyrir
valinu varð Richard L. Morton frá
Kansas. Áður en Nannie náði að
fyrirkoma honum eitraði hún fyr-
ir móður sinni sem komið hafði
í heimsókn í janúar 1953. Mort-
on mætti örlögum sínum þremur
mánuðum síðar.
Síðasti eiginmaður Nannie
var Samuel Doss frá Oklahoma
og gengu þau í hjónaband í júní
1953. Ólíkt fyrri eiginmönnum
Nannie snerti Samuel ekki áfengi,
en sótti kirkju og var ekki sáttur
við ástarsögurnar sem Nannie las
öllum stundum.
Í september var Samuel lagð-
ur inn á sjúkrahús með flensuein-
kenni og læknarnir úrskurðuðu
að hann væri með sýkingu í melt-
ingarveginum. Eftir meðferð var
hann útskrifaður, í október.
Nannie var óþreyjufull og vildi
innheimta tvöfalda líftryggingu
Samuels og myrti hann sama
kvöld og hann kom heim.
Dauðsfallið fyllti læknana
grunsemdum og krafist var krufn-
ingar sem leiddi í ljós að mikið
magn arseniks var í líkama hans.
Nannie var handtekin án tafar.
Lífstíðardómur
og hvítblæði
Nannie játaði að hafa myrt fjóra
eiginmenn, móður sína, syst-
ur sína, Robert dótturson sinn
og tengdamóður, móður Arl-
ies. Ákæruvaldið einbeitti sér að
dauða Samuels, síðasta eigin-
manns hennar. Hún lýsti yfir sekt
sinni 17. maí 1955 og fékk lífstíð-
ardóm.
Nannie var aldrei ákærð fyr-
ir hin morðin sem hún framdi.
Hún dó úr hvítblæði 1965 í sjúkra-
húsálmu ríkisfangelsisins í Okla-
homa.
Umsjón: koLBeInn ÞoRsteInsson, kolbeinn@dv.is
Nauðgunin kvöldið
áður hafði verið
kornið sem fyllti
mælinn og brá Nannie
á það ráð að setja
rottueitur í viskíið og
dó Robert hræðilegum
dauðdaga sama
kvöld.
48 föstudagur 7. ágúst 2009 sakamál
Nannie Doss Var aðeins ákærð fyrir eitt morð.