Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.2009, Side 50
50 föstudagur 7. ágúst 2009
Handtekinn tvisvarfyrir mótmæli
30 days
Apótekin & Heilsubúðirnar
www.leit.is · Smellið á ristilvandamál
Á gamla gamla verðinu.
30 days
Losnið við hættulega kviðfitu og
komið maganum í lag með því
að nota náttúrulyfin Oxytarm og 30
days saman.
Eldar Ástþórsson, framkvæmdastjóri Kraums og markaðsstjóri
gogoyoko.com, hefur verið í miðri hringiðu íslenskrar tónlistar
um áraraðir. Þrátt fyrir það leikur hann ekki á hljóðfæri og er
ekki í hljómsveit. Hann er maðurinn í öllu hinu. Hann neitar að
gefa upp leynda hæfileika sína og lifir fyrir fjölskylduna.
nafn og aldur?
„Eldar Ástþórsson, 32 ára.“
atvinna?
„Framkvæmdastjóri Kraums tónlistarsjóðs og mark-
aðsstjóri gogoyoko.com.“
Hjúskaparstaða?
„Vel giftur, Evu Einarsdóttur.“
fjöldi barna?
„Eitt, Saga Evudóttir Eldarsdóttir.“
Hefur þú átt gæludýr?
„Nei.“
Hvaða tónleika fórst þú á síðast?
„Innipúkann eins og hann leggur sig um verslunar-
mannahelgina. Þar sá maður fjölda skemmtilegra
tónleika meðal annars FM Belfast, Seabear, Sudden
Weather Change, Swords of Chaos - og svo var Gylfi
Ægisson í miklu stuði.“
Hefur þú komist í kast við lögin?
„Já, handtekinn fyrir mótmæli á tíunda áratugnum.
Tvisvar.“
Hver er uppáHaldsflíkin þín og af Hverju?
„WoodWood-peysan sem konan mín gaf mér, mátu-
lega töff og hlý.“
Hefur þú farið í megrun?
„Nei.“
Hefur þú tekið þátt í skipulögðum mótmælum?
„Já, og skipulagt þó nokkur sjálfur.“
trúir þú á framHaldslíf?
„Nei, varla.“
Hvaða lag skammast þú þín mest fyrir að Hafa
Haldið upp á?
„What’s love got to do with it með Tina Turner var eitt
fyrsta uppáhaldslagið mitt, en skammast mín ekkert
of mikið fyrir það, var 7 ára og Wild Boys tók skömmu
síðar við.“
Hvaða lag kveikir í þér?
„Þetta breytist degi frá degi, Sudden Weather Change-
platan í heild sinni finnst mér mjög hressandi í dag!
Beautiful Boys með Rrreykjavík! gengur líka alltaf upp
hjá mér.“
til Hvers Hlakkar þú núna?
„Komast út í frí með fjölskylduna og hitta vini og
kunningja í Gautaborg.“
Hvaða mynd getur þú Horft á aftur og aftur?
„Ég er lítið fyrir það að horfa á myndir aftur, en sá
American Beauty um daginn í annað sinn og hafði
gaman af.“
afrek vikunnar?
„Ég er mjög ánægður með samstarf og stuðning
Kraums við glæsilega Tónlistarhátíð unga fólksins
sem sett var í vikunni í Kópavogi. Sömuleiðis að Morr
Music og fullt af skemmtilegri tónlist hafi bæst við
tónlistarbúð gogoyoko. Svo var mikið fjör í kringum
nýafstaðna Innipúkahátíð og mjög gaman að koma
að því verkefni.“
Hefur þú látið spá fyrir þér?
„Nei.“
spilar þú á Hljóðfæri?
„Nei.“
viltu að ísland gangi í evrópusambandið?
„Já, ég hef lengi verið Evrópusinni. Burt með landa-
mæri, byrjum á að sameina Evrópu.“
Hvað er mikilvægast í lífinu?
„Hjá mér, fjölskyldan.“
Hvaða íslenska ráðamann mundir þú vilja
Hella fullan og fara á trúnó með?
„Árna Johnsen frænda.“
Hvaða fræga einstakling myndir þú Helst vilja
Hitta og af Hverju?
„Fidel Castro, það er síðasti sjens.“
Hefur þú ort ljóð?
„Nei.“
nýlegt prakkarastrik?
„Ekki viss.“
Hvaða fræga einstaklingi líkist þú mest?
„Ronaldo fótboltakappa, en það var nú meira þeg-
ar ég var snoðklipptur. Í kringum HM 2002 var ég
beðinn um eiginhandaráritanir, meðal annars af
krakkaskara í Laugardalnum. En á meðan ég hef farið
nokkur skref upp í myndarlegheitum, hefur bumban
og frekjuskarðið á Ronaldo stækkað. Þannig að ég hef
frestað öllum plönum um að fá fría drykki á börun-
um í Ríó.“
ertu með einHverja leynda Hæfileika?
„Já, gef þá ekki upp.“
á að leyfa önnur vímuefni en áfengi?
„Það er vissulega ákveðinn tvískinningur í gangi með
lögleg og ólögleg vímuefni og glæpir grassera kring-
um núverandi kerfi. En ég er ekki viss um að það að
leyfa fleiri efni sé endilega lausnin.“
Hver er uppáHaldsstaðurinn þinn?
„Mér finnst svakalega gott að hanga heima, Boston er
skemmtilegasti barinn.“
Hvað er það síðasta sem þú gerir áður en þú
ferð að sofa?
„Lesa um leyndardóma mannkynssögunnar – eigin-
konunni til mikillar mæðu.“
Hver er leið íslands út úr kreppunni?
„Álver og olía.“
Umboðs- og söluaðili
Birkiaska ehf.
sími: 551 9239
www.birkiaska.is
Birkilauf
NICOLAI
Véla- og hjólastillingar
Tímareimar - Viðgerðir
BIFREIÐASTILLINGAR
Faxafeni 12 Sími 588-2455
Oxy tarm
Apótekin & Heilsubúðirnar
www.leit.is · Smellið á ristilvandamál
Á gamla gamla genginu.
Oxy tarm
Endurnærir og hreinsar ristilinn
Allir dásama oxy tarmið
... á Dalveg 16a
Sími: 554 3430
Erum fluttir...