Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.2009, Síða 53
Hollt og gott
Í nýjasta tölublaði GestGjafans.
KúrbÍts-frittata
Þessi létti og girnilegi réttur er með-
al þess sem er að finna í nýjasta tbl.
Gestgjafans
fyrir 4 :
n 3 msk. olía
n 1 laukur, saxaður
n 2 kúrbítar (800 g)
n 6-7 egg (eftir stærð)
n 100 g rifinn ostur
Steikið laukinn við vægan hita í
olíunni á pönnu þar til hann fer
að verða glær. Skerið kúrbítinn í
tvennt og síðan í sneiðar og bætið
honum á pönnuna. Steikið hann
þar til hann fer að verða mjúkur.
Sláið eggin saman í skál og bætið
osti út í. Hellið blöndunni á pönn-
una og látið malla góða stund
við meðalhita þar til eggjakakan
er farin að þorna á jöðrunum.
Smeygið spaða undir kökuna til
að losa hana frá botninum. Kveik-
ið á grillinu og grillið eggjakökuna
þar til hún er bökuð að ofan. Berið
fram í pönnunni eða rennið henni
á disk. Berið fram með salati.
umsjón: Sigríður Björk Bragadóttir
stÍlisti: Hanna Ingibjörg Arnarsdóttir
myndir: Kristinn Magnússon
lÍfsstÍll 7. ágúst 2009 föstudaGur 53
Hreinsa úr fatasKápum Systurnar Zaza og Bebe eða Alexandra
og Berglind Ósk Einarsdætur ætla að hreinsa fataskápana og selja fötin sín í
Kolaportinu um helgina. „Við höfum farið margar Ameríkuferðirnar auk alls
þess sem við höfum keypt hér heima og það er kominn tími til að losa út.
Við erum búnar að sprengja alla fataskápa,“ segir Baba en þær systur bjóða
meðal annars upp á merkin Karen Millen, Levi‘s, Diesel, Puma og Forever
21 á góðu verði. „Við verðum líka með fullt af skartgripum og ætlum að
selja þetta ódýrt. Það verður til dæmis risakassi með dóti á 200 krónur.“
selur sKó Í anda
sex and tHe City
Ólöf Erla Einarsdóttir, grafískur hönnuður, býr til ævintýraleg
listaverk með myndavél og photoshop. Ólöf Erla verður með
sýningu í Gerðubergi 20. ágúst og hafa erlendir fjölmiðlar sýnt
henni mikinn áhuga.
„Ég er mjög mikið fyrir ævintýri
og myndirnar mínar eru sögur án
orða,“ segir Ólöf Erla Einarsdótt-
ir, grafískur hönnuður sem hannar
ævintýralegar myndir með mynda-
vél og photoshop. Ólöf Erla, sem
verður með sýningu í Gerðubergi
20. ágúst, hefur vakið athygli úti í
heimi en viðtal við hana og mynd-
ir munu birtast í virtu tímariti á
næstu dögum. „Lokaverkefnið mitt
í Listaháskóla Íslands var tarotspil
og þannig byrjaði þetta allt saman.
Mig langaði að gera eitthvað nýtt og
gekk um skólann og myndaði fólk í
hlutverkum sem ég notaði svo í spil-
in. Svo þróaði ég þetta áfram,” segir
Ólöf sem viðurkennir að vera svolít-
il dramadrottning en margar mynd-
irnar gætu túlkast sem afar dramat-
ískar. „Það er miklu skemmtilegra
að hafa smá dramatík í þessu svona
til að áhorfandinn upplifi tilfinning-
ar frá myndinni,“ segir Ólöf Erla sem
er alltaf að safna myndum í verkin
sín. „Í sumar keyrði ég hringinn til
að safna flottum landslagsmynd-
um en fékk bara sól og gleði sem er
ekki alveg fyrir mig. Það var ekki fyrr
en í Jökulsárlóni sem ég fann ein-
hverja dramatík og þokan og skýin
létu sjá sig.“ Myndir Ólafar verða til
sölu í Gerðubergi og einnig er hægt
að skoða úrvalið á síðunni oloferla.
com.
Indíana Ása Hreinsdóttir
dramatÍsKar
söGur án orða
Ólöf Erla Einarsdóttir
Grafískur hönnuður sem
hannar ævintýralegar
myndir með myndavél
og photoshop.
AllAr AlmennAr viðgerðir á
húsbílum og ferðAvögnum