Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.2009, Page 2
2 miðvikudagur 28. október 2009 fréttir
Ráða ungt fólk í skítveRkin
Mótorhjólaklúbburinn MC Iceland,
áður þekktur sem Fáfnir MC, mun lík-
legast öðlast fulla aðild að alþjóðlegu
Vítisenglasamtökunum næsta haust.
Stýrihópur hefur verið starfræktur
innan embættis ríkislögreglustjóra
til að sporna gegn því að Hells Ang-
els nái fótfestu á landinu. Samkvæmt
upplýsingum frá embættinu hefur MC
Iceland hafið leit að ungum Íslend-
ingum til að stofna götugengi, svo-
kallaða stuðningsgrúppu við klúbb-
inn, eins og tíðkast í öðrum löndum.
Þessar stuðningsgrúppur eru ekki
viðurkenndir Vítisenglar en sjá um
að fremja glæpi fyrir þá. Í Danmörku
heitir stuðningsklúbbur Hells Angels
AK81 og er tengdur fjölmörgum glæp-
um í landinu.
Árásir og barsmíðar
Samkvæmt lögum og reglum Hells
Angels þurfa klúbbar sem leitast eft-
ir aðild að leggja öðrum mótorhjóla-
klúbbum í hverju landi fyrir sig regl-
urnar og sýna þeim að Hells Angles
ráði þar ríkjum. Öðrum klúbbum er
annaðhvort lokað eða þeir lýsa yfir
stuðningi við Hells Angels. Þeir sem
ekki vilja lúta reglum englanna eru
lamdir eða ráðist á þá með eggvopn-
um svo dæmi séu tekin.
Stýrihópur ríkislögreglustjóra hef-
ur upplýsingar um að MC Iceland
hafi boðið meðlimum annarra mót-
orhjólaklúbba á Íslandi að heimsækja
sig en þessi samskipti hafi öll verið á
vinalegum nótum. Þá bendir ýmislegt
til þess að tveir íslenskir mótorhjóla-
klúbbar séu nú þegar stuðningsklúbb-
ar MC Iceland.
Smygla dópi og fólki
Það er ekki að ástæðulausu sem al-
þjóðlegu Hells Angels-samtökin velja
að eiga útibú á Íslandi. Ný lönd þurfa
að hafa eitthvað fram að færa og er
það hafnarsvæði Íslands sem heill-
ar af augljósum ástæðum. Vítisenglar
reyna að stjórna hafnarsvæðum víðs
vegar um heim til að smygla fíkniefn-
um og fólki. Vísbendingar eru um að
skip hafi komið hingað sem tengd eru
Hells Angels. Ekkert misjafnt fannst
við leit í þessum skipum en allt bendir
til þess að þau hafi lagt upp frá öðrum
stöðum og notað Ísland sem tengilið
fyrir áframhaldandi flutning.
Þá telur stýrihópur ríkislögreglu-
stjóra það líklegt að Vítisenglar kaupi
skemmtistað hér á landi til að selja
fíkniefni og konur en mansal og vænd-
isstarfsemi er stór partur af skipu-
lögðum glæpum innan Hells Angels.
Ekki er ólíklegt að englunum og öðr-
um glæpahópum í undirheimum Ís-
lands lendi saman í framtíðinni. Má
þar nefna litháíska glæpamenn sem
tengjast viðamiklu mansalsmáli sem
rannsókn hófst á fyrir stuttu. Fortíðin
sýnir að Vítisenglar gera hvað sem er
til að vinna stríð við önnur gengi og
hópa.
Kostar milljón að vera engill
Meðlimir Hells Angels á heimsvísu
eru rúmlega þrjú þúsund. Á Íslandi
eru meðlimir um tuttugu. Í mörg ár
hefur farið fram síun á meðlimum hér
á landi. Gamlir meðlimir hafa horf-
ið og nýir komið inn. Það sést best á
því að fyrrverandi leiðtogi Fáfnis, Jón
Trausti Lúthersson, sagði skilið við
klúbbinn þegar hann varð MC Iceland
og Einar „Boom“ Marteinsson tók við
hans starfi. Stundum eru sett á svið
leikrit þar sem meðlimir eru reknir en
síðan settir yfir fíkniefnadeild klúbbs-
ins til að mynda. Samkvæmt heimild-
um DV á það ekki við um Jón Trausta.
Mun hann hafa verið talinn óæskileg-
ur meðlimur af samtökunum.
Uppbygging Hells Angels er mjög
flókin og ógagnsæ. Því hefur það
reynst yfirvöldum erfitt að sporna
gegn því að englarnir nái fótfestu og
hefur ekkert land náð að stöðva sam-
tökin. Meðlimir Hells Angels halda því
fram að þeir séu venjulegir heimilis-
feður sem hafi áhuga á mótorhjólum
og stundi sína níu til fimm vinnu. Það
Bifhjólaklúbburinn MC Iceland, áður þekktur sem Fáfnir MC, öðl-
ast fulla aðild að Hells Angels næsta haust. Klúbburinn leitar nú til
ungra Íslendinga til að mynda stuðningsgrúppur sem fremja glæpi.
Talið er að samtökin vilji stjórna íslenskum höfnum til að smygla
fíkniefnum og fólki. Í Danmörku bera Vítisenglar og stuðningshóp-
ur þeirra ábyrgð á tæplega helmingi allra skotárása í landinu.
leið fáfnis inn í vítisengla
➦ Klúbburinn sem áður var þekktur sem Fáfnir hafði stöðu „hangaround“ í að
minnsta kosti eitt ár. Það tók hann hins vegar um átta ár að fá þessa stöðu innan
samtakanna. Þeim sem hafa þessa stöðu er boðið á viðburði hjá Vítisenglunum og fá
að hitta meðlimi. Þeir þurfa að vera til staðar allan sólarhringinn fyrir samtökin.
➦ Því næst fékk Fáfnir stöðu „prospect“, eða væntanlegra félaga, sem hann hefur
núna. Hann tekur þátt í uppákomum Hells Angels en hefur ekki full réttindi meðlima.
➦ Ferlinu lýkur með fullri aðild að Hells Angels og má búast við að Fáfnir fái þá
stöðu næsta haust.
➦ Þeir sem vilja klifra upp metorðastigann hjá Vítisenglum þurfa að fremja alvarlega
glæpi – toppnum er náð með morði.
Ekki er ólíklegt að englunum og öðrum glæpa-
hópum í undirheimum Íslands lendi saman í fram-
tíðinni. Má þar nefna litháíska glæpamenn...
MyRtu MeiRa en 150 keppinauta
Kanada hefur verið álitið
friðsælt land eins og Ísland.
Samt sem áður tók það ekki
langan tíma fyrir Vítisengla að
skjóta rótum þar og eru þeir
nú helstu glæpasamtökin í
landinu. Í byrjun voru þetta
nokkrir friðsælir áhugamenn
um bifhjól sem byrjuðu á
því að vinna skítverk fyrir
mafíuna, eins og að lemja
fólk og selja fíkniefni. Með
tímanum skipuðu þeir mikilvægara hlutverk í fíkniefnaheiminum og fluttu
fíkniefni til Vancouver, Montreal og Halifax upp á eigin spýtur eða með mafíunni.
Á miðjum tíunda áratugnum þénuðu Vítisenglarnir milljónir dollara á viku á
fíkniefnainnflutningi í Montreal.
Smám saman losuðu Vítisenglarnir sig við keppninautana. Í Quebec þýddi það
sprengingar og morð á meira en 150 einstaklingum því ef þú ert dauður getur
þú ekki selt fíkniefni á yfirráðasvæði Vítisengla. Í Ontario tóku þeir yfir bransann
og tvö hundruð meðlimum annarra gengja var útrýmt. Í bresku Kólumbíu voru
bílar sprengdir og fólk skotið úr bílum á ferð til að losna við rússneska keppi-
nauta.
Árið 2004 var áætlað að fjögur þúsund manns á höfnum og flugvöllum Kanada
væru á mála hjá Vítisenglum. Þannig ná þeir að flytja yfirgengilega mikið magn
af fíkniefnum inn í landið.
Risastórt vandamál Það er ekki aðeins lögregl-
unnar að sporna gegn stofnun Hells Angels. Fólkið
í landinu, ásamt fjölmiðlum, þarf einnig að vera
meðvitað um þetta stóra vandamál sem embætti
ríkislögreglustjóra kallar samfélagsógn. Meðfylgj-
andi mynd er af meðlimum Hells Angels í London.