Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.2009, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.2009, Blaðsíða 4
4 miðvikudagur 28. október 2009 fréttir Hvorki utanríkisráðuneytið né faðir Brasilíufangans vissu af réttarhöldunum: Fyrir dóm í nóvember Ragnar Erling Hermannsson, sem handtekinn var í byrjun maí með mikið magn af kókaíni í ferðatösku sinni á flugvellinum í Recife í Bras- ilíu, verður dreginn fyrir brasilíska dómstóla 10. nóvember næstkom- andi. Fyrst um sinn var hann vistað- ur í hinu alræmda Cotel-fangelsi við hrikalegar aðstæður en var síðar fluttur í útlendingafangelsi í norður- hluta Brasilíu þar sem aðstæður eru mun betri. DV hafði samband við Urði Gunnarsdóttur, fjölmiðlafulltrúa ut- anríkisráðuneytisins, en ráðuneytið fylgist með máli Ragnars í gegnum foreldra hans. Hún hafði enga vitn- eskju um réttarhöldin 10. nóvem- ber þar sem hún hafði ekki fengið upplýsingar um þau frá brasilískum lögfræðingi Ragnars. Hún vissi að til stæði að taka málið fyrir en vissi ekki nákvæmlega hvenær. Hún gat ekki gefið nánari upplýsingar um líðan Ragnars í fangelsinu án leyfis foreldra hans. DV hafði samband við Hermann Þór Erlingsson, föður Ragnars. Hann vissi ekki heldur af réttarhöldunum 10. nóvember. Hann vildi annars ekkert tjá sig um gang mála eða líð- an Ragnars í fangelsinu. Verði Ragnar fundinn sekur og dæmdur til þyngstu refsingar gæti hann átt yfir höfði sér allt að tuttugu ára fangelsi. Enginn samningur er í gildi milli íslenskra og brasilískra yf- irvalda um að Ragnar fái að afplána dóm sinn á Íslandi. Ragna Árnadótt- ir dómsmálaráðherra sagði í sam- tali við DV í maí að sjaldgæft væri að fangar erlendis væru fluttir heim til afplánunar. Væru það örfá mál á ári og aðallega milli Norðurlandanna. Hún sagði enn fremur að dómur þyrfti fyrst að falla í málinu áður en hægt væri að flytja Ragnar til Íslands til að afplána dóminn hér. Ef dómur- inn verður þar að auki ekki í takt við íslenskt dómahámark er ekki víst að íslensk yfirvöld gætu tekið að sér að framfylgja honum. liljakatrin@dv.is Bíður eftir rétt- arhöldum Erfitt hefur reynst fyrir fjölskyldu Ragnars að ná tali af honum í Brasilíu. Séra Baldur Rafn Sigurðsson sóknar- prestur fær aukalega greidda rúma milljón króna vegna aksturs í tengsl- um við prestsstörf frá tveimur þeirra sókna sem hann sinnir. Samkvæmt kjarasamningum presta fá þeir fast- ar greiðslur vegna akstursins. Séra Baldur Rafn hefur aftur á móti gert samninga við Njarðvíkursókn og Ytri-Njarðvíkursókn um viðbótar- greiðslur. Árlega greiðir Ytri-Njarðvíkur- sókn honum 883 þúsund krón- ur en frá Njarðvíkursókn fær hann 248 þúsund krónur. Samtals nema greiðslurnar því 1.131 þúsund krón- um á ári. Tíðkast ekki Séra Ólafur Jóhannsson, formaður Prestafélags Íslands, segir það ekki venju að prestar fái aukalega akst- ursgreiðslur frá þeim sóknum sem þeir sinna, ofan á samningsbundn- ar akstursgreiðslur. „Nei, það tíðkast ekki almennt,“ segir hann. Ólafur bendir á að prestum sé heimilt að rukka fyrir akstur í tengsl- um við sérstakar athafnir. Þannig geta þeir óskað eftir greiðslu vegna aksturs í tengslum við hjónavígslu ef svo ber undir. Ef um útfarir er að ræða greiða kirkjugarðarnir fyrir þær og borga þá jafnvel sérstaklega fyrir akstur. „Ef einhverjar sóknir borga prest- um beinlínis fyrir akstur, þá er það á gráu svæði,“ segir Ólafur. Undir séra Baldur Rafn heyrir Njarðvíkurprestakall og sinnir hann þremur sóknum prestakallsins; Njarðvíkursókn, Ytri-Njarðvíkursókn og Kirkjuvogssókn í Höfnum. 800 kílómetrar á mánuði Ágústa Guðmundsdóttir, gjaldkeri sóknarnefndar Ytri-Njarðvíkursókn- ar, staðfestir að sóknin greiði séra Baldri Rafni sérstaka aksturspen- inga. Þær greiðslur nema nú 883.200 krónum á ári. Er þar miðað við að séra Baldur Rafn fái greitt fyrir akstur 800 kílómetra á mánuði og greiddar eru 92 krónur fyrir hvern kílómetra. Honum er greitt þrisvar á ári en sam- svara greiðslurnar því að hann fái mánaðarlega 73.600 krónur. Vegalengdin frá Reykjavík til Ak- ureyrar er um 430 kílómetrar. Áætl- aður akstur séra Baldurs Rafns innan sóknarinnar jafngildir því að hann aki mánaðarlega sem samsvarar akstri frá Reykjavík til Akureyrar og langleiðina aftur til Reykjavíkur. Skilar inn reikningum Sigmundur Eyþórsson, sóknar- nefndarformaður Innri-Njarðvíkur- sóknar, staðfestir að séra Baldur Rafn fái sömuleiðis akstursstyrk frá þeirri sókn og segir þær greiðslur færðar í ársreikninga sóknarinnar. „Ytri- og Innri-Njarðvík eru þær sóknir sem hafa gert þetta,“ segir hann. Ósk Kristinsdóttir, sóknarnefnd- arformaður Kirkjuvogssóknar, segir séra Baldur Rafn ekki fá fastar akst- ursgreiðslur frá sókninni. Hins vegar skili hann inn reikningum vegna til- fallandi aksturs, svo sem þegar hann skírir eða jarðar í sókninni. Ósk tók við sem formaður sóknarnefndar fyrir um fimm árum og kannast hún ekki við að séra Baldur Rafn hafi sótt að fá fastar greiðslur vegna aksturs- ins. Kjararáð ákvarðar fastar greiðslur Allir prestar fá fastar greiðslur vegna aksturs úr Kirkjumálasjóði. Þær greiðslur eru bundnar í kjarasamn- inga sem kjararáð ákvarðar um. Stærð prestakalls ræður því hversu háar akstursgreiðslur til presta eru. Njarðvíkurprestakall telst vera með- alstórt og greiðslur til prests því tæp- ar 29 þúsund krónur á mánuði vegna aksturs, eða um 346 þúsund krónur á ári. Samningar séra Baldurs Rafns kveða á um viðbótargreiðslur ofan á þessa samningsbundnu greiðslu. Til samanburðar má nefna að prestar í Reykjavík fá rúmlega 17 þúsund krónur á mánuði í aksturs- greiðslur, eða 208 þúsund á ári. Ekki skráð hjá Biskupsstofu Séra Baldur Rafn vildi ekki tjá sig um málið þegar blaðamaður hafði sam- band við hann og vísaði á Biskups- stofu. „Ég ætla ekkert að vera að segja eitt eða neitt,“ segir hann. Biskupsstofa vísaði málinu hins vegar frá sér og fékk blaðamaður þau svör að hjá Biskupsstofu væri ekkert yfirlit haft yfir þær akstursgreiðslur presta sem koma ofan á þær greiðsl- ur sem festar eru í kjarasamninga. Séra Baldur Rafn Sigurðsson í Njarðvíkurprestakalli fær rúma millj- ón króna á ári í aksturspeninga til viðbótar við þær akstursgreiðslur sem festar eru í kjarasamningum presta. Formaður Prestafélags Íslands segir slíkar viðbótargreiðslur ekki tíðkast hjá prestum. Séra Baldur Rafn neitar að tjá sig um málið. PRESTUR FÆR MILLJÓN Í AKSTURSGREIÐSLUR „Ef einhverjar sóknir borga prestum beinlín- is fyrir akstur, þá er það á gráu svæði.“ ERla HlynSdóTTiR blaðamaður skrifar: erla@dv.is Með sérsamninga Séra Baldur Rafn Sigurðsson hefur gert samning við Ytri- Njarðvíkursókn um fastar greiðslur fyrir mánaðarlegan akstur. Mynd SigTRygguR aRi Bankasýsla tekur við bönkunum Bankasýsla ríkisins hefur tekið við eigendahlutverki í viðskipta- bönkunum þremur. Lúkning samninga við kröfuhafa verð- ur þó áfram í höndum fjár- málaráðherra. Bankasýslan fer samkvæmt lögum með eig- endahlutverk ríkisins í fjármála- fyrirtækjum sem stjórnvöld hafa tekið ákvörðun um að eignast hlut í. Þeim sem þurfa að hafa samband við ríkið vegna eignar- hluta þess í viðskiptabönkunum er bent á að hafa samband við Bankasýsluna. Ók of hratt á kókaíni Héraðsdómur Suðurlands hefur dæmt 45 ára karlmann fyrir að aka yfir leyfilegum hámarks- hraða undir áhrifum kókaíns og tetrahýdrókannabínólsýra í maí síðastliðnum. Héraðsdóm- ur sýknaði manninn af ákæru um ölvunarakstur frá því 18. júlí 2008 en hann á langan sakaferil að baki. Manninum var gert að greiða 85 þúsund krónur í sekt og var hann sviptur ökuleyfi í einn og hálfan mánuð. Stúdentar spurðir um niðurskurð Stúdentar við Háskóla Ís- lands hyggjast berjast gegn áformum um niðurskurð inn- an Háskólans. Í dag verður Fjármáladagur Stúdentaráðs Háskóla Íslands haldinn þar sem komið verður fyrir opn- um hugmyndakössum þar sem nemendur eru beðnir að koma með sitt innlegg um hvar megi/megi ekki skera niður innan skólans. Stúd- entaráð hvetur nemendur til að leggja Háskólanum lið með því að koma hugmynd- um sínum á framfæri en niðurstöðurnar verða færðar fulltrúum SHÍ í Háskólaráði. Þögn um mansalsmál Lögreglan á Suðurnesjum verst allra frétta af gangi rannsóknar- innar í mansalsmálinu svokall- aða. Í gær fengust þaðan engin svör og þær upplýsingar voru gefnar að embættið ætlaði sér eingöngu að ræða við fjölmiðla í gegnum fréttatilkynningu sem send verður út í dag. Samkvæmt heimildum DV beinist rann- sóknin þó enn að skipulagðri glæpastarfsemi allra þeirra sem sitja í gæsluvarðhaldi. Varðhald- ið yfir sjömenningunum, fimm Litháum og tveimur Íslending- um, rennur út í dag.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.