Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.2009, Síða 4
4 miðvikudagur 28. október 2009 fréttir
Hvorki utanríkisráðuneytið né faðir Brasilíufangans vissu af réttarhöldunum:
Fyrir dóm í nóvember
Ragnar Erling Hermannsson, sem
handtekinn var í byrjun maí með
mikið magn af kókaíni í ferðatösku
sinni á flugvellinum í Recife í Bras-
ilíu, verður dreginn fyrir brasilíska
dómstóla 10. nóvember næstkom-
andi.
Fyrst um sinn var hann vistað-
ur í hinu alræmda Cotel-fangelsi
við hrikalegar aðstæður en var síðar
fluttur í útlendingafangelsi í norður-
hluta Brasilíu þar sem aðstæður eru
mun betri.
DV hafði samband við Urði
Gunnarsdóttur, fjölmiðlafulltrúa ut-
anríkisráðuneytisins, en ráðuneytið
fylgist með máli Ragnars í gegnum
foreldra hans. Hún hafði enga vitn-
eskju um réttarhöldin 10. nóvem-
ber þar sem hún hafði ekki fengið
upplýsingar um þau frá brasilískum
lögfræðingi Ragnars. Hún vissi að
til stæði að taka málið fyrir en vissi
ekki nákvæmlega hvenær. Hún gat
ekki gefið nánari upplýsingar um
líðan Ragnars í fangelsinu án leyfis
foreldra hans.
DV hafði samband við Hermann
Þór Erlingsson, föður Ragnars. Hann
vissi ekki heldur af réttarhöldunum
10. nóvember. Hann vildi annars
ekkert tjá sig um gang mála eða líð-
an Ragnars í fangelsinu.
Verði Ragnar fundinn sekur og
dæmdur til þyngstu refsingar gæti
hann átt yfir höfði sér allt að tuttugu
ára fangelsi. Enginn samningur er í
gildi milli íslenskra og brasilískra yf-
irvalda um að Ragnar fái að afplána
dóm sinn á Íslandi. Ragna Árnadótt-
ir dómsmálaráðherra sagði í sam-
tali við DV í maí að sjaldgæft væri að
fangar erlendis væru fluttir heim til
afplánunar. Væru það örfá mál á ári
og aðallega milli Norðurlandanna.
Hún sagði enn fremur að dómur
þyrfti fyrst að falla í málinu áður en
hægt væri að flytja Ragnar til Íslands
til að afplána dóminn hér. Ef dómur-
inn verður þar að auki ekki í takt við
íslenskt dómahámark er ekki víst að
íslensk yfirvöld gætu tekið að sér að
framfylgja honum.
liljakatrin@dv.is
Bíður eftir rétt-
arhöldum Erfitt
hefur reynst fyrir
fjölskyldu Ragnars
að ná tali af honum
í Brasilíu.
Séra Baldur Rafn Sigurðsson sóknar-
prestur fær aukalega greidda rúma
milljón króna vegna aksturs í tengsl-
um við prestsstörf frá tveimur þeirra
sókna sem hann sinnir. Samkvæmt
kjarasamningum presta fá þeir fast-
ar greiðslur vegna akstursins. Séra
Baldur Rafn hefur aftur á móti gert
samninga við Njarðvíkursókn og
Ytri-Njarðvíkursókn um viðbótar-
greiðslur.
Árlega greiðir Ytri-Njarðvíkur-
sókn honum 883 þúsund krón-
ur en frá Njarðvíkursókn fær hann
248 þúsund krónur. Samtals nema
greiðslurnar því 1.131 þúsund krón-
um á ári.
Tíðkast ekki
Séra Ólafur Jóhannsson, formaður
Prestafélags Íslands, segir það ekki
venju að prestar fái aukalega akst-
ursgreiðslur frá þeim sóknum sem
þeir sinna, ofan á samningsbundn-
ar akstursgreiðslur. „Nei, það tíðkast
ekki almennt,“ segir hann.
Ólafur bendir á að prestum sé
heimilt að rukka fyrir akstur í tengsl-
um við sérstakar athafnir. Þannig
geta þeir óskað eftir greiðslu vegna
aksturs í tengslum við hjónavígslu
ef svo ber undir. Ef um útfarir er að
ræða greiða kirkjugarðarnir fyrir þær
og borga þá jafnvel sérstaklega fyrir
akstur.
„Ef einhverjar sóknir borga prest-
um beinlínis fyrir akstur, þá er það á
gráu svæði,“ segir Ólafur.
Undir séra Baldur Rafn heyrir
Njarðvíkurprestakall og sinnir hann
þremur sóknum prestakallsins;
Njarðvíkursókn, Ytri-Njarðvíkursókn
og Kirkjuvogssókn í Höfnum.
800 kílómetrar á mánuði
Ágústa Guðmundsdóttir, gjaldkeri
sóknarnefndar Ytri-Njarðvíkursókn-
ar, staðfestir að sóknin greiði séra
Baldri Rafni sérstaka aksturspen-
inga. Þær greiðslur nema nú 883.200
krónum á ári. Er þar miðað við að
séra Baldur Rafn fái greitt fyrir akstur
800 kílómetra á mánuði og greiddar
eru 92 krónur fyrir hvern kílómetra.
Honum er greitt þrisvar á ári en sam-
svara greiðslurnar því að hann fái
mánaðarlega 73.600 krónur.
Vegalengdin frá Reykjavík til Ak-
ureyrar er um 430 kílómetrar. Áætl-
aður akstur séra Baldurs Rafns innan
sóknarinnar jafngildir því að hann
aki mánaðarlega sem samsvarar
akstri frá Reykjavík til Akureyrar og
langleiðina aftur til Reykjavíkur.
Skilar inn reikningum
Sigmundur Eyþórsson, sóknar-
nefndarformaður Innri-Njarðvíkur-
sóknar, staðfestir að séra Baldur Rafn
fái sömuleiðis akstursstyrk frá þeirri
sókn og segir þær greiðslur færðar í
ársreikninga sóknarinnar. „Ytri- og
Innri-Njarðvík eru þær sóknir sem
hafa gert þetta,“ segir hann.
Ósk Kristinsdóttir, sóknarnefnd-
arformaður Kirkjuvogssóknar, segir
séra Baldur Rafn ekki fá fastar akst-
ursgreiðslur frá sókninni. Hins vegar
skili hann inn reikningum vegna til-
fallandi aksturs, svo sem þegar hann
skírir eða jarðar í sókninni. Ósk tók
við sem formaður sóknarnefndar
fyrir um fimm árum og kannast hún
ekki við að séra Baldur Rafn hafi sótt
að fá fastar greiðslur vegna aksturs-
ins.
Kjararáð ákvarðar fastar
greiðslur
Allir prestar fá fastar greiðslur vegna
aksturs úr Kirkjumálasjóði. Þær
greiðslur eru bundnar í kjarasamn-
inga sem kjararáð ákvarðar um.
Stærð prestakalls ræður því hversu
háar akstursgreiðslur til presta eru.
Njarðvíkurprestakall telst vera með-
alstórt og greiðslur til prests því tæp-
ar 29 þúsund krónur á mánuði vegna
aksturs, eða um 346 þúsund krónur
á ári. Samningar séra Baldurs Rafns
kveða á um viðbótargreiðslur ofan á
þessa samningsbundnu greiðslu.
Til samanburðar má nefna að
prestar í Reykjavík fá rúmlega 17
þúsund krónur á mánuði í aksturs-
greiðslur, eða 208 þúsund á ári.
Ekki skráð hjá Biskupsstofu
Séra Baldur Rafn vildi ekki tjá sig um
málið þegar blaðamaður hafði sam-
band við hann og vísaði á Biskups-
stofu.
„Ég ætla ekkert að vera að segja
eitt eða neitt,“ segir hann.
Biskupsstofa vísaði málinu hins
vegar frá sér og fékk blaðamaður þau
svör að hjá Biskupsstofu væri ekkert
yfirlit haft yfir þær akstursgreiðslur
presta sem koma ofan á þær greiðsl-
ur sem festar eru í kjarasamninga.
Séra Baldur Rafn Sigurðsson í Njarðvíkurprestakalli fær rúma millj-
ón króna á ári í aksturspeninga til viðbótar við þær akstursgreiðslur
sem festar eru í kjarasamningum presta. Formaður Prestafélags
Íslands segir slíkar viðbótargreiðslur ekki tíðkast hjá prestum. Séra
Baldur Rafn neitar að tjá sig um málið.
PRESTUR FÆR MILLJÓN
Í AKSTURSGREIÐSLUR
„Ef einhverjar sóknir
borga prestum beinlín-
is fyrir akstur, þá er það
á gráu svæði.“
ERla HlynSdóTTiR
blaðamaður skrifar: erla@dv.is
Með sérsamninga Séra Baldur Rafn
Sigurðsson hefur gert samning við Ytri-
Njarðvíkursókn um fastar greiðslur fyrir
mánaðarlegan akstur. Mynd SigTRygguR aRi
Bankasýsla tekur
við bönkunum
Bankasýsla ríkisins hefur tekið
við eigendahlutverki í viðskipta-
bönkunum þremur. Lúkning
samninga við kröfuhafa verð-
ur þó áfram í höndum fjár-
málaráðherra. Bankasýslan fer
samkvæmt lögum með eig-
endahlutverk ríkisins í fjármála-
fyrirtækjum sem stjórnvöld hafa
tekið ákvörðun um að eignast
hlut í. Þeim sem þurfa að hafa
samband við ríkið vegna eignar-
hluta þess í viðskiptabönkunum
er bent á að hafa samband við
Bankasýsluna.
Ók of hratt
á kókaíni
Héraðsdómur Suðurlands hefur
dæmt 45 ára karlmann fyrir að
aka yfir leyfilegum hámarks-
hraða undir áhrifum kókaíns
og tetrahýdrókannabínólsýra í
maí síðastliðnum. Héraðsdóm-
ur sýknaði manninn af ákæru
um ölvunarakstur frá því 18. júlí
2008 en hann á langan sakaferil
að baki. Manninum var gert að
greiða 85 þúsund krónur í sekt
og var hann sviptur ökuleyfi í
einn og hálfan mánuð.
Stúdentar
spurðir um
niðurskurð
Stúdentar við Háskóla Ís-
lands hyggjast berjast gegn
áformum um niðurskurð inn-
an Háskólans. Í dag verður
Fjármáladagur Stúdentaráðs
Háskóla Íslands haldinn þar
sem komið verður fyrir opn-
um hugmyndakössum þar
sem nemendur eru beðnir
að koma með sitt innlegg um
hvar megi/megi ekki skera
niður innan skólans. Stúd-
entaráð hvetur nemendur
til að leggja Háskólanum lið
með því að koma hugmynd-
um sínum á framfæri en
niðurstöðurnar verða færðar
fulltrúum SHÍ í Háskólaráði.
Þögn um
mansalsmál
Lögreglan á Suðurnesjum verst
allra frétta af gangi rannsóknar-
innar í mansalsmálinu svokall-
aða. Í gær fengust þaðan engin
svör og þær upplýsingar voru
gefnar að embættið ætlaði sér
eingöngu að ræða við fjölmiðla
í gegnum fréttatilkynningu sem
send verður út í dag. Samkvæmt
heimildum DV beinist rann-
sóknin þó enn að skipulagðri
glæpastarfsemi allra þeirra sem
sitja í gæsluvarðhaldi. Varðhald-
ið yfir sjömenningunum, fimm
Litháum og tveimur Íslending-
um, rennur út í dag.