Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.2009, Side 3
fréttir 28. október 2009 miðvikudagur 3
Ráða ungt fólk í skítveRkin
dæmi gengur ekki upp þar sem engl-
arnir þurfa að sækja fjölmarga fundi á
ári, alþjóðlega, evrópska og skandin-
avíska fundi ásamt vikulegum klúbb-
fundum. Áætlað er að það kosti um tíu
þúsund dollara, rúmlega eina milljón
króna, á ári að vera Vítisengill.
113 meðlimir – 314 ákærur
Samtökin Hells Angels voru fyrst
stofnuð á Norðurlöndunum í Dan-
mörku árið 1980. Síðan þá hefur mikið
vatn runnið til sjávar og eru skotárásir
tíðar. Ástandið er svo slæmt í sumum
hlutum Kaupmannahafnar að venju-
legt fólk þarf að klæðast skotheldum
vestum.
Í skýrslu frá dönsku lögreglunni
um það sem hún kallar rokkaraklúbba
og -gengi kemur fram að lögreglan
hafi skráð allt í allt 167 atvik þar sem
skotvopn var notað á almannafæri
árið 2008. Talið er að 76 af þessum at-
vikum tengist rokkaragengjum á borð
við Hells Angels.
Um 120 meðlimir voru í dönsku
Vítisenglunum í lok síðasta árs og 113
í stuðningshópi þeirra, AK81.
Á síðasta ári voru 87 ákærur um al-
varlega glæpi gefnar út á hendur með-
limum Hells Angels og 61 dómur féll
í málum sem varða meðal annars of-
beldi, vopnaða glæpi og fíkniefna-
viðskipti. 2. febrúar á þessu ári voru
átján meðlimir settir í fangelsi, tólf
afplánuðu dóma og sex voru í gæslu-
varðhaldi. Á sama tíma voru sextán
meðlimir á skilorði og sex biðu af-
plánunar.
Tíðni glæpa er mun hærri með-
al meðlima AK81 og voru 314 ákærur
um alvarlega glæpi gefnar út á hendur
meðlimum klúbbsins á síðasta ári og
164 dómar féllu.
Eignarhaldsfélagið ISP, sem er
í eigu Ingibjargar Pálmadóttur,
skuldaði rúma sex milljarða króna
í árslok 2007, samkvæmt ársreikn-
ingi félagsins. Meirihluti lánanna,
rúmir 5,3 milljarðar króna, var í er-
lendri mynt, aðallega evrum, sviss-
neskum frönkum og dollurum.
Á móti skuldum voru eign-
ir upp á tæpa 6,7 milljarða króna,
að mestu í félögum sem í dag eru
gjaldþrota, meðal annars Baugi,
Glitni, Straumi, Kaupþingi, Lands-
bankanum, Stoðir og Landic Prop-
erty. Hlutabréf Ingibjargar í þess-
um félögum urðu því verðlaus að
mestu ef hún hefur ekki selt þau
fyrir hrun. Bæði Baugur, Glitn-
ir, Stoðir, Teymi og Lanic Prop-
erty voru að stórum hluta í eigu
Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, eigin-
manns Ingibjargar.
Ingibjörg er, sem kunnugt
er, dóttir Pálma Jónssonar, sem
kenndur er við Hagkaup. Félag
Ingibargar hefur ekki skilað árs-
reikningi fyrir árið 2008 þannig
að ekki er vitað nákvæmlega hver
staða fyrirtækisins er í dag þó
nokkuð megi áætla um það út frá
ársreikningnum fyrir árið 2007.
Seldi bréf í Baugi fyrir hrun
Langstærsta eign félagsins var í
Baugi en í ársreikningnum er bók-
fært verð hennar rúmlega 4,5 millj-
arðar króna. Sem kunnugt er hefur
Baugur verið tekinn til gjaldþrota-
skipta en ekki er vitað hversu mik-
ið af bréfunum í félaginu Ingibjörg
seldi áður en til þess kom.
Þó ber að geta þess að sam-
kvæmt lánayfirliti Kaupþings yfir
stærstu skuldara bankans, frá því
25. september í fyrra, hafði ISP
selt meirihlutann af bréfum sín-
um í Baugi og notað söluhagnað-
inn til að greiða upp hluta lánanna
við Kaupþing. Bréfin keypti eign-
arhalsfélagið 1998 með hluta af
30 milljarða króna lánveitingu frá
Kaupþingi síðasta sumar. Félagið
er í eigu Jóns Ásgeirs Jóhannesson-
ar, eiginmanns hennar.
Á þessum tíma námu útistand-
andi lán ISP við Kaupþing þó enn
19,8 milljónum evra eða tæplega
2,7 milljörðum íslenskra króna á
gengi þess dags en tæplega 3,65
milljörðum íslenskra króna á gengi
dagsins í dag.
Ekki náðist í Finn Sveinbjörns-
son, bankastjóra Nýja Kaupþings, í
gær til að að spyrja hann um stöðu
félagsins í bankanum.
Staða félagsins versnaði 2008
Í lánayfirlitinu frá Kaupþingi segir
jafnframt að staða ISP hafi versnað
nokkuð árið á undan sökum efna-
hagsþrenginga í Bretlandi, Skand-
inavíu og á Íslandi og má gera ráð
fyrir því að staða félagsins hafi
versnað enn meira eftir hrunið þar
sem hlutabréfaeign félagsins var
aðallega í þeim félögum sem hvað
verst hafa farið út úr hruninu. Árin
2008 og 2009 hafa því án vafa verið
afar erfið fyrir félagið.
Reikna má með að á sama tíma
og eignir félagsins hafa nærri
þurrkast út hafi útistandandi lán
félagsins hækkað til muna, líkt
og Kaupþingslánið ber með sér.
Ástæðan er sú að að lánin eru að
langmestu leyti í erlendri mynt,
eins og áður segir, og staða krón-
unnar hefur veikst til muna gagn-
vart öðrum gjaldmiðlum síðan
árið 2007.
Greiddi sér 300 milljónir
í arð 2007
Staða félagsins hefur þó alls ekki
alltaf verið svo slæm eins og hún
virðist vera nú. Þannig kemur fram í
ársreikningnum að félagið hafi skil-
að hagnaði upp á 363 milljónir árið
2007 og var eigið féð 471 milljón.
Í ársreikningnum kemur enn
fremur fram að með tilliti til þess-
arar jákvæðu afkomu félagsins hafi
verið ákveðið að greiða hluthafan-
um, Ingibjörgu sjálfri, 300 milljónir
króna í arð fyrir árið 2007.
DV náði ekki í Ingibjörgu í gær til
að ræða við hana um stöðu félagsins
um þessar mundir. Óhætt er hins
vegar að gera ráð fyrir því að þetta
félag Ingibjargar Pálmadóttur hafi
farið afleitlega út úr hruninu miðað
við eigna- og skuldastöðu félagsins
fyrir það. Hún er líkast til búin að
tapa nokkru af þeim auðæfum sem
hún erfði eftir föður sinn og móður,
Pálma í Hagkaupum og Jónínu Sig-
ríði Gísladóttur.
Miklar breytingar á milli ára
Sé þessi ársreikningur borinn
saman við ársreikning félagsins frá
árinu 2004 sést glögglega hversu
staða félagsins breyttist mikið á
ekki lengri tíma. Árið 2004 voru
skuldir félagsins „bara“ tæplega
830 milljónir króna á móti eignum
upp á rúmlega 2 milljarða.
Þá var stærsta eign félagsins
eignarhlutur í Baugi upp á rúm-
lega 550 milljónir á bókfærðu
verði en félagið var ekki búið að
skuldsetja sig nærri eins mikið og
það gerði síðar meir. Það var ekki
búið að fjárfesta í Glitni, Landic,
Straumi og Exista, svo dæmi séu
tekin.
ingiBJÖRg skulDaði
RÚMa seX MillJaRða
Ársreikningur eignarhaldsfélags Ingibjargar Pálmadóttur frá árinu 2007 sýnir mjög
skuldsett félag sem átti aðallega hlutabréf í félögum sem í dag eru gjaldþrota eða ramba á
barmi þess. Reikna má með að lán félagsins hafa hækkað töluvert vegna gengisbreytinga
frá hruni, meðal annars hefur lán félagsins í Kaupþingi hækkað um tæpan milljarð. Staða
félagsins hefur breyst mikið því árið 2007 greiddi Ingibjörg sér 300 milljónir í arð.
InGI F. VIlhjálMSSon
blaðamaður skrifar ingi@dv.is
Félag: Bókfært verð í krónum:
Glitnir hf. 67.100.000
Kaupþing banki hf. 151.136.339
Landsbanki Íslands hf. 79.077.197
Decode Genetics Inc. 63.282.825
Landic Property hf. 257.963.839
Exista hf. 11.778.903
Teymi hf. 15.652.000
Straumur-Burðarás Fjárfestingabanki hf. 100.533.588
Stoðir Eignarhaldsfélag ehf. (FL Group hf.) 7.227.042
Bakkavör Group hf. 14.979.461
Baugur Group hf. 4.553.390.674
Fjárfestingafélagið Þor hf. 14.322.241
101 Capital ehf. 500.000
Eignarhaldsfélagið Höfn hf. 218.221
eignaRhlutiR eignaRhalDsfélagsins isP í nokkRuM
félÖguM saMkvæMt áRsReikningi 2007:
Fjárfesti í félögum jóns Ingibjörg er
eiginkona Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, eins og
kunnugt er, og fjárfesti hún aðallega í félögum
tengdum honum eins og Baugi, Landic
Property, FL Group og Glitni. Ingibjörg varð
stjórnarformaður FL Group á árinu 2008.
Stærsta eign ISP var í Baugi