Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.2009, Qupperneq 6
6 miðvikudagur 28. október 2009 fréttir
Lögmannafélag Íslands bíður niðurfellingar lögmannsréttinda:
Krefjast svara um nafnabreytingu
„Við höfum enn ekki fengið svör en
þau viljum við fá. Nafnabreytinguna
átti viðkomandi að tilkynna til okk-
ar og við munum ganga eftir skýr-
um svörum,“ segir Ingimar Ingason,
framkvæmdastjóri Lögmannafélags
Íslands.
Lögmaðurinn Skúli Sigurðsson,
áður Hlynur Skúli Auðunsson, er til
sérstakrar skoðunar hjá Lögmanna-
félagi Íslands sem hefur óskað eftir
því að réttindi hans verði afturkölluð.
Ástæðan er gjaldþrot viðkomandi en
Skúli hefur einnig hlotið dóm. Hann
skipti um nafn fyrir þremur árum
og rekur í dag lögmannsstofu. Þrátt
fyrir að vera dæmdur í tólf mánaða
fangelsi og vera gjaldþrota hefur
Skúli haldið áfram að flytja mál fyrir
héraðsdómi. Nafnabreytinguna til-
kynnti hann hvorki til Lögmannafé-
lags Íslands né dómsmálaráðuneyt-
isins. Sjálfur fullyrti hann í samtali
við DV að hann ætlaði sér ekki að
nýta réttindin á meðan málið væri til
skoðunar og sagðist ekki vera í nein-
um feluleik.
Það varð Skúla til happs að af
þeim tólf mánuðum sem hann var
dæmdur í voru þrír þeirra óskil-
orðsbundnir. Þannig slapp hann við
sviptingu lögmannsréttinda þar sem
til þess hefði hann þurft að hljóta
fjóra mánuði óskilorðsbundna.. Þess
vegna hélt Skúli réttindum sínum og
gat að lokinni afplánun haldið áfram
að flytja mál.
Nú gæti hins vegar orðið breyting
á þar sem Skúli er gjaldþrota og upp-
fyllir því ekki lengur skilyrði um lög-
mannsréttindi, að mati Lögmanna-
félagsins.
Beðið er niðurstöðu dómsmála-
ráðuneytisins um hvort Skúli fái að
halda lögmannsréttindunum. Ingi-
mar vonast eftir svörum fljótlega og
ætlar að ítreka ósk um svör lögmanns-
ins á nafnabreytingunni. „Ég vonast
til þess að þetta skýrist sem fyrst og
við viljum að sjálfsögðu fá skýr svör
fljótlega. Við teljum okkur eiga rétt á
því,“ segir Ingimar. trausti@dv.is
Breytti nafninu Lögmaðurinn breytti nafni sínu eftir afplánun.
Straumur Fjárfestingabanki hefur
keypt kröfur annarrar fjármálastofn-
unar gegn eigendum World Class-
heilsuræktarstöðvanna, Birni Leifs-
syni og Hafdísi Jónsdóttur. Það gerir
bankinn til að tryggja betur hagsmuni
sína og auðvelda málarekstur gegn
líkamsræktarhjónunum.
Straumsmenn eru afar ósátt-
ir vegna kennitölubreytingar World
Class og aðstoðar Landsbankans við
þá breytingu, eftir því sem heimild-
ir DV herma. Landsbankinn eign-
aðist húseignina, sem World Class
Laugum er rekið í, eftir að Nýsir fór
á hausinn. Til að tryggja húsaleigu og
tekjur hefur bankinn hjálpað eigend-
unum að stofna nýtt félag og skilja
skuldir eftir í gamla félaginu. Skuld-
ir sem eru tilkomnar eftir misheppn-
að útrásarævintýri heilsuræktarinn-
ar í Danmörku. Þær nema milljarði
íslenskra króna sem Björn og Hafdís
vonast til að verði afskrifaðar.
Samkvæmt heimildum DV und-
irbúa Straumsmenn málsókn gegn
World Class og á þeim bænum telja
menn borðleggjandi að kennitölu-
breytingunni verði rift. Til að auð-
velda málsóknina hefur bankinn
keypt til sín kröfur frá annarri fjár-
málastofnun, til þess að tryggja stöðu
sína og ná betur til eigandanna fyrir
dómstólum.
Samkeppnisaðili uggandi
Þröstur Jón Sigurðsson, eigandi
Sporthússins, segist ekki vilja trúa
því að kennitöluflakk World Class
sé staðreynd. Sé svo lýsir hann yfir
verulegum vonbrigðum og kallar eft-
ir því að sama gangi yfir alla rekstr-
araðila heilsuræktarstöðva. „Ég bara
vil ekki trúa þessu og vona að þessi
leið sé ekki fær. Ég trúi því ekki að
bankastofnanirnar ætli að fara svona
með samkeppnismarkað. Þetta getur
ekki verið línan sem þær vilja leggja
því þá verður sama yfir alla að ganga.
Menn verða einfaldlega að standa
og falla með þeim ævintýrum sem
þeir fara út í,“ segir Þröstur Jón. „Mér
bregður mjög ef banki hjálpar til við
svona gjörninga, ég vil ekki trúa því.
Ef þetta er rétt og síðan kemur til þess
að skuldir World Class verði felld-
ar niður verður að kippa rekstrinum
af þeim aðilum sem komu félaginu í
óefni. Það hlýtur bankinn að gera og
koma síðan félaginu í opið söluferli.
Ég get ekki séð aðra færa leið,“ bætir
Þröstur Jón við.
Vinna úr málunum
Hafdís er formaður Félags kvenna í
atvinnurekstri og samkvæmt heim-
ildum DV heyrast óánægjuraddir úr
röðum félagsmanna vegna kenni-
tölubreytingarinnar. Sofía Johnson,
framkvæmdastjóri félagsins, kannast
aðspurð ekki við óánægjuna og hef-
ur trú á því að eigendur World Class
vinni úr sínum málum með lánar-
drottnum. „Útilokað er að skipta
bara um kennitölu sisona og losna
við skuldir eftir eigin geðþótta. Ég
hef þá trú að lög og reglur virki bet-
ur en svo að ný kennitala sé hin full-
komna leið út úr skuldavanda fyrir-
tækja. Líkamsræktarstöðvar World
Class bera eigendum sínum gott
vitni og ég get aðeins vonað að þeim
takist að leysa þau mál sem að þeim
steðja hverju sinni,“ segir Sofía.
Enn ber Landsbankinn fyrir sig
bankaleynd og þaðan fást engin
svör. Þrátt fyrir tilraunir náðist ekki
í Björn Leifsson við vinnslu fréttar-
innar.
Samkvæmt heimildum DV undirbúa forsvarsmenn Straums Fjárfestingabanka mál-
sókn gegn eigendum World Class og á þeim bænum telja menn borðleggjandi að kenni-
tölubreytingu fyrirtækisins verði rift. Til að auðvelda málsóknina hefur bankinn keypt
til sín kröfur frá annarri fjármálastofnun, til þess að tryggja stöðu sína og ná betur til
eigendanna fyrir dómstólum.
UNDIRBÚA MÁLSÓKN
GEGN WORLD CLASS
TrauSTi hafSTeinSSon
blaðamaður skrifar: trausti@dv.is
„Útilokað er að
skipta bara um
kennitölu sisona og
losna við skuldir eft-
ir eigin geðþótta.“
hafdís og Björn Eigendur World
Class glíma við milljarðarskuld eftir
misheppnaða útrás í Danmörku.
Þungt yfir World Class skuldar tals-
vert eftir útrásarverkefni í Danmörku
og hætta er á málsókn lánardrottna
vegna innheimtu skulda.
Hvalfjarðargöng
verða lokuð
Hvalfjarðargöng verða lok-
uð næstu tvær nætur frá
miðnætti til klukkan sex að
morgni miðviku- og fimmtu-
dags vegna reglubundinna
viðhaldsframkvæmda og
hreinsana. Lokanirnar hófust
á í nótt. Meðal annars verða
ljós hreinsuð og skipt um
bolta í festingum dúks sem
farinn er að leka. Auk þessa
verður fræst í miðlínu þannig
að bílstjórar heyri þegar þeir
aka inn á rangan vegarhelm-
ing, líkt og er á veginum á
Kjalarnesi.
Blindaðist af
sólinni
Ökumaður á Akureyri blindað-
ist af sólskininu í gær og ók við
það á ljósastaur og endaði utan
vegar er hann ók um Miðhúsa-
braut á Akureyri. Ökumaður-
inn var fluttur á sjúkrahús til
frekari aðhlynningar en hann
kenndi sér meins í baki. Fjar-
lægja þurfti bílinn með krana-
bíl af vettvangi en hann er ekki
talinn ónýtur.
Þarf að læra
aftur að keyra
Ungur piltur fór á rúntinn
um helgina með glænýtt
ökuskírteini í vasanum. Sá
var staðinn að hraðakstri
í Ártúnsbrekkunni en bíll
hans mældist á 128 km
hraða. Auk sektarinnar fer
pilturinn í akstursbann og
verður gert að setjast aftur
á skólabekk til að læra upp
á nýtt hvernig eigi að aka
bíl. Annars voru nokkrir
tugir ökumanna teknir fyrir
hraðakstur á höfuðborgar-
svæðinu um helgina en lög-
reglan var víða við hraða-
mælingar.
Húnabjörg sótti
vélarvana bát
Eitt af björgunarskipum
Slysavarnafélagsins Lands-
bjargar, Húnabjörgin frá
Skagaströnd, var kallað út
á níunda tímanum í gær
vegna vélarvana báts. Bát-
urinn, sem er 15 tonna
plastbátur, var á línuveiðum
á Kolkugrunni um 35 míl-
ur út af Skagaströnd þegar
hann fékk netadræsur sem
voru fljótandi í sjónum í
skrúfuna. Húnabjörgin kom
að hinum vélarvana báti
á ellefta tímanum og tók
hann í tog. Veður á svæð-
inu var þokkalegt og engin
hætta var talin á ferðum
enda báturinn úti á miðjum
flóa.