Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.2009, Blaðsíða 8
8 miðvikudagur 28. október 2009 fréttir
„Þetta er hrikalegt morð á mínu mann-
orði og ég veit ekkert hvort ég nái að
vinna það tilbaka,“ segir móðir fjög-
urra og níu ára gamalla barna, sem
var handtekin í mansalsmálinu svo-
kallaða. „Ég get bara ekki sætt mig við
það. Ég er náttúrlega að stefna emb-
ættinu fyrir ólögmæta handtöku og
framkvæmd hennar. Að mörgu leyti
hefur verið brotið á okkur og fram-
koman í okkar garð er ömurleg. Börn-
in mín eru líka komin með lögfræð-
ing og eru að kæra. Þau voru virkilega
hrædd, svo hrædd að þau þorðu fyrst
ekki að koma aftur heim,“ segir konan
sem vill ekki koma fram undir nafni
barna sinna vegna.
Handtakan fór fram í viðurvist
barnanna tveggja. Hún hefur ákveð-
ið að kæra lögregluna á Suðurnesjum
fyrir ólögmæta handtöku. Eiginmaður
hennar var einnig handtekinn og sit-
ur í gæsluvarðhaldi, ásamt Sigurjóni
Halldórssyni. Ragnari Þórarinssyni
var sleppt eftir að gæsluvarðhaldið var
kært og varðhaldsástæðu gegn manni
hennar var breytt úr grunsemdum um
mansal yfir í fjársvik. Eiginmaður kon-
unnar rekur bílaverkstæði í Reykjavík
og hinir síðarnefndu verktakafyrir-
tæki.
Ekkert í höndunum
Konan telur framkomu lögreglunn-
ar vera til skammar og skilur ekkert í
því hvers vegna rannsóknin beinist að
þeim hjónum. „Það var alveg ótækt
hvernig þetta fór fram og lögreglan
skal fá að finna fyrir því og éta þetta
allt ofan í sig. Lögreglan hefur farið of-
fari í málinu og hún hefur akkúrat ekki
neitt í höndunum. Við spyrjum okkur
af hverju í ósköpunum málið beinist
að okkur. Við vorum bæði handtek-
in vegna mansals og lögreglan hefur
greinlega ekkert í höndunum um það.
Við tengjumst þessu máli ekki á nokk-
urn hátt og höfum engin tengsl við
aðra aðila málsins. Ég er ósköp venju-
leg tveggja barna móðir,“ segir hún.
Skilur ekkert
Samkvæmt heimildum DV snúa grun-
semdir lögreglunnar á Suðurnesjum
að því annars vegar að eiginmaður
hennar tengist fjársvikum með nið-
urrifi og sölu stolinna ökutækja og að
Sigurjóni hins vegar vegna fjársvika og
grunsemda um mansal. Ljóst þykir að
Hörður Már átti bílaviðskipti við ein-
hverja þeirra Litháa sem sitja í gæslu-
varðhaldi.
Þormóður Skorri Steingrímsson,
verjandi eiginmannsins, bendir á að
skjólstæðingur hans sé ekki lengur í
haldi vegna grunsemda um mansal
heldur snúi þær að fjársvikum. Hann
segist ekki átta sig á ástæðum gæslu-
varðhaldsins. „Hann hefur einu sinni
verið yfirheyrður á tímabilinu og lítið
frá því að segja. Á grundvelli þess sem
þar kom fram er mjög skrítið að hann
sé í haldi. Við botnum ekkert í þessu.
Að mínu mati hefur ekkert sakarefni
verið borið undir skjólstæðing minn,
hann situr þarna inni og veit ekki
neitt,“ segir Þormóður Skorri.
Alveg saklaus
Aukinn mannafli frá lögreglunni á
höfuðborgarsvæðinu hefur verið sett-
ur í rannsóknina. Lögreglan hefur
vaxandi áhyggjur af naumum tíma en
gæsluvarðhaldi yfir sjömenningun-
um, fimm Litháum og tveimur Íslend-
ingum, sem sitja inni lýkur á morgun.
Jón Magnússon, verjandi Ragnars,
fagnar því að skjólstæðingi hans hafi
verið sleppt. Aðspurður segir hann
skjólstæðinginn klárlega lýsa yfir sak-
leysi. „Minn skjólstæðingur var leyst-
ur út. Það var alveg galið að henda
honum í gæsluvarðhald, enda hafði
lögreglan ekkert á hann. Þetta var bara
svo langt í burtu frá öllu eðlilegu. Fram
til þessa hef ég lítið fengið að vita ann-
að en frásögn míns skjólstæðings. Það
er útlit fyrir að minn maður hafi ver-
ið á vitlausum stað á vitlausum tíma.
Hæstiréttur hefur gögnin í höndun-
um og dæmir hann lausan í kjölfarið.
Auðvitað fagna ég þeirri niðurstöðu,“
segir Jón.
Engin tengsl
„Mansal er mjög alvarlegur glæp-
ur sem skal taka föstum tökum. Hins
vegar þarf lögreglan að taka á því með
ábyrgum hætti og greina sauðina frá
höfrunum. Mér virðist lögreglan því
miður hafa farið offari. Í þessu tilviki
hélt skjólstæðingur minn að um lög-
regluviðtal væri að ræða en var svo allt
í einu svipt yfir í varðhald þannig að
hann vissi ekki hvaðan á sig stóð veðr-
ið. Hann er auðvitað enn undir rann-
sókn og grun en ég veit ekkert um það
hvort lögreglan hafi eitthvað meira við
hann að tala. Miðað við það sem ég
hef í höndunum liggur það ekki fyrir
að minn maður verði með einhverj-
um hætti tengdur við þetta mál og
hann lýsir eðlilega yfir sakleysi sínu,“
bætir Jón við.
Sigurður Sigurjónsson, verjandi
Sigurjóns, tekur í sama streng og úti-
lokar tengsl síns skjólstæðings við er-
lenda glæpamenn. Hann telur útlit
fyrir að lögreglan sé í vandræðum í
rannsókn málsins. „Okkur þykir fram-
ganga lögreglunnar ótrúlega hatrömm
gagnvart fjölskyldufólki og af litlu til-
efni. Þegar upp er staðið mun hún
þurfa að svara fyrir þetta og yfir mál-
ið verður farið síðar. Lögreglan virðist
ekki hafa frá neinu að segja og virðist
vera í vandræðum. Ef mansal er tilfell-
ið þá er mjög þarft að taka á því. Það
eru hins vegar engin tengsl milli míns
skjólstæðings og þessara erlendu aðila
sem þar eru grunaðir,“ segir Sigurður.
Aðspurður segir Sigurður að íhug-
að verði á næstunni hvort handtak-
an og gæsluvarðhaldið verði kært.
„Frelsissvipting er mjög alvarlegt
mál. Í rannsókninni er ekkert að ger-
ast og ljóst er frá sjónarhóli skjólstæð-
ingsins að tengslin eru engin. Þar að
auki hef ég enga vitneskju fengið um
hvers vegna hann er enn þá í haldi.
Því hvernig haldið hefur verið á mál-
inu þarf að fylgja alveg til enda,“ segir
Sigurður.
Sýna nærgætni
Sveinn Andri Sveinsson, verjandi kon-
unnar, gagnrýnir handtökuna harð-
lega. Hann segir algjörlega ástæðu-
laust að tengja hana inn í rannsókn
málsins. „Ég átta mig ekki á því hvers
vegna minn skjólstæðingur var hand-
tekinn því konan virðist hafa unnið
sér það eitt til saka að vera eiginkona
meints sakbornings og hún teng-
ist málinu ekki með neinum hætti.
Handtakan var fráleit og algjörlega að
ástæðulausu að halda henni yfir nótt.
Það virðist vera mikill þrýstingur á að
taka málið af hörku en menn mega
ekki gleyma sér algjörlega. Börn-
in voru í sjokki og þetta hefur feng-
ið mjög á þau. Svona lagað verður að
passa,“ segir Sveinn Andri.
„Lögreglan fór inn á heimilið þar
sem heimilisfaðirinn var tekinn með
látum. Meginreglan er sú að farið
sé fram af nærgætni þegar vitað er
að börn eru í spilinu og þau eiga alls
ekki að vera viðstödd þegar foreldrar
eru handteknir. Það var klárlega ekki
passað upp á í þessu tilviki og borð-
leggjandi að konan mun leita réttar
sín varðandi ólögmæta handtöku. Þar
fyrir utan var skjólstæðingurinn minn
beittur þrýstingi og plataður inn á að
kalla mig ekki til.“
Getur skaðað
Hallóra Gunnarsdóttir, framkvæmda-
stjóri Barnaverndar Reykjavíkur, seg-
ir afar mikilvægt að huga að vernd
barna þegar handtökur fara fram.
Hún segir að börn geti orðið fyrir al-
varlegum og langvarandi áhrifum
verði þau vitni að handtöku foreldra.
„Svona lagað getur skaðað til lang-
frama og því afar mikilvægt að haft
sé samráð við barnaverndaryfirvöld
við undirbúning handtöku. Und-
ir eðlilegum kringumstæðum, til að
tryggja öryggi barnanna, ætti að hafa
samband við okkur. Handtaka verð-
ur að vera eins sársaukalítil og hægt
er gagnvart börnum, æskilegast er að
þau verði ekki vitni að slíkum uppá-
komum,“ segir Halldóra.
Þormóður Skorri útilokar að
nokkuð tengi skjólstæðing hans við
glæpastarfsemina sem til rannsóknar
er. Hann segir það forgangsverkefni
að koma Herði Má til fjölskyldunnar.
„Það er ekki hægt að segja að nokk-
uð tengi þá saman, tengingin er svo
óveruleg að varla er hægt að greina
frá því. Hann þekkir mennina ekki
neitt og okkur hefur ekki verið sýnt
fram á meint tengsl hans við málið.
Að svo stöddu er lítið hægt að gera
nema bíða en ég vænti þess að skjól-
stæðingur minn verði látinn laus.
Enn sem komið er höfum við rætt
stuttlega hvort handtakan verði kærð.
Þegar skjólstæðingur minn verður
laus úr haldi förum við yfir það. Það
er núna í algjörum forgangi að koma
viðkomandi til fjölskyldu sinnar,“ seg-
ir Þormóður Skorri.
Undirbúningur er hafinn að lögsókn fyrir hönd tveggja barna, fjögurra og níu ára gamalla, vegna ólögmætr-
ar handtöku foreldra þeirra. Þau voru viðstödd harkalega handtökuna og eru sögð í verulegu sjokki. Móður
barnanna hefur verið sleppt úr haldi og hún ætlar líka að kæra. Sveinn Andri Sveinsson, verjandi móður-
innar, segir málið borðleggjandi.
BÖRNIN KÆRA LÖGREGLUNA
TrAuSTi hAfSTEinSSon
blaðamaður skrifar: trausti@dv.is
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum:
Hafnar ásökunum Sveins Andra
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum,
Sigríður Björk Guðjónsdóttir, hafn-
ar alfarið frásögn lögmannsins
Sveins Andra Sveinssonar af hand-
töku manns sem grunaður er um að
tengjast mansalsmálinu svokallaða.
Sigríður segir í yfirlýsingu að lög-
reglan hafi að leiðarljósi í aðgerðum
sínum að ganga ekki harðar fram en
brýn þörf er á hverju sinni og gæt-
ir þess alveg sérstaklega þegar börn
eru stödd á vettvangi.
„Í þessu tilviki fóru fimm óein-
kennisklæddir lögreglumenn að
húsinu og þar utandyra hittu þeir
eiginkonu grunaða ásamt tveimur
börnum hennar. Lögreglan kynnti
konunni fyrirhugaðar aðgerðir. Kon-
an fékk að hringja í móður sína og
síðan í vinkonu sína sem hún bað um
að sækja börnin. Eldra barnið, telpa,
fór á brott með vinkonu sinni og var
það með vitund og vilja móðurinnar,“
segir í yfirlýsingu frá Sigríði Björk.
Hún segir eiginmann konunnar
hafa verið mjög æstan og dónalegan
við lögregluna er hann kom heim og
sýnt þá hegðun að syni sínum ásjá-
andi. „Maðurinn var síðan handtek-
inn í húsinu vegna hegðunar sinnar
og færður í handjárn. Hvorugt barn-
ið varð vitni að þeirri aðgerð né þegar
maðurinn var fluttur á brott af heim-
ilinu af tveimur einkennisklæddum
lögreglumönnum. Kona kom á vett-
vang og tók drenginn á brott með sér
að ósk móðurinnar. Húsleit var gerð
á heimilinu að konunni og lögmanni
viðstöddum,“ segir í yfirlýsingu frá
Sigríði Björk.
„Þau voru virkilega
hrædd, svo hrædd að
þau þorðu fyrst ekki að
koma aftur heim.“
harkaleg handtaka Konan sættir sig
ekki við framgöngu lögreglunnar sem
handtók hana og eiginmann hennar að
börnum þeirra viðstöddum. Hún hyggst
leita réttar síns og kæra lögregluna.