Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.2009, Qupperneq 10
10 miðvikudagur 28. október 2009 fréttir
Betulic birkilaufstöflurnar innihalda 98% birkilaufsduft
og eru framleiddar af natni með aðferð sem varðveitir
upprunalega eiginleika birkilaufs sem allra best.
Það er mikil og gömul hefð fyrir því að nota birkilauf sem
fæðubótarefni til að hraða efnaskiptum og losa vatn úr
líkamanum, draga úr bólgum og afeitra líkamann (detox).
Birkilauf hefur góð áhrif á bæði vökvajafnvægi líkamans og húð,
auk þess sem það örvar starfsemi nýrna og þvagfæra.
Ráðlagður dagskammtur 2 til 4 töflur er samsvarar 980 - 1960 mg. af
birkilaufi. Betulic inniheldur hvorki laktósa, glúten, sætuefni né ger.
BETULIC - BIRKILAUF
www.birkiaska.is
Nýr kostur í DV eru þjónustuauglýsingar.
ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR
Hringdu í síma 515 5550
og byrjaðu strax í dag!
smaar@dv.is
Flóttinn
frá New York
New York, bæði borg og ríki,
stendur frammi fyrir því að íbú-
ar flýja unnvörpum til annarra
hluta Bandaríkjanna. Fólksflutn-
ingarnir kosta borg og ríki háar
fjárhæðir vegna tapaðra skatt-
tekna.
Samkvæmt könnun á vegum
Empire Center for New York
State Policy hefur meira en ein
og hálf milljón manns yfirgefið
New York frá árinu 2000 til 2008.
Stærstur hluti þeirra sem flutti
var íbúar New York-borgar eða
sem nemur einum af hverjum
sjö skattgreiðendum borgarinn-
ar. Til að bæta gráu ofan á svart
hefur í stað þeirra sem fluttu á
brott komið fólk sem að meðal-
tali hefur lægri tekjur og greiðir
þar af leiðandi lægri skatta. Á
heildina litið þénuðu hinir brott-
fluttu 13 prósentum meira en
hinir aðfluttu.
Í könnuninni komu New
York-borg og -ríki verst út, en
Flórída og New Jersey komu best
út. Meira en 250.000 brottfluttra
New York-búa fóru til Flórída og
172.000 fóru til New Jersey.
Borgar fyrir
kaffið sjálfur
Í Búlgaríu, einu þeirra Evrópu-
sambandslanda sem hvað mest
hefur orðið fyrir barðinu á fjár-
málakreppunni, skal nú tekið af
hörku á opinberum útgjöldum.
Í frétt á Reuters segir að Boiko
Borisov, forsætisráðherra lands-
ins, hafi sett nýjar reglur sem
gilda eiga um ráðherra og gesti
þeirra.
Embætti forsætisráðherra
hefur hingað til notað sem
svarar til um 630.000 krónum á
mánuði í blóm, drykkjarföng og
smárétti fyrir gesti, en nú er því
hætt.
Borisov segist borga fyrir sitt
kaffi sjálfur og segist þurfa að
gera upp við sig hvort hann sé
viljugur til að borga fyrir kaffi
fyrir opinbera gesti. Reglurn-
ar gilda fyrir öll ráðuneyti og
héraðsstjóra og talið er að spara
megi sem samsvarar tæplega
90 milljónir króna með þessum
reglum.
Ítalskur karlmaður lagði fram óvenjulega beiðni til lögreglu:
Í fangelsi frekar en heim
Þrítugur ítalskur karlmaður frá bæn-
um Villabate, skammt frá Palermo á
Sikiley, grátbað lögregluna að breyta
úrskurði um stofufangelsi í fangels-
isdóm. Ástæða bónar mannsins var
sú að honum hugnaðist fangelsisvist
betur en samvist við eiginkonuna.
Sikileyingurinn hafði, samkvæmt
frétt á Reuters, þegar afplánað hluta
fangelsisdóms sem hann fékk fyrir að
losa sig við eitraðan úrgang á ólögleg-
an hátt og fengið leyfi til að afplána af-
ganginn heima samkvæmt ákvæðum
um stofufangelsi.
Í von um að komast aftur í fang-
elsi og losna þannig við eilíf rifrildi
og deilur við eiginkonu sína braut
hann gegn ákvæðum stofufangels-
unarinnar, yfirgaf heimili hjónanna
og fór rakleiðis á lögreglustöðina.
Þangað kominn beiddist hann þess
auðmjúklega að verða settur á bak
við lás og slá að nýju.
Eiginmaðurinn ólánsami fór
bónleiður til búðar og mætti ekki
miklum skilningi hjá laganna vörð-
um. Í stað þess að verða við bón
hans ákvað lögreglan að ákæra
hann fyrir að hafa brotið ákvæði
stofufangelsunarinnar og gæti sú
ákæra orðið til þess að stofufang-
elsisdómur mannsins lengdist.
Eftir að hafa veitt manninum
þennan lítt eftirsóknarverða glaðn-
ing mæltist lögreglan til þess að
maðurinn drifi sig heim og næði
sáttum við eiginkonuna.
Í grjótinu, sviðsett mynd Ónafn-
greindur Sikileyingur telur fangelsi
griðastað. Mynd: Photos.coM
Hjá leyniþjónustu Bandaríkjanna,
CIA, gekk hún undir nafninu Donna.
Donna var kúbverskur njósnari sem
beitti þeim ráðum sem þurfti til að
koma upplýsingum til leyniþjónust-
unnar; faldi skjöl í niðursuðudósum,
sendi skilaboð gegnum leynilegt út-
varpstæki og faldi skilaboð í tveimur
lögum – einum valsi og lagi úr óper-
unni Madame Butterfly.
En Donna var ekki bara einhver
kona og í bókinni, Fidel og Raúl, bræð-
ur mínir: Hin leynda saga, kemur í ljós
hver Donna var – Juanita Castro, systir
Raúls og Fidels Castro, núverandi og
fyrrverandi leiðtoga Kúbu.
Leyniþjónustan hafði mikinn
áhuga á Kúbu og reyndi í hálfa öld án
árangurs að fyrirkoma Fidel, en sam-
kvæmt síðari tíma upplýsingum voru
tilraunirnar oftar en ekki með öllu
misheppnaðar og uppspretta háð-
ungar. Leyniþjónustan reyndi að fyr-
irkoma Fidel, reyndi að gera innrás á
Kúbu og reyndi að kynda undir bylt-
ingu, og hafði í engu árangur sem erf-
iði.
Ólík systkin
Juanita og Fidel ku ekki hafa verið
náin systkin í æsku og framtíð þeirra
átti eftir að undirstrika hve ólík þau
voru. Innan tveggja ára frá bylting-
unni á Kúbu og sigri yfir einræðis-
herranum Fulgencio Batista, árið
1959, hafði Juanita gerst svikari og
handbendi erkióvinar bróður síns,
leyniþjónustu Bandaríkjanna.
Juanita var á mála hjá leyniþjón-
ustunni í þrjú róstusöm ár þeg-
ar stjórn kommúnista var skekin af
Svínaflóa-innrásinni og flugskeyta-
kreppunni.
Juanita Castro, sem býr í Flórída,
upplýsti í fyrsta skipti á mánudag-
inn um hvernig hún kom leynileg-
um upplýsingum um Fidel Castro til
leyniþjónustunnar á árunum 1961 til
1964, áður en hún hrökklaðist í út-
legð.
Juanita Castro studdi upphaf-
lega aðgerðirnar sem bundu enda
á einræði Batista, sem naut stuðn-
ings Bandaríkjastjórnar. Hún hyllti
byltinguna og studdi áætlanir nýrra
stjórnvalda á sviði félagsmála með
því, meðal annars, að vinna á heilsu-
gæslustöðvum. En Juanita hefur ekki
talað við bræður sína, Fidel og Raúl,
fyrrverandi og núverandi leiðtoga
Kúbu, í yfir fjörutíu ár.
Fær bakþanka
Árið 1958, þegar andi byltingar sveif
yfir vötnum, ferðaðist Juanita, þá 24
ára, frá Havana til Bandaríkjanna.
Tilgangur ferðarinnar var að leita eft-
ir fjárstuðningi til handa bræðrum
sínum sem stunduðu skæruhernað
í Sierra Maestra-fjöllunum. Áður en
hún fór til Bandaríkjanna hafði hún
verið í Havana, ásamt fjölskyldunni,
og útvegað matvæli og reynt að afla
stuðnings við bræðurna Fidel og
Raúl sem leiddu árásir á hersveitir
Batista.
En eftir að Fidel Castro tók við
stjórnartaumunum féllu á systur
hans tvær grímur þegar andstæðing-
ar hans voru teknir af lífi unnvörpum
og þjóðin var knúin í átt að komm-
únisma og Fidel kastaði fyrir róða
því þjóðernislega lýðræði sem hann
hafði lofað.
Þess í stað kom Fidel á eins flokks
marxísku ríki „einfaldlega vegna eig-
in þarfar til að halda völdum“.
Faldi stjórnarandstæðinga
Í bók sinni skrifar Juanita Castro:
„Fann ég til iðrunar vegna ákvörðun-
ar minnar um að svíkja Fidel með því
samþykkja fund með óvinum hans?
Nei, af einni einfaldri ástæðu: Ég sveik
hann ekki. Hann sveik mig.“
Juanita segir enn fremur að Fidel
hafi svikið þúsundir þeirra sem þjáð-
ust og börðust fyrir byltinguna, bylt-
ingu sem að sögn Fidels myndi færa
þjóðinni frið og lýðræði og yrði „eins
kúbversk og pálmatré“, eins og Fidel
orðaði það sjálfur.
„Ég upplifði vonsvik þegar ég horfði
upp á svo mikið óréttlæti,“ sagði Juan-
ita í viðtali á Univision Noticias 23,
spænskri sjónvarpsstöð á Miami.
Vegna vonbrigða sinna skaut hún
skjólshúsi yfir óvini stjórnar bróður
hennar á heimili sínu í Havana, og
forðaði fólki sem ofsótt var af leyni-
lögreglu landsins frá handtöku og
jafnvel aftöku.
„Aðstæður mínar urðu viðkvæm-
ar vegna aðgerða minna gegn stjórn-
inni... Fidel hætti að koma á heimili
okkar og hann sagði að við værum
að vernda það sem hann kallaði
„maðka“, og var ekki sáttur við það.“
Juanita flýði frá Kúbu 1964, ári eft-
ir eftir andlát móður hennar, enda
taldi hún að henni yrði ekki vernd-
ar auðið gegn leynilögreglunni sem
sýndi henni síaukinn áhuga. Raúl,
bróðir hennar, hjálpaði henni að fá
áritun sem gerði henni kleift að yf-
irgefa landið og hún settist að á Mi-
ami.
Flugumaður innan
fjölskyldunnar
Ljóst er á uppljóstrunum Juanitu að
þrátt fyrir lánleysi bandarísku leyni-
þjónustunnar í tilraunum til að koma
bróður hennar frá tókst leyniþjón-
ustunni engu að síður að koma sér
upp flugumanni nánast innan æðstu
stjórnar Kúbu.
Leiðir Juanitu og leyniþjónustu
Bandaríkjanna lágu saman fyrir milli-
göngu sendiherra Brasilíu á Kúbu á
þeim tíma. „Þeir vildu ræða við mig
því þeir höfðu áhugaverða hluti að
segja mér, og áhugaverðra spurninga
að spyrja mig, til dæmis hvort ég væri
reiðubúin til að taka áhættuna, hvort
ég væri reiðubúin til að heyra hvað
þeir höfðu að segja. Ég var frekar sleg-
in en, engu að síður, ég sagði já,“ seg-
ir Juanita um ráðningu sína hjá leyni-
þjónustunni bandarísku.
dulnefnið „donna“
Eftir að hafa hitt starfsmann leyni-
þjónustunnar, „Enrique“, á hóteli í
Mexíkóborg, árið 1961, fékk hún dul-
nefnið Donna og bækur með dul-
málslyklum svo hún gæti tekið við
fyrirmælum.
Juanita setti þau skilyrði að hún
myndi enga greiðslu þiggja fyrir störf
sín í þágu leyniþjónustunnar og að
ekki yrði farið þess á leit við hana að
hún tæki þátt í ofbeldisaðgerðum
gegn stjórnvöldum á Kúbu.
Í ljósi þess sem Juanita gefur upp í
bók sinni er ekki að undra þó upp vakni
ýmsar spurningar. Ein þeirra er hvort
einhverjar þeirra upplýsinga sem hún
kom til leyniþjónustunnar hafi hjálpað
til í einhverri þeirra 638 árangurslausu
tilrauna sem leyniþjónustan gerði til
að koma Fidel Castro fyrir kattarnef. Í
ljósi þess að hann hefur ekki enn safn-
ast til feðra sinna má ætla að svarið
liggi í augum uppi.
Þegar þetta er skrifað höfðu hvorki
komið viðbrögð við uppljóstrunum
Juanitu frá ríkisstjórn Bandaríkjanna
né Kúbustjórn.
Kolbeinn þorsteinsson
blaðamaður skrifar: kolbeinn@dv.is
Í bók sinni, Fidel og Raúl, bræður mínir: Hin leynda saga, sviptir Juanita systir þeirra
hulunni af störfum sínum í þágu bandarísku leyniþjónustunnar, CIA. Hún var á mála
hjá CIA frá 1961 til 1964 er hún flýði frá Kúbu með aðstoð raúls castro sem tók við
stjórnartaumum á Kúbu af bróður þeirra Fidel.
Svik úr iNNSta raNNi
Fidel fær viðurkenningu frá varaforseta ekvador Systir Fidels segir hann hafa
svikið sig og þúsundir annarra eftir byltinguna. Mynd: AFP
bróðir og systir Juanita varð fyrir
vonbrigðum með stjórnarhætti Fidels.
bók Juanitu castro Juanita var á mála
hjá erkióvini bróður síns.