Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.2009, Side 12
Svarthöfði hefur mænt aðdáun-araugum á njósnara hennar hátignar, James Bond, frá því hann var krakki. Aðdáunin á
007, kempunni sem yfirvöld hafa út-
hlutað heimild til að drepa, hefur síst
dvínað eftir að Svarthöfði varð fullorð-
inn. Hún hefur í raun aukist eftir því
sem grái fiðringurinn magnast. Bond
er nefnilega einhvern veginn með
þetta allt sem hálfútbrunninn íslensk-
ur karlmaður, með góðærisístru og
myntkörfulán, þráir.
Bond er alltaf í toppformi, hef-ur aldrei áhyggjur af fjármál-um og getur reykt og drukkið eins og hann lystir án þess að
þurfa nokkurn tíma að þola þynnku
eða stressa sig á lungnakrabba, æða-
þrengslum og risvandamálum. Og svo
veður þessi tjalli í konum án þess að
hafa nokkuð fyrir því. Svarthöfði hefur
því eðlilega oft skellt sér í smóking-
inn í dagdraumum sínum og hafið sig
yfir kreppuna og Icesave-þrasið með
hristan Martíní í glasi, fögur fljóð sér
við hlið og frethólk með hljóð-
deyfi í buxnastrengnum.
Svarthöfði er þó ekki veruleika-firrtari en svo að hann
hefur alla tíð gert
sér grein fyrir
að fyrir honum
verði njósnaralíf-
ið aldrei
annað en fjarlægur draumur. Venju-
legir Íslendingar verða ekki njósnarar
frekar en geimfarar nema þeir flytji af
landi brott strax í frumbernsku.
Eða það er að segja þetta hélt Svarthöfði þangað til hann las frétt DV í gær um óperu-söngvarann Björn Ingiberg
Jónsson sem er í Englandi að læra
njósnir hjá NATO á vegum Varnar-
málastofnunar. Að vísu var þessi frétt
súrsæt fyrir Svarthöfða. Gleðifrétt að
því leyti að hún færði Svarthöfða heim
sanninn um að Íslendingum eru allir
vegir færir þrátt fyrir hrun útrásar-
innar. Fréttin var hins vegar niður-
drepandi þar sem Svarthöfði þarf nú
að naga sig í handarbökin það sem
eftir er ævinnar fyrir að hafa ekki farið
í tónlistarnám í æsku. Þetta skrifast
þó auðvitað fyrst og fremst á foreldra
Svarthöfða sem vanræktu tónlistarlegt
uppeldi hans af fullkomnu áhuga-
leysi en pískuðu hann frekar áfram í
fótbolta. Sem gerði nú ekki mikið fyrir
sjálfstraustið þar sem Svarthöfði er
bæði kiðfættur og hjólbeinóttur og var
því alltaf látinn vera í marki og hefur
alla tíð síðan verið aftastur í lífinu.
Sé hins vegar allri gremju og öf-undsýki í garð Björns Ingibergs sleppt sér Svarthöfði auð-vitað snilldina í því að hann
skuli sendur í njósnaraskóla NATO.
Auðvitað verða allir góðir söngvarar
að geta sungið. Meira að segja Sean
Connery brast í söng í Dr. No og söng
fyrir Ursulu Andress um hversu kósí
það er að kúra sig undir mangótré.
Svarthöfða þótti þetta kabarett-atriði
í fyrstu Bond-myndinni alltaf yfir-
máta hallærislegt og reyndi jafnan að
gleyma því að Bond kynni að syngja.
Hefði Svarthöfði verið með réttu ráði í
gamla daga hefði hann sem sagt átt að
gera sér grein fyrir því strax árið 1962
að hann gæti sungið sig inn í hinn
seiðandi og dullarfulla heim alþjóð-
legra spæjara.
Óbilandi sjálfstraust óp-erusöngvara er önnur staðreynd sem rennir enn frekar stoðum undir þá
kenningu, sem nú er í hávegum höfð
hjá Varnarmálastofnun, að þeir séu
efni í súperspæjara. Hinn goðsagnar-
kenndi Kristján Jóhannsson er auð-
vitað besta dæmið en sjálfsöruggari
maður hefur vart látið á sér kræla á
Íslandi frá því sögur hófust. Kristján
hefur líka einstakt lag á konum að
þær eiga það til að roðna á brjóst-
unum í návist hans. Áhrif sem
Svarthöfði minnist meira að
segja ekki að Bond hafi haft á
Bond-píurnar.
Hefði Kristján geng-ið í njósnaraskól-ann samhliða söngnáminu væri
hann aðalgaurinn í njósna-
heiminum í dag. Hann væri M
og við þyrftum ekki að standa í
þessu stappi við Breta um
Icesave. Okkar maður
væri búinn að baula
eins og þokulúður á
Gordon Brown og
Darling og senda
þá í skammarkrók-
inn með rauðar
bringur. Það er því
ekki seinna vænna
en að við komum
okkur upp okkar
eigin njósnara og
Svarthöfða segir svo
hugur að sú ráð-
stöfun Varnarmála-
stofnunar að
skóla hann Björn
Ingiberg í spæj-
arafræðum eigi
eftir að koma sér
vel fyrir þjóðina í
framtíðinni.
Baulandi njósnarar
Spilltur rektor
Leiðari
Íslendingum gengur illa að fóta sig sam-kvæmt nýjum siðferðismiðum. Hreins-unardeild Jóhönnu Sigurðardóttur hefur lítið aðhafst þótt verkefnin séu
krefjandi. Afleiðing af áratuga spillingu liggur
í kerfi embættismanna þar sem hinir spilltu
hafa grafið um sig og virðast óhreyfanleg-
ir. Jóhönnu og félögum tókst með harðfylgi
að reka yfirstjórn Seðlabanka Íslands sem
bersýnilega hafði brugðist. Þá ákvað Bald-
ur Guðlaugsson ráðuneytisstjóri að víkja
úr embætti vegna gruns um að hann hefði
nýtt sér innherjaupplýsingar til að verja eig-
in fjárhag. En aðrir sitja enn sem fastast og
spillingin liggur eins og eiturgufa yfir rústum
Íslands.
Á gamla Íslandi fór refsing manna eft-
ir tengingum þeirra við æðstu stjórn lands-
ins. Háskólaprófessorinn Hannes Hólm-
steinn Gissurarson var dæmdur fyrir að taka
ófrjálsri hendi texta Nóbelsskáldsins Hall-
dórs Laxness og gera að sínum. Annað dæmi
um siðleysi prófessorsins er að hann vistaði
á heimasíðu sinni rakalausar ásakanir um að
þekktur athafnamaður væri sekur um glæpi.
Heimasíðan er undir Háskóla Íslands. Æðsta
menntastofnun Íslands lét gott heita. Hinn
dæmdi heldur áfram að kenna ungu fólki og
innræta því siði. Kristín Ingólfsdóttir, rekt-
or Háskólans, hefur með aðgerðarleysi sínu
lagt blessun sína yfir það að dæmdur mað-
ur haldi áfram að sinna kennslu. Með réttu
hefði rektor átt að víkja manninum úr starfi
tafarlaust. Það var ekki gert og Kristín rektor
er nú orðin hýsill þeirrar spillingar sem birt-
ist í umburðarlyndi gagnvart afbroti starfs-
manns. Kristín er spilltur rektor. Með réttu á
hún að víkja úr starfi sínu, rétt eins og iðrun-
arlaus prófessorinn sem í engu þarf að gjalda
brota sinna.
Annað dæmi um nýja spillingu er seta
Ásmundar Stefánssonar á stóli bankastjóra
Landsbankans. Ásmundur var formað-
ur bankaráðs ríkisbankans en lét skipa sig
sem bankastjóra. Sem slíkur er hann uppvís
að því að ráða fólk án auglýsinga í mikilvæg
störf. Hann er afkvæmi gamla spillta Íslands,
rétt eins og rektorinn.
Almenningur á Íslandi þarf nú að þjást
vegna spillingar í æðstu stjórn Íslands. Það
hlýtur að vera eðlileg krafa fólksins að óhæft
hyski verði hreinsað út úr embættismanna-
kerfinu. Það getur ekki verið annað en sjálf-
sagt að siðvæðing fari fram í stjórnsýslunni
allri. Það á að vera ófyrirgefanlegt að ráða
fólk til ríkisins
vegna kunn-
ingjatengsla
eða ættern-
is. Störf á
undan-
tekning-
arlaust
að aug-
lýsa. Og
brot-
lega
embætt-
ismenn
á að reka úr
störfum.
reynir traustason ritstjóri skrifar. Og brotlega embættismenn á að reka úr störfum
12 miðvikudagur 28. október 2009 umræða
Sandkorn
n Guðjón Arnar Kristjánsson,
formaður Frjálslynda flokksins,
unir sér sæmilega í sjávarútvegs-
ráðuneytinu við að skipuleggja
veiðar á skötu-
sel. Flokks-
menn hans
eru þó að
velta fyrir sér
hvernig flokk-
urinn geti risið
upp úr ösku-
stó fylgisleysis.
Sú hugmynd
er uppi að Guðjón bjóði sig fram
til bæjarstjórnar Ísafjarðarbæjar
með það jafnvel fyrir augum að
verða bæjarstjóri. Ísafjörður er
höfuðvígi formannsins og hann
því líklegur til að ná inn í bæjar-
stjórn, kannski með fleiri en einn
fulltrúa. Sjálfur mun Guðjón vera
hugsi en fremur tregur til.
n Frjálslyndi flokkurinn er eðli-
lega í sárum eftir að hafa misst
alla sína þingmenn fyrir borð
í kosningum. Þá hefur forysta
flokksins liðast í sundur. Magnús
Þór Hafsteinsson, fyrrverandi
þingmaður og aðstoðarmaður
formannsins, var einn lykil-
manna í flokknum og átti fína
spretti á blómaskeiðinu. Meðal
annars tryggði hann stórsigur
flokksins á Akranesi. Hann hef-
ur ekkert skipt sér af flokksmál-
um síðan fyrir ári síðan. Mörg-
um þykir það veikja flokkinn.
Magnús Þór situr þó ekki auðum
höndum. Meðal annars starfaði
hann við hvalskurð á síðustu
vertíð.
n Þriðjudagsmorgnarnir á Bylgj-
unni hafa lifnað eftir að Agnes
Bragadóttir sneri aftur úr Banda-
ríkjaför í þáttinn Í bítið til að
láta ljós sitt
skína. Makk-
er hennar í
þættinum
var lengi vel
Björg Eva
Erlendsdótt-
ir fréttamað-
ur en hún
fékk nóg af
gribbulátum og plöggi og hætti í
fússi. Í gær mætti Samfylkingar-
maðurinn Mörður Árnason og
fór á kostum í að snupra Agnesi.
Hann spurði á einhverjum tíma-
punkti hvort verið gæti að Mogg-
inn styrkti þáttinn en honum
taldist til að Agnes hefði nefnt
blaðið fimm sinnum, sem er að
vísu hefðbundið.
n Hannes Hólmsteinn Gissur-
arson prófessor á undir högg að
sækja í umræðunni þessa dag-
ana. Hann er þó snarbrattur og
tíður gestur á athugasemdakerfi
DV.is þar sem hann lætur ljós sitt
skína. Þar er líka á ferðinni ná-
ungi að nafni Friðbjörn Orri Ket-
ilsson sem er með sama stíl og
prófessorinn. Einhverjir hafa ef-
ast um tilvist Friðbjarnar, telja að
Hannes skrifi sjálfur undir þessu
nafni. Friðbjörn hefur þannig
verið kallaður heypoki Hannes-
ar í bloggheimum. Reyndin er sú
að vissulega er þessi náungi til.
Hann er fyrrverandi lærisveinn
meistara Hannesar. Hafa verið
miklir kærleikar þeirra í milli.
Meðal annars ferðuðust þeir
saman um fjarlæga heimshluta.
LyngháLs 5, 110 Reykjavík
Útgáfufélag: Útgáfufélagið Birtíngur ehf.
Stjórnarformaður: hreinn Loftsson
framkvæmdaStjóri: sverrir arngrímsson
ritStjórar:
jón Trausti Reynisson, jontrausti@dv.is
og Reynir Traustason, rt@dv.is
fréttaStjórar:
Brynjólfur Þór guðmundsson, brynjolfur@dv.is
og Þórarinn Þórarinsson, toti@dv.is
auglýSingaStjóri:
elísabet austmann, elisabet@birtingur.is
dv á netinu: dv.is
aðalnÚmer: 512 7000, ritStjórn: 512 7010,
áSkriftarSími: 512 7080, auglýSingar: 512 7050.
SmáauglýSingar: 515 5550.
umbrot: dv. Prentvinnsla: Landsprent. dreifing: árvakur.
dv áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu
formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð.
Spurningin
„Nei, en hún er
jafnari fyrir suma
en aðra. Til dæmis
þá sem þurfa á
henni að halda og
vita ekki af henni,“
segir ingólfur
ingólfsson
fjármálaráðgjafi
sem sagði í
fréttum stöðvar 2
í gær að greiðslujöfnunarleið
ríkisstjórnarinnar væri ekki hagkvæm
fyrir alla, meðal annars þá sem ekki
þyrftu nauðsynlega að lækka
greiðslubyrði lána sinna.
er greiðslujöfn-
unin þá Bara svona
ójöfn, ingólfur?
„… málaðir
svartir og settir
niður í tvö ár í
einhverju af slömmhelvít-
um amerískra miðborga.“
n Jón Baldvin Hannibalsson um Hannes
Hólmstein Gissurarson og fleiri fylgismenn
kapítalisma. Hann skuli ræða við þá um
kapítalisma eftir að hafa upplifað hversu farsæll
hann er í Bandaríkjunum. - DV
„Djöfull munum
við sjá í skósól-
ana á öllum
íslenskum
iðnaðarmönnum til
Noregs núna þegar McD’s
er hætt.“
n Bergur Ebbi Benediktsson um að íslenskir
iðnaðarmenn muni yfirgefa Klakann þegar
McDonald’s er farið. - DV
„Við hljótum að gleðjast
yfir því að notað sé íslenskt
hráefni.“
n Eiríkur Blöndal, framkvæmdastjóri
Bændasamtaka Íslands, um að McDonald’s verði
Metro og taki að nota íslenskt hráefni. - DV
„Nei, ég er ekki
lofuð.“
n Guðrún Dögg Rúnarsdótt-
ir, ungfrú Ísland 2009. Eflaust
mikil gleðitíðindi fyrir einhverja
piparsveinana þarna úti. - visir.is
„Það er þungt yfir.“
n Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri
Samtaka atvinnulífsins, eftir að stjórnarfundi
lauk. Líklegt er að kjarasamningar verði ekki
endurnýjaðir. - mbl.is
bókStafLega