Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.2009, Qupperneq 14
„Þær hugmyndir sem uppi eru af
hálfu ríkisvaldsins um orku- og kol-
efnisskatt eru óhóflegar, að okkar
mati,“ segir Ólafur Teitur Guðnason,
framkvæmdastjóri upplýsingasviðs
Ísals, álversins í Straumsvík, en það
er í eigu Rio Tinto Alcan.
Ísal-álverið í Straumsvík fram-
leiðir um 185 þúsund tonn af áli ár
hvert og er minnst þeirra þriggja ál-
vera sem rekin eru hér á landi. Um
langa hríð hafa verið uppi áform um
að stækka álverið í Straumsvík, bæði
í tíð núverandi og fyrri eigenda þess.
Það kaupir um 3.000 gígavattstund-
ir af rafmagni til framleiðslunnar ár
hvert en það samsvarar um 18 pró-
sentum af raforkuframleiðslunni í
landinu um þessar mundir.
„Miðað við þessar forsendur og
30 aura skatt á hverja kílóvattstund
yrði orkuskatturinn ekki minni en
900 milljónir króna á ári. Við þetta
bætist kolefnisskatturinn – gróður-
húsaskatturinn. Segjum að hann
verði þriðjungur af þessum 16 millj-
örðum sem áætlað er á fjárlögum að
sækja til stóriðjunnar. Það gæti leik-
ið á nokkrum hundruðum milljóna
króna til viðbótar. Ef farin yrði sú leið
að leggja 14 evru skatt á hvert tonn af
koltvísýringi sem álverið sleppir út í
andrúmsloftið yrði mengunarskatt-
urinn um 800 milljónir íslenskra
króna. Þetta yrði þungur baggi að
bera. Ísal hefur verið rekið með tapi
fram eftir þessu ári og erum við rétt
svo að segja komin upp fyrir núllið
á undanförnum vikum. Það er ekki
búið að semja um neitt í þessum efn-
um en stjórnvöld hafa boðið okkur
að setjast að samningaborðinu,“ seg-
ir Ólafur Teitur.
Kosið aftur meðal íbúa
Í lok mars árið 2007 felldu Hafnfirð-
ingar naumlega stækkun álversins
í Straumsvík í almennri atkvæða-
greiðslu meðal íbúa. Málið klauf
bæjarbúa í tvær fylkingar en lýðræð-
ið hafði sinn gang, forsvarsmönnum
Ísal og stuðningsmönnum stækkun-
arinnar til nokkurra vonbrigða. Nán-
ast öll leyfi lágu fyrir, sem og um-
hverfismat, og lóð hafði verið keypt
undir nýja hluta álversins.
Nú hefur verið safnað nægilegum
fjölda undirskrifta til þess að end-
urtaka atkvæðagreiðslu um deili-
skipulagstillögu fyrir stækkun Al-
can-álversins. Fjórðung bæjarbúa á
kjörskrá þurfti til að knýja fram al-
menna atkvæðageiðslu á ný og hef-
ur bæjarráð Hafnarfjarðar falið emb-
ættismönnum að taka upp viðræður
við Ísal um skipulagstillöguna.
Stækkunaráformin eru ekki smá
í sniðum eða úr 185 þúsund tonna
framleiðslu á ári í 460 þúsund tonn
við lok framkvæmda. Stækkunin
nemur um 150 prósentum.
„Það er jákvætt ef áhugi er á stækk-
un álversins. En þetta er ekki uppi á
borðinu nú eftir niðurstöðu málsins
árið 2007, hvað svo sem síðar verð-
ur ákveðið,“ segir Ólafur Teitur. Við
skiljum undirskriftirnar svo að það
verði að ganga til atkvæðagreiðslu
meðal bæjarbúa á ný. En bærinn vill
fá yfirlýsingar frá okkur um að áhugi
sé enn fyrir hendi áður en af at-
kvæðagreiðslunni verður. Við getum
ekki gefið skuldbindandi yfirlýsingar
á þessu stigi. Endurskoða yrði eldri
áætlanir þó svo að umhverfismat og
annað gildi áfram. Ísal - Alcan fer
ekki út í þetta ef frekari steinar verða
í götu félagsins. Þannig lítum við svo
á að boltinn sé í höndum bæjaryfir-
valda í Hafnarfirði,“ segir Ólafur Teit-
ur og endurtekur, að stækkun álvers-
ins sé í eðli sínu góður kostur.
bestir í heimi
Staðfest hefur verið af Alþjóðasam-
tökum álframleiðenda að Ísal náði
bestum árangri allra álvera heims
við að lágmarka losun flúorkolefna
árið 2008.
Flúorkolefni eru sterkar gróð-
urhúsalofttegundir og stór hluti af
heildarlosun margra álvera. Losun
Ísal á liðnu ári, mæld sem ígildi los-
unar koltvísýrings, nam aðeins 23
kílóum á hvert framleitt tonn af áli en
það er aðeins um 3 til 4 prósent þess
sem álver losa að jafnaði af þessum
efnum. Með því að skara fram úr á
þessu sviði losar álverið í Straumsvík
130 þúsund tonnum minna af efnum
út í andrúmsloftið mælt í koltvísýr-
ingsígildum en ella væri.
„Þessi árangur er mjög ánægjuleg-
ur og í góðu samræmi við þá stefnu
okkar að vera í fremstu röð í allri okk-
ar starfsemi, hafa stöðugar umbætur
að leiðarljósi og starfa ávallt í sátt við
umhverfi og samfélag,” segir Rann-
veig Rist, forstjóri Alcan á Íslandi hf.
johannh@dv.is
Miðvikudagur 28. október 200914 hafnarfjörður
Straumsvík Mörgum þykir álrisinn í
Straumsvík óþægilega nálægt úthverfum
Hafnarfjarðarbæjar. Flúormengun í grennd
við verksmiðjuna er þó komin niður í það
sem hún var áður en verksmiðjan var reist.
„Miðað við þessar forsendur og 30 aura skatt á
hverja kílóvattstund yrði orkuskatturinn ekki
minni en 900 milljónir króna á ári. Við þetta bæt-
ist kolefnisskatturinn – gróðurhúsaskatturinn.“
risinn í túnfætinum
Elsta starfandi álverið í landinu er nú jafnframt það minnsta. Það laut í gras fyrir bæjarbúum sem höfnuðu
naumlega stækkun þess árið 2007. Nú stefnir í nýja atkvæðagreiðslu og aukinn stuðning við stækkun, meðal
annars hjá aðilum vinnumarkaðarins. Ýmis ljón eru þó á veginum. Aðrir hafa náð frumkvæði í samkeppni um
raforkuna og stjórnvöld hyggjast leggja á orku- og mengunarskatta til að deila byrðum bankahrunsins á sem
flesta. Það dregur úr áhuga á fjárfestingum.
rumsKar
Boltinn í höndum bæjaryfirvalda
Ólafur Teitur Guðnason segir að forsvars-
menn Rio Tinto Alcan fagni auknum
stuðningi við stækkun en geti ekki gert
skuldbindandi samninga áður en vilji
bæjarbúa liggi fyrir.
Í kosningunum 2007 Búið er að safna nægilega mörgum undirskriftum til þess að
endurtaka kosninguna.