Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.2009, Page 20
Miðvikudagur 28. október 200920 hafnarfjörður
Hafnarfjörður hefur verið kallaður álfabærinn enda álfar og huldufólk talin búa þar bæði í hólum og hæðum.
Álfaskeið, Álfaberg og Álfholt eru meðal þeirra gatna í bænum sem kenndar eru við þessar dularfullu verur.
Álfar eru taldir búa víða í holtum og
hólum. Hafnarfjörður er þar engin
undantekning enda gjarnan nefnd-
ur álfabær. Þar er talið að álfar búi
í hraunhólunum á horni Álfaskeiðs
og Arnarhrauns og var svæðinu
þyrmt þegar umhverfið í kring var
lagt undir byggingar og vegi.
Auk Álfaskeiðsins eru fleiri göt-
ur kenndar við álfa í Hafnarfirði, svo
sem Álfaberg og Álfholt.
Þrátt fyrir þetta eru ekki til marg-
ar álfasögur úr Firðinum, en flestar
þeirra sem til eru tengjast Hamrin-
um, líka þekktum sem Hamarkots-
hamri, og Hellisgerði.
Þekktar eru sögur af því að vega-
stæðum er breytt vegna óhappa sem
rakin eru til álfa eða huldufólks.
Þannig þrengist akbrautin við Merk-
urgötu verulega við álfaklett sem
þar skagar út í götuna.
Miðillinn Margrét frá Öxnafelli
bjó á sínum tíma við Tjarnargötuna
og fullyrti hún þá að í Hamrinum
byggi huldufólk af konungakyni.
Fleiri hafa tekið undir með henni
og Hamarinn því þekktur sem höll
álfa og huldufólks. Þar er sögð búa
hvítklædd kona sem sveipuð er
miklum ljóma og gengur allajafna
með silfrað belti.
Ónefnd kona sem bjó við Ham-
arinn sagði sig hafa dreymt að hvít-
klædda konan byði henni inn í
Hamarinn. Þar blöstu við glæsileg
hallarkynni og þar sem þær gengu
um höllina mætti þeim fjöldi fólks í
skrautlegum klæðum. Allir hneigðu
sig fyrir hvítklæddu konunni sem
bar með sér mikinn þokka.
Í gegnum tíðina segjast margir
hafa heyrt fallegan söng koma frá
Hamrinum án þess að sjá þar nokkra
lifandi sálu og vilja því aðeins skýra
sönginn þannig að þar komi álfar
við sögu.
Hvítklædda konan er áberandi í
fleiri sögum af Hamrinum. Í einni
þeirra segir frá því þegar þrír dreng-
ir voru að hlaða skýli úr grjóti á
norðvestanverðum Hamrinum. Ein-
um drengjanna varð litið niður fyrir
hamravegginn og sá þar hvítklædda
veru sem leið um og brosti á sama
tíma og hún lyfti höndunum líkt og
í varnarskyni. Þegar pilturinn ætlaði
að benda félögum sínum á veruna
var hún horfin. Fylltust þá drengirn-
ir hræðslu og hlupu skelfdir á brott.
Öllu vinalegri samskipti við álfa
og huldufólk átti eldri kona í Hafn-
arfirði sem á veturna setti allt-
af mjólkurkönnu við útidyrahurð-
ina hjá sér. Á morgnana fann hún
þar fagrar skeljar og tóma mjólkur-
könnu og var hún viss um að huldu-
fólkið væri með skeljunum að launa
henni mjólkursopann.
Erla Stefánsdóttir sjáandi gerði
á sínum tíma huliðsheimakort þar
sem byggðir huliðsvætta í Hafnar-
firði eru skráðar og er kortið fáan-
legt á helstu ferðamannastöðum í
bænum.
Heimildir:
Visithafnarfjordur.is
Ferlir.is
HuliðsHeimar álfa
og huldufólks
Gaf þeim mjólk Eldri kona í Hafnarfirði setti alltaf mjólkurkönnu við útidyrnar á köldum vetrarkvöldum. Að morgni var kannan
tóm og taldi hún álfa hafa gætt sér á mjólkinni.
Margt býr í Hamrinum
Hvítklædd kona af kon-
ungaættum er sögð búa í
Hamrinum í Hafnarfirði. Bæði
ungir og aldnir hafa séð henni
bregða fyrir.
Hafðu samband. Komdu.
Opið: mánud. til fimmtudaga kl. 8:00 - 18.00, föstudaga kl. 8:00 - 16:30.
BJB | Flatahrauni 7 | 220 Hafnarfirði | Sími 565 1090 | www.bjb.is