Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.2009, Side 28
Miðvikudagur 28. október 200928 hafnarfjörður
Fimleikafélag Hafnarfjarðar, FH, fagnar í ár 80 ára afmæli sínu. Árangur félagsins hefur verið með afbrigðum
góður, þó á fleiri sviðum en í fimleikunum sem hafa ekki verið stundaðir hjá FH í yfir 40 ár. Liðið hefur unnið
fjölda titla í handbolta, fótbolta og í frjálsum íþróttum.
FimleikaFélagið
Fimleikafélag Hafnarfjarðar fagnar
um þessar mundir 80 ára afmæli sínu
en félagið var stofað það herrans ár
1929. Fimleikar eru það sem félagið
er hvað minnst þekkt fyrir en þessi
risi úr Hafnarfirði hefur gert það gott
í öðrum íþróttagreinum. Handknatt-
leikurinn hefur verið þess aðalsmerki
í gegnum tíðina en félagið státar í
þeirri grein af fimmtán Íslandsmeist-
aratitlum og fimm bikarmeistaratitl-
um. Mikill uppgangur hefur verið í
knattspyrnunni á síðustu árum en
FH hefur orðið Íslandsmeistari
fimm sinnum frá
upphafi og það
aðeins á síðustu
sex árum. Í frjáls-
um íþróttum
hefur FH einnig
verið óstöðvandi
og þegar lið-
ið vann
bik-
arkeppni FRÍ á síðasta ári var það í
fimmtánda skiptið í röð.
engir Fimleikar í 40 ár
„Það hafa ekki verið stundaðir fim-
leikar í FH í marga áratugi,“ segir Við-
ar Halldórsson, formaður félagsins.
„Það eru allavega einhver fjörutíu ár
síðan þeir voru síðast stundaðir. Það
síðasta sem ég man eftir þeirri deild
var að móðir mín sem er 76 ára var í
fimleikum hjá FH fyrir fimmtíu árum
síðan,“ segir Viðar og hlær við.
Titlar FH eru ófáir í þremur helstu
greinum félagsins, fótbolta, hand-
bolta og frjálsum. Viðar þakkar góðu
starfi innan félagsins þennan góða
árangur. „Grunnurinn að þessu er
mikið sjálfboðaliðastarf í marga ára-
tugi. Svo má líka fullyrða að þeir sem
hafi stjórnað hverri deild í gegnum
árin hafi undantekningalaust verið
fólk sem hefur mikla þekkingu á því
sem það er að gera. Þetta er svona
grunnurinn að þessum góða ár-
angri,“ segir Viðar.
Íþróttastarf kostar peninga en FH
er vel sett þrátt fyrir þessa síðustu og
verstu tíma. „Eigið fé aðalstjórnar FH
er um 900 milljónir sem að vísu ligg-
ur í mannvirkjum en það má segja
að staða félagsins sé góð. Auðvitað
eru blikur á lofti varðandi ýmislegt
hjá okkur eins og öðrum og tekj-
ur hafa dvínað undanfarið. En
menn hafa einfaldlega sniðið sér
stakk eftir vexti og það hefur okk-
ur tekist að gera ágætlega,“ segir
Viðar Halldórsson, formaður FH.
knattspyrnan
Flaggskipið
Á síðustu árum hafa knattspyrnu-
liðin verið flaggskip FH. Félagið
hafði aldrei unnið Íslandsmeist-
aratitil fyrir árið 2004 en var hvað
næst því árið 1989 þegar Kristinn
Tómasson skoraði sögulegt mark fyr-
ir Fylki gegn FH á Kaplakrika. Sáu
FH-ingar þar þyrluna með Íslands-
bikarinn fljúga á braut til Akureyrar
þar sem KA hampaði titlinum undir
stjórn Guðjóns Þórðarsonar.
Árið 2004 hófst svo sigurganga FH
í íslenskri knattspyrnu. Liðið hafði
endað í öðru sæti árið áður en 2004
hampaði FH sínum fyrsta titli í knatt-
spyrnu með sigri á KA fyrir norðan.
Þeim titli fylgdu tveir í röð til viðbót-
ar áður smá hlé varð á sigurgöngunni
af völdum Valsmanna árið 2007. Það
ár vann FH aftur á móti sinn fyrsta og
eina bikartitil til þessa. FH sótti svo
aftur titilinn eftir dramatíska loka-
umferð í fyrra og rúllaði svo yfir Ís-
landsmótið í ár. Fimm Íslandsmeist-
aratitlar og einn bikarmeistaratitill á
sex árum. Ekki amalegt það.
Í FH-liðinu er mikið af uppöldum
leikmönnum og í þess sterkasta liði
eru að jafnaði 6-7 heimamenn. Þá
hefur yngriflokkastarfið verið í mikl-
um blóma og margir ungir leikmenn
fengið tækifæri hjá liðinu. Kvenna-
boltinn hefur ekki náð karlaboltan-
um en FH leikur aftur í efstu deild
kvenna á næsta ári. Þar er á ferð afar
efnilegt lið sem skartar einum efni-
legasta leikmanni Íslands, Birnu
Berg Haraldsdóttur markverði.
aFtur sterkt
handboltalið
FH státar af næstsigursælasta liði
sögunnar í íslenskum handbolta.
Félagið á að baki fimmtán Íslands-
meistaratitla og til viðbótar fimm
bikarmeistaratitla. Þá hefur kvenna-
lið félagsins unnið Íslandsbikarinn
þrisvar og bikarmeistaratitilinn einu
sinni. Karlalið félagsins tók upp á því
að falla niður í 1. deild fyrir nokkrum
árum þegar allt virtist stopp í hand-
boltanum í Krikanum en þá hófst
uppbyggingin.
Sú uppbygging hefur heldur bet-
ur borgað sig. Spilað var í 1. deild-
inni meira og minna á 1989 og 1990
árgöngum félagsins sem hafa rúllað
yfir öll yngriflokkamót í gegnum tíð-
ina. Þar voru meðal annars stórskytt-
urnar Ólafur Guðmundsson og Ól-
afur Gústafsson ásamt gullkálfinum
Aroni Pálmarssyni sem er eitthvert
mesta efni sem sést hefur í íþróttinni
hér á landi.
FH valtaði yfir 1. deildina fyrir
tveimur árum og mætti til leiks með
unga og efnilega stráka í N1-deildina
í fyrra í bland við gamla FH-inga sem
snéru heim. Lengi vel var liðið líklegt
til þess að komast í úrslitakeppnina á
sínu fyrsta ári en meiðsli Ólafs Guð-
mundssonar og Arons Pálmarssonar
urðu liðinu dýrkeypt. Í ár er FH aft-
ur á móti spáð góðu gengi og er það
einfaldlega eitt besta lið landsins.
FH-ingar geta verið og eru stoltir af
þessu liði sínu sem það hefur byggt
upp, meira og minna á heimamönn-
um, og er ekki langt í að þessir ungu
menn afreki það sama og forverar
þeirra í Krikanum.
yFirburðir í Frjálsum
Frjálsíþróttastarfið hjá FH hefur ver-
ið frábært í gegnum árin. Félagið
hefur haft yfirburði á meistaramóti
Íslands og bikarmóti Frjálsíþrótta-
sambandsins en bikarkeppnina vann
FH fimmtán ár í röð. Liðið tapaði í
fyrsta skipti í langan tíma titlinum til
ÍR í ár en er staðráðið í að vinna hann
til baka. Margir afreksmenn hafa
komið úr röðum FH og í dag á það
afreksmann í fremstu röð, sleggju-
kastarann Berg Inga Pétursson.
Hann kastaði fyrir Íslands hönd á Ól-
ympíuleikunum í Peking og keppti á
heimsmeistaramótinu utan húss í ár.
FH hefur sinn eigin frjálsíþróttavöll á
Kaplakrikasvæðinu til þess að æfa á
og verið er að byggja frjálsíþróttahöll
á svæðinu. Aðstaðan verður því ekk-
ert nema glæsilegri og árangur vænt-
anlega eftir því.
í 80 ár
titlar Fh
Knattspyrna Karla
Íslandsmeistarar (5): 2004, 2005,
2006, 2008, 2009.
Bikarmeistarar (1): 2007
HandBolti Karla
Íslandsmeistarar (15): 1956, 1957,
1959, 1960, 1961, 1965, 1966, 1969,
1971, 1974, 1976, 1984, 1985, 1990,
1992.
Bikarmeistarar (5): 1975, 1976, 1977,
1992, 1994.
HandBolti Kvenna
Íslandsmeistarar (3): 1961, 1981,
1982.
Bikarmeistarar (1): 1981
Frjálsar Íþróttir
Bikarkeppni FrÍ samanlagt (18):
1988, 1991, 1992, 1994, 1995, 1996,
1997, 1998, 1999, 2000, 2001, 2002,
2003, 2004, 2005, 2006, 2007, 2008.
Meistaramót Íslands (13): 1994, 1995,
1996, 1997, 1999, 2000, 2001, 2002,
2003, 2004, 2005, 2006, 2007, 2008.
(Aðeins stærstu titlarnir í frjálsum)
Hafnarfjarðarslagur FH er aftur orðið sterkt lið í handboltanum og því fylgir alvöru
Hafnarfjarðarslagur gegn Haukum á hverju tímabili. Meira að segja þrír slagir.
loksins, loksins! FH hefur unnið fimm Íslands-
meistaratitla í fótbolta á sex árum og vann sinn
fyrsta og eina bikarmeistaratitil 2007.