Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.2009, Qupperneq 34
Miðvikudagur 28. október 200934 hafnarfjörður
Vorum að opna nýja heimasíðu www.simabudin.is
Mikið úrval af GSM símum, heimasímum og öðrum aukahlutum
Stafræn framköllun
JÓLATILBOÐ á stafrænum myndum fyrir jólakortin
Endursöluaðilar fyrir Símann, Vodafone, 365 miðla og Strætó.
uuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuu
uuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuu
uuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuu
uuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuu
uuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuu
uuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuu
Fjarðargata 13-15 | 220 Hafnarfjörður | Sími: 555-6210 | simabudin@simabudin.isBIR
T
ÍN
G
U
R
Ú
T
G
Á
F
U
F
É
LA
G
„Það hefur fyrst og fremst verið mik-
il uppbygging í yngri flokka starfinu,“
segir Jón Björn Skúlason, formaður
knattspyrnudeildar Hauka, um ný-
legan árangur karla- og kvennaliðs fé-
lagsins. Þau munu bæði leika í Pepsi-
deildinni á næsta tímabili en það
verður í fyrsta skipti í sögunni sem þau
leika í efstu deild á sama tíma. Styttra
er síðan kvennaliðið lék í efstu deild en
það er nú komið aftur á meðal þeirra
bestu undir stjórn fyrrum leikmanns-
ins Salis Heimis Porcha. Uppgangur
karlaliðsins hefur verið mikill en ekki
eru nema þrjú ár síðan karlarnir léku í
annarri deildinni.
Byggt upp innan frá
Eftir að karlalið Hauka féll niður í 2.
deild tímabilið 2006 var ákveðið að
ekki gengi lengur að fá einhverja að-
komumenn til að byggja liðið á. Tekin
var sú ákvörðun að byggja innan frá og
út með yngri leikmönnum uppöldum
í Haukum. „Það var alveg meðvituð
ákvörðun að byggja fyrst og fremst upp
frá grunni. Árin 2005 og 2006 var mikil
innspýting í barna- og unglingastarfið
og við sáum að það að vera með ein-
hverja aðkomumenn var ekki að skila
neinum árangri,“ segir Jón Björn og sú
ákvörðun hefur virkað þar sem liðið
flaug upp í 1. deildina, hélt sæti sínu
örugglega í fyrra og komst svo upp í
efstu deild í ár. „Í sumar voru upp í níu
heimamenn í byrjunarliðinu allavega
tvisvar og á næsta sumri verður undir-
staðan í liðinu Haukamenn,“ segir for-
maðurinn, Jón Björn.
Mikil en skeMMtileg vinna
„Það er ekkert auðvelt að fara upp
á þessum hraða,“ viðurkennir Jón
Björn um uppgang félagsins. „Það
eru mikil viðbrigði að reka lið í úrvals-
deild miðað við í 1. deild. Það er mik-
il vinna fram undan, eins og að koma
vallarmálum í horf en það er í bígerð
að fara byggja stúku við Ásvelli. Þetta
verður mikil vinna, eins og ég segi,
en skemmtileg,“ segir Jón en Haukar
munu leika allflesta leiki sína, bæði í
karla- og kvennaflokki, á Vodafone-
velli Valsmanna.
Haukar áttuðu sig þó algjörlega á
styrkleika liðsins og þó að uppistað-
an verði Haukamenn hafa Haukarn-
ir fengið til sín reynslumikla menn.
Markvörðurinn Daði Lárusson kom
frá erkifjendunum í FH, Arnar Gunn-
laugsson kom frá Val, Guðmundur
Viðar Mete, einnig frá Val og Kristj-
án Ómar Björnsson skilaði sér heim
á Ásvelli frá Þrótturum. „Við horfðum
til þess að fá menn með reynslu af úr-
valsdeildinni. Við vonum svo sannar-
lega að þeir hjálpi okkur og miðli af
sinni reynslu til ungu strákanna,“ segir
Jón Björn.
reynt að styrkja
kvennaliðið
Kvennalið Hauka er einnig komið í
deild þeirra bestu og spilar eins og
karlaliðið lungann af sínum leikjum á
Vodafone-vellinum. Hjá konunum er
meira af aðkeyptum leikmönnum en
þó eru þar ungar og efnilegar Hauka-
stelpur. „Það er talsvert af heimastelp-
um í kvennaliðinu en þó aðeins meiri
kokteill. Við höfum nú alið upp ýms-
ar góðar stelpur eins og Söru Björk
Gunnarsdóttur landsliðskonu. Við
erum að reyna að styrkja kvennalið-
ið því það viljum við gera en það þarf
að sjá hvernig það kemur út á næstu
vikum og mánuðum,“ segir formaður
knattspyrnudeildar Hauka, Jón Björn
Skúlason.
Bæði lið í
efstu deild
Handboltinn hefur ætíð verið aðalsmerki Hauka úr Hafnarfirði en næsta sumar standa bæði karla- og kvennalið
félagsins í ströngu. Þau munu þá leika bæði í efstu deildum karla og kvenna en það er í fyrsta skipti í sögu félags-
ins sem það gerist. Byggt er á uppöldum Haukastrákum hjá körlunum í bland við reynslumikla aðkomumenn.
Ásgeir Þór Ingólfsson Einn af
uppöldum Haukamönnum sem verður í
eldlínunni í Pepsi-deildinni að ári.
MYND GUNNLAUGUR JÚLÍUSSON
Sara Björk Gunnarsdóttir Yngsta landsliðskona Íslands er uppalin Haukastúlka.
MYND AFP