Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.2009, Page 40
Miðvikudagur 28. október 200940 hafnarfjörður
Meiri fordómar í kreppu
„Mér fannst rosalega erfitt að komast
inn í samfélagið til að byrja með en
ég er ofsalega hamingjusöm í Hafn-
arfirði í dag,“ segir Amal Tamimi,
framkvæmdastýra Jafnréttishúss í
Hafnarfirði, en Amal flutti til Íslands
frá Palestínu árið 1995. Þegar hún
kom hingað var Amal einstæð, fimm
barna móðir með börn á aldrinum
frá 4 til 16 ára.
„Flutningurinn var auðveldastur
fyrir yngstu börnin sem fóru beint í
leikskóla eða fyrstu bekki grunnskóla
en þau eldri áttu erfiðara með að að-
lagast. Þeim gengur öllum vel í dag
og hafa flest gengið menntaveginn,“
segir Amal stolt af sínum en Amal
vissi ýmislegt um Ísland áður en hún
flutti þar sem bróðir hennar hafði
verið búsettur hér frá 1991.
„Ég var með bókhaldspróf þegar
ég kom til Íslands en prófið var ekki
metið hérna svo ég varð að vinna í
fiski og í ræstingum til að eiga fyr-
ir mat handa börnunum mínum og
jafnframt skellti ég mér í skóla. Árið
2001 fór ég svo í félagsfræði við Há-
skóla Íslands sem ég kláraði árið
2004,“ segir Amal sem lagði hart að
sér við að læra íslensku svo hún gæti
tekið virkan þátt í samfélaginu sem
hún hefur heldur betur gert. Hún
er formaður lýðræðis- og jafnréttis-
nefndar í Hafnarfirði, varaformað-
ur Innflytjendaráðs, í stjórn kvenna-
hreyfingar Samfylkingarinnar og ein
af stofnendum Samtaka kvenna af
erlendum uppruna svo það er í nógu
að snúast fyrir þessa sex barna móð-
ur og ömmu.
Hjarta mitt er Hér
Aðspurð af hverju Hafnarfjörð-
ur hafi orðið fyrir valinu segist hún
hafa heillast af rólegheitunum sem
einkenndu bæinn. „Fyrst eftir að ég
kom til Íslands bjuggum við í blokk
í Kópavogi en svo þegar ég flutti
hingað komu nágrannarnir og buðu
okkur velkomin sem var afskaplega
ánægjulegt. Hér er mun fjölskyldu-
vænna en annars staðar á höfuðborg-
arsvæðinu að mínu mati, allir þekkja
alla og þú heilsar þeim sem þú mætir
úti á götu,“ segir Amal sem bjó í Jer-
úsalem áður en hún kom til Íslands
en hún segir fjölskyldu- og vinabönd
einnig mikilvæg í Palestínu.
Árið 2002 fékk Amal íslenskan rík-
isborgararétt. „Ég mun aldrei gleyma
þeim degi,“ segir hún og bætir við:
„Það skipti mig svo miklu máli að fá
ríkisborgararéttinn því ég hafði aldrei
verið ríkisborgari áður. Í Palestínu
erum við ekki ríkisborgarar og hing-
að kom ég á gestavegabréfi frá Ísrael
svo breytingin er mikil,“ segir hún og
bætir við að það sé líklega erfitt fyrir
þá sem fæddust Íslendingar að gera
sér grein fyrir þeim forréttindum
sem ríkisborgararéttur veitir.
„Fyrir Íslendinga sem fæðast hér
á landi eru mannréttindi, lýðræði og
vegabréf sjálfsögð og allur heimurinn
er opinn. Í Palestínu gat ég ekki far-
Amal Tamimi flutti til Íslands frá Palestínu árið 1995. Amal segist hafa aðlagast samfélaginu svo vel að í dag
sé hún í sömu erfiðleikum eftir hrunið og aðrir Íslendingar. Hún er þó full vonar um að Íslandi takist að jafna
sig á hruninu og að landið verði áfram besta land í heimi. Hún er hamingjusöm í Hafnarfirðinum en hún segir
bæinn einkar fjölskylduvænan og rólegan.