Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.2009, Qupperneq 45
Hver er maðurinn?
„Grande, grande …“
Hvað drífur þig áfram?
„Að telja hitaeiningar alla daga.“
Hvar ertu alinn upp?
„Í Keflavík.“
Uppáhaldsmatur?
„Metro-borgari.“
Hver eru þín helstu áhugamál?
„Að safna vildarpunktum.“
Er þessi breyting gerð í sátt og
samlyndi við McDonald’s?
„Já.“
Hversu marga hamborgara
hefur McDonald’s selt á Íslandi?
„10.000.000 x pí.“
Mun Jóhanna Sigurðardóttir
borða síðasta Big Mac-inn?
„Ef hún kemur í heimsókn á
laugardagskvöldið.“
Hversu líkir verða Metro-borgar-
arnir McDonald’s?
„Eins í laginu, kringlóttir.“
Telurðu að íslenskt hráefni betra
en það bandaríska?
„Já, það er friskt fra havet.“
Hver er leiðin út úr kreppunni?
„One burger a day, keeps the doctor
away og þá fer allt í gang.“
Ertu bjartsýn/-n á bata íslEnsks Efnahagslífs?
„Ég veit það bara ekki. Hlutirnir eru
alltaf að breytast.“
MarÍa VilHJálMSDóTTir
19 árA nEMi
„Já, já.“
ólöf filippUSDóTTir
16 árA nEMi
„nei, ég er ekki bjartsýnn á það.“
Hannar SinDri GréTarSSon
19 árA nEMi
„Já, ég er það.“
BJörG EVa HJörlEifSDóTTir
18 árA nEMi
Dómstóll götunnar
Jón Garðar öGMUnDSSon
ætlar að styrkja íslenskt með sínu
nýja fyrirtæki Metro sem kemur í
staðinn fyrir McDonald’s. Jón Garðar
er mikill húmoristi, finnst Metro-
borgari besti maturinn, hann safnar
vildarpunktum og ætlar að bjóða
Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráð-
herra upp á síðasta Big Mac-inn – ef
hún kíkir í heimsókn.
Telur hiTaeiningar
alla daga
„Ég er ekki viss.“
KlaVin GUrUnG
17 árA nEMi
maður Dagsins
Einhverjir hópar venjulegra borgara
rísa nú upp gegn niðurlægjandi frétt-
um um frægar konur á visir.is og þyk-
ir umfjöllunin niðurlægjandi. „Stinn-
ar júllur - myndir“, „lafandi Lohan“,
„appelsínuhúð-Witherspoon“ og
„skvapkennda Drew“.
Umfjöllunin er ekki aðeins niður-
lægjandi heldur er hún einnig kúg-
andi. Hún afhjúpar hversu rækilega
verslunarhyggjan gegnumsýrir af-
þreyingariðnaðinn.
Eða átti þetta að hafa skemmti-
gildi?
að kenna undirgefni
Tyra Banks, stjórnandi America’s
Next Top Model, er iðin við að segja
grátandi unglingsstúlkum til synd-
anna. Sýna þeim fram á í beinni út-
sendingu hvernig þær ná ekki máli,
séu of venjulegar, séu „ekki neitt“ og
verði ekki neitt.
Eins er þessu farið með aðra
raunveruleikaþætti. Venjulegt fólk
er niðurlægt ef það gerir mistök,
hefur ekki nægjanlegan styrk, nægi-
lega gott útlit og svo framvegis.
Þegar deilur hófust um hliðstæð-
an stjörnuleitarþátt í Þýskalandi
var harðneskja stjórnandans og
„töffaraskapurinn“ eitthvað mild-
aður í samanburðinum við Tyru.
Hið merkilega gerðist að mjög dró
þá úr vinsældum þáttarins. Áhorf-
endur vildu fá eitthvað afgerandi
og krassandi. Eitthvað niðurlægj-
andi: „Beygjum fólk í duftið í beinni.
Horfum á það grenja.“
Ekki var annað að heyra á Óskari
H. Þorvaldssyni fréttastjóra á visir.is
en að hann viðurkenndi í Kastljós-
þætti að mikil eftirspurn væri eftir
umfjöllun um „Lafandi brjóst Loh-
an“, „skvapkennda Drew“ og „app-
elsínuhúð-Witherspoon“.
Leita fjölmiðlar ekki eftir lægsta
samnefnara athyglinnar og pening-
anna?
niðurbrot sjálfsmyndarinnar
Hvernig er þessi siðblindi og kúg-
andi eineltis-ofstopi samtímans til
kominn? Gegnir hann einhverju
hlutverki í nútímanum? Er þetta
aðeins partur af því að einkalíf er á
undanhaldi? Allt er opinbert og fyr-
ir allra augum en um leið ópersónu-
legt?
Sterk rök hníga að því að þarna
sé á ferðinni enn ein nýjung nú-
tímasamfélagsins til þess að hafa
taumhald á fjöldanum. Kúga hann
til hlýðni við yfirvald. Til þess að
þroska sjálfsvitundina og verða
sjálfstæður og þroskaður einstakl-
ingur, sem nýtur mannlegrar virð-
ingar og reisnar, þurfi menn að
komast í gegnum nálaraugað. Verða
útvalinn.
Raunveruleikaþættirnir vinna
þannig gegn sjálfsstyrkingu fjöld-
ans, einkum ungmenna: Beygðu þig
undir reglur verslunarhyggjunnar
um útlit þitt, kynlíf, lífsstíl og vænt-
ingar. Gráttu ella í beinni og kysstu
tær útsendara verslunarhyggjunn-
ar, þáttastjórnendanna, áður en þú
gengur af sviðinu beigður og nið-
urlægður og hverfur inn í fjöldann.
Þar munt þú týnast fyrir fullt og allt.
Þar verður þú eins og grár fjöldinn:
formlaus, án einstaklingseðlis, án
sjálfstjáningar, kúgaður af yfirvaldi
nútímasamfélagsins. Hinum nýju
tyftunarmeisturum samtímans á
skjánum.
aftökur nútímans
Frá því auðsveipni var innprentuð
almúgafólki á miðöldum með svip-
unni og börnum með kennarapriki
og barsmíðum hefur taumhald-
ið og undirokunin tekið á sig nýtt
form. Í stað líkamlegs ofbeldis kem-
ur niðurlægingin í beinni. Skömm-
ustukenndin er ræktuð og stríðalin
í raunveruleika- og hæfileikaþátt-
um. Svipuhöggin dynja á sjónvarps-
heimilunum í formi niðurlægingar á
skjánum. Á miðöldum var almúginn
hvattur til þess að horfa á aftökur sér
til „skemmtunar“. Nú eru pynting-
arnar í fjölmiðlunum svipulausar
og aftökurnar axarlausar. Bælandi
áhrifin eru hin sömu og fyrr á öld-
um í allri sinni mýkt.
En bað ekki almúginn líka um
eitthvað krassandi og afgerandi
þegar þrælum var kastað fyrir ljón
á leikvöngum Rómaveldis? Hver
sýndi það vald að geta kastað lif-
andi þræl fyrir ljónskjafta? Hvað var
þræll annað en fótaþurrka valds-
mannanna?
Krassandi aftökur nútímans fara
fram á leikvangi raunveruleika-
og stjörnuleitarþátta samtímans.
Raunveruleg áhrif þeirra liggja í
því að sýna almúgafólki að þýðing-
arlaust er að rísa gegn valdinu. Til
þess að njóta sjálfstjáningar og þar
með áhrifa og virðingar verður það
að standast próf verslunarhyggj-
unnar á skjánum. Annars er það
glatað, kúgað og fullt skömmustu-
kenndar. Formlaust og svipt mögu-
leikum til sjálfsstjórnar.
Höfum það krassandi og afgerandi
kjallari
mynDin
1 nauðgað þegar hún heimsótti
pabba í fangelsi
Stúlku var nauðgað af dæmdum
kynferðisafbrotamanni í fangelsi í Svíþjóð
á laugardag þegar hún ætlaði að
heimsækja föður sinn.
2 „Veistu ekki hver ég er?“
spurði knattspyrnustjarna og
nefbraut konu
Fótboltamanninum Marlon King er gefið
að sök að hafa nefbrotið tvítuga konu.
3 Haukur Holm látinn fjúka
frá Stöð 2
Hauki Holm, fréttamanni á Stöð 2, hefur
verið sagt upp störfum.
4 níðingur keypti sér tíma
með því að flytja
Barnaníðingur skapaði sér gálgafrest með
því að flytja með dóttur sína sem hann
misnotaði.
5 Þú borgar ígildi þriggja bíla
Sá sem tók erlent bílalán 2007 þarf að
borga það þrefalt til baka, nýti hann sér
úrræði félagsmálaráðherra um
greiðslujöfnun.
6 amy Winehouse hegðar sér eins
og klámmyndastjarna
Amy Winehouse, 26 ára, fjárfesti í nýjum
barmi á dögunum.
7 Stím-málið til sérstaks
saksóknara
Stím-málið verður sent til sérstaks
saksóknara í nóvember.
mest lesið á DV.is
JóHann
HaUKSSon
blaðamaður skrifar
„Nú eru pyntingarnar í
fjölmiðlunum svipulausar
og aftökurnar axarlausar.
Bælandi áhrifin eru hin
sömu og fyrr á öldum í allri
sinni mýkt.“
umræða 28. október 2009 miðvikudagur 45
Hress Jóhanna Forsætisráðherra Íslands, Jóhanna Sigurðardóttir, hefur ítrekað verið gagnrýnd fyrir að vera þurr á manninn í
samskiptum við fjölmiðla. Svo var hins vegar ekki þegar hún stillti sér upp fyrir myndatöku á fundi með norrænum og baltneskum
kollegum sínum í Stokkhólmi á sunnudaginn. Kristján L. Möller er starfandi forsætisráðherra í fjarveru Jóhönnu.
MynD afp/oliViEr Morin