Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.2009, Page 50
„Það tókst að halda sér í pásu þó
Gummi [Guðmundur landsliðsþjálf-
ari, innsk. blm.] hafi eitthvað verið að
potast í mér á tímabili,“ segir hand-
knattleiksmaðurinn Ólafur Stefáns-
son, sem er kominn aftur í íslenska
landsliðið eftir árs hlé. DV hitti Ólaf
á blaðamannafundi á þriðjudaginn
og ræddi aðeins við hann um leið og
hann maulaði melónubita og saup
á ísköldu vatni. Það var eftir ævin-
týrið á Ólympíuleikunum í Peking
í fyrra sem Ólafur ákvað að taka sér
frí og vera ekki með í undankeppni
heimsmeistaramótsins sem fer fram
í Austurríki í byrjun næsta árs. Guð-
mundur Guðmundsson var augljós-
lega ekki lengi að velja Ólaf aftur
þegar hann gaf kost á sér og er fyrsta
verkefni hans æfingavika með liðinu
í þessari viku og leikur gegn Pressu-
liðinu.
Aftur kominn
með boltapokann
„Ég held að ég hafi gert rétt með að
taka mér þetta frí,“ segir Ólafur. „Það
stóð reyndar tæpt á tímabili þegar
margir voru meiddir en Alexander
kom aftur inn ásamt Heiðmari Fel-
ixsyni og fyrir vikið kom svolítið ný
vídd inn í landsliðið. Ég held að ég og
landsliðið hafi grætt á þessari pásu,“
segir Ólafur.
Á meðan hann var í fríi stóð lands-
liðið í ströngu í undankeppni heims-
meistaramótsins með afar lemstr-
að lið. Ólafur hafði samt aldrei hug
á að koma inn og bjarga málunum.
„Ég var í rauninni ekkert að pæla í
því. Þegar maður hefur tekið ákvörð-
un á maður ekki að hugsa um aðra
möguleika sem eru til staðar. Þarna
tók ég þá ákvörðun að taka mér frí frá
landsliðinu og því pældi ég eiginlega
ekkert í því hvað þeir voru að gera,“
segir Ólafur sem segist vera ánægð-
ur með að vera kominn aftur. Hann
viðurkennir þó að aðeins sé verið að
skjóta á hann fyrir fríið. „Já, já, það
er smávegis. Ég er kominn aftur með
boltapokann. Bara dottinn í nýliðann
aftur,“ segir Ólafur og brosir.
Verðum að vera í formi
Landsliðið leikur engan æfingaleik í
vikunni, ekki nema einn léttan gegn
Pressuliði íþróttafréttamanna. Guð-
mundur þjálfari ætlar að nota vikuna
í að æfa vel og kynna nýjar hugmynd-
ir ásamt því að skerpa á áður þekkt-
um kerfum og leikaðferðum. Það er
þó ekki þessi vika sem skiptir máli,“
segir Ólafur, „heldur hvað menn gera
sjálfir fram að næsta skipti þegar lið-
ið hittist en þá hefst undirbúningur-
inn fyrir HM af alvöru.
„Það sem liggur fyrir er að njóta
þessarar viku, æfa vel og spila þenn-
an Pressuleik. Það er aðeins léttara
yfir þessu núna en hefur oft verið.
Það sem skiptir máli er samt hvernig
hver og einn æfir næstu tvo mánuði
og mæti svo í góðu formi þegar við
hittumst næst fyrir Evrópumótið. Við
þekkjum alveg kerfin og hreyfingarn-
ar en málið er að við þurfum allir að
vera í standi,“ segir Ólafur.
Viljum stöðugleika
Frá því íslenska landsliðið vann
sér inn sæti á Ólympíuleikunum
snemma síðastliðið sumar hefur
gengi liðsins verið nær ein samfelld
sigurganga að undanskilinni mar-
tröðinni gegn Makedóníu þar sem
liðið missti af sæti á EM. „Markmið-
ið er að halda þessum dampi en vera
ekki í þessum öldugangi eins og oft
hefur verið,“ segir Ólafur. „Inn í lið-
ið eru komnir flottir, ungir strákar.
Aron Pálmarsson er náttúrlega frá-
bær spilari og einnig Ólafur (Guð-
mundsson), nafni minn, ásamt Sig-
urbergi (Sveinssyni). Það er alltaf
gott að fá svona unga en sterka pósta
inn í þetta hjá okkur svona þriðja til
fjórða hvert ár.“
„Lala concept“ hjá Löwen
Ólafur er kominn aftur í þýsku úr-
valsdeildina, eins og alþjóð veit.
Hann leikur með stórliðinu Rhein-
Neckar Löwen, ásamt þeim Guð-
jóni Val Sigurðssyni og Snorra Steini
Guðjónssyni. Ólafur vissi vel að hjá
Löwen þyrfti hann að láta til sín taka
og það hefur líka komið á daginn. Ég
fór viljandi úr fullkomnu liði yfir í lið
sem er í mótun og það kostar alltaf
sitt. Ég er með þjálfara núna sem vill
fá að heyra eitthvað í mannskapnum
en hjá Ciudad sáu þjálfaranir alveg
um þetta. Það er náttúrlega fullkom-
in staða fyrir leikmann að geta bara
hlýtt og ekki bara það heldur líka vit-
að að allt sé rétt sem sagt er,“ segir Ól-
afur og heldur áfram:
„Hjá Löwen er ekkert „concept“
að viti. Það er að þróast. Þetta er nýtt
lið og nýr þjálfari og lala „concept“
sem maður trúir lala á. En aftur á
móti fær maður svolítið að vera með
í því að laga það til. Þetta er eitthvað
sem ég vissi að yrði og kemur mér því
ekkert á óvart.
Ég verð að gefa mikið af mér. Það
er aðeins meiri höfuðverkur að þurfa
koma skoðunum sínum á framfæri
við leikmenn og þjálfara. Maður fer
samt bara vel að mönnum og tal-
Þrír leikir í körfunni Þrír leikir fara fram í Iceland Express-deild karla í körfubolta á fimmtudags-
kvöldið en þeir eru allir á höfuðborgarsvæðinu. Í Kópavogi taka heimamenn í Breiðabliki á móti ÍR en
bæði lið hafa til þessa unnið einn leik og tapað tveimur. Stjarnan sem hefur farið frábærlega af stað í
deildinni og unnið alla þrjá leiki sína, þar á meðal Snæfell úti og Keflavík, tekur á móti FSu. Mennt-
skælingarnir frá Selfossi hafa aftur á móti farið mjög illa af stað í deildinni og tapað þremur fyrstu
leikjum sínum, frekar stórt. Síðasti leikurinn er í Grafarvogi þar sem ungliðar Bárðar Eyþórssonar í
Fjölni fá sjóðheitt Njarðvíkurlið í heimsókn. Njarðvík hefur eins og Stjarnan ekki tapað leik á árinu og fór
létt með meistarakandídata Grindavíkur í síðustu umferð. Róðurinn hefur verið þyngri hjá nýliðunum í
Fjölni. Þeir eru án sigurs í fyrstu þremur leikjum sínum á tímabilinu. Allir leikirnir hefjast klukkan 19:15.
UMSjóN: tóMAS ÞóR ÞóRðARSoN, tomas@dv.is
50 miðvikudagur 28. október 2009 sport
„Það er alveg frábært að hann sé
kominn aftur,“ segir Guðmundur
Guðmundsson, landsliðsþjálfari í
handbolta, um endurkomu ólafs
Stefánssonar. Hann viðurkennir fúslega
að það hafi ekki verið erfitt að velja
ólaf þegar hann gaf kost á sér aftur.
„Nei, það var ekki erfitt að velja hann,“
segir Guðmundur og hlær við. „Hann
þarf samt að berjast fyrir stöðunni. Það
eru margir örvhentir leikmenn sem
koma til greina þannig samkeppnin er
mikil. Fyrir utan hópinn núna eru
Rúnar Kárason og Ásgeir Örn
Hallgrímsson sem berja auðvitað á
dyrnar. Það verður hart barist um
þessa stöðu og ég mun fylgjast
vel með mönnum,“ segir
Guðmundur.
Landsliðsþjálfarinn fagnar því að
menn séu að koma úr meiðslum.
„Þetta er
sterkasta liðið
sem ég hef
valið í langan
tíma og það
er alveg
frábært,“ segir
Guð-
mundur sem ákvað að æfa bara í
vikunni en spila engan landsleik,
heldur bara einn leik gegn Pressuliði
íþróttafréttamanna.
„Ég hef gert þetta áður, að æfa bara, og
mér finnst það gott. Það eru fjölmargir
þættir sem þarf að fara yfir og svo er ég
nú líka aðeins að koma til móts við
suma leikmenn sem mikið
álag hefur verið á. Ég
held allavega að við
munum fá mikið
út úr þessu
og það er
auðvitað
bara
vonandi
að þetta
skili sér,“ segir
Guðmundur
Guðmundsson.
Guðmundur Guðmundsson landsliðsþjálfari:
ekki erfitt að velJa Ólaf
Ólafur Stefánsson er kominn aftur í ís-
lenska landsliðið í handbolta eftir rúm-
lega árs fjarveru. Hann segist afar ánægð-
ur með að hafa staðið við það að halda sig í
fríi en er kominn aftur í hlutverk nýliðans
með liðinu. Ólafur skipti um lið fyrir tíma-
bilið, leikur nú með þýska liðinu Rhein-
Neckar Löwen, þar sem hann lætur menn
heyra það.
aftur kominn
með boltapokann
xxxxxx
xxxxx
TÓMAS ÞÓR ÞÓRÐARSON
blaðamaður skrifar: tomas@dv.is
ar við þá á penum nótum. Við erum
náttúrlega allir að vinna að sameig-
inlegu verkefni þannig ég læt menn
vita hvað mér finnst og að ef þeir geri
hitt eða þetta öðruvísi þá náum við
frekar markmiðum okkar.“
Erum að vaxa
Rhein-Neckar var nokkuð óhepp-
ið með töfludrátt og mætti tveim-
ur sterkustu liðunum í þýsku úr-
valsdeildinni, Kiel og Hamborg,
í fyrstu leikjunum. Þeir töpuð-
ust báðir en síðan þá hefur liðið
varla tapað leik og gengið verið
afar gott í deild, bikar- og meist-
aradeild. „Við fengum stóru liðin
of snemma og það kostaði okk-
ur fjögur stig. En við höfum vaxið
síðan þá og leikur liðsins er allur
orðinn betri,“ segir Ólafur en hann
horfir sérstaklega til þess að liðið
haldi áfram að spila betur. Titill sé
aukaatriðið í bili.
„Aðalatriðið er að við höldum
áfram að vaxa sem lið og spilum
betur. Hvort titill fylgi því verður að
koma í ljós. Við erum enn þá að stilla
liðið eins og skyttuna, Karel Bielecki.
Hann er besta skytta í heimi en núna
veit hann hvar hann á að hlaupa til
þess að fá boltann því ef hann velur
rétt færi er það alltaf mark. Sóknar-
leikurinn er orðinn frekar flottur en
vörnin þarfnast meiri stöðugleika.
Þessi stóru mót eru öll farin að vinn-
ast á vörninni,“ segir Ólafur Stefáns-
son.
Kominn aftur ólafur Stefánsson er kominn aftur í íslenska landsliðið.
Aftur til Þýskalands ólafur leikur nú
með Rhein-Neckar Löwen í Þýskalandi.