Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.2009, Page 54
Baggalútsmenn eru ósáttir við
ummæli Óskars Hrafns Þorvalds-
sonar, fréttastjóra Stöðvar 2 og
Vísis, í Kastljósinu í fyrrakvöld.
Þangað var hann mættur til að
svara gagnrýni á tíðar fréttir á
Vísi um bakspik, appelsínuhúð
og fleira í útliti stjarnanna í Holly-
wood. Óskar sagði meðal annars
að yfirstjórn fréttastofunnar hefði
litið meira á slíkar fréttir í ætt við
Baggalút frekar en „alvöru“ frétt-
ir. Ritstjórn Baggalúts segir um-
mælin einkar ósmekkleg, meið-
andi, særandi og tilhæfulaus með
öllu, enda beri Baggalútur djúp-
stæða virðingu fyrir amerískri
dægurmenningu og þeirri vinnu
sem liggi að baki óaðfinnalegu
útliti stjarnanna. Unga konan
sem Kastljósið ræddi við vegna
gagnrýninnar sagði að frétta-
menn Vísis ættu þá bara að skrifa
á Baggalút. Ritstjórn Baggalúts
sagðist frekar leggja sér appel-
sínuhúðað síðuspik Beyoncé til
munns en að samþykkja það.
„Ég raka mig ekki fyrr en stýrivextirn-
ir fara niður fyrir tveggja stafa tölu.
Maður verður bara að bíta á jaxlinn
og vera þolinmóður,“ segir Tómas
Tómasson á Hamborgarabúllu Tóm-
asar en hann hefur vakið mikla at-
hygli fyrir mikinn skeggvöxt. „Ég er
þessa stundina maður einsamall.
Þannig að þó að skeggið sé fullt af
mat er enginn að kvarta yfir því,“ seg-
ir Tómas og hlær.
Tómas er ótvíræður hamborgara-
kóngur Íslands nú þegar McDon-
ald’s hefur lagt upp laupana. Tóm-
as vill þó ekki taka svo djúp í árinni.
„Jón Garðar hjá Lyst er rosalega dug-
legur maður og mun væntanlega
bjarga sér út úr þessu. Hann er nátt-
úrulega frægur fyrir að berjast til síð-
asta dropa og það eru fáir meiri sölu-
menn en hann.“
Þó að kreppan leiki marga grátt
slakar Tómas ekkert á. Hann ætlar að
opna nýja Búllu í Ofanleiti í gömlu
húsi sem hentar fullkomlega fyrir
Búlluna. „Húsið er svolítið Búllulegt
ef maður getur orðað það þannig.
Þetta hefur verið ónotað hús í ein-
hver ár og við opnum þar í næsta
mánuði. Maður þarf að vera á tánum
og vakandi yfir því sem maður er að
gera. Sérstaklega þarf maður að hafa
gaman af þessu, það er í raun undir-
staðan að því að hlutirnir gangi - að
maður hafi gaman af því að sýsla í
þessu.“ benni@dv.is
Tómas Tómasson hamborgarakóngur:
Dagbjartur Einarsson í grinDavík:
Það verða stórstjörnur á Kringlu-
kránni um þarnæstu helgi þar
sem slegið verður upp dans-
leik. Ekki minni menn en Egill
Ólafsson, Páll Rósinkranz, Andri
Backman og Geir Ólafsson troða
þá upp með Furstunum, nánar
tiltekið laugardagskvöldið 7. nóv-
ember. Ekki nóg með það held-
ur verður enn þá meiri reynsla
á sviðinu kvöldið áður þar sem
hjónin Óli Gaukur og Svanhildur
Jakobsdóttir munu ljá Furstun-
um raddir sínar og fingrafimi á
gítarnum. Reyndar má geta þess
að kanónurnar Hemmi Gunn,
Gylfi Ægis og Ari Jóns í Áhöfninni
á Halastjörnunni taka forskot á
sæluna um næstu helgi á Kringlu-
kránni. Eðlilegt framhald væri að
Bítlarnir og Stones træðu þar upp
að þessum tveimur dansleikjum
loknum, slíkur er stjörnufansinn.
54 miðvikudagur 28. október 2009 fólkið
Bagga-
lútsmenn
Brjálaðir
stjörnur á
kringlukránni
„Daddi, hvaðan ertu að koma?“
Hann horfði hissa á Birnu og end-
urtók að hann væri að koma frá
kunningjafólkinu.
„Þú ert í öfugum nærbuxum!“
Dagbjartur varð allt í einu eins og
skorinn út í krossvið, allar hreyf-
ingar frusu, skelfingarsvipurinn
sem á hann kom líka og hann and-
aði varla.
Svona lýsir Jónas Jónasson, út-
varpsmaður og rithöfundur, því
í bókinni þegar Birna Óladóttir
komst að framhjáhaldi eiginmanns
síns. Það liggur í loftinu. Dagbjart-
ur Einarsson, útgerðarmaður og
fyrrum forstjóri Fiskanes, hélt við
aðra konu í fjögur ár áður en upp
komst um syndir hans .
Tveir kaflar í þessari ótrúlega
mögnuðu bók lýsa andrúmsloftinu
á heimilinu næstu daga og draga
þau Dagbjartur og Birna ekkert
undan. Jónas, sem skrásetur ævi
þeirra hjóna, skrifar einnig fanta-
vel og fangar stemninguna þannig
að lesandinn getur ekki lagt bók-
ina frá sér. Verður að klára.
Dagbjartur hélt við vinkonu
Birnu en upp úr þeim vinskap
slitnaði eftir að málið komst
upp. Birna sagði við mann sinn
að hún gæti fyrirgefið ýmislegt
en ekki lygar. Dagbjartur játaði
ekki strax framhjáhaldið en eftir
að Birna hafði fengið alla söguna
staðfesta fór systir hennar niður
að höfn, náði í Dagbjart og sagði
honum að nú skyldi hann ræða
við systur sína.
Dagbjartur fór óttasleginn
inn á sitt eigið heimili, hélt að
nú væri hjónabandi þeirra lokið.
Eftir erfitt samtal þar sem játning
lá fyrir var komið að því að græða
sárin. Birna var ákveðin í að fyr-
irgefa framhjáhaldið en það tók
tíma, mörg ár.
„Tíminn varð að lokum vinur
fjölskyldunnar allrar. Það sann-
ast á þeim Birnu og Dagbjarti að
kærleikurinn umber allt, fyrir-
gefur allt og fellur svo sannarlega
aldrei úr gildi.“
Bókin er kominn í verslanir.
útgerðarmaður
skrudda gefur út bókina Það liggur í loftinu, sögu Birnu Óladóttur og Dagbjarts Einars-
sonar. Jónas Jónasson skrifar. bókin lýsir hvunndagshetjum nútímans, hjónum sem
byrjuðu með tvær hendur tómar en unnu sig upp í ríkidæmi. Tveir kaflar í bókinni stinga
í stúf en þar lýsa hjónin framhjáhaldi Dagbjarts opinskátt og er ekkert dregið undan.
í öfugum nærBuxum
Glæsihjón Framhjáhaldið
reyndi á hjónabandið en leitaði
jafnvægis með þrotlausri vinnu.
skeggið truflar engan
Flottur með skeggið Tómas
á Búllunni ætlar ekki að raka sig
fyrr en stýrivextir fara niður fyrir
tveggja stafa tölu. MynD RakEl Ósk