Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.2009, Síða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.2009, Síða 4
SANDKORN n Meint ölvunarástand Ögmund- ar Jónassonar alþingismanns þegar Kastljósið vildi eiga við hann orðastað hefur fengið mikla athygli. Þingmenn hafa hver um annan þveran lýst stuðningi við Ögmund og vottað að hann hafi ekki verið drukkinn við atkvæða- greiðslu. Þeirra á meðal er Birgitta Jónsdóttir sem segist hafa rætt við Ögmund án þess að merkja á honum vín. Það var Helgi Seljan sem reyndi að fá viðtalið við Ög- mund þegar hann sagðist vera drukkinn. Helgi mun ekki vera í neinum vafa um að þannig var ástand þingmannsins, burtséð frá þeirri skjaldborg sem slegin var um hann. n Sú hugmynd Egils Helgasonar, sjónvarpsmanns og bloggara, að loka fyrir athugasemdir á bloggi sínu hefur kallað fram mót- mæli. Meðal þeirra sem andæfa er Jenný Anna Baldursdótt- ir, stjörnu- bloggari á Eyjunni, sem biður hann lengstra orða að loka ekki. Aðrir munu sáttari við lokun, þeirra á meðal er Heimir nokkur Fjeldsted sem hraunaði yfir Egil í athugasemd við færsluna og var umsvifalaust kastað út. n Einn dyggasti stuðningsmaður DV á athugasemdakerfi blaðs- ins er prófessor Hannes Hólm- steinn Gissurarson sem marga glímuna hefur háð á þeim vett- vangi. Hannes ritaði á dögun- um athugasemd þar sem hann vildi banna að Björn Bjarnason, fyrrverandi ráðherra í hrunstjórn Geirs Haarde, væri kallaður eft- irlaunaþegi. „Annars er ógeðfellt hvernig hinir ungu blaðamenn á DV tala í lítilsvirðingartón um t.d. Björn Bjarnason „eftirlaunaþega“. Eru menn dæmdir til þagnar að dómi DV, þegar þeir verða 65 ára?“ spyr Hannes. Svarið er að hvergi hefur það verið nefnt að Björn megi ekki tjá sig þótt hann beri hið virðulega heiti eftir- launaþegi. n Fullkominn glímuskjálfti er meðal sjálfstæðimanna í Reykja- vík eftir að í ljós er komið að örtröð hefur myndast um annað sætið. Síðast bætt- ist Kjartan Magnússon, borgarfull- trúi og bróðir Andrésar Magnús- sonar blaðamanns, í hóp silfur- refanna. En sumir lætla að spila sína baráttu af klókindum. Þeirra á meðal er Marta Guðjónsdóttir, varaborgarfulltrúi og formaður Varðar, sem biður af hógværð um þriðja sætið. Marta nýtur stuðn- ings hins fráfarandi Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar og á örugglega fína möguleika á öruggu sæti eftir að hinir hafa klórað augun hver úr öðrum. 4 MIÐVIKUDAGUR 23. desember 2009 FRÉTTIR „Konan mín fór að heiman klukkan níu um morguninn, ég kom heim korteri seinna og þá sá ég bíl sem hafði verið lagt undarlega í götunni okkar. Það sátu fjórir menn í hon- um og hann var myrkvaður,“ segir Ellert Markússon, íbúi í Grafarvogi, sem kom í veg fyrir að meint þjófa- gengi næði að brjótast inn á heimili fjölskyldunnar og láta greipar sópa. „ Ég var að lesa Moggann í róleg- heitum yfir morgunkaffinu, þá var hringt á dyrabjöllunni. Það er mjög sjaldgæft að einhver sé að hringja á þessum tíma. Það fyrsta sem ég hugsaði var að þetta væru einhverj- ir gæjar. Svo þegar ég kom fram og opnaði millihurðina, þá tók mað- urinn til fótanna. Ég fór beint á eft- ir honum með hundinn með mér. Maðurinn hljóp aftur inn í sama bíl og ég hafði séð fyrr um morgun- inn.“ Ellert segist hafa náð að hlaupa í veg fyrir bílinn, svo hann komst ekki neitt um stund. Hann náði nið- ur númerinu á hinni steingráu Opel Corsa, sem mennirnir sátu í. Hann segir mennina hafa verið um tví- tugt og af erlendu bergi brotna, en er ekki viss hverrar þjóðar þeir voru. „Viku áður keyptum við okk- ur flatskjá og hann sést vel inn um gluggann. Það hafa greinilega ein- hverjir verið að fylgjast með okkur,“ segir Ellert. „Ég hefði helst viljað að þeir færu inn um gluggann, svo ég gæti tekið á móti þeim. Ég hef nefni- lega áður tekið svona gaura,“ segir hann vígreifur. Eftir að mennirnir höfðu ekið á brott, hringdi Ellert í lögregluna, til- kynnti atvikið og lét hana hafa bíl- númerið. Hann er hins vegar hissa á áhugaleysi lögreglunnar í málinu. Mennirnir hafa ekki verið hand- teknir, eftir því sem næst verður komist. valgeir@dv.is „Ég er ekki með einkabílstjóra heldur hef ég afnot af bíl með bíl- stjóra. Við þetta tækifæri ákvað ég að nýta mér þann kost,“ segir Vil- hjálmur Þ. Vilhjálmsson, forseti borgarstjórnar. Vilhjálmi var um síðustu helgi boðið á glæsilega aðventutónleika Karlakórs Reykjavíkur sem haldn- ir voru í Hallgrímskirkju. Tónleika- gestir veittu því athygli að forseti borgarstjórar mætti á tónleikana með eiginkonu sinni með einkabíl- stjóra frá borginni. Um er að ræða annan tveggja glæsilegra Audi-bíla sem borgin leigir, annar þeirra er al- farið undir Hönnu Birnu Kristjáns- dóttur borgarstjóra og hinn stend- ur forseta borgarstjórnar, Vilhjálmi, til boða. Hann nýtti sér þjónustuna þegar hann fór á aðventutónleika karlakórsins. Þægileg afnot „Ég var að koma úr vinnunni og þetta var í leiðinni. Samkvæmt samþykktum hef ég þennan aðgang og það er ekki nýtt af nálinni held- ur hefur það verið svona í áratugi. Þetta er ekki neitt sem ég bjó til fyr- ir mig. Það hafa allir á skrifstofunni afnot af bílnum þannig að þetta er ekki einkabíllinn minn. Það getur verið þægilegt að hafa svona afnot af einkabíl en það fer eftir atvikum. Þegar maður þarf að snatta mikið á milli staða er það gott,“ segir Vil- hjálmur. Vilhjálmur hefur ákveðið að gefa ekki áfram kost á sér í borg- arstjórn og er aðspurður ánægð- ur með ákvörðunina. Hann er stoltur af löngum ferli sínum og útilokar ekki að taka að sér ein- hver önnur störf. „Ég hef átt lang- an feril eða 28 ár. Geri aðrir betur. Ég ætla núna að lifa lífinu. Mað- ur þarf að eiga tíma fyrir golf- ið og hingað til hefur ekki mikill tími gefist. Þar að auki er ýmis- legt hægt að gera og það kemur örugglega eitthvað meira til sög- unnar hjá mér síðar meir. Það er ekkert fastákveðið með það,“ seg- ir Vilhjálmur. Stoltur styrktaraðili Karlakór Reykjavíkur var form- lega stofnaður 3. janúar árið 1926. Hann hefur í gegnum tíðina haldið tvenna tónleika árlega, aðra að vori og hina á aðventunni. Vilhjálmur er stoltur styrktaraðili kórsins og það hefur hann verið síðustu þrjá áratugi. Hann ítrekar að þótt hann hafi mætt á tónleikana með einka- bílstjóra hafi hann engan einkabíl. „Þessi afnot forseta borgarstjórnar hafa verið til staðar í áratugi. En ég nota alls ekki bílinn alltaf því stund- um nota ég minn eigin bíl. Sjálfur á ég tvo bíla og er oft á mínum eigin bíl í vinnunni,“ segir Vilhjálmur. „Karlakórinn býður mér gjarn- an á þessa aðventutónleika enda hef ég verið styrktaraðili í þrjátíu ár. Mér þykir mjög vænt um þennan kór og tónleikarnir voru frábærir. Líklega einir bestu tónleikar sem ég hef sótt,“ segir Vilhjálmur . trausti@dv.is Mætti með bílstjóraVilhjálmur lét einkabílstjóra skutla sér á aðventutónleika Karlakórs Reykjavíkur. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, forseti borgarstjórnar, mætti með eiginkonu sinni á að- ventutónleika Karlakórs Reykjavíkur á einkabíl borgarinnar. Bílstjóri ók þeim til og frá Hallgrímskirkju þar sem Vilhjálmi var boðið á tónleikana. TRAUSTI HAFSTEINSSON blaðamaður skrifar: trausti@dv.is „Karlakórinn býður mér gjarnan á þessa aðventutónleika enda hef ég verið styrktar- aðili í þrjátíu ár. Mér þykir mjög vænt um þennan kór og tónleik- arnir voru frábærir.“ MEÐ EINKABÍLSTJÓRA Á JÓLATÓNLEIKANA Bönkuðu upp á snemma morguns Íbúi í Grafarvogi var fyrir tilviljun heima þegar hópur manna gerði sig líklegan til að brjótast inn til hans. Myndin er sviðsett. Grafarvogsbúinn Ellert Markússon stoppaði þjófagengi á heimili sínu: Nýbúinn að kaupa sér flatskjá Útgáfa DV Næsta tölublað DV kemur út miðvikudaginn 30. desember. Þar er um að ræða veglegt áramóta- blað þar sem verður að finna völvuspá, fréttaúttektir, viðtöl og margt annað áhugavert efni. DV óskar lesendum sínum og landsmönnum öllum gleðilegra jóla.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.