Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.2009, Blaðsíða 10
10 MIÐVIKUDAGUR 23. desember 2009 FRÉTTIR
Jóhannes Atlason, íþróttakennari í
Breiðholtsskóla, fyrrverandi leikmað-
ur og síðar þjálfari íslenska landsliðs-
ins í knattspyrnu, stýrði sínum síð-
asta Tarsan-leik í skólanum fyrir jólin.
Áratuga löng hefð er fyrir því í Breið-
holtsskóla að í síðasta leikfimitíman-
um fyrir jól, fari strákarnir í sérstakan
Tarsan-leik. Nú fyrir jólin stýrði Jó-
hannes leiknum fertugasta árið í röð,
en hann hættir að kenna eftir þetta
skólaár. Fjörutíu árgangar stráka sem
eru aldir upp í Neðra-Breiðholti hafa
farið í Tarsan-leikinn í síðasta tíman-
um fyrir jól hjá Jóhannesi.
Fastur liður
„Ég hef haft þá sérstöðu að ég tók við
strákunum þegar þeir voru 6 ára og
skilaði þeim 16 ára. Það var enginn
annar íþróttakennari en ég. Það voru
bara Jóareglur og allir vissu að hverju
þeir gengu,“ segir Jóhannes.
Hefur leikurinn eitthvað breyst í
gegnum árin? „Nei ekki neitt. Hon-
um var stillt upp svona fyrir 40 árum,
hann er eins í dag og við notum sömu
áhöld og þegar við byrjuðum. Þetta er
sami leikur og maður var sjálfur í sem
barn í skóla. Vegna þess hversu vin-
sæll leikurinn er höfum við haft hann
einu sinni á ári. Þetta er bara jólaleik-
urinn og það er alltaf mikil spenna.
Ég held að strákarnir telji frekar nið-
ur til Tarsan-leiksins en jólanna. Um
daginn fékk ég hringingu frá einni
mömmu, sem þurfti að fara með son
sinn til læknis. Strákurinn var búinn
að segja mömmu sinni að hann færi
ekki til læknis ef Tarsan-leikurinn
væri í dag.“
Ólátabelgir
Arnor Guðjohnsen, fyrrverandi
landsliðsmaður í knattspyrnu, var í
Breiðholtsskóla frá árinu1970. Hann
man vel eftir Tarsan-leikjunum „Ég
man að menn voru misjafnlega á
sig komnir, sumir í meiri holdum
en aðrir, þannig að þetta var erfiður
tími. Jóhannes var góður en strangur
kennari. Þegar menn voru með læti
í búningsklefa fyrir leikfimi tók hann
þann sem var með mestu lætin föst-
um tökum. Við höfum oft rifjað þetta
upp félagarnir, það var alltaf gaman í
leikfimi hjá honum. Síðan lágu leiðir
okkar saman seinna þegar ég var með
hann sem landsliðsþjálfara,“ segir
Arnór.
Tarsan-leikurinn í steggjun
Nokkrum árum seinna var annar
landsþekktur náungi mættur til Jó-
hannesar. „Þetta var alltaf í síðasta
tímanum fyrir jól. Þá fór maður í Tars-
an-leikinn, þetta var bara hluti af jól-
unum,“ segir Sverrir Þór Sverrisson,
jafnan kallaður Sveppi.
„Jóhannes var svona gæinn sem
ól okkur strákana upp. Ef við sát-
um ekki stilltir inni í búningsklefa og
búnir að setja handklæði yfir fötin og
komin dauðaþögn í klefann fengum
við ekki að fara inn í salinn. Þetta var
eini staðurinn sem maður var með
allt á hreinu. Þegar Tarsan-leikurinn
fór fram vorum við alltaf mættir tím-
anlega. Þá vildi maður ekki missa af
mínútu. Ég ólst upp við að þessi leik-
ur væri í öllum grunnskólum, en svo
fór ég á að ræða við jafnaldra mína
úr öðrum skólum og þá reyndist það
ekki vera. Leikurinn gekk út á að stilla
upp öllu í íþróttahúsinu, hestum,
dýnum og köðlum. Svo var maður
með band á sér, Tarsan var með rautt
band og allir hinir með grænt band.
Sá sem náði að safna flestum bönd-
um var Tarsan, en sá sem safnaði
fæstum böndum var gúmmí-Tarsan.“
Minninginn um þennan sérstaka
leik lifir sterkt hjá Sveppa og æskufé-
lögum og hefur Jóhannes nokkrum
sinnum verið kallaður út af gömlum
nemendum til að stýra Tarsan-leik.
„Fyrir nokkrum árum síðan gifti vin-
ur minn sig og þegar við vorum að
steggja hann fengum við Jóa til að
stýra Tarsan-leiknum eins og í gamla
daga,“ segir Sveppi.
Jóhannes Atlason hefur kennt íþróttir í Breiðholtsskóla í 40 ár. Í síðasta íþróttatímanum fyrir jólafrí fara
krakkarnir alltaf í sérstakan Tarsan-leik í íþróttahúsinu sem hefur haldist nákvæmlega eins öll þessi ár.
Þetta er síðasta árið sem Jóhannes stjórnar Tarsan-leiknum.
TARSAN-LEIKUR Í
40 ÁR FYRIR JÓLIN
VALGEIR ÖRN RAGNARSSON
blaðamaður skrifar: valgeir@dv.is
Jóhannes Atlason Búinn að standa
vaktina í Breiðholtsskóla í 40 ár og stýra
Tarsan-leiknum. MYND SIGTRYGGUR ARI
Tarsan Strákarnir leysa ýmiskonar þrautir og gengur leikurinn út á að safna bönd-
um. Sá sem nær flestum böndum fær titilinn Tarsan, en sá sem nær fæstum böndum
endar sem gúmmí-Tarsan. MYND SIGTRYGGUR ARI
holabok.is
FRÁBÆRAR BÆKUR!
Óborganlegar sögur af
Eyjaskeggjum - hvað
annað?
Skrautlegt og
skemmtilegt jólaföndur.
Hvaða synd drýgði
væntanlegur ökukennari?
Bráðskemmtileg ævisaga.
Hér fara margir á kostum,
t.d. Púlli, Jens Guð og
Gurrí Haralds.
Mögnuð bók; greinir
frá þróun kafbáta,
hernaðarlegri snilld,
mistökum og mannfórnum.
Sagnameistarinn Jón
Böðvarsson er í miklum
ham og segir hér margar
óborganlegar sögur.
Íslenskar draugasögur,
alls ekki ætlaðar
viðkvæmum sálum.
Gamansögur af Árnesingum
og hér slapp enginn sem
hafði eitthvað til málanna að
leggja.
Eitt af snilldarverkum
Antony Beevor og
tvímælalaust besta bókin
um Spænska borgarastríðið.
Sögur af sviðinu og baksviðs
og jafnframt að stórum
hluta saga djass- og
dægurlagatónlistar á Íslandi.
Einstakar lífsreynslusögur
„Stórfróðleg viðtöl og
ánægjuleg aflestrar.”
Jón Þ. Þór, DV.