Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.2009, Síða 18
18 MIÐVIKUDAGUR 23. desember 2009 FRÉTTIR
HJÁLPA ÖÐRUM UM JÓLINFjöldi Íslendinga ver jólunum ár hvert fjarri heimili sínu til þess að aðstoða þá sem minna mega sín. Oftar en ekki starfar þetta fólk í sjálfboðavinnu bæði hér heima og erlendis.
Guðrún Margrét Pálsdóttir, formaður ABC barnahjálpar:
Jólamaturinn með
2.000 börnum
„Þetta var gífurleg upplifun,“ seg-
ir Guðrún Margrét Pálsdóttir, for-
maður og einn af stofnendum ABC
barnahjálpar. Guðrún eyddi jólun-
um árið 2006 úti á Indlandi á Heim-
ili litlu ljósanna. „Það var alveg
ótrúlega einstakt að borða jólamat-
inn með 2.000 börnum undir ber-
um himni.“
Eiginmaður Guðrúnar og tvö
elstu börn þeirra voru einnig með
í för. „Þau voru þá 18 og 16 ára en
við eigum svo tvö yngri börn sem
voru þá fjögurra og átta ára og voru
heima hjá ömmu og afa á meðan.“
Þó svo að hindúar fagni sín-
um jólum í janúar var haldið upp
á kristin jól á Heimili litlu ljósanna
þar sem fjölskyldan starfaði yfir jól-
in. „Við vorum með hlaðborð og
það kom endalaust af börnum í
röðina í alls kyns lituðum fötum og
svo sátum við eins og ég segi þarna
undir berum himni. Það var ótrú-
lega falleg og einstök upplifun.“
Guðrún, sem er oft ein á ferð,
segist lítið finna fyrir söknuði þeg-
ar hún er á ferðum sínum um heim-
inn. „Þegar maður er á svona stað
þá gleymir maður öllu öðru. Það er
eins og maður sakni einskis. Það er
svo margt að innbyrða og upplifa.“
Guðrún hefur einnig heimsótt Úg-
anda, Keníu og Bangladesh svo eitt-
hvað sé nefnt.
Fyrir rúmum 20 árum var Guð-
rún á ferð um heiminn en þá kvikn-
aði hugmyndin að ABC barnahjálp.
Hún ferðaðist þá víða í heimsreisu
og eyddi til dæmis jólunum í Mexí-
kó. „Það voru reyndar svolítið ein-
manaleg jól. Maður fann lítið sem
ekkert fyrir því að það væri jól.“
Síðan samtökin voru stofnuð
1988 hefur Guðrún nánast sam-
fleytt gegnt stöðu formanns eða
framkvæmdarstjóra. Hún seg-
ir fjölda fólks, og þar á meðal sig
sjálfa, starfa í sjálfboðavinnu á veg-
um samtakanna og að starfið gangi
vel þótt ástandið hafi sett strik í
reikninginn. „Við fáum í krónum
sömu upphæð og við höfum ver-
ið að fá undanfarið ár. En gengið
hefur veikst svo mikið að það hef-
ur dregið verulega úr getu okkar er-
lendis. Sem er mjög erfitt þegar við
erum með 12.000 börn sem við sjá-
um fyrir á daglegum grunni.“ Fólk
sem vill leggja ABC lið getur feng-
ið nánari upplýsinginar á abc.is en
þar er einnig hægt að finna barn
sem vantar stuðning.
asgeir@dv.is
Það er ekkert betra en þetta
Vilhjálmur Svan, umsjónar-
maður Kaffistofu Samhjálp-
ar í Borgartúni, gerir ráð fyrir
því að gefa yfir fimm hund-
ruð máltíðir yfir jólahátíðina.
Hann hefur opið alla daga
hátíðarinnar þar sem boðið
verður upp á hádegisverð. Á
aðfangadag verður bayonne-
skinka á boðstólum, ham-
borgarhryggur á jóladag og
hangikjöt á annan í jólum.
Allur mat fæst gefins frá fjölda
fyrirtækja og hið sama á við
um drykkjarföng. Vilhjálm-
ur segir enga tilfinningu betri
en þá að gefa fátækum mat að
borða. „Við verðum með mat í
hádeginu alla dagana og auð-
vitað skötu á Þorláksmessu.
Ég hef fundið mjög mikið
þakklæti út af jólamatnum
yfir hátíðarnar og Kaffistofan
hefur fengið mikinn meðbyr,“
segir Vilhjálmur.
„Ég hef sjálfur verið að
vinna yfir öll jólin og svo hef
ég fengið góða sjálfboðaliða
með mér. Þeim er ég mjög
þakklátur. Það er ekkert betra
en að geta gefið fátækum og
svöngum að borða. Það er
síðan enn þá betra að geta
gefið matinn yfir jólinn. Það
er einfaldlega frábært.“
trausti@dv.is
Vilhjálmur Svan, umsjónarmaður Kaffistofu Samhjálpar, býður fátækum í mat um jólin:
Guðrún Margrét Pálsdóttir Frumkvöðull í hjálparstarfi á Íslandi.
Heimili litlu ljósanna Myndin er tekin skömmu fyrir jól á heimavist eldri stúlknanna.