Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.2009, Blaðsíða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.2009, Blaðsíða 23
Hver er maðurinn? „Jóhann Ævar Grímsson, einn af handritshöfundum Vaktanna og Bjarnfreðarsonar. Þessi sem sést aldrei í mynd.“ Hvaðan ertu?„Bara úr Mosó, en á ættir að rekja til norðurs og vesturs.“ Hver er fyrsta minning þín úr æsku? „Þegar ég drukknaði næstum sem barn í heitum potti. Langaði nefnilega svo mikið til að klappa brunnklukku sem labbaði í mestu makindum á vatnsyfirborðinu.“ Hver er eftirminnilegasta bók sem þú hefur lesið? „Ég, Kládíus eftir Robert Graves. Les hana aftur reglulega.“ Hver er eftirminnilegasta kvikmynd sem þú hefur séð? „Þær eru svo sjúklega margar, en sú eftirminnilegasta sem ég hef séð nýverið er vitaskuld Bjarnfreðarson.“ Myndirðu gera upp á milli Vaktaseríanna ef þú yrðir neydd- ur til þess? Og hverja myndirðu þá velja sem þína uppáhalds? „Ég myndi hiklaust gera upp á milli þeirra, en gallinn er sá að þær hafa allar eitthvað mismunandi uppá- halds við sig.“ Hvor er fyndnari Jón Gnarr eða Pétur Jóhann? „Mér finnst þeir ekkert sérlega fyndnir. Fjörundur er maðurinn! (Þú leggur bara inn á mig þegar þér hentar, Jöri minn.)“ Hvaða erlendi handritshöfundur er í mestum metum hjá þér? „Rod Serling, sem bjó til og skrifaði þorrann af gömlu Twilight Zone- þáttunum.“ Heldurðu að líf þitt verði svolítið tómlegt að lokinni frumsýningu Bjarnfreðarsonar? „Já, maður kveður þessar persónur og þennan heim með miklum söknuði. En hætta ber leik þá hæst hann stendur og allt það. Hver veit síðan hvort við strákarnir finnum upp á einhverju nýju og fallegu í fjarlægri framtíð.“ Hvað ertu að skrifa þessa dagana? „Ég er að pússa til handrit að sjónvarpsseríu sem heitir Betlihem. Sjáum hvað verða vill.“ HVAÐ ER Í JÓLAMATINN HJÁ ÞÉR? „Það er lambalæri og hefur alltaf verið. Mér finnst það alveg ómissandi og vil ekkert annað. Það fylgir aðfangadegin- um.“ HÓLMFRÍÐUR RUT GUÐMUNDSDÓTTIR 19 ÁRA NEMI „Það er hamborgarhryggur eins og venjulega. Við höfum prófað lambahrygg og kalkún en hamborgar- hryggurinn er bestur.“ EINAR VALSSON 48 ÁRA BÍLSTJÓRI „Hjá mér verður hamborgarhryggur, líkt og hefur alltaf verið. Það breytist aldrei enda engin ástæða til.“ SNORRI GUÐMUNDSSON 49 ÁRA FRAMKVÆMDASTJÓRI „Ég elda ekki heima heldur er mér boðið í mat. Ég fer til dóttur minnar en veit ekki hvað verður í matinn. Það verður spennandi og ég hlakka mikið til.“ SIGURÐUR KRISTINN HERMUNDARSON 65 ÁRA RITSTJÓRI DÓMSTÓLL GÖTUNNAR Kvikmyndin Bjarnfreðarson verður frumsýnd annan dag jóla. Leikstjóri og aðalleikarar eru handritshöfundar myndarinnar og Vaktaseríanna ásamt manni að nafni JÓHANN ÆVAR GRÍMSSON sem lítið hefur fengið að baða sig í sviðsljósinu. Baðferð í heitum potti varð Jóhanni hins vegar næstum að aldurtila í æsku. DRUKKNAÐI NÆSTUM Í HEITA POTTINUM „Við erum boðin í jólamatinn og viljum helst fá lambahrygg. Ég er viss um að við fáum eitthvað mjög gott í matinn hjá syninum og tengdadóttur.“ GUÐRÚN ÓLAFSDÓTTIR 66 ÁRA EFTIRLAUNAÞEGI MAÐUR DAGSINS Afdrifaríkustu pólitísku mistökin sem gerð voru á því ári sem nú er senn liðið voru gerð á landsfundi Sjálfstæðisflokksins. Mistökin fólust í þeim afleik Bjarna Benediktssonar, nýkjörins formanns, að bjóða ekki heima- stjórnararminum birginn. Nýi for- maðurinn skynjaði ekki sinn vitjun- artíma þótt svo grasrótin í flokknum hefði undir handleiðslu Vilhjálms Egilssonar lagt fram merka skýrslu um endurreisn og uppgjör. Hann skynjaði ekki þá sögulegu nauðsyn flokksins að gera með róttækum og heiðarlegum hætti upp við fortíð- ina. Samt blasti forskriftin að upp- gjörinu við honum í endurreisnar- skýrslunni: „Sjálfstæðisflokkurinn hefði átt að koma á sterkari um- ræðuhefð í grasrótinni. Flokkurinn verður að hlusta á baklandið og má ekki veigra sér við að ræða eldfim mál áður en í óefni er komið.“ Davíð Oddsson, brottrekinn seðlabankastjóri, sté í ræðustól á landsfundinum, úthúðaði Vilhjálmi Egilssyni, hraunaði yfir tugi skýrslu- höfunda, sagði skýrsluna einskis virði og kvaðst sjá eftir trjánum sem farið hefðu í að gefa hana út. Nýja flokksforystan hefur ekki staðið í lappirnar síðan. Hún er á valdi fortíðararms Davíðs sem á haustmánuðum varð ritstjóri Morg- unblaðsins. Átakahefðin nær völdum Áratugum saman innræktaði Sjálf- stæðisflokkurinn klíkustjórnmál, tók stjórnkerfi þjóðarinnar herfangi og lét það þjóna sér- hagsmunum vildarvinanna með flokksskírteinin. Í stað þess að gera í auðmýkt upp við þessa fortíð og hefja siðferðilega endurreisn lætur flokkurinn ófriðlega. Vonir um að skapa þverpólitíska samstöðu um úrræði og endurreisn eftir bankahrunið voru litlar frá upphafi. Til þess var ábyrgð Sjálf- stæðisflokksins á bankahruninu of mikil og ýfingarnar milli hans og Samfylkingarinnar of áberandi. Þegar kjósendur refsuðu Sjálf- stæðisflokknum með sögulegum hætti í þingkosningum í maí síðast- liðnum var útséð um vilja Sam- fylkingarinn- ar og VG til samvinnu við Sjálfstæðis- flokkinn. Hið undar- lega gerðist að refsing kjósend- anna birtist í af- neitun og for- herðingu flokksforystu Sjálfstæðis- flokksins. Und- ir forystu Bjarna Benediktssonar hefur flokk- urinn fjarlægst allt sem heitið gæti innra uppgjör og endurreisn. Þvert á móti hefur flokkurinn beinlínis einbeitt sér að því að forðast slíkt uppgjör þótt svo að formaðurinn heiti því að galopna flokkinn. Hann einbeitir sér að gamalkunnum átakastjórnmálum. Harður kjarni LÍÚ styður fallinn foringjann í Há- degismóum og hefur í hótunum við sveitarstjórnir sem leyfa sér að setja spurningamerki við kvótakerfið. Bjarni og Sjálfstæðisflokkur- inn stunda átakastjórnmál í Icesa- ve-málinu. Samt vita allir hugs- andi menn að snemma þann dag sem Sjálfstæðisflokkurinn kæmist til valda samþykkir hann Icesave- skuldbindingarnar umsvifalaust. Bjarni formaður, sem svo mildi- lega talaði um að kanna þyrfti kosti og galla þess að ganga í Evrópusam- bandið, hefur nú snúist gegn slík- um áformum og boðar nánast sömu forherðingu sérhags- munanna og einangrun- arhyggjunn- ar og tíðkaðist í stjórnartíð Davíðs Odds- sonar frá ár- inu 1995 þegar ekki mátti einu sinni ræða Evrópumál. Undir merkjum átakastjórnmála er einnig lítil von til þess að Sjálf- stæðisflokkurinn nái samkomulagi við stjórnarflokkana um nauðsyn- legar breytingar á skattkerfinu í erf- iðu árferði. Uppgjöri slegið á frest Sjálfstæðisflokkurinn þarf foringja sem hefur þrek til að flytja flokks- mönnum vondar fréttir. Afneitun- in og meðvirknin kemur flokknum í koll. Niðurstöður rannsóknar á að- draganda og orsökum bankahruns- ins munu leiða þetta fram. Þessi stjórnlyndi forsjárhyggju- flokkur, sem leitt hefur þjóðina 80 prósent tímans frá stofnun lýðveld- isins, þarf innra uppgjör og eigin umskipti. Vel má vera að sjálfstæðismönn- um líki illa samlíking við sovéska kommúnistaflokkinn. Það verð- ur svo að vera. En rétt eins og Gor- bastjov hafði á níunda áratugnum kjark til að breyta kommúnista- flokki Sovétríkjanna innan frá und- ir merkjum Glasnost með opnara og gagnsærra þjóðfélag og aukið tján- ingarfresli að leiðarljósi, þarf Sjálf- stæðisflokkurinn sitt Glasnost nú. Sjálfstæðisflokkurin þarf sinn Krustsjov sem árið 1956 gerði á landsfundi kommúnistaflokksins upp við fortíð flokksins og valda- tíð Stalíns. Formaður Sjálfstæðis- flokksins verður að hafa þrek til að vinna sambærileg verk. Það væri góð byrjun á nýjum íslenskum stjórn- málum. Afneitunin og refsing kjósenda MYNDIN Skoðað í glugga fyrir jólin Mikið hefur verið að gera hjá starfsfólki í búðum síðustu daga. Heldur var þó rólegt í Bankastræti um kvöldmatarleytið á þriðjudag, tveimur dögum fyrir jól. MYND RÓBERT KJALLARI UMRÆÐA 23. desember 2009 MIÐVIKUDAGUR 23 JÓHANN HAUKSSON Harður kjarni LÍÚ styður fallinn foringjann í Hádegismóum og hefur í hótunum við sveitar- stjórnir sem leyfa sér að setja spurningamerki við kvótakerfið. blaðamaður skrifar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.