Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.2009, Qupperneq 27
okkur í þessu árferði að vera þakklát
fyrir það sem við eigum og að passa
okkur á græðginni. Og umfram allt
að vera góð við hvort annað.“
Eggert fer á kostum
Þjóðleikhúsið setti söngleikinn upp
fyrir tuttugu árum við frábærar við-
tökur. Þórhallur „Laddi“ Sigurðsson
fór þar með hlutverk Fagins, gyð-
ingsins aldna sem kennir munaðar-
lausum drengjum að draga fram lífið
með þjófnaði, og fékk feikilegt lof fyr-
ir. Eggert Þorleifsson túlkar Fagin að
þessu sinni og er á Selmu að heyra að
hann gefi Ladda lítið sem ekkert eftir.
„Eggert er auðvitað frábær leikari
og ég hef alltaf verið mikill aðdáandi
hans.Hann fer náttúrlega á kost-
um eins og hans er von og vísa. Fag-
in er heldur ekki einfaldur karakter
því hann er bæði stórhættulegur og
slyngur, en á það svo til að vera húm-
orískur og að slá á létta strengi við
strákagengið sitt. En hann er græð-
gin uppmáluð.“
Bæði hlutverk Olivers og Hrapps
eru leikin af tveimur drengjum þar
sem álagið er mikið. „Það mæð-
ir mikið á þessum drengjum, Oliver
er til að mynda inni á sviðinu nánast
allan tímann. Þess vegna er nauð-
synlegt að hafa tvöfalt „kast“ á þeim,
til dæmis ef annar strákanna myndi
veikjast,“ segir Selma en drengirnir
sem svo mikið mæðir á heita Ari Ól-
afsson og Sigurbergur Hákonarson.
Hvíld fram undan
Sýnt er ört yfir hátíðarnar vegna mik-
illar eftirspurnar en Selma segir að-
spurð það þó ekki valda því að jól-
in fari framhjá sér. „Nei nei, maður
bara undirbýr sig vel fyrirfram. Mað-
ur þarf auðvitað að taka út nokkra
stressdaga, kaupa í matinn, þrífa og
pakka inn og slíkt, en ég var bara
búin að þessu flestu fyrir mestu törn-
ina. Ég er nefnilega mikið jólabarn og
vil síður missa af jólunum.“
Næstu skref hjá Selmu í leikhús-
verkefnum eru óráðin. Hún sjálf sé
eiginlega næst á dagskrá. „Ég er ekki
búin að ákveða neitt með næstu
skref. Ég ætla fyrst og fremst að hvíla
mig á næstunni, byrja í ræktinni og
huga að sjálfri mér.“
kristjanh@dv.is
M
Æ
LI
R
M
EÐ
...
SAGA
AKUREYRAR -
V. BINDI EFTIR
JÓN HJALTA-
SON Sannkallað
stórvirki.
VIGDÍS - KONA
VERÐUR FORSETI
EFTIR PÁL VALS-
SON Lipur bók sem
eykur skilning á
persónu Vigdísar og
þjóð hennar.
AVATAR
Stórmynd
sem fólk
verður að
sjá í bíó.
PENINGARNIR
SIGRA HEIMINN
EFTIR NIALL
FERGUSON
Aðgengilegur
inngangur að virkni
og sögu peninga.
FLÓTTINN
MIKLI MEÐ
MORÐ-
INGJUNUM
Frábær plata
hljómsveitar í
framþróun.
FÓKUS 23. desember 2009 MIÐVIKUDAGUR 27
Vel vandað heimildasafn
LAUGARDAGUR
n Party Zone
Party Zone ´95 kvöld verður haldið á
annan í jólum. Eitthvað afar sérstakt
gerðist þegar Party Zone ´95 kvöldið
var haldið á Jónsmessunótt fyrr á
þessu ári, það gjörsamlega varð allt
vitlaust þegar plötusnúðar Tunglsins
og Rósenberg á árunum 1990-1995
spiluðu vínylplötur þess tíma, og því
verður leikurinn nú endurtekinn.
Margeir, Árni E., Maggi Lego og
Frímann eru á meðal þeirra sem stað-
fest hafa þátttöku sína. Staðsetning
er ekki komin á hreint þegar þetta er
skrifað en verður auglýst vandlega.
Miðaverð 2.500 krónur, miðasala á
midi.is.
n Í svörtum fötum á Spot
Þú veist hvernig Jónsi í Í svörtum
fötum er þegar hann er í góðu skapi.
Það er hins vegar ekkert miðað við
hvernig hann er þegar hann er í
jólaskapi. Ekki missa því af tónleikum
Jónsa og félaga á Spot í Kópavogi
annan í jólum. Öllu verður tjaldað til
og mega gestir eiga von á ýmsum
óvæntum uppákomum. Miðaverð
1.800 krónur, miðasala á staðnum frá
klukkan 22.
n Jólahátíð Kölska
Hljómplötuútgáfan Kölski heldur
Jólahátíð Kölska á Sódóma Reykjavík,
26. desember. Fram koma hljómsveit-
irnar Dikta og Ourlives, sem báðar
gáfu út plötur hjá Kölska á árinu, en
einnig hinar stórskemmtilegu sveitir,
Agent Fresco og Vicky. Miðaverð
1.500 krónur, miðasala á midi.is.
SUNNUDAGUR
n Söngvaseiður og svakamál
Það er sunnudagur á milli jóla og
nýárs og því má kannski ætla að
lítið sé um að vera. Þó má finna
sitthvað. Til dæmis er nóg um að vera
í Borgarleikhúsinu í dag og kvöld
þar sem Söngvaseiður verður sýndur
klukkan 14 og 19. Þessi vinsælasti
söngleikur ársins hefur verið sýndur
á Stóra sviðinu fyrir fullu húsi frá því
síðastliðið vor en hann kveður í lok
janúar. Í Borgarleikhúsinu í kvöld er
einnig sýning á gamanleiknum Harrý
og Heimi þar sem þrír Spaugstofu-
bræðra leysa svakamál með sínum
einstaka hætti.
n Munaðarleysingjar og silfur-
fiskur
Eins og lesa má í viðtalinu hér á
opnunni verður söngleikurinn Oliver!
frumsýndur á Stóra sviði Þjóðleik-
hússins annan í jólum. Það þýðir
ekki að aðstandendur sýningarinnar
geti tekið því rólega daginn eftir
frumsýningardag því tvær sýningar
verða á söngleiknum sunnudaginn
27. desember. Auk þess verður ein
sýning á Sindra silfurfiski sem sýndur
er í Kúlu Þjóðleikhússins.
n Opin söfn
Flest söfn borgarinnar eru líka opin í
dag á venjubundnum opnunartíma.
Sjá til dæmis um opnunartíma Lista-
safna Reykjavíkur og Íslands annars
staðar á opnunni og á heimasíðum
safna eins og Þjóðminjasafns Íslands
(natmus.is), Hafnarborgar (hafnar-
borg.is), Listasafns ASÍ (listasafnasi.is)
og Listasafnsins á Akureyri (listasafn.
akureyri.is).
Hvað er að
GERAST?
BANKSTER EFTIR
GUÐMUND
ÓSKARSSON
Haganlega saman-
sett skáldsaga um
barlóm atvinnu-
lauss bankamanns.
Knattspyrnusamband Íslands
fékk blaðamanninn Skapta Hall-
grímsson til þess að rita sögu bik-
arkeppni KSÍ í fimmtíu ár en þessi
merka keppni átti fimmtíu ára af-
mæli í haust. Hefur verið í gangi
mikil heimildarvinna og er nú
komin út bókin Bikardraumar. Í
henni er saga bikarkeppninnar rak-
in í þaula og hver úrslitaleikur karla
og kvenna frá upphafi gerður upp
með texta, myndum og tölfræði.
Bókin er mjög vegleg, einar
367 blaðsíður, og með henni fylg-
ir DVD-diskur þar sem rennt er
yfir bikarkeppnina með leiðsögu
íþróttafréttamanns RÚV. Hún er
algjört heimildarmeistaraverk og
ómetanleg sem slíkt. Auðvitað eru
ljósmyndir til frá öllum leikjunum,
allt frá 1959, en að hafa umsagnir
um alla leikina, myndir af þeim frá
gamla Melavellinum, liðsuppstill-
ingar, markaskor, dómara og áhorf-
endafjölda allt á sama stað er, eins
og áður segir, ómetanlegt.
Bókin sem slík er ekkert konfekt í
lestri. Skapti er þaulreyndur blaða-
maður og fær penni en eðli málsins
samkvæmt er mikið af upptalningu
í bókinni. Reyndar óheyrilegt magn
þar sem saga sérhvers bikarmeist-
ara hvers árs er sögð. Fyllt er svo
upp í með textabrotum úr dagblöð-
um og stuttum viðtölum við menn
sem léku leikina eða voru á staðn-
um. Verður því textinn oft meira
eins og úttekt á bikarkeppninni
heldur en heilsteypt bók.
Gífurlega vel er þó vandað til
verks í öllu varðandi bókina. Ljós-
myndirnar fá að njóta sín og til að
brjóta hana aðeins upp eru dregnar
inn í sérstök box skemmtilegar sög-
ur frá hverjum úrslitaleik. Það lífgar
mikið upp á bókina. Bikardraum-
ar er vel vandað heimildasafn sem
auðvelt er að mæla með fyrir alla
knattspyrnuunnendur. Ef liðið þitt
hefur orðið bikarmeistari er þessi
bók eiginlega skyldueign.
Tómas Þór Þórðarson
Heimildalegt þrek-
virki sem inniheldur
bæði ómetanlegar og
skemmtilegar upplýs-
ingar.
BIKARDRAUMAR -
SAGA BIKARKEPPNINNAR Í
KNATTSPYRNU Í HÁLFA ÖLD
Höfundur: Skapti Hallgrímsson
Útgefandi: KSÍ
BÆKUR
OLIVER!
- aðstandendur
sýningarinnar
Höfundur: Lionel Bart
Þýðing: Þórarinn Eldjárn og
Jóhann G. Jóhannsson
Leikstjóri: Selma Björnsdóttir
Tónlistarstjórn: Jóhann G.
Jóhannsson
Danshöfundur: Aletta Collins
Leikmynd: Vytautas Narbutas
Búningar: María Ólafsdóttir
Lýsing: Lárus Björnsson og
Ólafur Ágúst Stefánsson
Aðalleikarar: Ari Ólafsson, Arnar
Jónsson, Álfrún Helga Örnólfs-
dóttir, Baldur Trausti Hreinsson,
Bergþór Pálsson, Edda Arnljóts-
dóttir, Eggert Þorleifsson, Esther
Talía Casey, Friðrik Friðriksson,
Ívar Helgason, Lilja Guðrún
Þorvaldsdóttir, Ragnheiður
Steindórsdóttir, Sigurbergur
Hákonarson, Tryggvi Björnsson,
Valgeir Hrafn Skagfjörð, Valur
Freyr Einarsson, Vigdís Hrefna
Pálsdóttir, Þórir Sæmundsson og
Þórunn Lárusdóttir.
Kennir okkur að varast græðgina
Selma Björnsdóttir Las Oliver
Twist á unga aldri og segir söguna
hafa grætt sig. MYND SIGTRYGGUR ARI