Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.2009, Qupperneq 30

Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.2009, Qupperneq 30
HÁTÍÐARBLÆR Í FÁBREYTILEIKANUM 30 MIÐVIKUDAGUR 23. desember 2009 JÓLABLAÐ „Ef við ætluðum að fara til útlanda, sem við gerðum svolítið, þá ætluðum við að eiga fyrir því, ekki taka lán. Kristín Margrét Sveinbjörnsdóttir er fædd árið 1921 og vann fyrir sér frá fermingu. Hún man vel eftir kreppunni miklu og ástandið nú er ekkert í samanburði við hana. Hún hefur alla tíð safnað sér fyrir hlutun- um áður en hún kaupir þá. Pabbi hennar smíðaði lítið jólatré og síðan var farið í kirkju á aðfangadagskvöld. Kristín Margrét Sveinbjörnsdóttir er fædd 4. mars árið 1921 í Stykkis- hólmi og er því 88 ára gömul. Hún bjó í Hólminum fyrstu árin en flutti suður til Reykjavíkur eftir fermingu, þar sem hún hefur búið síðan. Hvernig var hefðbundið jólahald á þínu heimili? „Það var afskaplega fábreytt, segjum við núna. Það er langt á milli okkar barnanna, syst- ir mín var 10 árum eldri, svo var ég eins og einbirni. En mér finnst að jólin hafi verið hátíðleg. Það var allt gert hreint sem hægt var að gera. Ég átti heima í fallegu litlu timburhúsi. Faðir minn smíðaði jólatré og á það voru sett kerti, en ekki mikið skreytt. Það voru músastigar og eitthvað svo- leiðis. Það var grænt að lit og svo voru settir á það jólapokar og það var nú mesta eftirvæntingin hvað var í þeim,“ segir Kristín hugsi. „Það var aldrei dansað í kringum jólatré á aðfangadagskvöld, það var farið í kirkju. Það var stutt að fara og það var nú svo skrítið að við fórum yfirleitt í kirkju, en ég man aldrei eft- ir vondu veðri á aðfangadagskvöldi. Ekki voru útiljósin eða nein birta nema tunglið, ef það var. En það var einhver hátíðarblær innra með manni, eitthvað sem kom í fábreyti- leikanum.“ Kreppan hörð Þegar Kristín var að alast upp voru jólagjafir með talsvert öðru sniði en nú þekkist. Hún man eftir tveimur jólagjöfum sem hún fékk í æsku og flestum þættu þær lítilfjörlegar nú á tímum. „Ég á tvær litlar bækur frá foreldrum mínum, önnur er Nýja testamentið og hin er sálmabók. Það eru þær jólagjafir sem ég man eft- ir innan heimilisins,“ segir Kristín. Hún man vel eftir kreppunni miklu á þriðja og fjórða áratugnum. „Það breyttist margt þegar kreppan kom, þá var ég 10 ára. Ég man að það var haldinn borgarafundur, ég fór nú ekki þangað en foreldrar mínir fóru. Það sem rætt var á fundinum var að tekið yrði land til ræktunar, svo allir gætu átt kindur eða eina kú eða eitt- hvað svoleiðis og heyjað fyrir því. Þeir sem ættu bát reru til sjós. Faðir minn átti bát og ákveðið var að þeir gæfu einstæðingum og fátækum afla svo þeir gætu borðað. Þessu man ég svo rækilega eftir.“ Íslendingar tala vart um annað núna en kreppuna sem geisar nú. Kristín er spurð hvort hún finni fyr- ir kreppunni núna. „Kreppu? Hvar sjáið það hana? Mér heyrist á unga fólkinu sem kemur til mín að það sé allt hægt að kaupa og verslanir opnar fram eftir öllum kvöldum og allt til. Ég á tvö börn hérna á Íslandi, ég heyri ekki að þau kvarti undan kreppu, það kemur þá ekki fyrir mín eyru eða ég vil bara ekki hlusta á það,“ segir hún sposk á svipinn. Safnar fyrir hlutunum Kristín er ekki hrifin af þeirri þróun sem orðið hefur, að gefa sífellt dýr- ari gjafir með hverju árinu. Hún hef- ur lifað lífi sínu samkvæmt öðrum gildum. „Þetta á ekki að eiga sér stað. Fólk á að vinna fyrir sínum laun- um þegar það er búið að læra. Núna þurfa allir að læra en ég lærði ekki neitt. Mitt verk var eftir fermingu að fara að vinna fyrir mér og mér var gert það skiljanlegt, þá var móð- ir mín ekkja með lítinn son. Hingað suður kom ég 1935 til að vinna fyrir mér og hér hef ég verið síðan.“ Hún hefur þá væntanlega ekki steypt sér í skuldir til að kaupa lífs- gæði? „Nei, við maðurinn minn stunduðum aldrei svona vitleysu. Ef við ætluðum að fara til útlanda, sem við gerðum svolítið, þá ætluðum við að eiga fyrir því, ekki taka lán.“ Kristín er spurð að lokum hvort hún eigi heilræði handa þeim sem takast á við kreppuna. Eftir nokkurn umhugsunarfrest svarar hún: „Okkar mottó, hjónanna, var að fara aldrei, hvorki í húsakaup né annað, nema sæi fyrir endann á því og geta stað- ið keikur eftir. Það er eins með jólin núna. Það er gott ef fólki líður vel, en öllu má ofgera og við erum kom- in langt út fyrir það sem eðlilegt er, langt út fyrir það. Finnst mér. Mín börn höfðu ekki af þessu að segja og ég held að þau hafi haft þá hugsun að fara ekki lengra en það að eiga fyrir hlutunum.“ valgeir@dv.is Kristín Margrét Sveinbjörnsdóttir „Kreppu? Hvar sjáið það hana? Mér heyrist á unga fólkinu sem kemur til mín að það sé allt hægt að kaupa og verslanir opnar fram eftir öllum kvöldum og allt til.“ Á góðri stund Kristín og fjölskylda hennar á mynd sem var tekin fyrir mörgum árum. Guðrún Rósa Ragnarsdóttir er 78 ára gömul og hefur alltaf búið í Reykjavík. Í æsku fékk hún dúkku í jólagjöf, en bróðir hennar fékk dótabíl. Hún kennir mikið í brjósti um þá sem eru að missa húsin sín í kreppunni, en hefur sjálf sýnt aðhaldssemi. Fólk er glaðara um jólin nú en það var í gamla daga. Guðrún Rósa Ragnarsdóttir er fædd árið 1931 og hefur búið alla sína tíð í Reykjavík. Hún hefur orðið vitni að miklum breytingum á jólahald- inu í gegnum tíðina, en segist alltaf muna eftir því að miðborg Reykja- víkur hafi verið fagurlega skreytt um jólin. Þó ekki eins og nú. „Ég man að í Aðalstrætinu voru falleg- ar ljósaseríur og svo var stór stjarna í miðjunni. En skrautið hefur auk- ist mjög mikið, miðað við það sem var þá.“ Hún segir jólahaldið á heimil- inu hafa þó verið fábreytilegt bor- ið saman við það sem þekkist nú. „Það var ekkert grenitré eins og nú. Pabbi smíðaði jólatré og svo var alltaf látið eitthvert skraut á tréð, en það var ósköp lítið. Það var ekki fyrr en ég var orðin 9 ára, þá fór þetta að breytast og þeir fóru að skreyta meira inni. Þá kom meira skraut í búðirnar.“ Dúkka og dótabíll En voru gefnar jólagjafir í þinni æsku? „Jú, það voru nú einhverjar gjafir. Ég fékk dúkku og bróðir minn fékk lítinn bíl. En einhvern veginn fannst mér alltaf vera eins og það væru hálfgerð vandræði og fátækt þegar fólk var að gefa gjafir um jól- in.“ Guðrún Rósa segir jólahald- ið hafa verið með hefðbundnum hætti. „Við borðuðum hangikjöt á aðfangadagskvöld og svo eitthvert nýtt kjöt daginn eftir.“ En hvað finnst Guðrúnu um hvernig jólahaldið hefur breyst og þróast? „Það er miklu meira um allt og það er eiginlega allt öðruvísi núna. Mér finnst fólkið vera öðru- vísi núna, það eru allir einhvern veginn glaðari. Þessi þróun er til betri vegar.“ Jólagjafir úr hófi Talið berst að kreppunni og seg- ist Guðrún hafa mikla samúð með fólki sem á í erfiðleikum með að borga af íbúðarhúsnæði sínu. „Aumingja fólkið sem er að tapa íbúðum sínum núna, ég hugsa hvað það er hræðilegt. Það er agalegt,“ segir hún áhyggjufull á svip. Guðrún segist þó sjálf hafa sýnt aðhaldssemi í jólagjöfum í gegn- um tíðina. „Það gefa margir dýrar jólagjafir og það er að mörgu leyti farið úr hófi hjá fólki. Í dag hafa engir orðið efni á því að gefa neitt fokdýrt, það eru svo mikil vand- ræði á öllum sviðum síðan þetta kom upp og fólk þarf að sýna meira aðhald. Ég hef ekki sjálf tekið þátt í þeirri þróun að gefa alltaf dýrari og dýrari gjafir.“ valgeir@dv.is „Ég man að í Aðal- strætinu voru fallegar ljósaseríur og svo var stór stjarna í miðjunni. En skrautið hefur auk- ist mjög mikið, miðað við það sem var þá. AÐALSTRÆTIÐ FALLEGA SKREYTT Guðrún Rósa Ragnarsdóttir „Jú, það voru nú einhverjar gjafir. Ég fékk dúkku og bróðir minn fékk lítinn bíl. En einhvern veginn fannst mér alltaf vera eins og það væru hálfgerð vandræði og fátækt þegar fólk var að gefa gjafir um jólin.“
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.