Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.2009, Page 31
JÓLABLAÐ 23. desember 2009 MIÐVIKUDAGUR 31
Ingibjörg Björnsdóttir er 91 árs. Hún ólst upp í torfbæ í Skaga-
firði, þar sem allt var þrifið hátt og lágt fyrir jólin. Stundum
var kálfi slátrað rétt fyrir jól og þá þurfti að grafa hann í snjó-
inn til að varðveita kjötið. Pabbi hennar skar laufabrauð af
mikilli snilld út með vasahnífnum sínum. Mamma hennar
lagði kapp á að öll börnin fengju nýja flík fyrir jólin.
GEYMDU KJÖTIÐ
Í SNJÓNUM
Ingibjörg Björnsdóttir er fædd
árið 1918 í Skagafirði og alin upp á
bænum Fagranesi á Reykjaströnd.
Hún ólst upp í torfbæ, þar sem
jólin voru með heldur öðru sniði
en þekkist nú. Sérstök áhersla var
lögð á að börnin færu ekki í jóla-
köttinn. „Jól voru jól og við hlökk-
uðum mikið til jólanna, þótt það
færi ekki eins mikið fyrir þeim og
núna. Það var alltaf siður á með-
an ég var að alast upp, og áreið-
anlega löngu fyrir þann tíma, að
allir fengu nýja flík fyrir jólin, það
sagði mamma og hún keppti að
því að við krakkarnir fengjum ný
föt. Fósturbróðir minn fékk nýjar
buxur eða peysu en við stelpurnar
fengum nýjan kjól.“
Það var ekki auðvelt verk að
þrífa torfbæ, en hann var engu að
síður þrifinn í hólf og gólf. „Torf-
bærinn var sópaður hátt og lágt,
það var sópað meðal annars úr
rjáfrinu ef eitthvað var. Það var
reynt að gera allt eins þrifalegt og
hægt var. Í þessum baðstofum var
skarsúð og hún hafði þann kost að
það lak síður inn um hana. Gólfið
þurftum við að sandskúra sérstak-
lega,“ segir hún, en með þeirri að-
ferð var sóttur sandur niður í fjöru
og hann borinn á gólfið, síðan var
honum nuddað í gólfið og að lok-
um þurrkað vel yfir. Hvítu trégólfin
í baðstofunni voru ákaflega falleg
eftir sandskúrun, segir Ingibjörg.
Kálfi slátrað fyrir jól
Eins og á flestum íslenskum heim-
ilum á þriðja áratugnum var hangi-
kjötslæri á boðstólum á aðfanga-
dagskvöld. „En það kom fyrir, ef
þannig stóð á burði hjá einhverri
kú, að kálfur var látinn lifa eitthvað
lengur og honum slátrað ekki löngu
fyrir jól. Þá fengum við nýtt kjöt og
það var steikt. Meðlætið var brún-
aðar kartöflur með steikta kjötinu.
Annars var búinn til jafningur líkt
og núna er. Ég man ekki eftir rauð-
káli með hangikjöti fyrr en ég var
orðin fullorðin.“
Ef kálfi var slátrað skömmu fyr-
ir jól var ekki hægt að setja hann í
frystinn líkt og nú er gert. Þá voru
góð ráð dýr. „Stundum var snjór og
þá fór hann pabbi með nýja kjötið
í laut í túninu sem snjóaði oft í og
var lengi snjór í. Þar gróf hann dá-
lítið djúpa gröf og setti kjötið ofan í.
Svona var reynt að geyma nýmetið.
Þetta var eina ráðið, fólkið bjargaði
sér eins vel og hægt var. Ég dáist að
því enn þann dag í dag, sem harð-
fullorðin manneskja, hvað fólk gat
bjargað sér vel við þessar aðstæð-
ur. Síðan þurfti að passa þetta vel til
að skepnurnar kæmust ekki í það.
Fyrst og fremst að hundarnir græfu
kjötið ekki upp. Þeir voru magnaðir
að finna lyktina,“ segir hún og hlær.
Laufabrauðið skorið út
Einn siður sem var á mörgum bæj-
um var að gera laufabrauð. Í torf-
bænum kepptist heimilisfólkið við
þá list. „Það var búið til úr hveiti og
kannski aðeins pínulitlu bætt við af
rúgmjöli svo það væri betra að skera
það. Kakan var lögð á fjöl og þá var
skorið út. Það gerði nú faðir minn
heitinn með vasahnífnum sínum
mest og best. Þetta var fallegt, en
vandinn var að láta þetta ekki af-
lagast í steikingu. Á þeim tíma höfð-
um við ekki aðra feiti á mínu heimili
en tólg og þá varð brauðið hart. En
við fengum allavega falleg útskorin
brauð. Það var svo látinn pínulítill
sykur á þetta, annars var móðir mín
alltaf dálítið spör á sykurinn því hún
stóð í þeirri meiningu að hann væri
óhollur. Ég lifi enn í dag, 91 árs og
ákaflega heilsuhraust, ekki varð mér
meint af þessu.“ valgeir@dv.is
Ingibjörg Björnsdóttir „En það
kom fyrir, ef þannig stóð á burði hjá
einhverri kú, að kálfur var látinn lifa
eitthvað lengur og honum slátrað
ekki löngu fyrir jól. Þá fengum við nýtt
kjöt og það var steikt. Meðlætið var
brúnaðar kartöflur með steikta kjötinu.“
„Á þeim tíma
höfðum við ekki aðra
feiti á mínu heimili
en tólg og þá varð
brauðið hart. En við
fengum allavega
falleg útskorin brauð.
Njótum aðventunnar saman
2 dálkar = 9,9 *10
Opið: má-fö. 12-18, Opið á laugard. til jóla frá 12-16
Dalvegi 16a,
Rauðu múrsteinshúsunum
Kóp. 201 - S: 517 7727
www.nora.is
Fyrir bústaðinn og heimilið
Æskuminningar Flosa
Ómótstæðilegur
húmor –
leiftrandi háð.
Besta bók
Flosa
Ólafssonar.
SKRUDDA
Eyjarslóð 9 - 101 Reykjavík
s. 552 8866 - skrudda@skrudda.is
www.skrudda.is
Sægreifinn - Geirsgötu 8 - 101 Reykjavík - Sími: 553 1500
Sægreifinn
Skötuveisla á Sægreifanum á Þorláksmessu,
1.700 kr. á mann.
Erum einnig með reyktan ál, síld og
jólahumar (takmarkað magn) fyrir jólin.