Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.2009, Qupperneq 33

Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.2009, Qupperneq 33
JÓLABLAÐ 23. desember 2009 MIÐVIKUDAGUR 33 Skilur reiðina eftir hrunið Jón Aðalsteinn segist skilja reiðina sem blundi í mönnum eftir hrunið. Mörgum finnist sem á þeim hafi ver- ið brotið. „Margir þeir sem töldu sig vera á sléttum sjó standa nú frammi fyr- ir gjörbreyttum forsendum. Fótun- um hefur verið kippt undan sumum þeim sem áður gátu staðið við sín- ar skuldbingingar og allt stritið sem þeir hafa á sig lagt hefur orðið til ein- skis. Reiðin er vond og verst þeim sem hana bera í brjósti sér. Hún er tortímandi afl sem verður að veita í jákvæðan farveg ef ekki á illa að fara og í þeim efnum er samstaðan mik- ils virði. Fólki líður betur ef það getur rætt vandamálin við aðra í svipaðri stöðu,“ segir hann og líkir þessu við AA-fund þar sem menn koma sam- an til að og deila vandamálum sín- um hver með öðrum. „Ef fólk finnur að það stendur ekki eitt verður biðin eftir lausnum léttari.“ Gengur hægt að finna lausnir Þrátt fyrir allt er Jón Aðalsteinn vígslubiskup bjartsýnn og viss um að landinn finni lausn á efnahagsvand- anum með einhverjum hætti. „Ég vildi samt sjá meiri kröftum beint að grunnstoðum samfélagsins eins og fjölskyldum og heimilum og ég skil ekki af hverju það gengur svona hægt að finna lausnir. Að mínu mati hefur farið of mikill kraftur í að leysa stóru málin. Þótt bankastofnanir og fyrir- tæki séu vissulega mikilvæg má hitt ekki falla í skuggann. Skilaboðin sem við höfum fengið eru þau að fólk- ið verði sjálft að ráða fram úr sínum vanda og standa við skuldbinding- ar sínar á meðan við fylgjumst með milljarða afskriftum stórfyrirtækja og skiljanlega er fólk furðu slegið og reitt yfir því ráðslagi. Afskriftir verða að eiga sér stað á vettvangi þessara grunneininga líka. Við getum ekki ætlast til þess að fjölskyldurnar beri þessar byrðar einar og kasti þeim jafnvel á herðar barna sinna,“ segir hann og bætir við að við þurfum á samstöðu að halda. „Þau okkar sem eru sæmilega stödd fjárhagslega þurfa, með ein- hverjum hætti, að taka á sig þær byrðar sem hljótast af því að hjálpa þeim sem eru í neyð.“ Hann segist vonast til þess að kreppan geti haft einhver jákvæð áhrif enda hafi verið haft eftir mikl- um athafnamanni í kreppunni 1930 að á krepputímum séu stærstu tæki- færin. „Það held ég að sé alveg satt, sama hvort það er í viðskiptalífinu eða lífinu sjálfu. Kreppa krefst end- urmats á svo mörgu. Á þessum árum þegar allt var í bullandi gengi héld- um við að slóðin lægi bara upp á við í átt að sæluríki auðæfanna og við urðum hirðulaus um þau grunngildi sem skipta mestu máli þegar allt kemur til alls.“ Trúin er feimnismál Jón segir marga hafa leitað til kirkj- unnar í vandræðum sínum og að álagið á prestum sé mikið. „Við þess- ar aðstæður sem hér ríkja hefur starf- ið í kirkjunni eflst af hreinni nauð- syn. Trúarþörfin blundar í fólki, hvað svo sem skoðanakannanir kunna að segja. Kirkjan hefur hins vegar orð- ið fyrir barðinu á þeirri vantrú sem fólk hefur nú á stofnunum samfé- lagsins en í mínum huga er kirkjan meira en stofnun. Kirkjan er fólk- ið í landinu sem vill hafa Jesú Krist að leiðtoga og lifa eftir hans góða vilja. Það fólk lætur til sín taka þeg- ar það finnur að þess er þörf og það kemur gleggst fram í litlum söfnuð- um. Í sveitinni þykir sjálfsögð kristin dyggð að hlaupa til ef einhver þarfn- ast hjápar og ég er viss um að það sama á sér stað í stærri söfnuðunum líka. Það hefur verið mikið vegið að kirkjunni og sumir tala jafnvel um að hún sé deyjandi stofnun, en starf- ið sem unnið er á hennar vegum er miklu meira en var þegar ég byrjaði minn prestskap árið 1974. Því er ekki saman að líkja,“ segir hann en bætir við að Íslendingar líti gjarnan á trúna sem sitt einkamál og hún sé þeim oft nokkurt feimnismál. „Eftir kynni mín af öðrum þjóð- um sé ég hvað við Íslendingar erum inni í okkur hvað trú varðar. Við vilj- um hafa trúna fyrir okkur. Vegna að- stæðna var heimilisguðrækni mjög rík hér á landi áður fyrr og er enn við líði sem betur fer. Það er ánægjulegt til þess að vita að meirihluti foreldra skuli kenna börnum sínum bænir við rúmstokkinn. Slík iðja er grund- völlur að heilbrigðu trúarlífi og er eitt af því sem mér er hvað dýrmæt- ast þegar ég hugsa til minnar æsku.“ Mikið álag á prestum Jólin eru einn aðal álagstími presta. Messur eru margar og því tekur ræðugerð mikinn tíma og fleiri þarfn- ast aðstoðar en endranær. „Álagið er mikið og starfið fjölbreytt og það getur reynt á að sinna þessum ólíku þáttum, til dæmis að hjálpa þeim sem syrgja á sama tíma og undir- búningurinn fyrir fagnarðarhátíðna miklu stendur yfir og allir eru glað- ir og reifir. Það reyna allir að gera sitt besta. Ég á starfsfélaga sem kvíða því að standa frammi fyrir fólki um jólin sem veit ekki hvert það á að snúa sér í vandræðum sínum. Blessuð börn- in geta verið miskunnarlaus og gera þá kröfu á foreldra sína að geta verið í takti við aðra í samfélaginu. Við vilj- um ekki vera minni en náunginn og því varð þetta mikla efnalega kapp- hlaup. Þegar svo kreppir að verður mörgum ómögulegt að halda í við aðra og það veldur mörgum angri.“ Ljós í myrkrinu Jón Aðalsteinn segist alltaf hafa verið mikið jólabarn og nýti síð- ustu dagana fyrir jólin til að ljúka við ræðurnar svo hann geti átt að- fangadaginn með fjölskyldunni. Hann mun taka að sér hátíðar- messurnnar í Hóladómkirkju um jólin. „Sóknarpresturinn er með sjö kirkjur og þarf að koma víða við og ég hef gaman af að fá að taka þátt í þessu,“ segir Hólabiskup en hann mun messa klukkan 23 á aðfanga- dagskvöld og á jóladag klukkan 14. Hann segir jólahátíðina erfiðan tíma þeim sem syrgja. „Jólin eru hátíð fjölskyldunnar og þegar skarð hefur verið höggvið í hana verður það stærst og dýpst á jólunum þegar björtustu og feg- urstu minningarnar sækja á hug- ann. En jólin eru þó fagnaðarhátíð um fram allt annað, líka þeim sem syrgja, því þau boða hin miklu tíð- indi að ljósið skín í myrkrinu, þrátt fyrir allt. Í því ljósi er gott að ganga og í skini þess verður söknuðurinn léttbærari en ella,“ segir hann og bætir við að hann trúi því að nýja árið muni bera í skauti sér bjartari tíma fyrir íslenska þjóð. „Ég hef fulla trú á því að við komumst út úr þessari kreppu fyrr og betur en á horfðist um tíma. En til þess að svo megi verða þurfum við að halda rétt á spilunum og virkja samtakamáttinn og kraftinn sem í okkur býr. Umfram allt verð- um við að taka höndum saman um það að koma í veg fyrir að nokkur þurfi að líða nauð í okkar gjöfula og góða landi. Kærleiksboðskapur jólanna ætti að vera okkur vegvísir á þeirri braut.“ indiana@dv.is Jólin eru fagnaðarhátíð, LÍKA ÞEIM SEM SYRGJA Jón Aðalsteinn Baldvinsson, vígslubiskup á Hólum, var í 20 ár sendiráðsprestur í Lundúnum þar sem hann hjálpaði veikum Íslendingum og aðstandendum þeirra. Jón segir starfið hafa verið erf- itt en lærdómsríkt. Þau hjónin þekkja sorgina af eigin raun en þau misstu dóttur sína úr krabbameini árið 2004. Hóla- biskup skilur reiði landsmanna vegna efnahagshrunsins og segir grunnstoð- ir samfélagsins ekki mega falla í skuggann af banka- stofnunum og fyrir- tækjum. „Ég hef alltaf tekið það mjög nærri mér þeg- ar börn eiga í hlut, það er erfitt að horfa á lítið barn og vita innst inni að vonin um bata er lítil. Ég hef hryggur fylgst með sumum þeirra koma aftur og aftur til meðferðar en hraka samt frek- ar en hitt. Og svo eru þau rifin frá foreldrum sínum eftir að hafa gróið föst við þau.“ Erfiður tími fyrir marga Biskupinn á Hólum segir jólin hátíð fjölskyldunnar og því verður skarðið sem höggvið hefur í hana stærst og dýpst á jólum þegar björtustu og fegurstu minningarnar sækja á hugann. Hann segir jólin samt umfram allt fagnaðarhátíð því þau boði þau tíðindi að þrátt fyrir allt skín ljósið í myrkrinu. „Eftir kynni mín af öðrum þjóðum sé ég hvað við Íslendingar erum inni í okkur hvað trú varðar. Við viljum hafa trúna fyrir okkur.“ Hólabiskup Jóni Aðalsteini líkar vel á Hólum enda sveitastrákur að upplagi. Hann bjó þó 20 ár í London áður en hann settist að á Hólum og fluttist því frá einum höfuðstað til annars.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.