Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.2009, Qupperneq 48

Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.2009, Qupperneq 48
„ILLÞEFJANDI ROBBIE“ Innan örfárra daga frá fæðingu Roberts Black ákvað móðir hans, Jessie, að losa sig við hann til fósturforeldra. Fyrir valinu urðu Jack og Margaret Tulip, hjón á sextugsaldri. Í grunnskóla gat Robert, eða „Illþefjandi Robbie Tulip“ eins og hann var kallaður, sér orð fyrir árásarhneigð og hlédrægni. Ungur að aldri flæktist Robert í smáglæpi, en glæpirnir áttu eftir að verða alvarlegri þegar árunum fjölgaði. Vitað er um þrjú fórnarlömb, en hann er einnig grunaður um fjölda óleystra barnsmorða víðs vegur um Evrópu. Lesið um „Illþefjandi Robbie“ í næsta helgarblaði DV SVIK SVÖRTU EKKNANNA „Svörtu ekkjurnar“ héldu fórnarlömbum sínum uppi í tvö ár áður en þær myrtu þau. Um var að ræða heim- ilislausa eldri karlmenn í Los Angeles sem var lofað húsnæði og fjármálaráðgjöf. Mennirnir voru líftryggð- ir og konurnar skráðar sem bótaþegar. Þegar rétti tíminn kom óku konurnar yfir mennina með þeim afleið- ingum að þeir létust og innheimtu síðan bæturnar. Fáir voru á ferli 22. júní, 2005, þeg- ar bíl var ekið í gegnum sund við Westwood Boulevard í vestur- hluta Los Angeles, rétt eftir mið- nætti. Bílstjórinn hægði ferðina og stöðvaði síðan bílinn. Einhver steig út úr bílnum og dró Kenneth McDavid, fimmtugan karlmann, út úr bílnum og lagði hann niður í sundið. Þar sem Kenneth hafði neytt áfengis og að auki verið gefin verkjalyf og svefnpillur var ljóst að hann gæti ekki staðið í fæturnar. Bílstjórinn bakkaði bílnum og ók síðan hægt og örugglega yfir Kenneth með það í huga að valda sem mestum skaða. Þar sem eng- inn varð vitni að atvikinu var úr- skurðað, til bráðabirgða, að hann væri fórnarlamb ökuníðings sem flúið hefði af slysstað. Ótrúleg tilviljun Ekkert nýtt kom í ljós næstu sjö mánuði þegar starfsmaður um- ferðalögreglunnar hafði á orði hve undarlegt það væri að tvær konur hefðu forvitnast um skýrslu sem varðaði akstur af slysstað og hvor- ug væri skyld fórnarlambinu. Fyrir tilviljun varð rannsókn- arlögreglumaður vitni að þessum orðaskiptum og sagði: „Ég hafði slíkt mál á minni könnu fyrir sex árum.“ Rannsóknarlögreglumaðurinn rifjaði upp mál frá 1999 sem varð- aði eldri mann sem gaf upp önd- ina í húsasundi skammt frá Vest- ur-Hollywood. Einhver hafði ekið yfir hann og flúið af slysstað. Eng- in skilríki var að finna á mannin- um og hann var því skráður sem NN. Um síðir voru kennsl borin á manninn, Paul Vados, 73 ára. Lögreglumennirnir voru stein- hissa á að sömu tvær konur, og gerðu tilkall til líksins af Vados, skyldu gera slíkt hið sama varðandi Kenneth sex árum síðar. Hér var eitthvað ekki eins og það átti að vera. Gamlar vinkonur Athugun leiddi í ljós að um var að ræða gaml- ar vinkonur, Olgu Rutt- erschmidt, 73, frá Holly- wood og Helen Golay, 75, frá Santa Monica. Athug- un leiddi ennfremur í ljós að þær höfðu marglíftryggt mennina og gert kröfu til tryggingabótanna. Tryggingabæturnar hljóðuðu upp á 4 milljónir dala og hafði þeim tekist að innheimta 2,2 milljón- ir, en tortryggni gætti hjá sumum tryggingarfélögunum. Báðar voru konurnar ógiftar og virtust njóta lífsins. Golay var þó sýnu betur stödd fjárhagslega, var fasteignasali og átti nokkrar eignir. Rutterschmidt var ekki eins loðin um lófana og virtist sem hún hefði eingöngu tekjur af því að finna fasteignir fyrir Golay. Því virtist undarlegt að þær legðust í glæpi af þessu tagi; að vinna traust heimilisleysingja, koma þeim fyrir í lágleigu íbúð- um, nánast halda þeim uppi og veita þeim fjárhagsráð- gjöf. En sú var raunin og í staðinn skráðu mennirnir þær sem bóta- þega. Eftir tvö ár var hlutverki mann- anna lokið og búið að tryggja að bætur fengjust greiddar af trygg- ingafélögum vandræðalaust og því óþarfi að halda mönnunum á lífi. Vissa en engar sannanir Lögreglan ákvað að fylgjast með Olgu og Helen því fátt var um sannanir þrátt fyrir sterkan grun um sekt þeirra. Dag einn fylgdist lögreglan með þegar Olga ræddi við eldri mann og ljósT var að þau höfðu hist áður því maðurinn fór inn í bíl hennar. Síðan lá leið þeirra í banka og sá lögreglan að Olga og maðurinn áttu orðastað við gjaldkera. Á leið- inn út úr bankanum henti Olga einhverjum pappírum í rusla- fötu og við athugun kom í ljós að um var að ræða endursendingar- umslög til líftryggingarfélags og banka. Síðar um daginn reyndi Olga að opna kreditkortareikning á netinu undir öðru nafni. Lögreglan taldi ljóst að í und- irbúningi væri enn eitt líftrygg- ingasvindlið sem myndi byggj- ast á óumflýjanlegum dauðdaga mannsins sem Olga hitti. Engu að síður var rannsókn á dauða Vados og McDavids ekki lokið, en næg- ar sannanir lágu fyrir með tilliti til tryggingasvindls af hálfu kvenn- anna. Beðið með morðákæru Í maí 2006 voru Olga og Golay ákærðar fyrit átta aðskilin tryggingarsvik og fljótlega fengu þær viður- nefnið „svörtu ekkjurn- ar“. Hægt og bítandi aflaði lögreglan frekari sönnun- argagna sem bendluðu þær við morðin á Vad- os og McDavid. Á með- al sönnunargagnanna var blóð úr McDavid sem fannst á bifreið sem skráð var á konu frá Encino. Síðar komst lögreglan að því að viðkomandi kona var fórnarlamb persónu- fölsunar. Nokkrum klukkustund- um áður en lík McDavids fannst hafði kona að nafni Helen Golay beðið um dráttarbíl vegna um- rædds bíls og hafði hann ver- ið dreginn að heimili Olgu Rutt- erschmidt. 31. júlí, 2006, voru Olga og Helen ákærðar fyrir tvö morð og að hafa myrt með fjárhagslegan ávinning í huga og áttu því yfir höfði sér dauðadóm ef þær yrðu sakfelldar. Ríkissaksóknari ákvað að falla frá ákærum vegna trygg- ingasvika og ákvað að eiga það til góða ef svo vildi til að þær yrðu sýknaðar. Sluppu við dauðadóm Á meðal sönnunargagna ákæru- valdsins var hljóðupptaka á sam- tali sem skaðræðiskvendin áttu þegar þær voru í varðhaldi. Rutt- erschmidt sagði við Golay: „Þú gerðir allar þessar auka trygging- arkröfur. Það vakti grunsemdir. Þú gerir ekki svoleiðis. Heimska. Þú ferð í grjótið, vina. Þeir læsa þig inni.“ Í apríl 2008 voru Olga Ritt- erschmidt og Helen Golay dæmdar til samfelldra lífstíðar- dóma án möguleika á reynslu- lausn, enda hafði saksókn- ari ákveðið að fara ekki fram á dauðadóm yfir þeim sökum ald- urs þeirra. Óhætt er að segja að þriðji maðurinn, Jimmy Covington sem lögreglan hafði séð í félagsskap Olgu, hafi sloppið með skrekk- inn. Við réttarhöldin sagði hann að Olga hafi farið með hann á Burger King og einnig lofað hon- um húsaskjóli. Hann sagðist hafa flutt úr þeirri íbúð vegna vaxandi grunsemda því Helen og Gol- ay báðu hann að undirrita ýmis skjöl og gefa þeim persónulegar upplýsingar. Þá þegar höfðu þær útfyllt líftryggingarumsókn fyrir hann. UMSJÓN: KOLBEINN ÞORSTEINSSON, kolbeinn@dv.is 48 MIÐVIKUDAGUR 23. desember 2009 SAKAMÁL EFTIR TVÖ ÁR VAR HLUTVERKI MANNANNA LOKIÐ OG BÚIÐ AÐ TRYGGJA AÐ BÆTUR FENGJUST GREIDDAR AF TRYGGINGAFÉLÖGUM VANDRÆÐALAUST OG ÞVÍ ÓÞARFI AÐ HALDA MÖNNUNUM Á LÍFI.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.