Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.2009, Page 50
50 MIÐVIKUDAGUR 23. desember 2009 LÍFSSTÍLL
TWILIGHT STJARNA FYRIR CALVIN KLEIN Twilight-æðið
heldur áfram. Fyrir skömmu var tilkynnt að Kellan Lutz, sjarmörinn
í Twilight, sé nýtt „andlit“ nærfataauglýsinga fyrir Calvin Klein. Mun
hann því prýða auglýsingaspjöld úti um allan heim og vera á síðum
glanstímaritanna.
Þessi fyrirsætusamningur þykir vera einn sá besti að landa í bransan-
um en Calvin Klein vill endurvekja auglýsingaherferð frá árinu 1992
þar sem Mark Wahlberg sat fyrir á brókinni og sló heldur betur í gegn.
UMSJÓN: HELGA KRISTJÁNSDÓTTIR
RITSTJÓRI VOGUE
DÓMARI HJÁ TYRU
BANKS
Tyra Banks tekur nú upp nýjustu
seríu America´s Next Top Model á
Nýja-Sjálandi. Þar fylgjast heima-
menn vel með stjörnunum en
aðstoðarritstjóri bandaríska Vogue,
André Leon Talley, er nýr dómari
þáttanna, í fullu starfi. Áður hafði
verið haldið fram að fyrirsætan
fyrrverandi og hönnuðurinn Kimora
Lee Simmons tæki það að sér, en
hún er aðeins í gestadómarahlut-
verki í nýju þáttaröðinni.
FYRIRSÆTUR Í
STÆRRI STÆRÐUM
FÁ ATHYGLI
Tímaritið V magazine vill sanna það
fyrir tískuheiminum að fólk sem er í
stærri stærð en núll geti verið fallegt.
Fyrsta tölublað þeirra á nýju ári er
sagt tileinkað fyrirsætum í stærðum í
efri kantinum en fyrir stuttu vakti
tímaritið athygli og umtal fyrir að
mála andlit fyrirsætnanna svört.
Meðal þekktra ljósmyndara sem
munu mynda fyrir blaðið eru Terry
Richardson, Bruce Weber og Karl
Lagerfeld en sá síðastnefndi lét hafa
það eftir sér í viðtali í október að
enginn vildi sjá konur með ávalar
línur, það væru bara mæður með
snakkpokann fyrir framan sjónvarpið
sem segðu að tággrannar fyrirsætur
væru ljótar. Þar höfum við það!
Flestar konur geta verið sammála því að góðar förðunarvörur eru gulls ígildi. Þegar
við finnum rétta meikið höldum við okkur oft og tíðum við það. Þegar glitrandi nýir
varalitir koma á markað klæjar okkur í fingurna og allar leitum við að hinu fullkomna
ilmvatni við sérstök tilefni. Helga Kristjánsdóttir skoðaði jólalega snyrtivöruflóruna.
FALLEG JÓL
Guerlain-snyrtivörurisinn virðist vita
leyndarmálið á bak við það að láta
konuna líta sem allra best út. Nýlega
kom á markað lína sem fullkomn-
ar húðina og frískar upp á hana eftir
langa og erfiða vetrarmánuði.
Þegar húðin missir raka og teygj-
anleika dreymir okkur oft um fá-
eina sólargeisla til þess að hressa
hana við. Allar þekkjum við hversu
vel við lítum út eftir langt sumarfrí
eða jafnvel bara gott helgarfrí. Þá er
eins og húð okkar hafi verið snert ör-
lítið af sólinni og við náð að hvílast
vel. Gullinn blær hefur náð að jafna
út húðtóninn og skuggar og baugar
heyra sögunni til. Þegar enn virðist
óralangt í sumarfrí og ekki séns að
skreppa í helgarferð í sólina er gott
að vita að hægt er að gera ýmislegt
með gulllituðu góssi.
Að því komst ég þegar ég próf-
aði farða og púðurlínuna frá Gu-
erlain. Hún heitir Parure Gold og
eftir nokkrar burstastrokur með sól-
arpúðrinu þeirra ljómaði ég öll og
gott ef ég gæti ekki næstum sagst
hafa skroppið til sólarlanda.
Núna, þegar hátíðin nálgast lang-
ar okkur stelpurnar oft að vera extra
sætar og jólalegar. Þar gerir gott gloss
eða varalitur gæfumuninn. Eins er
gaman að leika sér með glitrandi
augnskugga og prófa sig áfram með
litina.
Þegar farið er á stúfana í leit að
gæðalit á varirnar er fátt sem jafnast
á við glossin og varalitina frá Chanel.
Ef þið fílið dökkt í kringum augun og
viljið ljósbleikt og glansandi gloss á
varirnar mæli ég með Chanel Brilli-
ant Extréme nr. 131, en það stækk-
ar varirnar örlítið og gerir þær extra
djúsí og er með örlitlum glimmer-
ögnum. Einnig féll ég fyrir einstak-
lega fallegum umbúðum varalitar
frá Guerlain og fann hinn fullkomna
lit sem heitir KissKiss Baby og er nr.
241. Hann er raun varalitur og salvi í
senn og inniheldur góðan raka, sem
ekki skemmir fyrir. Að lokum rakst ég
á ódýrt gloss sem ekki var síður há-
tíðlegt og extra glitrandi. Það heitir
Gloss Éclat&Brillance og er frá Gosh.
Til að poppa upp augun og leyfa
þeim að glitra líka mæli ég með gull-
lituðum augnblýanti frá Guerlain.
Hann er alger snilld ef maður notar
hann á augnhvarmana, en þá virka
augun stærri og við minna þreytu-
legar eftir jólastress og stúss. Svo
fylgir dálítið sætur yddari á öðrum
endanum sem er bara smart viðbót.
Þær sem vilja taka gyllta trendið alla
leið eiga líka möguleika á að splæsa í
maskara í þessari línu, annar burst-
inn er svartur og hinn gylltur sem
flott er að nota á neðri augnhárin.
Nú, þegar stutt er í aðfangadag,
eru án efa margir kærastarnir og
eiginmennirnir hugmyndasnauðir
þegar kemur að því að velja jólagjöf
handa elskunni. Konan verður ör-
ugglega ekki fyrir vonbrigðum með
fallegar snyrtivörur. Lítið mál er að
leita aðstoðar og ráða hjá klárum af-
greiðslukonum verslananna.
Ekki má vanmeta gott ilmvatn
en það er alltaf vinsæl gjöf. Hið full-
komna ilmvatn er mjög persónu-
legt fyrir hverja og eina konu og erf-
itt getur verið að velja úr öllum þeim
tegundum ilmvatna sem í boði eru.
Þegar blaðamaður kíkti á úrvalið
voru nokkur ilmvötn sem stóðu upp
úr. Ilmvatn Victoriu Beckham sem
ber nafnið Signature kom skemmti-
lega á óvart og ekki er verra að tísku-
drottningin sjálf er andlit ilmvatns-
ins. Eins féll ég fyrir eplalaga glasi
frá Ninu Ricci, einstaklega sjarmer-
andi og sæt lykt. Þær sem fíla klass-
ískan, sívinsælan og kryddaðan ilm
munu falla fyrir Shalimar frá Guerl-
ain sem er afar kynþokkafullur. Viljir
þú létta blómaangan muntu líklega
fíla Happy in Bloom frá Clinique en
hún er mjög fersk. Þá kom stjörnu-
ilmvatnið Darling frá Kylie Minogue
verulega á óvart, dásamleg nammi-
lykt þar á ferð. Ekkert sló þó út ilm-
inn sem ég fann þegar gullfalleg
kona labbaði fram hjá á leið heim
úr miklum ilmpælingum. Ég krafð-
ist þess að fá að vita hvaða dásemd-
arilm hún bæri. Hár hennar flaksað-
ist til eins og í Hollywood-bíómynd
um leið og hún svaraði „Insolence“.
Það ku vera frá Guerlain og er núna á
óskalistanum mínum.
Natalia Vodianova Ofurfyrirsætan er
andlit Guerlain.
Seiðandi augnförðun Hún er málið
í dag.
Fullkominn húðtónn Hann er
vandfundinn.
Natalia er sjóðheit Hún passar vel við
þokkafullan ilminn.
Þykkar augabrúnir Þær undirstrika
fallega förðun.
Kylie Minogue Kynnir nýja ilmvatnið
sitt.
Beckham-hjónin Bjóða ilmvötn fyrir
bæði kynin.