Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.2009, Page 52
MUNUM EFTIR MÖMMU Á mörgum heimilum lendir
meirihluti jólaundirbúningsins á mömmunni. Ef þú hefur
grun um að þannig sé hlutunum háttað á þínu heimili er
tilvalið að þakka henni fyrir. Láttu vita að þú takir henni og
hennar verkum ekki sem sjálfsögðum hlut. Ímyndaðu þér
hvernig jólin væru ef hennar nyti ekki við og sýndu þakklæti
þitt fyrir þennan sérstaka hátíðarblæ sem aðeins mömmum
tekst að skapa.
Hér kemur uppskrift að einstaklega
einfaldri köku sem þarf ekki einu sinni
að setja í ofninn. Það má gjarnan nota
afganginn af jólasmákökunum í botninn
(ef þið eruð ekki búin að klára þær allar).
Kakan er líka frábær sem eftirréttur. Það
má gera hana með 2-3 daga fyrirvara og
geyma í kæli.
n 10-12 sneiðar
Botn:
n 50 g möndlur eða hnetur, ristaðar
n 120 g smjörkex eða afgangur af
smákökum, ekki mjög krydduðum
n 60 g smjör, brætt
Fylling:
n 300 g súkkulaði
n 1¼ dl rjómi
n 2-3 msk. líkjör (má sleppa)
n 1-2 msk. kakó eða kakómalt
Klæðið botninn á 22 cm smelluformi
með bökunarpappír. Malið möndlur eða
hnetur fínt en þó ekki í salla og setjið
til hliðar. Malið kex eða smákökur fínt
í matvinnsluvél eða í plastpoka með
kökukefli. Blandið möndlum, smjöri og
kexi vel saman. Þrýstið kexblöndunni
í botninn á forminu og kælið. Bræðið
súkkulaði, rjóma og líkjör saman
yfir vatnsbaði við lágan hita. Hellið
súkkulaðiblöndunni yfir kexið og kælið í
2 klukkustundir eða yfir nótt. Sigtið kakó
eða kakómalt yfir og berið kökuna fram
með granateplakjörnum eða berjum.
Úr nýjasta tölublaði Gestgjafans:
SÚKKULAÐIKAKA
JÓLANNA
UMSJÓN: INDÍANA ÁSA HREINSDÓTTIR, indiana@dv.is
NJÓTTU JÓLANNA
LAUS VIÐ STRESSIÐ
Lifandi jólatré eru falleg en ef þú
ert þegar farin að kvíða fyrir að
þrífa heimilið eftir jólin skaltu
velja gervijólatré. Þannig slepp-
urðu við að þurfa að ryksuga
barrið fram á vor.
Ef þú ert með allt niður um þig
og hefur engan tíma fyrir jóla-
hreingerningu skaltu láta opinn
Ajax-brúsa vera á eldhúsbekkn-
um dágóða stund. Húsið fyllist
af hátíðlegum hreingerningar-
ilm og málið er leyst.
Ef þú setur gjafirnar í jólalega
gjafapoka í stað þess að pakka
þeim inn í jólapappír losnarðu
við mikið af afgangs pappír og
upprúlluðu límbandi.
Vertu með nokkra ruslapoka við
höndina á aðfangadagskvöld
og sjáðu til þess að allir hendi
pappírnum á réttan stað svo þú
þurfir ekki að tína allt upp þegar
hinir eru komnir inn í rúm með
bók og konfekt.
Þegar þú tekur jólaljósin af
jólatrénu niður skaltu byrja þar
sem þú endaðir þegar þú settir
seríuna á tréð. Vefðu hverri seríu
upp og settu í sérpoka svo að
þær flækist ekki saman.
Ef lifandi jólatré varð fyrir valinu
er sniðugt að vefja því inn í plast
áður en því er hent út eftir jólin.
Þannig dreifist barrið ekki um
allt hús. Mundu bara að taka
plastið af áður en þú fargar því.
JÓLAGLÖGG
1 flaska rauðvín
6 cl vodka eða gin
5 negulnaglar
2 muldar kardimommur
2 kanilstangir
1-1½ dl sykur
appelsínubörkur
möndlur
rúsínur
Börkurinn af ½ appelsínu skorinn
í fína strimla, passa að skilja hvíta
hlutann eftir. Afhýða möndlur og
rúsínur. Hita upp vínið ásamt krydd-
inu og það látið taka sig í nokkrar
mínútur við góðan hita án þess þó
að láta sjóða. Bæta sykri og appels-
ínuberki út í og hrærið, haldið heitu
í nokkrar mínútur í viðbót. Berið
fram sjóðandi heitt með rúsínum
og möndlum. Uppskrift af www.vin-
budin.is
Katrín Brynja Hermannsdóttir sjónvarpsþula er ófrísk að þriðja barni þeirra hjóna.
Eldri sonur þeirra vonar að nú komi stelpa en Katrín Brynja segir að hún verði alsæl
með þriðja soninn. Fjölskyldan er í miklum jólagír en það er húsbóndinn á heimilinu
sem sér um að elda jólamatinn á meðan Katrín sinnir drengjunum. Hún tekur þægind-
in fram yfir sparifötin og leyfir sonunum jafnvel að vera á tásunum á aðfangadag svo
þeir geti hlaupið hraðar enda spenningurinn mikill.
52 MIÐVIKUDAGUR 23. desember 2009 LÍFSSTÍLL
„Ég hef ótrúlega gaman af þessu og
það er endalaust hægt að fjalla um
málefni ófrískra kvenna og efni tengt
börnum. Ólettar konur hugsa flest-
ar mikið um ástand sitt og vilja fróð-
leik í bland við eitthvað skemmtilegt
og áhugavert,“ segir Katrín Brynja
Hermannsdóttir sjónvarpsþula sem
sér um barnaspjallið á Pressunni og
hefur fengið góðar viðtökur. Katr-
ín Brynja er komin átta mánuði á
leið með þriðja barn þeirra hjóna.
Þau eiga tvo drengi fyrir, þá Mána
Frey sem er sjö ára og Nóa Baldur
tveggja ára. „Sá eldri vonast til að nú
komi stelpa en við vitum það ekki.
Við fengum svarið í umslagi sem
mamma geymir. Ég vildi eiga mögu-
leika á að kíkja en ég er alveg sali-
róleg,“ segir Katrín Brynja og bætir
við að það væri gaman ef það kæmi
stelpa en að hún væri einnig alsæl
með þriðja strákinn. Aðspurð seg-
ir hún meðgönguna ganga vel . „Ég
hef það ofsalega fínt og það fyndna
er að þetta er auðveldasta meðgang-
an hingað til. Það er gaman að vera
ófrísk og ég æfi hjá þeim í Fullfrísk í
Sporthúsinu, sem er frábært. Ég þarf
fjör og helst læti, er ekki þessi jóga-
týpa.“
Berfættir á jólunum
Katrín Brynja segist mikil jóla-
stelpa en fjölskyldan ætlar að eyða
aðfangadegi heima við. „Mamma
verður hjá okkur en við borðum allt-
af hamborgarhrygg og það er mað-
urinn minn sem sér um matinn á
meðan ég sinni strákunum,“ segir
hún alsæl með þau hlutverkaskipti.
„Ég legg ekki upp úr því að dreng-
irnir séu í lakkskóm, flauelsbuxum
og skyrtum. Ég vil auðvitað hafa þá
snyrtilega en vil frekar að þeir séu í
þægilegum fötum og helst berfætt-
ir svo þeir geti hlaupið hraðar til
að ná úr sér spennunni,“ segir hún
hlæjandi. Katrín Brynja hefur oft
strengt áramótaheit sem hafa stað-
ið mislengi. „Síðast lofaði ég mér
að drekka meira af vatni og helst að
hætta í Diet Kókinu. Það tókst vel
framan af en svo sá ég að þetta er
bara eins og með alkana, þegar ég
byrjaði aftur að sulla í kókinu var ég
fljót að fara í sama farið aftur. Ætli
við vinkonurnar endum ekki á gam-
als aldri á sérstakri deild fyrir fólk
sem drakk mikið af þessum drykkj-
um á sínum yngri árum,“ segir hún
og bætir við að áramótaheit hennar
að þessu sinni verði vonandi auð-
veldrara. „Ég ætla mér að ganga frá
öllum myndum sem ég hef trassað
að gera í allt of mörg ár og einnig að
halda fast í góða skapið, sem veitir
ekki af í þessu ástandi,“ segir hún og
viðurkennir að það sé hið besta mál
að vera á leiðinni í fæðingarorlof.
Með skoðanir á hlutunum
„Það verður yndislegt að hætta að
hugsa um allt sem hefur gerst og ein-
beita sér í staðinn að nýfæddu barni.
Hins vegar er ég bjartsýn á framtíð-
ina og held að það eigi eftir að koma
fullt af tækifærum úr þessari kreppu.
Það frábæra er að margir eru farn-
ir að láta raunverulega drauma sína
rætast, sem ekki var pláss fyrir áður
í kapphlaupinu um ferðalög, fín föt
og dýrt dót. Íslensk hönnun er í mikl-
um blóma og gaman að sjá alla þessa
einstaklinga spretta fram. Ég veit
samt ekki með þessa ríkisstjórn og
finnst Steingrímur J svolítið eins og
tröllið sem stal jólunum,“ segir hún
og bætir við að þótt hún sé ekki mjög
pólitísk hafi hún skoðanir á hlutun-
um. „Ég hef áhyggjur af því að stolt-
ið og sú lífseiga hugsun að við séum
sjálfstæð þjóð geri okkur erfitt fyr-
ir að gangast inn í ESB og inn í það
fléttast minnimáttarkenndin. Við
getum alveg farið þar inn án þess að
tapa sjálfstæðinu og erum hvort sem
er komin hálfa leið með EES. Við Ís-
lendingar þurfum að horfa á það
sem er okkur næst en skoða hlutina í
mun víðara samhengi líka. Við kom-
umst út úr þessu ef við leggjumst öll
á eitt og hjálpumst að. Okkar tími
mun koma og þá sjáum við að við
höfum „stækkað“ svolítið innra með
okkur sem þjóð og þroskast við þessa
krefjandi reynslu.“
indiana@dv.is
Spjallar um börn og óléttur Katrín Brynja er komin átta mánuði á leið að sínu
þriðja barni. Hér er hún ásamt sonunum tveimur en Katrín sér um barnaspjallið á
Pressunni og líkar vel. H&N-MYND DV MYND /KRISTINN MAGNÚSSON
AUÐVELDASTA MEÐGANGAN
HINGAÐ TIL