Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.2009, Side 72
n Gunnar Bragi Sveinsson, þing-
maður Framsóknarflokksins, er
áhugasamur um hvar megi skera
niður eins og sást af fyrirspurn
hans um kostnað við þá dagskrár-
liði sjónvarpsins sem snúa að
þjóðmálaumræðunni, Kastljósi,
Silfri Egils, fréttaskýringaþættinum
Fréttaaukanum auk bókaþáttar-
ins Kiljunnar og 10 frétta. Þarna sér
Gunnar Bragi tækifæri til að skera
niður en ekki eru allir jafn kátir.
Friðrik Þór Guðmundsson segir
að líklega mætti spara fé með því að
skera niður milliliði eins og blaða-
menn og fréttamenn og
rétta fólki bara míkrófón-
inn til að masa. „Gunnar
Bragi er tilbúinn til þess
að stökkva inn í útsend-
ingartíma, spyrja
sjálfan sig góðlát-
legra spurninga
og svara sjálfum
sér af stakri
snilld.“
Fóðraðir af
bláu hendinni?
FRÉTTASKOT 512 70 70
DV BORGAR 2.500 KRÓNUR FYRIR FRÉTTASKOT SEM LEIÐIR TIL FRÉTTAR. FYRIR FRÉTTASKOT SEM VERÐUR
AÐALFRÉTT Á FORSÍÐU GREIÐAST 25.000 KRÓNUR. FYRIR BESTA FRÉTTASKOT VIKUNNAR GREIÐAST ALLT
AÐ 50.000 KRÓNUR. ALLS ERU GREIDDAR 100.000 KRÓNUR FYRIR BESTA FRÉTTASKOT HVERS MÁNAÐAR.
Nokkrir þingmenn Sjálfstæðisflokks-
ins borðuðu í vikunni skötu á Sægreif-
anum við Geirsgötu. Sátu þeir við að-
alborð veitingastaðarins og yfir þeim
hékk Bláa höndin, í orðsins fyllstu
merkingu. Kjartan Halldórsson, eig-
andi Sægreifans, hefur hengt upp út-
skorið listaverk af blárri hendi.
Meðal þeirra sjálfstæðisþingmanna
sem borðuðu skötuna á þriðjudags-
hádegi undir Bláu hendinni voru þeir
Árni Johnsen, Einar Kristinn Guðfinns-
son, Kristján Þór Júlíusson, Jón Gunn-
arsson, Bjarni Benediktsson og Tryggvi
Þór Herbertsson. Þegar leið á borð-
haldið benti Kjartan þingmönnunum á
Bláu höndina fyrir ofan þá.
„Mér fannst mjög skemmtilegt að
þingmennirnir voru þarna að borða
undir Bláu hendinni. Þegar ég benti
þeim á þetta vildu þeir ekki færa sig
heldur fannst þeim þetta flott,“ segir
Kjartan.
Lúkas Kárason, tréskurðarmaður
frá Ströndum, bjó til listaverkið. Að-
spurður segist Kjartan hafa sett upp
verkið í heiðursskyni. „Ég ætla að setja
upp myndir af helstu mönnum íhalds-
ins eins og Hannesi Hólmsteini, Kjart-
ani Gunnarssyni og Davíð Oddssyni.
Með þessu vil ég minna menn á hönd-
ina. Síðar ætla ég að tengja höndina við
helstu leikendur flokksins með mynd-
unum og myndirnar verða í spottum
við höndina,“ segir Kjartan.
trausti@dv.is
BESTI
SPYRILLINN!
Þingmenn Sjálfstæðisflokksins fengu sér skötu á Sægreifanum í vikunni:
BORÐUÐU UNDIR BLÁU HENDINNI
n Ragna Árnadóttir, dómsmála-
og mannréttindaráðherra, verður
í stóru hlutverki í Grensáskirkju á
nýársdag. Þá er hátíðarguðsþjón-
usta í kirkjunni og sér Ragna um
predikunina. Hún lýsti því eitt sinn
í viðtali í Morgunblaðinu að hún
væri trúuð og teldi trúna mikilvæga
fyrir landsmenn og endurspegl-
ast það kannski í predikun henn-
ar. Annars eru fleiri landsþekktir
einstaklingar í stórum hlutverk-
um í Grensáskirkju yfir hátíðarnar.
Geir Jón Þórisson er maður ekki
einhamur. Fyrir utan að standa upp
úr hvar sem hann fer og sérstaklega
við skyldustörf hefur
hann vakið athygli
fyrir að vera trúmað-
ur mikill. Geir Jón er
líka söngmaður og
syngur einsöng við há-
tíðarguðsþjónustu
þegar jólahátíðin
gengur í garð.
RAGNA
PREDIKAR
n Meðlimir önfirska karlakórsins
Fjallabræðra hafa setið sveittir við
að árita nýútkomna samnefnda
plötu sína fyrir jólin. Hefur hver
einn og einasti kórmeðlimur áritað
plötur þeirra sem óskað hafa eftir
slíkum eintökum. Halldór Gunn-
ar Pálsson, kórstjóri Fjallabræðra,
telur að kórfélagarnir hafi gefið um
fimm þúsund eiginhandaráritanir
fyrir jólin. Fyrsta upplag plötunn-
ar seldist upp á skömmum tíma en
kórinn var snöggur að bregðast við
skortinum og límdi saman annað
upplag sem er komið í sölu. Kórinn
átti vinsælasta lag Rásar 2 nýverið
og hélt vel heppnaða útgáfutón-
leika í Háskólabíói þar sem Fjalla-
bróðirinn Guðmundur
Björn Hagalínsson var
útnefndur fyrsti heið-
ursfélagi kórsins. Tók
hann við heiðursplatta
úr hendi kórstjórans
og dóttursonarins
Halldórs Gunnars
Pálssonar við mikinn
fögnuð tónleikagesta.
EIGINHANDARÁRITUN
FRÁ ÖLLUM Í KÓRNUM
Sægreifinn Kjartani þótti skondið að sjá
þingmennina undir bláu hendinni.
GEFÐU FRÍ UM JÓLIN
JÓLAPAKKAR ICELANDAIR
HUGURINN BER ÞIG
AÐEINS HÁLFA LEIÐ
* Innifalið: Flug fram og til baka, skattar og önnur gjöld. Sölutímabil er til 24. des. 2009 kl. 18:00. Bókunartímabil er frá 22. desember til og með 15. jan. 2010.
Lágmarksdvöl er aðfaranótt sunnudags nema á Saga Class. Takmarkað sætaframboð. Sjá nánari skilmála á www.icelandair.is. Þessar ferðir gefa 750–14.400 Vildarpunkta.
Jólapakkar eru í boði fyrir öll farrými; Economy Class, Economy Comfort og Saga Class.
Sérstakt barna- og ungbarnaverð í boði, sjá www.icelandair.is fyrir frekari upplýsingar.
Ferðatímabil er frá 10. janúar til og með 31. mars 2010. Eftir að ferðatímabili lýkur
gildir jólagjafabréfið sem inneign upp í fargjöld með Icelandair.
+ BÓKAÐU Á WWW.ICELANDAIR.IS
EVRÓPA frá 28.900* kr.
eða 20 þús. Vildarpunktar og 17.276* kr.
USA frá 54.900* kr.
eða 40 þús. Vildarpunktar og 25.370* kr.
Jólapakkatilboð gildir til Boston, New York, Kaupmannahafnar, Stokkhólms, Oslóar, London,
Glasgow, Manchester, Frankfurt, Parísar, Amsterdam og til okkar nýja áfangastaðar – Seattle.
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
I
C
E
4
82
41
1
2/
09