Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2009, Page 2

Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2009, Page 2
Strætó bs. hefur fengið himinháan símreikning vegna neyðarsíma vagnstjóra á svokölluðum endastöðvum. Reynir Jónsson framkvæmdastjóri segir málið í skoðun og úti- lokar ekki að leita til lögreglu vegna misnotkunarinnar. HITT MÁLIÐ ÞETTA HELST - ÞESSAR FRÉTTIR BAR HÆST Á ÁRINU LÁNABÓK KAUPÞINGS DV komst yfir lána- bók Kaupþings í lok júní og byrjaði að ljóstra upp um leyndarmálin. Í fréttaröð sem unn- in var upp úr lánabókinni kom meðal annars fram að Hreiðar Már Sigurðsson og Sigurður Einarsson höfðu í júní 2006 fengið vel yfir fimm milljarða króna hjá bankan- um í lán. Kristján Arason fékk tæpan milljarð króna og Helgi Sigurðsson, lögmaðurinn sem úrskurðaði síðar að fella mætti niður ábyrgðir starfsmanna bankans á lánum sínum, var með 450 milljóna króna kúlulán. Helgi sagði starfi sínu í bankanum lausu daginn sem DV birti fyrstu fréttirnar úr lánabókinni. Samkvæmt henni höfðu 22 starfsmenn bankans fengið samtals 23,5 milljarða í kúlulán. ALÞÝÐAN RÍS UPP Gríðarleg óánægja al- mennings með þá stöðu sem kom- in var upp eftir bankahrunið braust út í fjölmennum mót- mælum þar sem skarst oft í odda með lögreglu og mótmælendum. Nokkru áður en helstu átökin hófust greindi DV frá því að ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar væri við það að springa og að vilji væri fyrir því meðal margs samfylkingarfólks að mynda nýja ríkisstjórn með vinstri-grænum og jafnvel Framsókn. Átök í miðbæ Reykjavíkur juku enn á spennuna og á endanum fór svo að skipt var um ríkisstjórn, seðlabankastjórum og forystu Fjármálaeft- irlitsins úthýst og blásið til nýrra þingkosninga þar sem vinstriflokkar náðu í fyrsta sinn meirihluta á þingi. KÓNGURINN FÉLL Í KÓPAVOGI DV greindi um miðjan janúar frá því að fyrirtæki Brynhildar Gunnars- dóttur, dóttur Gunnars I. Birgissonar bæjarstjóra í Kópavogi, hefði fengið rúmar 40 milljónir króna frá bæn- um á sex árum og það án útboðs. Málið vatt upp á sig og síðar greindi DV frá því að fyrirtæki Brynhild- ar hefði líka fengið 11 milljónir frá LÍN þar sem Gunnar var lengi vel stjórnarformaður. Seinna kom í ljós að sum verk dóttur bæjarstjór- ans höfðu aldrei komist í birt- ingu þó greitt hefði verið fyrir þau. Minnihlutinn í bæjarstjórn krafðist svara, kallað var eftir úttekt endur- skoðunarfyrirtækis og á endanum neyddist Gunnar til að segja af sér, ekki síst vegna mikillar óánægju framsóknarmanna, sem verið höfðu í meirihluta með Sjálfstæðis- flokknum og Gunnari í á annan áratug. 2 3 1 miðvikudagur 15. apríl 20096 Fréttir Dóttir Gunnars Birgissonar, Bryn- hildur Gunnarsdóttir, hefur fengið greiddar rúmar 40 milljónir króna frá Kópavogsbæ á síðustu sex árum, samkvæmt heimildum DV. Gunn- ar er bæjarstjóri Kópavogs. Bryn- hildur rekur útgáfufélagið Frjálsa miðlun ásamt eiginmanni sínum Guðjóni Gísla Guðmundssyni sem jafnframt er framkvæmdastjóri þess. Útgáfufélagið hefur fengið þessi verkefni án útboðs samkvæmt heimildum og hefur Brynhildur fengið greiðslurnar fyrir ýmiss kon- ar útgáfustarfsemi á vegum bæjar- ins. Meðal annars hefur útgáfufélag- ið séð um gerð ársskýrslu bæjarins sem dreift hefur verið á hvert heim- ili í bænum undanfarin ár. Samkvæmt heimildum DV fékk félagið 7 milljónir króna frá Kópa- vogsbæ árið 2008 fyrir hin ýmsu verk og hefur fengið 700 þúsund krónur það sem af er þessu ári. Jafnframt mun fyrirtæki Bryn- hildar hafa fengið rúmar tvær millj- ónir króna frá bænum árið 2005 til þess að vinna afmælisrit fyrir hönd bæjarins í tilefni af 50 ára afmæli Kópavogsbæjar. Þetta afmælisrit kom þó aldrei út en Frjáls miðlun hélt greiðslunni samt sem áður eft- ir samkvæmt heimildum. Krefjast svara um greiðslurnar Bæjarfulltrúar Samfylkingarinnar, þau Guðríður Arnardóttir og Haf- steinn Karlsson, lögðu fram fyrir- spurn fyrir bæjarráð Kópavogsbæj- ar á miðvikudaginn í síðustu viku þar sem þau krefja bæjarstjórann svara um viðskipti og greiðslur til félagsins tíu ár aftur í tímann. Guðríður segir að þau hafi ákveðið að leggja fyrirspurnina fram á bæjarráðsfundi vegna þess að þeim hafi síendurtekið bor- ist það til eyrna að Frjáls miðlun hafi fengið verkefni hjá Kópavogs- bæ án þess að útboð færi fram á þessum verkum. „Við höfum feng- ið ábendingar um að þetta fyrir- tæki hafi fengið fjölmörg verk án útboðs og að viðskipti bæjarins við þetta fyrirtæki hafi verið mik- il á liðnum árum,“ segir Guðríður Arnardóttir. Hún segir að það sé sjálfsagt og eðlilegt að þau sem kjörnir fulltrú- ar í bæjarstjórn spyrjist fyrir um þetta. „Okkur langar að vita hversu stór og mikil viðskipti þetta hafa verið við fyrirtækið og hvort það hefði ekki verið eðlilegt að bjóða þau út,“ segir Guðríður. Verkin boðin út, segir Gunnar Gunnar Birgisson segir að verkin sem félag dóttur hans hafi fengið í gegnum tíðina hafi verið boðin út en að félag hennar hafi boðið lægst og því hafi það fengið verkin. Hann segir aðspurður að Kópavogsbær bjóði út öll stærri verk sem unn- in séu fyrir bæinn. „Við bjóðum út ársskýrslur og öll stærri verk og allt það,“ segir Gunnar og bætir því við að Samfylkingin stundi „skítapólit- ík“ með fyrirspurninni um félagið. „Það eru engir óeðlilegir viðskipta- hættir þarna og þó að hún sé dóttir mín á ekki að refsa henni fyrir það,“ segir Gunnar. Aðspurður segir Gunnar að hann viti ekki hvort þær upphæð- ir sem DV hefur heimildir fyrir að Frjáls miðlun hafi fengið séu réttar eða ekki. Bæjarstjórinn segir að fyrir- spurn bæjarfulltrúanna verði svarað eftir bestu getu. „Menn hafa ekkert að fela í þessu, þetta er allt uppi á borðum hjá okkur og mun allt koma í ljós væntan- lega,“ segir Gunnar og bætir því við að fyrirspurninni verði svar- að fljótlega. InGI F. VIlhjálmsson blaðamaður skrifar ingi@dv.is Dóttir Gunnars Birgissonar, Brynhildur Gunnarsdóttir, hefur fengið hin ýmsu verkefni frá Kópavogsbæ án út- boðs samkvæmt heimildum. Á síðustu sex árum nema greiðslur til hennar frá Kópavogsbæ um 40 milljónum króna. Bæjarfulltrúar Samfylkingarinnar lögðu fram fyrirspurn um greiðslur til dóttur bæjarstjórans í síð- ustu viku. Gunnar Birgisson segir ásakanir bæjarfull- trúanna vera rangar og að þeir stundi „skítapólitík“. Krefjast svara um Frjálsa miðlun guðríður arnardóttir, bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar í kópavogi, segir að Samfylkingin vilji fá að vita hvort Frjáls miðlun hafi fengið verk án útboðs frá kópavogsbæ. MILLJÓNAGREIÐSLUR TIL DÓTTUR GUNNARS „skítapólitík“ samfylkingarinnar gunn- ar Birgisson, bæjarstjóri í kópavogi, segir að fyrirspurn Samfylkingarinnar sé dæmi um „skítapólitík“. Hann neitar ásökununum og segir kópavogsbæ bjóða út öll „stærri“ verk. sverrir Pétur Pétursson málarameistari ákærður fyrir meiriháttar skattalagabrot: Ákærður fyrir 60 milljóna skattsvik Sverrir Pétur Pétursson málara- meistari hefur verið ákærður fyrir meiriháttar skattalagabrot. Ríkis- lögreglustjóri ákærði Sverri Pétur fyrir að svíkja rúmar 60 milljón- ir undan skatti á árunum 2006 og 2007. Að því er kemur fram í ákæru framdi Sverrir Pétur brotin ýmist með því að standa skil á röngum virðisaukaskattsskýrslum, skila ekki slíkum skýrslum eða með því að standa ríkissjóði ekki skil á inn- heimtum virðisaukaskatti. Málið verður þingfest í Héraðs- dómi Reykjavíkur í dag. Samkvæmt ákæru byrjaði Sverrir Pétur smátt, en frá janúar til febrúar 2006 sleppti hann að greiða virðisaukaskatt að upphæð fjórtán þúsund krónur. Á næstu tveimur mánuðum fór upphæð- in skjótt upp í rúmar fimm millj- ónir. Í hegningarlögum er gert ráð fyrir að þeir sem brjóta af sér á þennan hátt geti átt von á allt að sex ára fangelsi auk fjársekta. Sam- kvæmt lögum um virðisaukaskatt þarf Sverrir Pétur, verði hann sak- felldur, að endurgreiða minnst tvöfalda þá upphæð sem svikin var undan skatti, rúmar 120 milljónir. Hins vegar er heimild til að inn- heimta fjársektir sem nema allt að tífaldri upphæðinni, eða 600 millj- ónir króna. Sverrir Pétur er 45 ára og fékk löggildingu sem málarameistari fyrir tæpum átta árum. Hann vildi ekki tjá sig um málið þegar DV náði tali af honum í gær. erla@dv.is Tíföld sekt Sverrir pétur pétursson þarf að greiða minnst 120 milljónir í sekt verði hann sakfelldur en getur þó verið sektaður um allt að 600 milljónir. mynd PhoTos.com Stjórnvöldum hefur mistekist Bjarni Benediktsson, formað- ur Sjálfstæðisflokksins, segir að stjórnvöldum hafi algerlega mis- tekist að halda uppi gengi krón- unnar. Gengi hennar hafi fallið um heil 16 prósent frá 1. febrúar. „Það stefnir í nýja verðbólgu- bylgju sem kemur í veg fyrir að Seðlabankinn geti lækkað vexti,“ sagði Bjarni í upphafi þingfundar á Alþingi í gær. Steingrímur J. Sigfússon fjár- málaráðherra spurði Bjarna hvort hann væri að mælast til þess að gjaldeyrisforðinn yrði notaður til að halda uppi gengi krónunnar. Steingrímur viðurkenndi að glíman við að halda uppi gengi krónunnar hefði reynst erfiðari en menn hefðu vonað. Sverrir í sprengjuárás „Ég sat inni á tuskulegum veit- ingastað og var að panta mér kokkteil, bankokkteil, þegar molotovkokkteill kom allt í einu fljúgandi inn um gluggann. Ekki alveg það sem ég var að biðja um,“ skrifar tónlistarmaðurinn Sverrir Stormsker á bloggsíðu sína. Hann var svo óheppinn að vera staddur í Bangkok þegar óeirðir brutust út í höfuðborg Taílands. Mótmælendur hafa krafist þess að Abbhisit Veijajivi, for- sætisráðherra landsins, segi af sér. Sverrir segir að á svipstundu hafi annars lítt vinsæll veitinga- staður breyst í einn þann heit- asta í bænum, í orðsins fyllstu merkingu. Enn springur meirihluti Meirihlutinn í bæjarstjórn Grindavíkur er sprunginn eftir að deila kom upp milli Samfylkingarinnar og Fram- sóknar sem fóru með meiri- hluta í bæjarstjórninni. Deilan sem varð meiri- hlutanum að falli er rak- in til þess að bæjarfulltrú- ar Samfylkingarinnar lögðu fram bókun þess efnis að þeir vildu ráða Garðar Pál Vignis- son í stöðu skólastjóra Hóps- kóla. Garðar Páll hefur verið bæjarfulltrúi fyrir Samfylk- inguna frá árinu 2001 og er forseti bæjarstjórnar. Þetta er í annað skiptið á kjörtímabilinu sem meiri- hluti springur í Grindavík. Sá fyrri sprakk á síðasta ári. Leiðinlegt á Selfossi Lögregla og sjúkralið var kallað að verslun Krónunnar á Selfossi aðfaranótt laugardags vegna manns sem kviknað hafði í. Þeg- ar lögregla kom á staðinn var enginn eldur en í ljós kom að piltur á nítjánda ári hafði hellt bensíni í fatnað sinn og borið eld að. Félagi hans var til staðar með slökkvitæki og slökkti eldinn. Pilturinn útskýrði tiltækið með þeim hætti að hann hefði gert þetta sér til gamans þar sem svo leiðinlegt væri á Selfossi. Pilt- urinn hlaut ekki skaða af en hann hafði borið vaselín á fætur sína til að fyrirbyggja bruna. 2 MIÐVIKUDAGUR 30. desember 2009 FRÉTTIR www.eirberg.is • 569 3100 • Stórhöfða 25 Airfree lofthreinsitækið Byggir á nýrri tækni sem eyðir • Svifryki, myglusveppi og ólykt • Gæludýraflösu og bakteríum • Vírusum og öðrum örverum • Er hljóðlaust og viðhaldsfrítt • Tilvalið á heimilið og skrifstofuna Hæð aðeins 27 cm Betra loft betri líðan dv.is F r j á l s t , ó h á ð d a g b l a ð þriðjUdagUr 30. júní 2009 dagblaðið vísir 94. tbl. – 99. árg. – verð kr. 347 fólk n grétar rafn og ManUela ósk giftU sig UM helgina Með lífVerði í BrúðkaUPinU nennir ekki að Vera í fÁfni n sVeddi tattú snýr sér að traktorUM DV ER MEÐ LÁNABÓK KAUPÞINGS: Kúlulán Kristjáns var 893 milljónir leyni- gögn n „fÖlsUn Á eigin fé Bankans“ n þorgerðUr katrín segist ekki Vita hVersU hÁtt lÁnið Var lÖGFrÆÐinGurinn sEm úrsKurÐaÐi um niÐurFEllinGu áBYrGÐa var sjálFur mEÐ 450 milljóna Kúlulán MEÐ ÆÐI FYRIR FISKI n GRILLBLAÐFYLGIR F r j á l s t , ó h á ð d a g b l a ð IcESAvE- SKjöLIn FRéttIR dv.is MIÐvIKudAGuR oG FIMMtudAGuR 1. – 2. júlí 2009 dagblaðið vísir 95. tbl.99. árg. – verð kr. 347 STJÓRARNIR TÓKU FIMM MILLJARÐA ÁN ÁBYRGÐAR ÚR LÁNABÓK KAUPÞINGS: n HREIÐAR MÁR oG SIGuRÐuR FELLdu nIÐuR ÁBYRGÐIR AF EIGIn KÚLuLÁnuM n KAuPÞInG tÓK „StÆRStu“ ÁHÆttunA MEÐ LÁnuM tIL ÞEIRRA n MEÐ LÁnunuM vÆRI HÆGt AÐ GREIÐA ÁRLEGAn LíFEYRI ALLRA öRYRKjA n EÞíÓPíSKuR SjEIK FéKK 3,5 MILLjARÐA LÖGMAÐURINN SEM KVITTAÐI UPPÁ NIÐURFELLINGUNA VINNURFYRIR HREIÐAR MÁ SIGURÐSSON mynd sigtryggur ari jóhannsson grillblað Með æði fyrir fiskFriðrika hjördís geirsdóttir „Mér finnst grillaður fiskur æðislegur,“ segir matgæðingurinn og sjónvarpskonan Friðrika Hjördís Geirsdóttir sem stjórnar matreiðslu-þáttunum Léttir réttir Rikku á Stöð 2. „Það er hægt að gera svo ótrúlega mikið með fisk og hann tekur vel við maríneringu.“Friðrika er sannfærð um að Íslendingar séu sífellt að verða duglegri við að skella fisk á grillið. „Við mættum þó gera meira af því að prófa nýjar og meira spennandi tegundir. Það er svo ótrúlega margt gómsætt til. Ekki bara lax og þorskur.“ Friðrika telur ástæðulaust fyrir reynslulitla kokka að óttast það að mistakast með fisk-inn á grillinu. „Mér finnst best að setja hann í álpappír og leyfa honum að krauma vel með maríneringunni. Svo er líka hægt að setja hann í álbakka eða í grind en það borgar sig að hafa roðið á ef það á að skella honum beint á grillið,“ segir Friðrika að lokum og bætir við: „Svo er um að gera að taka þetta á jákvæðn-inni og þá tekst þetta allt saman.“ asgeir@dv.is ÞuRFtI HjÁLP LíFvARÐA n GLAnnI GLÆPuR ÞuRFtI vERnd FYRIR AÐdÁEnduM í MExíKÓ FÓLK m yn d r ó b er t dv.is F r j á l s t , ó h á ð d a g b l a ð ÞRIÐJUdagUR 20. JanúaR 2009 dagblaðið vísir 13. tbl. – 99. árg. – verð kr. 347 dRaUmURInn sem RættIst n baRack obama veRÐUR valdamestI maÐUR heIms í dag Samfylking á Suðupunkti vegna StjórnarSamStarfS: VILJA STJÓRN MEÐ VG hvítlIÐI áttI aÐ veRJa mótmælanda fRéttIR atvInnUlaUs aÐ hJálpa böRnUm n leIkskólakennaRI YfIRheYRÐUR fYRIR aÐ mótmæla. sótt fYRIRvaRalaUst í vInnUna. n ÞReIfIngaR Um RaUÐgRænt samstaRf n kRafa Um tafaRlaUst UppgJöR vegna bankahRUnsIns n fRamsókn gætI vaRIÐ mInnIhlUtastJóRn vantRaUstI, segIR sIgmUndUR davíÐ n fJaRveRa IngIbJaRgaR tRUflaR flokksstaRfIÐ n vIlJa aÐ foRmaÐURInn mInnkI vInnUálagIÐ Litir: Grænn: pantone 356c vu Rau•ur: pantone 485c vu fRéttIR eRlent fólk óskaR vIll moggann F r j á l s t , ó h á ð d a g b l a ð miðvikudagur 21. janúar 2009 dagblaðið vísir 14. tbl. – 99. árg. – verð kr. 347 BjÖrgÓLFur thor gegn krÓnunni ríkissTJÓrNiN FELLUr Fréttir Fréttir janúarByLting á austurveLLi n eLLeFu ára handtekinn n „ég var Líka að mÓtmæLa“ n kona Barin með kyLFu n ingiBjÖrg veikari en taLið var n „geir er Búinn að vera“ m yn d b jö rn b lö n d a l MISNOTA NEYÐARSÍMA Strætisvagnabílstjórar eru undir rannsókn yfirmanna fyrir misnotk- un á neyðarsímum fyrirtækisins. Misnotkunin er upp á nærri milljón króna og útilokar Reynir Jónsson, framkvæmdastjóri Strætó bs., ekki lögreglurannsókn og brottvikningar úr starfi. Á svokölluðum endastöðvum strætisvagna er að finna símtæki sem stjórnendur létu koma fyrir í örygg- isskyni fyrir bílstjórana. Um er að ræða nokkrar stöðvar, til að mynda í Spönginni, í verslunarmiðstöðinni Firði, í Mjódd og á Hlemmi. Stjórn- endum fyrirtækisins brá heldur í brún þegar símreikningur vegna sím- tækja stöðvanna barst en hann var upp á nærri eina milljón króna. Þeir skoða nú hverjir eiga í hlut og íhuga að fjarlægja öryggissímana af stöðv- unum vegna misnotkunarinnar. Bílstjórarnir hræddir Reynir segir að í upphafi hafi kom- ið fyrir að starfsmenn hafi misnot- að símana og hringt til útlanda. Eftir að lokað var fyrir það hefur notkun- in snúið að persónulegum símtöl- um í farsíma. „Þetta er nýkomið upp á yfirborðið hjá okkur og rannsókn- in á frumstigi. Við erum núna að fara yfir reikninginn en hann er ansi hár. Ég hef heyrt að þetta sé milljón en við höfum ekki ákveðið endan- lega hvernig við bregðumst við. Sím- reikningurinn er óboðlegur og við ætlum að fara ofan í þetta mál. Ef við höfum tök á því að finna hverjir þetta eru þá munum við gera það,“ segir Reynir. Ingunn Guðnadóttir, trúnaðar- maður vagnstjóra Strætó bs., er hissa á þeim starfsfélögum sínum sem misnotað hafa neyðarsímana. „Yfir- mennirnir sjá þá einu leið að taka símana í burtu. Það er greinilegt að sumir bílstjórarnir hafa verið að tala alltof mikið í símana og það virðist vera sem einhverjir útlendu starfs- mannanna hafi notað símana til að hringja heim en það geta Íslending- arnir líka hafa gert. Misnotkunin er mjög bagaleg og símreikningurinn er skuggalegur. Það gengur hins veg- ar ekki að missa símana því þetta er mikið öryggistæki fyrir okkur. Ég hef orðið vör við mikla óánægju með að fjarlægja símana og bílstjórarnir eru hræddir við það,“ segir Ingunn. Bitnar á heildinni Aðspurður segir Reynir símtæk- in hafa verið sett upp í góðri trú til þess að veita bílstjórum öryggi í hlé- um. Hann telur eðlilegt að símarnir verði teknir niður í ljósi þess að flest- ir bílstjórar séu farsímavæddir. „Mér finnst nú sjálfum að bílstjórarnir eigi að nota eigin síma til persónulegra nota. Það finnst mér nú satt best að segja eðlileg krafa þar sem tæk- in eru alls ekki ætluð til persónu- legra afnota. Okkar markmið er fyrst og fremst að leysa málið í friðsemd. Hið fyrsta sem okkur dettur í hug er að loka þessum símum en útilok- um ekki að málinu fylgi afleiðingar fyrir viðkomandi. Krafa um endur- greiðslu eða uppsögn geta mögulega verið inni í myndinni ef við náum að sýna fram á stórfellda misnotkun,“ segir Reynir. „Það eru hér margir heiðarleg- ir og góðir starfsmenn sem líða fyrir þetta. Það er eðlilegt að þeim mislíki þessi misnotkun annarra. Því miður eru alltaf einhverjir sem fara á svig við hið viðtekna og það er leiðinlegt að slíkt bitni á heildinni. Símtækin voru sett upp í góðri trú. Það ræðst af framvindu málsins hvort við leitum til lögreglu en það er mögulegt.“ TRAUSTI HAFSTEINSSON blaðamaður skrifar: trausti@dv.is „Símreikningurinn er óboðlegur og við ætl- um að fara ofan í þetta mál. Ef við höfum tök á því að finna hverjir þetta eru þá munum við gera það.“ Til öryggis Símarnir voru settir upp í öryggisskyni en ljóst er að einhverjir bílstjórar hafa misnotað aðstöðu sína.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.