Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2009, Síða 13
FRÉTTIR 30. desember 2009 MIÐVIKUDAGUR 13
EKKI BANVÆNN SJÚKDÓMUR
eigi sér eðlilegar skýringar. „Ticks
eru þannig að þeir þola illa þurrk.
Ef þú ert með grasflöt þar sem mikið
af laufi fellur til jarðar, þá myndast
tilvalin lífsskilyrði fyrir ticks. Þá er
mikill raki við jörðina. Í Bandaríkj-
unum, eins og í Danmörku, koma
dádýr og önnur stór dýr alveg inn í
garðinn hjá fólki og geta skilið eft-
ir ticks þar,“ útskýrir hann. „Ég efast
um að þetta verði stórt vandamál á
Íslandi,“ segir Sigurður að lokum.
Hringlaga útbrot eða
roði Þetta eru dæmigerð
útbrot eftir skógarmítil.
Skógarmítillinn grefur sér leið Paddan
treður hausnum ofan í húð fórnarlambsins
og sýgur blóð. Sérstakar tangir þarf til að
losa kvikindið. MYND LÆKNABLAÐIÐ
Hannes Sigmarsson, yfirlæknir heilsugæslunnar í Fjarðabyggð, var rekinn í gær:
Bæjarbúar flögguðu í hálfa stöng
„Það er rétt. Mér var tilkynnt um þetta
núna í morgun,“ sagði Hannes Sig-
marsson, yfirlæknir heilsugæslunnar
í Fjarðabyggð, í samtali við DV í gær.
Honum var sagt upp störfum fyrr um
morguninn. „Mér voru engar ástæður
gefnar upp,“ segir Hannes.
Forsaga málsins er sú að stjórn Heil-
brigðisstofnunar Austurlands, HSA,
sakaði Hannes um fjárdrátt snemma á
árinu. Honum var gefið að sök að hafa
gefið út óeðlilega marga og háa reikn-
inga fyrir læknisverk utan dagvinnu.
Hannesi var vikið úr starfi 12. febrú-
ar og rannsakaði lögreglan á Eskifirði
málið um tíma. Lögreglan hætti rann-
sókn mánuði síðar þar sem ekkert sak-
næmt kom í ljós. Forsvarsmenn HSA
kærðu þá málið til ríkissaksóknara sem
lét það niður falla.
Hannes er afar vinsæll læknir í sinni
heimabyggð en hann hefur undanfar-
ið starfað á Höfn í Hornafirði. Nokk-
ur hundruð bæjarbúar rituðu nafn sitt
á undirskriftalista Hollvinasamtaka
heilsugæslunnar í Fjarðabyggð, þar
sem skorað var á stjórn HSA að segja
af sér.
Samkvæmt heimildum DV var víða
flaggað í hálfa stöng á Eskifirði í gær,
en þannig munu bæjarbúar hafa viljað
lýsa stuðningi sínum við Hannes.
Hannes var á Höfn í Hornafirði
þegar DV náði tali af honum. Hann
sagði að stuðningurinn sem hann hef-
ur fengið hefði reynst fjölskyldu sinni
ómetanlegur. „Þetta er búið að vera
alveg gífurlega mikið álag. Það er með
ólíkindum að svona skuli líðast,“ sagði
Hannes sem greinilega tók tíðindin
nærri sér.
Hann reiknar með því að vinna á
Höfn til áramóta en halda svo heim í
Fjarðabyggð. Spurður hvort hann komi
til með að vinna uppsagnarfrest segist
Hannes ekki þurfa þess. „Ætli ég fari
ekki bara heim og hvíli mig í fjóra mán-
uði, ef þeir eru menn í að borga mér
þessi laun sem ég á inni hjá þeim.“
baldur@dv.is
Hannes Sigmarsson Hefur staðið í langri
deilu við forsvarsmenn Heilbrigðisstofnun-
ar Austurlands, HSA, sem sökuðu hann um
fjárdrátt. Lækninum var sagt upp í gær.
NÝTUM
TÆKIFÆRIN
OG TENGJUMST
TRYGGÐARBÖNDUM
Á NÝJU ÁRI!
P &
Ó