Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2009, Blaðsíða 18
18 MIÐVIKUDAGUR 30. desember 2009 FRÉTTIR
ARKÍTEKTAR BANKAHRUNSINS
Heiðar Már
Guðjónsson
Hagfræðingurinn Heiðar Már
Guðjónsson starfaði sem
framkvæmda-
stjóri Novator
og var oft
nefndur
hægri hönd
Björgólfs
Thors. Hann
hefur ásamt
Ársæli Valfells verið einn helsti
talsmaður þess að Ísland taki
einhliða upp evru og er tengda-
sonur Björns Bjarnasonar,
fyrrverandi dómsmálaráðherra.
Í dag starfar hann hjá vogunar-
sjóðnum Clarium í Sviss og er
að mestu skilinn við Novator.
Heiðar er menntaður hagfræð-
ingur frá Háskóla Íslands.
Heiðar Már starfaði á sínum tíma
sem sjóðsstjóri hjá Kaupþingi.
Var hann meðal annars yfir
vogunarsjóðnum GIR Capital
Investment sem skráður var á
Caymaneyjum. Ari Matthíasson
sagðist í Silfri Egils hafa verið
viðstaddur kynningu á þessum
sjóði fyrir tíu árum síðan á Hótel
Holti. Var viðstöddum tjáð að
þeir gætu fengið arðgreiðslur
sínar greiddar inn á reikninga
hvar sem er í heiminum þar sem
ríkti bankaleynd.
Orri Hauksson
Orri Hauksson hefur unnið mik-
ið fyrir Novator á undanförnum
árum. Hefur
meðal annars
verið stjórnarfor-
maður Novator
í Finnlandi
og situr í
stjórn finnska
símafyrirtækisins
Elisa. Orri er með kandídatspróf
í vélaverkfræði frá Háskóla
Íslands og MBA-gráðu frá
Harvard-háskóla. Orri starfaði
sem aðstoðarmaður Davíðs
Oddssonar á árunum 1997 til
2000. Fyrir það starfaði hann
hjá Eimskipi á árunum 1995
til 1997. Hann starfaði sem
framkvæmdastjóri þróunar-
sviðs Símans og sem stjórnar-
formaður Skjás eins áður en
hann réð sig til Björgólfs Thors
Björgólfssonar.
Birgir Már
Ragnarsson
Lögmaðurinn Birgir Már
Ragnarsson starfaði sem fram-
kvæmdastjóri
hjá Samson en
félagið fór með
45 prósenta
eignarhlut
Björgólfsfeðga
í Landsbank-
anum. Birgir Már er með emb-
ættispróf í lögfræði frá Háskóla
Íslands og meistaragráðu í
alþjóðlegum fjármagnsrétti
frá Harvard-háskóla. Áður en
hann réð sig til Björgólfs Thors
starfaði hann meðal annars í
iðnaðar- og viðskiptaráðuneyt-
inu og hjá Fjármálaeftirlitinu.
Einnig var hann aðjúnkt við
lagadeild Háskólans í Reykjavík.
Andri Sveinsson
Viðskiptafræðingurinn Andri
Sveinsson hefur starfað sem
fjármálastjóri
Novator. Andri
er einn nánasti
samstarfsmað-
ur Björgólfs
Thors og hefur
setið í stjórn
Actavis, Landsbankans og
Novator. Hann var skipaður í
stjórn Landsbankans strax árið
2003. Andri starfaði á sínum
tíma sem forstöðumaður fyrir-
tækjaráðgjafar Búnaðarbank-
ans og stofnaði fjárfestingafé-
lagið Gildingu upp úr síðustu
aldamótum ásamt feðgunum
Þórði Magnússyni og syni hans
Árna Oddi. Hann er menntaður
viðskiptafræðingur frá Háskóla
Íslands.
Þór Kristjánsson
Viðskiptafræðingurinn Þór
Kristjánsson
hefur unnið
með Björgólfi
Thor allt
frá því að
Rússlandsæv-
intýri þeirra
feðga hófst.
Hann var
fjármálastjóri gosdrykkjaverk-
smiðjunnar Baltic Bottling
Plant. Honum var meinaður
aðgangur að verksmiðjunni
árið 1995 þegar Björgólfsfeðgar
höfðu yfirtekið hana gegn
vilja Bernads J. Larndner og
Ingimars H. Ingimarssonar.
Hann snerist síðar á sveif með
Björgólfsfeðgum og dró til að
mynda til baka stefnur sem
hann hafði skrifað undir á
hendur Björgólfsfeðgum.
Þór starfaði sem ráðgjafi Sam-
son og var um tíma aðstoðar-
forstjóri Actavis. Hann sat hann
í stjórn Landsbankans allt þar
til bankinn fór í gjaldþrot. Einn-
ig sat hann í stjórn Eimskips
og knattspyrnufélagsins West
Ham. Þór er viðskiptafræðingur
frá Háskóla Íslands.
Tómas Ottó
Hansson
Hagfræðingurinn Tómas Ottó
Hansson hefur starfað sem
framkvæmdastjóri Novator og
er einn nánasti samstarfsmaður
Björgólfs Thors. Auk þess er
hann stjórnarformaður Nova,
situr í stjórn finnska símafyr-
irtækisins Elisa og sat meðal
annars í stjórn Eimskips.
Tómas Ottó útskrifaðist sem
hagfræðingur frá Háskóla Ís-
lands árið 1990. Hann starfaði á
sínum tíma sem forstöðumaður
rannsókna hjá Íslandsbanka.
Ólafur Ólafsson
Viðskiptafræðingurinn Ólafur
Ólafsson hefur verið talinn
„slyngur“ rekstrarmaður og
hefur ekki þurft jafn mikið á
„sérfræðingum“ að halda og
margir útrásarvíkinganna. Hann
er með viðskiptafræðipróf frá
Háskóla Íslands. Hann hefur þó
haft nokkurn hóp af endur-
skoðendum og lögmönnum í
kringum sig sem flestir hafa átt
einhver tengsl við Framsókn-
arflokkinn. Ólafur er þekktur
fyrir klæki í viðskiptum og hefur
eignast margar óvildarmenn
vegna þess. Hefur hann verið
iðinn við að fela þá staðreynd
að eiga jafnan stærsta hlutann
í þeim erlendu félögum sem
koma að viðskiptum tengdum
honum. Má þar nefna Bruno
Bischoff sem fjárfesti í Samskip-
um, Hauck & Aufhäuser sem
fjárfesti í Búnaðarbankanum og
síðast en ekki síst fjárfestingu
sjeiksins Al Thanis í Kaupþingi
í gegnum félagið Q Iceland
Finance sem nú sætir rannsókn
sérstaks saksóknara.
Árni Tómasson
Árni Tómasson endurskoðandi
og formaður skilanefndar
Glitnis hefur verið náinn Ólafi á
undanförnum árum. Hann hef-
ur setið í stjórn Alfesca frá árinu
2006 þar sem Ólafur hefur verið
meirihlutaeigandi. Árni var á
sínum tíma bankastjóri Bún-
aðarbankans en hann er sonur
Tómasar Árnasonar, fyrrverandi
ráðherra Framsóknarflokksins
og seðlabankastjóra. Hann er
menntaður endurskoðandi og
hefur kennt þau fræði bæði
við Háskóla Íslands sem og
við Háskólann í Reykjavík á
undanförnum árum.
Hjörleifur
Jakobsson
Verkfræðingurinn Hjörleifur
Jakobsson hefur verið einn
nánasti samstarfsmaður Ólafs
Ólafssonar í mörg ár. Hjörleifur
var ráðinn forstjóri Kjalar árið
2006 en þá sameinuðust
félögin Ker og Kjalar. Við það
varð Egla dótturfélag Kjalars en
Egla var næststærsti hluthafinn
í Kaupþingi. Hann var forstjóri
Olíufélagsins frá 2002 til 2006.
Hjörleifur var stjórnarformaður
Búnaðarbankans þegar hann
sameinaðist Kaupþingi og varð
varastjórnarformaður hins
sameinaða banka. Hjörleifur er
véla- og rekstrarverkfræðingur
frá Háskóla Íslands og með
meistarapróf frá Oklahoma
State University. Hann vann
lengi sem framkvæmdastjóri
hjá Eimskip og var forstjóri
Hampiðjunnar 1999 til 2002.
Kristinn
Hallgrímsson
Lögfræðingur hjá lögmanns-
stofunni Fulltingi. Einn nánasti
samverkamaður Finns Ingólfs-
sonar og Ólafs
Ólafssonar.
Tengsl hans
við Framsókn-
arflokkinn
eru náin og
ná langt aftur
í tímann þar
sem pabbi
hans var þungavigtarmaður
innan flokksins. Var lögmaður
S-hópsins sem keypti Búnaðar-
bankann árið 2002 og kvittaði
hann upp á meirihluta þeirra
skjala sem send voru frá hópn-
um til einkavæðingarnefndar.
Hefur setið í stjórnum gríðarlega
margra félaga á vegum þeirra
Finns og Ólafs. Gerð hefur
verið húsleit hjá Fulltingi út
af aðkomu stofunnar að
viðskiptum sjeiksins Al-Thanis
með hlutabréf í Kaupþingi í
fyrrahaust en starfsmaður á
stofunni, Telma Halldórsdóttir,
sat í stjórn eignarhaldsfélagsins
Q Iceland Finance sem keypti
bréfin í Kaupþingi. Nær öruggt
má telja að Fulltingi hafi tekið
þátt í viðskiptunum vegna
tengsla Kristins og Ólafs
Ólafssonar sem sá um að koma
viðskiptunum í kring. Fulltingi
er til húsa á Suðurlandsbraut
18 en það hús er í eigu Ólafs
Ólafssonar. Á þriðja hundrað
fyrirtæki eru skráð til heimilis
í húsinu.
Guðmundur
Hjaltason
Endurskoðandinn Guðmundur
Hjaltason var forstjóri Kers á
árunum 2003 til 2006. Hafði
hann þá unnið síðustu fjögur
árin fyrir Ólaf Ólafsson sem
framkvæmdastjóri fjármála- og
stjórnunarsviðs Samskipa. Áður
en Guðmundur hóf að vinna
fyrir Ólaf var hann eigandi
Löggiltra endurskoðenda hf.
Eftir að Hjörleifur Jakobsson
var gerður að forstjóra Kjalar
árið 2006 hætti Guðmundur
störfum fyrir Ólaf Ólafsson.
Þá fór Guðmundur til starfa hjá
Glitni og var yfir fyrirtækjasviði
bankans þar til hann var rekinn
frá bankanum í maí 2008. Þá
réð hann sig til Milestone sem
varð síðan gjaldþrota nokkrum
mánuðum síðar. Þegar hann
starfaði hjá Glitni veitti hann
Milestone tuga milljarða
króna lán. Milestone sætir nú
rannsókn sérstaks saksóknara
vegna meðferðar á bótasjóði
Sjóvár. Guðmundur rekur í
dag ráðgjafarfyrirtækið Möttul
ásamt öðrum fyrrverandi
starfsmönnum Milestone. Hafa
þeir meðal annars unnið að
endurskipulagningu spari-
sjóðakerfisins á Íslandi.
Guðmundur
Oddsson
Lögmaðurinn Guðmundur
Oddsson starfar á lögmanns-
stofunni Logos og hefur haft
aðsetur í London undanfarin
ár. Hann
er náinn
samverka-
maður
Björgólfs
Thors
Björgólfs-
sonar. Var
innanhús-
lögmaður
hjá Actavis
og sat í stjórn West Ham á
meðan Björgólfur Guðmunds-
son átti félagið. Guðmundur
tók einnig þátt í viðskiptum
sjeiksins Al-Thanis með
hlutabréf í Kaupþingi skömmu
fyrir hrun haustið 2008 en hann
sat í stjórn eignarhaldsfélags
sjeiksins. Guðmundur er með
réttarstöðu grunaðs manns í
rannsókn sérstaks saksóknara á
Al-Thani málinu þar sem grunur
leikur á að um markaðsmis-
notkun hafi verið að ræða
þegar bréfin voru keypt. Afar
pínlegt þótti þegar sérstakur
saksóknari gerði húsleit á
Logos út af rannsókninni í
sumar.