Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2009, Qupperneq 29
FRÉTTIR 30. desember 2009 MIÐVIKUDAGUR 29
VÖRÐUR Í FRÉTTUM LIÐINS ÁRS
Flugslys, óeirðir, dauði
poppara og skálmöld
Flugslys voru nokkuð tíð og mann-
skæð á liðnu ári. Í byrjun júní fórst
flugvél flugfélagsins Air France,
flug 447, á leið frá Rio de Janeiro í
Brasilíu til Parísar. Flugvélin hrap-
aði í Atlantshafið og allir um borð
fórust, 216 farþegar og tólf manna
áhöfn.
Einn farþegi lifði af flugslys
þann 30. júní þegar Airbus-flug-
vél Yemenia-flugfélagsins hrap-
aði í Indlandshaf skammt undan
ströndum Kómoreyja. Lengi vel
var talið að allir 142 farþegar og ell-
efu manna áhöfn vélarinnar hefðu
farist, en öllum að óvörum hafði
franskri unglingsstúlku, Bahia Bak-
ari, tekist að halda sér á lífi í þrettán
klukkustundir, án björgunarvest-
is og illa syndri, áður en henni var
bjargað.
Í kjölfar endurkjörs Mahmouds
Ahmadinejad í embætti forsætis-
ráðherra Írans 12. júní brutust út
mikil mótmæli í Teheran og víð-
ar í landinu. Stuðningsmenn Mir-
Hosseins Mousavi, helsta keppi-
nautar Ahmadinejads, létu mikið til
sín taka á götum Teheran. Tölur yfir
fjölda þeirra sem féllu í óeirðunum
eru á reiki en nefndar hafa verið
tölur frá 27 til 150. Frægasta fórn-
arlambið var Neda Agha-Soltan, en
dauði hennar náðist á myndband
og varð hún eins konar táknmynd
fyrir baráttu mótmælenda.
Tónlistarmaðurinn Michael
Jackson stal senunni í heimspress-
unni þegar hann safnaðist til feðra
sinna 25. júní og var hann syrgður
víða um heim. Síðan þá hafa ýms-
ar kenningar verið viðraðar um
banamein hans og sér vart enn fyr-
ir endann á þeim.
Í Xinjiang-héraði í Kína féllu yfir
150 manns í blóðugum átökum í
Urumqi á milli Úigúra og Han-Kín-
verja þann 5. júlí. Hátt í tvö þúsund
manns særðust í átökunum sem
stóðu í um þrjá daga og voru afleið-
ing vaxandi spennu á milli Han-
Kínverja, stærsta þjóðernisbrots
Kína, og Úigúra, sem eru múslíms-
kir og teljast fámennir í Kína.
Flugslys áttu eftir að kosta fleiri
mannslíf á árinu og 15. júlí hrap-
aði flugvél Caspian-flugfélagsins
skammt frá Qazvin í Íran með þeim
afleiðingum að allir um borð, 168
talsins, fórust.
Fellibyljir, flóð og
umdeild frelsisveiting
Fellibylurinn Morakot skall á Taí-
van 7. ágúst. Morakot er versti felli-
bylurinn sem skollið hefur á land-
inu síðan skráningar hófust og
olli mikilli eyðileggingu og mann-
skaða. Yfir eitt þúsund manns fór-
ust, þeirra á meðal um 500 manns
í þorpi sem grófst undir aurskrið-
um í bænum Xiaolin. Stormurinn
olli eyðileggingu víða í Kína og varð
átta manns að aldurtila þar auk
þess sem hann olli mannskæðum
flóðum á Filippseyjum.
Skosk stjórnvöld ákváðu að sýna
mannúð á árinu og veittu Locker-
bie-sprengjuvarginum Moham-
ed Al Megrahi frelsi þann 20. ág-
úst, en hann hafði verið á bak
við lás og slá frá árinu 1988 eft-
ir að hafa verið sakfelldur fyrir að
sprengja í loft upp farþegaflugvél
Pan Am-flugfélagsins yfir Locker-
bie á Skotlandi. Megrahi var sagð-
ur vera með krabbamein í blöðru-
hálskirtli og snéri heim til Líbíu þar
sem honum var fagnað sem hetju,
þvert á loforð þarlendra stjórn-
valda til þeirra skosku. Frelsisveit-
ingin var víða fordæmd, einkum og
sér í lagi í Bandaríkjunum, og talin
hafa byggst á viðskiptahagsmun-
um Breta.
Gamlar syndir leikstjóra og
mannskæðir jarðskjálftar
Pólski leikstjórinn Polanski reið
ekki feitum hesti frá kvikmynda-
hátíð í Zürich í Sviss þar sem hann
ætlaði að veita viðtöku viðurkenn-
ingu fyrir kvikmyndaafrek sín. Síð-
an árið 1977 hefur Polanski burðast
með í farteski sínu handtökuskip-
un bandarískra stjórnvalda vegna
kynferðisbrota gegn Samönthu
Geimer sem þá var þrettán ára.
Þann 27. september þegar Polanski
steig fæti á svissneska jörð var
hann handtekinn og var handtak-
an gagnrýnd af ýmsum frammá-
mönnum í kvikmyndaheiminum
og frönskum stjórnvöldum, en Pol-
anski hefur franskan ríkisborgara-
rétt. Í nóvember samþykkti svissn-
eskur dómstóll að Polanski yrði
sleppt úr fangelsi gegn tryggingu
og dvelur hann nú í fjallaskála í
svissnesku ölpunum.
Jarðskjálfti sem mældist 8,3 á
Richterkvarða olli flóðbylgju við
Samóaeyjar, þann 29. september,
með þeim afleiðingum að fjöldi
samfélaga á eyjunum eyðilagðist
og að minnsta kosti 189 fórust.
Daginn eftir varð jarðskjálfti upp
á 7,6 stig á Richterkvarða úti fyrir
ströndum Súmötru. Jarðskjálftinn
varð yfir 1.100 manns að bana og
um 3.000 manns slösuðust, þar af
um 1.200 alvarlega.
Berlusconi barinn
og friðarverðlaun
23. nóvember var blóðugur á Fil-
ippseyjum því þann dag var að
minnsta kosti 57 manns, þar af
voru flestir blaðamenn, rænt í
Maguindanao-héraði og þeir myrt-
ir með köldu blóði. Fjöldamorðin
voru tilkomin vegna valdabaráttu
sem tengdist kosningum í landinu.
Talið er að um sé að ræða blóðug-
ustu árás á blaðamenn seinni tíma.
Kylfingurinn Tiger Woods komst
í heimsfréttirnar undir lok nóv-
embermánaðar. Tilefnið var ekki
sigrar hans á golfvellinum heldur
afrek hans með hinum ýmsu geng-
ilbeinum og klámmyndastjörnum.
Hjúskaparbrot Tigers, sem tíund-
uð voru í fjölmiðlum, ollu því að
fjöldi styrktaraðila sneri við honum
baki auk þess sem ímynd hans beið
verulegan hnekki.
Þann 10. desember veitti Bar-
ack Obama Bandaríkjaforseti við-
töku friðarverðlaunum Nóbels í
Ósló í Noregi, nánast í sömu andrá
og hann tilkynnti að blásið yrði til
sóknar í hernaði Bandaríkjanna
í Afganistan með 30.000 manna
fjölgun í her Bandaríkjanna þar.
Árinu lauk með látum hjá Sil-
vio Berlusconi, forsætisráðherra Ít-
alíu, þegar hann var barinn í and-
litið með líkani af dómkirkjunni í
Mílanó. Berlusconi er þekktur fyr-
ir að vera með munninn opinn, en
nú kann að verða breyting þar á því
auk þess að vera nefbrotinn brotn-
uðu í honum tvær tennur.
Vinsæll og veit af því Barack
Obama hampaði forsetaemb-
ætti og friðarverðlaunum á
sama árinu. MYND AFP
Táknmynd mótmæla vegna
endurkjörs Mahmouds Ahmadin-
ejad Dauðastríð Neda Agha-Soltan var
kvikmyndað. MYND AFP
Hversdagsleg mynd frá Mexíkóborg í apríl
Öndunargrímur seldust grimmt vegna svína-
flensunnar sem skaut upp kollinum í apríl. MYND AFP
Urumqi í Xinjiang-héraði í Kína
Blóðug og mannskæð átök brutust út á
milli Úigúra og Han-Kínverja. MYND AFP
Lauk árinu með látum
Silvio Berlusconi var
barinn til óbóta með
styttu af kirkju. MYND AFP
„Það er Gordon...
Gordon Ramsay?“
París Hilton, aðspurð hver væri forsætisráð-
herra Bretlands.
„Fjöldi fólks er hræddur við
hann, ekki bara vegna stöðu
hans heldur vegna bræði hans.
Ég held að hann hafi aldrei haft
tíma fyrir hið ljúfa líf.“
Carla Bruni um eiginmann sinn Nicolas Sarko-
zy, forseta Frakklands.
„En þeir ættu að líta á þetta eins og útilegu.“
Silvio Berlusconi um aðstæður fórnarlamba jarðskjálftanna í
Abruzzo á Ítalíu.
„Munum við öll
deyja rýtandi?“
Breski grínistinn Frank
Skinner um svínaflensuna.
„Páfinn var aldrei
í Hitlersæskunni –
aldrei, aldrei, aldrei.“
Federico Lombardi, tals- maður
Páfagarðs, um fullyrðingar um hið gagnstæða.
„Ég ýtti honum fram af vegna
þess að stökkvarar eins og Chen
eru mjög eigingjarnir [...] Þeir þora eig-
inlega ekki að fremja sjálfsmorð.“
Lai Jiansheng sem ýtti manni sem hótaði sjálfsmorði á
brú í Kína og hafði tafið umferð í 5 tíma.
„Ferðu í sturtu í jakka og með bindi?“
Silvio Berlusconi aðspurður um ljósmyndir af ber-
brjósta stúlkum í sólbaði við villu hans á Sardiníu.
„Hvað er títt, London?“
Söngkonan Britney Spears á tónleikum í Manchest-
er.
„Ég mun svara spurn-
ingum frá strákunum
en frá stúlkunum vil
ég fá símanúmer.“
Silvio Berlusconi, forsætisráð-
herra Ítalíu, á ungmennasam-
komu í Róm.
„Ég hef ekki verið trúr
gildum mínum og
þeirri framkomu sem
fjölskylda mín á skilið.“
Tiger Woods, vegna uppljóstr-
ana um hjúskaparbrot hans.
Ummæli 2009
Britney Spears
London er ekki
Manchester.
Benedikt XVI páfi
Aldrei, aldrei, aldrei.
Forsætisráðherra Ítalíu
Sjaldan svarafátt.