Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2009, Qupperneq 32
32 MIÐVIKUDAGUR 30. desember 2009 FRÉTTIR
FINNDU RÉTTU
ÁRAMÓTABOMBUNA
Að þessu sinni voru teknar fyrir rakettur í hinu árlega flugeldaprófi DV. Eins og undanfarin ár var skotið
upp flugeldum frá aðilum sem leggja góðum málefnum lið en í prófinu er borið saman verð og gæði rakettna
í þremur flokkum: litlar rakettur, miðlungsstórar og síðast en ekki síst miðnæturbomban sjálf.
umsjón Ásgeir Jónsson
Undanfarin ár hefur DV staðið fyrir
flugeldaprófi og er þetta í þriðja sinn
sem það fer fram. Sú stefna var strax
tekin að prófa aðeins flugelda frá að-
ilum sem leggja góðu málefni lið. Því
skaut DV upp flugeldum frá Lands-
björgu, sem sér björgunarsveitum
landsins fyrir flugeldum, KR-flugeld-
um, sem sjá íþróttafélögunum fyrir
flugeldum og svo Súper-flugeldum,
sem er einkarekið fyrirtæki sem hef-
ur styrkt Mæðrastyrksnefnd og fleiri
málefni.
Ágóði af flugeldasölu björgunar-
sveitanna er þeirra helsta tekjulind
og eru þeir langstærsti söluaðilinn
hérlendis. Flugeldasalan er íþrótta-
félögunum einnig mikilvæg tekju-
lind en Súper-flugeldar er sem fyrr
segir einkaaðili sem styrkir m. a.
Mæðrastyrksnefnd. Súper-flugeldar
styrkir einnig Mærðastryrksnefnd á
Akranesi, Velferðarsjóð Suðurnesja,
Knattspyrnudeild Njarðvíkur og fleiri
aðila. Í fyrra reiknaði fyrirtækið með
að um 30 prósent af ágóða þess færi
til góðgerðarmála.
Ákveðið var að fá rakettur í stærð-
unum lítil, mið og stór hjá hverj-
um aðila, en þess ber þó að geta að
meira úrval af rakettum er hægt að fá
hjá öllum aðilum og þá sérstaklega
Landsbjörgu sem er með hvað mest
úrval þegar kemur að rakettum. Rak-
ettunum var svo raðað í sæti í hverj-
um flokki fyrir sig.
LANDSBJÖRG
Lítil
3.SÆTI
Verð: 2.000 kr.
Litla rakettan frá Landsbjörgu heitir
Sverð og var fín. Hún var þó síst þeirra
sem prófaðar voru í þessum flokki. Það var þó mjótt á munum á henni og þeirri frá Súper-flugeldum. Hún reis mjög hratt og
með miklum látum. Fín sprenging, rauð og silfur.
Mið
1.SÆTI
Verð: 3.100 kr.
Rakettan Atgeir bar af í þessum flokki. Hún var reyndar dýrust en mjög flott. Hún reis nokkuð hægt en hátt. Það kom mikill
hvellur þegar hún sprakk og styrkur hennar lá helst í því að hún var tvöföld þannig að stuttu seinna kom önnur falleg
sprenging.
Stór
1.SÆTI
Verð: 6.300 kr.
Lásbogi kostar sitt en þetta er án efa áramótabomban, 00.00 rakettan. Í fyrsta lagi er hún stórglæsileg í útliti. Risastór, gullituð
og sennilega með fallegri rakettum sem þú munt sjá. En það er virknin sem þarf að vera góð og hún er til staðar. Hvellurinn
af henni var ekki alveg nægilega sterkur en sprengiradíusinn var stærstur allra þeirra sem prófaðar voru. Fyrst kom ein öflug
sprenging og svo fjórar minni út frá henni.KR-FLUGELDAR
Lítil
1.SÆTI
Verð: 600 kr.
Miðað við stærð og verð var Airbomb
frá KR-flugeldum besti kosturinn í litlu
rakettunum. Reis mjög hratt og var
kraftmikil. Fínn sprengiradíus miðað við
svo litla rakettu og fallegur. Yfirleitt er
hægt að kaupa þær sex saman í pakka
á 2.500 krónur en annars stykkið á 600.
Færð mikið fyrir peninginn hérna.
Mið
2.SÆTI
Verð: 2.200 kr.
Miðstærðin kallast Sæstjarnan og er fínasta raketta. Hún var hávær og kvik. Fór
upp með miklum látum og hvellurinn var góður en sprengingin sjálf var aðeins
of gisin. Hún spýttist hratt í allar áttir en hefði þurft að vera þéttari.
Stór
2.SÆTI
Verð: 3.500 kr.
Stóra rakettan frá KR-flugeldum heitir Höggbylgjan og er þrískipt. Hún er litlu
síðri en Lásaboginn og töluvert ódýrari. Þess ber að geta að einnig er hægt að
fá þrískipta rakettu frá Landsbjörgu en sú frá KR-flugeldum var betri að mati
framkvæmdaraðila. Höggbylgjan fór upp með alveg ógurlegum látum, flaug
hátt og sprakk í þremur fínum sprengingum. Löng og skemmtileg upplifun.
SÚPER-FLUGELDAR
Lítil
2.SÆTI
Verð:Hluti af pakka
Sú minnsta frá Súper-flugeldum var skemmtileg. Mikil læti
á leiðinni upp og öflug sprenging. Hún var tvílit, rauð og
græn. Ekki er hægt að kaupa hana staka en hægt er að fá
hana í pakka. Tvær litlar, tvær mið og tvær stórar á 8.900
krónur.
Mið
3.SÆTI
Verð:Hluti af pakka
Miðstærðin frá Súper-
flugeldum var lengi að taka á loft. Að sama skapi náði þetta eintak af henni ekki nægilega góðu
flugi og fór skakkt og illa upp og sprakk hálfpartinn á hlið. Ómögulegt er þó að segja hvort það
einskorðist ekki bara við þessa einu rakettu. Að því undanskildu var hún fín.
Stór
3.SÆTI
Verð. 1.900 kr.
Stóra rakettan frá Súper-flugeldum var mjög fín þó að hún hafi verið síst stóru þriggja hvað
kraft og gæði varðar. Það er hins vegar hægt að kaupa þrjár þannig fyrir sama verð og Lásboga
sem mörgum gæti þótt góður kostur. Rakettan sjálf var samt mjög lengi að taka á loft. Það voru
mikil læti og krafturinn fínn en sprenigsvæðið fulllítið fyrir stærstu gerð af rakettu.
NIÐURSTAÐA
Ef horft er á frammistöðu rakettnanna í heild hefur Landsbjörg vinninginn en naumlega þó því þær frá KR-flugeldum voru einnig þrælöflugar. Þær hjá Súper-flugeldum
fylgja fast á hæla þeirra en einnig ber að líta á það að þar eru raketturnar langódýrastar. Fólk þarf því eins og vanalega að vega og meta eftir hverju það sækist. Til dæmis
er hægt að fá þrjár stórar rakettur frá Súper-flugeldum og tvær frá KR-flugeldum fyrir svipað verð og einn Lásbogi kostar. Lásaboginn er engu að síður langveglegasta
miðnæturbomban bæði í útliti og framkvæmd. Sé því einungis litið á verð snýst röðin við með Súper-flugelda í fyrsta sæti en Landsbjörgu í því síðasta.
Auðvitað þurfa gæðin að vera til staðar en það skiptir líka miklu máli hvert peningarnir fara. Gleðilegt ár og farsælt komandi ár.
Lásbogi Dreifir vel úr
sér og er tignarlegur.
Höggbylgjan Skilar af sér
þremur sprengingum í röð.
Stóra frá
Súper-flugeldum
Nokkuð öflug og
alveg hræódýr.