Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2009, Page 36
ÞJÓÐ ÁRSINS
Þjóð ársins er Íslendingar. Þriðji hver Íslendingur styður Sjálfstæðisflokkinn, sem hef-ur það helst á stefnu sinni að
gagnrýna eigin ákvörðun um að láta
Íslendinga borga Icesave-reikningana.
Yfirgnæfandi meirihluti Íslendinga
kýs að lesa fréttir á netinu sem ritstýrt
er af Davíð Oddssyni.
Það var árið 2009 sem Davíð var loksins hrakinn úr Seðla-bankanum. Á landsfundi Sjálfstæðisflokksins líkti hann
sér við Jesú Krist eftir þá reynslu, við
dynjandi fögnuð sjálfstæðismanna,
og harmaði að tveir sómakærir menn
hefðu verið krossfestir við hlið hans.
Vanhæfni Davíðs varð öllum ljós þegar allir bankarnir hrundu á hans vakt. Síðar tilkynnti hann um Rússalán,
sem aldrei kom. Hann sveiflaði stýri-
vöxtunum brjálæðislega fram og aftur.
Hann bullaði og fór með ástandið í
flimtingum á blaðamannafundum og
hætti síðan alfarið að tjá sig á meðan
hann einbeitti sér að því sem nú er
kallað „dýrkeyptur hringlandahátt-
ur“ Seðlabankans í gjaldeyrisstjórnun
fyrsta þriðjung ársins.
En allt þetta var ekki Davíð að kenna. Hann kunni aldrei að vera seðlabankastjóri. Hann hafði ekki auðmýktina eða
sjálfsgagnrýnina til að stíga til hliðar
og ekki hófstillinguna til að sjá hve-
nær hann hafði gengið of langt. Enda
gengur Jesús Kristur aldrei of langt,
jafnvel þótt hann komi að vatni. Þetta
var ekki Davíð að kenna, heldur þeim
sem kusu hann aftur og aftur og sættu
sig gagnrýnislaust við að hann réð
sjálfan sig seðlabankastjóra.
Nú endurskrifar hann söguna af ritstjórastóli Morgun-blaðsins, vanhæfur til að fjalla um mál tengd hruninu.
Að sjálfsögðu hefur þetta í för með sé
að álit Íslands rýrnar erlendis, enda er
þetta til marks um sjúkt samfélag, þar
sem fjölmiðlar eru misnotaðir. Það er
þó ekki aðalatriðið, heldur að núlif-
andi kynslóðir og börnin þeirra skuli
alast upp í löskuðu lýðræði.
Lýðræðissamfélag endurspegl-ar fyrst og fremst það fólk sem myndar þjóðina. Davíð er skil-getið afkvæmi okkar sjálfra,
virkra og óvirkra borgara sem daglega
samþykkja áhrif hans á samfélagið.
Hann var kosinn af henni, umborinn
af henni, stundum dýrkaður af henni
og nú lesa 90 prósent þjóðarinnar fjöl-
miðla undir hans ritstjórn.
Þótt nú byrji árið 2010 hefst sama ferli að nýju. Hver Ís-lendingurinn á fætur öðrum hringir inn á Rás 2 og velur
Steingrím J. Sigfússon mann ársins.
Steingrímur J, lét gamlan flokksgæð-
ing stýra samninganefnd í Icesave-
málinu og sagði að „glæsileg niður-
staða“ væri í sjónmáli, þegar hún var
í raun hörmuleg fyrir þjóðina, eins og
búist var við. Meðvirka þjóðin er aftur
haldin leiðtogadýrkun. Ekkert mun
breytast, því hún hefur ekki breyst.
SANDKORN
n Lítið er um nýliðun á fram-
boðslista Samfylkingar til
borgarstjórnarkosninganna
í vor. Nú heyrist því þó fleygt
að Kristján Guy Burgess, að-
stoðarmað-
ur Össurar
Skarphéð-
inssonar
utanríkis-
ráðherra,
sé að íhuga
að bjóða
sig fram
til borg-
arstjórnar. Kristján er náinn
samherji Dags B. Eggertsson-
ar, oddvita Samfylkingar. Þá
skemmir ekki fyrir að þeir eru
kvæntir systrum. Líklegt er að
svilarnir muni snúa bökum
saman og fær þá Kristján Guy
byr í seglin.
n Meðal þeirra sem reiknað er
með að fái bréf frá rannsókn-
arnefnd Alþingis milli hátíða
er Ingibjörg
Sólrún
Gísladóttir,
fyrrverandi
formaður
Samfylking-
ar. Ingibjörg
Sólrún mun
þar með
fá sendan
úrdrátt þar sem fjallað er um
hennar þátt í hruninu. For-
maðurinn fyrrverandi hefur
raunar verið duglegur við að
tjá sig að undanförnu. Sumt
sem hún hefur þar sagt í varn-
arskyni hefur farið mjög fyrir
brjóst fyrrverandi samherja.
n Embætti prests Íslendinga í
Kaupmannahöfn verður lagt
niður þann 15. janúar næst-
komandi í
sparnað-
arskyni.
Íslendinga-
prestur-
inn, Þórir
Jökull Þor-
steinsson,
hefur not-
ið mikilla
vinsælda
sem sálusorgari. Það var því
tilfinngaþrungin messa á jóla-
dag þegar hann kvaddi söfnuð
sinn. Óvíst er hvort séra Þór-
ir Jökull fái annað brauð við
starfslokin þar sem prestar eru
þaulsætnir í brauðum sínum
nú um stundir.
n Embætti Lundúnaprests var
lagt af á árinu og séra Sigurður
Arnarson sneri heim. Sigurður
er tengdasonur Karls Sigur-
björnsson-
ar, biskups
Íslands.
Þótt erfitt sé
fyrir presta
að fá brauð
í dag gekk
séra Sigurði
ágætlega
að fóta sig
í íslensku
prestakalli. Hann sótti um og
fékk Kársnesprestakall í Kópa-
vogi. Að sjálfsögðu snerist það
mál ekkert um þá staðreynd að
hann er tengdasonur hæstráð-
anda Þjóðkirkjunnar.
LYNGHÁLS 5, 110 REYKJAVÍK
ÚTGÁFUFÉLAG: Útgáfufélagið Birtíngur ehf.
STJÓRNARFORMAÐUR: Hreinn Loftsson
FRAMKVÆMDASTJÓRI: Sverrir Arngrímsson
RITSTJÓRAR:
Jón Trausti Reynisson, jontrausti@dv.is
og Reynir Traustason, rt@dv.is
FRÉTTASTJÓRAR:
Brynjólfur Þór Guðmundsson, brynjolfur@dv.is
og Þórarinn Þórarinsson, toti@dv.is
AUGLÝSINGASTJÓRI:
Elísabet Austmann, elisabet@birtingur.is
DV Á NETINU: DV.IS
AÐALNÚMER: 512 7000, RITSTJÓRN: 512 7010,
ÁSKRIFTARSÍMI: 512 7080, AUGLÝSINGAR: 512 7050.
SMÁAUGLÝSINGAR: 515 5550.
Umbrot: DV. Prentvinnsla: Landsprent. Dreifing: Árvakur.
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu
formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð.
„Það er alltaf
jafnyndislegt að
koma til Íslands
og þessi ferð var engin
undantekning.“
n Casper Christensen, besti vinur trúðsins Frank
Hvam, eyddi jólunum á Íslandi með spúsu sinni,
Iben Hjejle. - Fréttablaðið
„Það er fínt upp á að fitna ekki
um jólin.“
n Oddur Grétarsson, handboltamaður á
Akureyri, var sáttur að spila á milli jóla og nýárs.
- Morgunblaðið
„Eins og í viðureigninni við
Harald blátönn forðum eiga
Íslendingar fá vopn önnur en
kveðskapinn.“
n Hannes Hólmsteinn Gissurarson ljóðrænn í
viðureign sinni við Breta. - Pressan.is
„Það er endanlega ljóst að ég fer frá
félaginu næsta sumar.“
n Silfurdrengurinn Logi Geirsson hætti hjá
Lemgo eftir tímabilið og rær á önnur mið. - Frétta-
blaðið
„Þessi tillaga frá þeim á
síðustu metrum þessa
máls er ekkert annað en
pólitískur spuni
af ómerkileg-
ustu sort.“
n Þráinn Bertelsson,
þingmaður Hreyfingarinnar, gefur ekki
mikið fyrir breytingartillögu Péturs Blöndal. - DV.is
Hetjur Íslands
LEIÐARI
DV hefur ákveðið að útnefna lög-reglumenn sem hetjur ársins. Því vali ræður tvennt. Tveir lögreglu-menn, karl og kona, brugðust
skjótt við þegar maður fékk hjartaáfall í bak-
aríi og gripu til lífgunaraðgerða. Þau björg-
uðu mannslífi. Þessir sömu lögreglumenn
stóðu í fremstu víglínu þegar búsáhaldabylt-
ingin stóð sem hæst. Þar sýndu þau og félag-
ar þeirra æðruleysi á ögurstundu. Lögreglu-
mennirnir voru grýttir og það var hrækt á
þá. Þrátt fyrir það héldu þeir stillingu sinni
að langmestu leyti. Mörgum er minnisstætt
þegar fólk úr hópi mótmælenda sló skjald-
borg um lögreglumenn framan við Stjórnar-
ráðið. Við þær aðstæður sem mörkuðust af
stjórnlausri reiði í garð stjórnvalda hefði að-
eins þurft einn neista til að kveikja bál. Lög-
reglumenn á vettvangi slösuðust við störf
sín. Það segir sína sögu um stillingu þeirra
að mótmælendur slösuðust ekki. Niðurstað-
an er sú að lögreglan stóðst þolraunina og
tryggði með því að róstur urðu ekki meiri en
raun ber vitni. Það má ekki gleymast að inn-
an lögreglunnar er venjulegt fólk sem deilir
kjörum með almenningi. Lögreglumenn eru
rétt eins og annað fólk með meðaltekjur að
borga af lánum sínum og berjast við að eiga
til hnífs og skeiðar. Að þessu sinni telur DV
rétt að útnefna lögreglumenn Íslands sem
hetjur ársins. Þótt viðurkenningin sé merkt
þeim tveimur sem björguðu mannslífi í bak-
aríi nær hún til allra þeirra lögreglumanna
sem gengu fram af yfirvegun á einhverjum
mestu örlagatímum í sögu íslenska lýðveld-
isins. Með hófstilltri framgöngu fyrirbyggði
lögreglan slys sem annars hefðu getað orðið.
Í svartnætti undanfarinna missera hafa
Íslendingar gjarnan gleymt því góða sem
þrífst á meðal þjóðarinnar. Umræða um
skuldir hefur yfirskyggt flest annað og auk-
ið enn á vonleysi þjóðarinnar. Öfgahópar í
samfélaginu hafa alið á sundrung í stað þess
að leggjast á árarnar og rífa samfélagið upp
úr volæðinu. Vissulega hefur Ísland farið út
af braut farsældar. Þar er um að kenna fólki
sem svaf á vakt sinni og stofnaði þannig þjóð-
inni í þann háska sem er yfirstandandi. Upp-
gjör við þá seku má ekki stjórnast af heift og
hefndarþorsta. Uppgjör þjóðarinnar verður
að fara fram með yfirveguðum hætti rétt eins
og þegar lögreglan afstýrði stórslysi í ársbyrj-
un. Réttlætið verður að ná fram að ganga en
ekki hefndin.
REYNI TRAUSTASON RITSTJÓRI SKRIFAR. Lögreglumennirnir voru grýttir.
BÓKSTAFLEGA
Árið sem aldrei kom
Með uppbrettar ermar og sveittan
skalla hafa þau Jóhanna og Stein-
grímur J. bograð yfir þeim ruðum
sem helmingaskiptaveldið lét þjóð-
inni í té eftir að valdasjúkir níðing-
ar höfðu fengið óáreittir að riðlast
á fjallkonunni um ára bil. Stjórnar-
parinu tókst að hindra það að fjall-
konunni blæddi út og þótt bata-
horfur séu kannski ekki allar þær
bestu þá má margur vel við una.
Auðvitað hefur eitt og annað verið
unnið í kyrrþey og auðvitað á enn
eftir að efna ýmis loforð sem ríkis-
stjórnin hefur gefið þjóðinni. Okk-
ur ætti þó öllum að vera ljóst að líð-
an þjóðarsálarinnar er eftir atvikum
góð, jafnvel þótt fjallkonan sé enn í
gjörgæslu.
En, kæru landsmenn, ef eitthvað
er að marka okkar ágætu stjórn-
arandstöðu þá erum við núna að
kveðja árið sem aldrei kom. Það er
nefnilega samdóma álit vitringa á
borð við Bjarna Ben, Sigmund Dav-
íð Oddsson, Birgittu Jónsdóttur og
Þráin Bertelsson að á því herrans
ári 2009 hafi stjórnvöldum tekist að
gera minna en akkúrat ekkert. Og
þetta er á margan hátt bæði satt og
rétt, þ.e.a.s. ef við miðum við alla þá
vitleysu sem ríkisstjórnum helm-
ingaskipta tókst að framkvæma.
Og ef við miðum við allan þann öf-
uguggahátt sem viðgekkst í stjórn-
sýslunni á meðan menn græddu
á daginn og grilluðu á kvöldin og
braskarar og bankamenn fengu að
stunda óhóflegt sukk í einkaþotum
á ferð um heiminn.
Hér í eina tíð státuðum við af
fréttum af stórþjófum. Menn eins
og Árni Johnsen komust í fréttir sem
alvöruglæpamenn. Í dag kemst Árni
í fréttir vegna þess að hann fyrirgef-
ur aumkunarverðum presti, Gunn-
ari Björnssyni, sem er grunaður um
að hafa seilst að brókum barnungra
stúlkna.
Í dag rata þeir í fréttir sem virki-
lega gerðu eitthvað merkilegt á ár-
inu. Sá nettvaxni Þór Saari reyndi
að hlúa að grasrótinni í heimsku-
legustu stjórnmálahreyfingu ver-
aldar. Bjarni Ben reyndi að fela pen-
inga í Kína. Séra Gunnar fékk starf
hjá biskupsstofu. Súlukóngurinn
Geiri fékk ekki að hitta son sinn á
Hrauninu. Guðmundur í Byrginu
fékk dóm og Gunnar I. Birgisson
eignaðist dótturfélag.
Ein frétt sannar þó tilvist þjóð-
arinnar öðrum fremur: Gunnar í
Krossinum skildi við konu sína og
skömmu síðar fékk hann sér tík.
Í Krossi Gunnar kempa rík
krafta fær úr trúnni
og núna hefur trúlaus tík
tekið við af frúnni.
GLEÐILEGT NÝÁR
KRISTJÁN HREINSSON
skáld skrifar
„Okkur ætti þó
öllum að vera ljóst
að líðan þjóðar-
sálarinnar er eftir
atvikum góð “
SKÁLDIÐ SKRIFAR
36 MIÐVIKUDAGUR 30. desember 2009 UMRÆÐA