Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2009, Side 40

Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2009, Side 40
40 MIÐVIKUDAGUR 30. desember 2009 HÚSAMENNINGARNÓTT  Menningarnótt í Reykjavík var haldin í fjórtánda sinn í ágúst en þetta er langfjöl- mennasta hátíð sem haldin er á landinu. Þema Menningarnætur í ár var „Húsin í bænum“. Með því var meiningin að vekja athygli á fegurð og margbreytileika húsanna í bænum og menningunni sem tengist þeim. Sem fyrr fóru einnig fram fjölmargir við- burðir innandyra sem utan, á götum, í görðum og á torgum, á söfnum, á kaffihúsum, í galleríum, í kirkjum, í verslunum og á veitingahúsum. Á meðfylgjandi mynd má líta gjörning sem fram fór fyrir utan Hitt húsið á horni Austurstrætis og Pósthússtrætis. ÓPERUDÍVA Á LISTAHÁTÍÐ  Sópransöngkonan heimsfræga Deborah Voigt hélt tónleika fyrir troðfullu Háskólabíói síðastliðið vor í tengslum við Listahátíð í Reykjavík. Voigt er þekkt fyrir frábæra túlkun sína á verkum eftir Strauss og Wagner en hún hefur sungið  aðal- kvenhlutverkin í alls sex óperum Wagners auk þess sem hún hefur sungið fjölmörg hlutverk ítölsku óperubókmenntanna í stærstu óperuhúsum heims, svo sem Toscu, Aídu og Lady Macbeth.STÓRMENNI Á RIFF  Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík, RIFF, fór fram í sjötta sinn í september. Rúmlega hundrað myndir voru sýndar auk þess sem boðið var upp á fjölda annarra viðburða, svo sem fyrirlestra, málþing, masterklassa, tónleika, bílabíó, sundbíó og nýjungar á borð við leikstjórabíó og foreldrabíó. Tékkneski leikstjórinn Milos Forman var heiðursgestur hátíðarinnar en hann er einn fremsti kvikmyndaleikstjóri samtímans. Forman á að baki margar stórmyndir, þar á meðal One Flew Over the Cuckoo‘s Nest, Amadeus, Hair og Man on the Moon. NÍUNDA BÓK- MENNTAHÁTÍÐIN  Á þriðja tug erlendra rithöfunda og skálda kom hingað til lands á haustmánuðum til að taka þátt í Bókmenntahátíð í Reykjavík. Tíu íslenskir höfundar tóku jafnframt þátt í hátíðinni sem var nú haldin í níunda sinn. Í fyrsta sinn var nú gefin út bók í tengslum við hátíðina en hún innihélt þýðingar á ljóðum Griffin-skáldanna svokölluðu sem voru á meðal gesta hátíðarinn- ar. Í þeirra hópi er Michael Ondaatje, sjá mynd, sem þekktastur er fyrir Booker-verðlaunabók sína The English Patient. MUNAÐARLEYSINGI Á HVERFISGÖTU  Oliver!, söngleikur byggður á skáldsögunni klassísku Oliver Twist eftir Charles Dickens, var frumsýndur á Stóra sviði Þjóðleikhússins annan í jólum. Söngleikur- inn, sem er eftir breska tónskáldið Lionel Bart, hefur ekki verið settur upp hér á landi í um tuttugu ár og fannst vafalítið einhverjum kominn tími til. DRAUMALANDIÐ SLÓ MET  Margir höfðu beðið óþreyjufullir eftir heimildamyndinni Draumalandinu sem byggð er á einni mest seldu bók hér á landi frá upphafi. Höfundur bókarinnar, Andri Snær Magnason, leikstýrði myndinni ásamt Þorfinni Guðnasyni sem þekktastur er fyrir mynd sína um Lalla Johns. Skemmst er frá því að segja að Draumalandið fékk meiri aðsókn í bíó en nokkur önnur íslensk heimildamynd hefur fengið frá því mælingar hófust. Meðfylgjandi mynd er stilla úr myndinni. MENNINGIN Í MÁLI OG MYNDUM Listir og menning blómstra í kreppu segja vitrir menn. Ekki ber á öðru þegar horft er yfir sviðið árið 2009. Hér er stiklað á því sem bar hæst í menningarlífi þjóðarinnar á árinu sem nú senn er á enda. MYND HEIÐA HELGADÓTTIR MYND ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.