Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2009, Page 44

Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2009, Page 44
1 Sonur minn fæddist 29. júlí. Hann er yndislegur og fæðing hans reynsla sem ég trúi vart að verði toppuð. Hún gekk svo hratt og vel fyrir sig og ég upplifði hverja hríð og hvern rembing svo sterkt að tilhugsunin ein veitir mér sæluhroll. Ég hefði aldrei trúað því fyrirfram að fæðing barns gæti verið svona ánægjuleg. 2 Á árinu hafa margir góðir vinir mínir og kunningjar hætt störfum á Morg- unblaðinu – fólk sem stóð sig frábær- lega að vanda. Ég mun sakna Ólafs, Ingibjargar, Oddnýjar, Magga, Þrastar og svo margra annarra þegar ég sný aftur til starfa á nýju ári. 3 Ekki hef ég áður varið eins löngun tíma með fjölskyldunni og á þessu ári. Nærri hálft ár heima – bæði í fríi og fæðingarorlofi – og þar af hálfan mánuð í febrúar á Tenerife. Þessi tími hefur verið ómetanlegur og ég finn hve hamingju- söm ég hef verið, sérstaklega fyrsta mánuðinn eftir fæðingu sonarins. Sólin skein, maðurinn minn var heima og við dunduðum okkur með börnunum allan daginn. Ég gortaði mig af því að heimilið stæði undir nafninu hamingja.is. 4 Óvissa, þreyta, grindargliðnun og ógleði einkenndi fyrri hluta ársins. Maðurinn minn missti vinnuna í byrjun febrúar en fékk fljótt nýja. Ég ákvað að láta ekki óléttuna draga af mér og tók að mér að stýra umræðuþættinum Málefninu á Skjá einum með Sölva Tryggva. Það kryddaði tilveruna og var skemmtileg reynsla sem ég legg inn í reynslubankann. 5   Þrátt fyrir atburði sem komast inn á topp tíu á lífsreynslulistanum fær árið 2009 enga sérstaka einkunn. Raunar hefur þetta ár reynt á þolrifin og síðustu dagar hafa minnt fjölskylduna óþyrmi- lega á hve lífið getur verið hverfult. En með því að horfa fram á veginn er ekki laust við að árið 2010 veki með mér eftirvæntingu. 44 MIÐVIKUDAGUR 30. desember 2009 ÁRAMÓT Nú þegar árið er að enda vill hugurinn reika til baka. Hvernig var árið 2009? Einkenndist þetta ár aðeins af krepputali eða gerðist eitthvað meira? Árið 2009 hefur verið Íslendingum erfitt á mörgum sviðum en margt jákvætt hefur einnig gerst. DV leitaði til sjö þekktra einstaklinga og spurði hvaða fimm atriði stæðu upp úr í þeirra persónulega lífi á árinu sem senn fer að ljúka. FIMM ATRIÐI SEM BREYTTU LÍFINU ÁRIÐ 2009 Illugi Jökulsson ritstjóri: Hjartaþræðing og vitlausir útrásarvíkingar 1 Mér finnst árið einhvern veginn allt renna saman í eitt, bæði persónulegt líf mitt og gangur samfélagsins. Ætli sú sé ekki raunin um fleiri eftir þetta undarlega ár? 2 Þannig fór ég til dæmis í lífsnauð- synlega hjartaþræðingu á árinu, og það tvær frekar en eina, en það tengi ég beint við búsáhaldabyltinguna um mán- aðamótin janúar-febrúar, því það var meðan ég tók þátt í að slá takt þeirrar byltingar fyrir framan Alþingishúsið sem það rann endanlega upp fyrir mér að eitthvað var athugavert við minn eigin hjartsláttartakt. Minn takt tókst að laga á endanum, og ég vona að samfélagið komist brátt í gang líka. 3 Hvað hrunið varðar var það vitaskuld skelfileg opinberun á þessu ári hvað íslenskir ráðamenn og bankamenn og útrásarvíkingar reyndust flestallir hafa verið skelfilega vitlausir. Það er illt til þess að vita að við skulum hafa afhent þessum mönnum fjöregg þjóðarinnar og þeir farið svona kæruleysislega með það. 4 Sömuleiðis er vont að hafa orðið vitni að því að þjóðsagan sem Vigdísi Finnbogadóttur er svo gjarnt að end- urtaka, að þegar áföll dynja yfir standi Íslendingar saman sem einn maður sé bara bull. Það hefur verið átakanlegt að fylgjast með þrætubókinni sem stunduð hefur verið einkum á Alþingi frá og með kosningum - þetta er niðurlægjandi fyrir okkur öll og var þó ekki á bætandi. 5 Svo hlýt ég að nefna að það voru mér persónulega vonbrigði að það ágæta tímarit SKAKKI TURNINN skuli ekki hafa verið talið á annan vetur setjandi. Ég verð að segja það ...! Arnar Grant líkamsræktarfrömuður: Skemmtilegt að prófa eitthvað nýtt 1 Við settum Hámark á markað í janúar svo árið fór vel af stað. Viðtökur við drykknum hafa verið góðar enda hefur verið mikil vakning í samfélaginu gagnvart heilbrigðum lífsstíl. Þessi drykkur er fyrir alla, sama hvort þú ert sjö ára eða 77 ára og tveggja ára dóttir mín er búin að alast upp á þessu. 2 Dóttir mín varð tveggja ára á árinu sem er stórt skref fyrir litla manneskju. Ég hef ofsalega gaman af því að fylgjast með henni vaxa og dafna og vona að hún gangi menntaveginn í stað þess að feta mína leið sem var bæði erfið og grýtt. 3 Ég fór nokkrar ferðir til útlanda á árinu. Fór til London með félaga mínum í viðskiptaferð og til Boston með konunni. Báðar ferðir voru skemmtilegar en í þeirri síðari var mikið slappað af enda gott að komast aðeins í burtu frá íslensku fjölmiðlunum og þessari neikvæðu umfjöllun. 4 Ég eyddi góðum tíma með fjölskyld- unni. Í svona árfari og álagi í vinnu þarf fólk að halda betur utan um fjármálin og fer þá ósjálfrátt að eyða meiri tíma með fjölskyldunni. Við erum búin að passa okkur á að eiga alltaf tíma fyrir okkur til að eyða saman og mun meira á þessu ári en áður. 5 Ég tók þátt í Bollywood-sýningunni í Turninum í Kópavogi sem var mjög skemmtilegt en sýningar byrja aftur 23. janúar. Það var rosalega skemmtilegt að prófa eitthvað nýtt og öðruvísi og komast að því að það er margt annað líkamlegt en skemmtilegt hægt að gera en að láta dæma mann í keppnum. Marta María Jónasdóttir blaðakona: Hugarfarið skiptir mestu máli 1 Það rættist úr árinu sem er að líða þó það hafi ekki litið vel út í janúar. Eftir þetta ár er ég sannfærð um að hugarfar skipti miklu máli þegar kemur að hamingju hvers og eins. Hjá mér var 2009 hamingjuríkt á öllum sviðum þó svo að það hafi auðvitað rignt inni á milli eins og gerist á öllum sómaheimilum. Fæðing sonar númer tvö er án efa í toppsætinu yfir hápunkta árins. Hann kom í heiminn á heitu sumarkvöldi, heilbrigður og fagur. Ég rétt náði að taka af mér grillhanskana og koma mér upp á spítala áður en hann mætti. 2 Atvinnulega séð var árið gott. Ég fékk að taka þátt í því að koma vefmiðlinum Pressunni á laggirnar. Pressan fór í loftið 28. febrúar og er í dag einn vinsælasti vefmiðillinn á Íslandi. Þetta hefur verið ævintýri líkast. 3 Á árinu fór ég í nám sem heitir Prisma sem er samstarfsverkefni Lista- háskóla Íslands og Háskólans á Bifröst. Þar opnuðust augu mín fyrir hlutum sem ég hafði ekki veitt athygli. Það að fara vakandi í gegnum lífið er mun skemmti- legra svo ekki sé minnst á allt greinda og hæfileikaríka fólkið sem ég kynntist. 4 Í framhaldinu á náminu fór ég að halda markvissa dagbók og gefa mér tíma til að koma hugsunum mínum í orð. Ég mæli með því að fólk punkti hjá sér, því þessi iðja kemur skipulagi á óreiðuna sem getur ríkt í kollinum. 5 Taíland tók á móti mér á haust- dögum. Þar átti ég himneska daga ásamt eiginmanni mínum, ferðaðist um í bleikum leigubílum, prúttaði við götusala, borðaði heimsins besta mat og náði algerlega að gleyma útrásarvíking- um og þeirra athöfnum. Það var hverrar krónu virði. indiana@dv.is Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir blaðamaður: Næsta ár vekur eftirvæntingu

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.