Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2009, Page 49

Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2009, Page 49
VÖLVAN 30. desember 2009 MIÐVIKUDAGUR 49 sem öllum ráðgjöfum og spunadoktorum finnst algerlega ómögulegt en almenningur elskar. Nefnilega sannleikann. Gylfi Magnússon viðskipta- ráðherra mun vaxa mjög í áliti almennings eftir tök hans á viðkvæmu deilu- máli sem tengist embætti sérstaks saksóknara. Með því styrkir hann stöðu sína og situr áfram sem ráðherra. Mikið fjaðrafok verður í tengslum við fjárveitingar fyrirtækja til stjórnmála- flokka. Þekktur útrásarvíkingur mun skýra frá aðferðafræði fyrirtækja sinna í þeim efnum og þar mun Samfylkingin líta vægast sagt illa út. Völvan sér Steinunni Valdísi og Helga Hjörvar undir svörtu skýi vegna þess- ara mála um langan tíma. SÍÐASTA ÆÐISKAST DAVÍÐS Davíð Oddsson dregur að sér athygli þjóð- arinnar á nýju ári. Hans bíður mikið áfall snemma árs því þegar skýrsla rannsókn- arnefndar um bankahrunið kemur út verð- ur hans ekki að góðu getið. Hörð gagnrýni beinist að honum, studd óvænt- um uppljóstrunum um hót- anir hans í garð banka- manna í starfi sínu sem seðlabankastjóri. Davíð fer mikinn í andsvörum sín- um og ræðst af mikilli hörku á alla gagnrýnendur, ekki síst nefndina og þá sem í henni sitja. Þetta verð- ur síðasta æðiskast hans því sífellt fleiri áskrifendur snúa baki við Morgunblaðinu og á vordögum stígur Davíð upp úr stóli ritstjóra og gerist formaður og talsmaður Heimssýnar. Davíð mun á síðari hluta árs- ins dúkka upp með sinn eigin sjónvarpsþátt á ÍNN. SVEITARSTJÓRNARMÁL Sveitarstjórnarkosningar í vor ná einhvern veginn aldrei neinu flugi því mörg sveitarfé- lög eru á hausnum og geta ekki lofað neinu sem bragð er að. Fleiri sveitarfélög en Álfta- nes lenda í gjörgæslu ráðuneyt- is vegna fjárhagserfiðleika og má nefna bæði Reykja- nesbæ og Ísafjarðarbæ sem völvan sér ganga með betlistaf í hendi á fund ráð- herra. Hart verður barist í Reykja- vík um sæti í sveitarstjórn. Sjálfstæðis- flokkurinn gerir afdrifaríka tilraun til þess að hreinsa til í borgarstjórnarflokki sínum. Sú atlaga virðist hafa þann tilgang að losa Reykvíkinga við Gísla Martein, Jórunni Frí- mannsdóttur og Þorbjörgu Helgu Vigfús- dóttur á einu bretti. Upplýsingum um fjár- styrki til þessara fulltrúa og þjónkun þeirra við greiðendur verður lekið til fjölmiðla úr Valhöll. Hanna Birna Kristjánsdóttir borgarstjóri stígur fram í þessari deilu af miklum mynd- ugleik og þótt smælingjarnir standi laskað- ir eftir styrkir Hanna Birna mjög stöðu sína. Í kjölfarið sér völvan nýtt fólk stíga fram í sviðsljósið fyrir hönd Sjálfstæðisflokksins og Hanna Birna siglir skútu sinna manna í höfn af miklum myndugleik og Sjálfstæð- isflokkurinn endurheimtir hreinan meiri- hluta í Reykjavík. Einar Skúlason kemst ekki að fyrir Framsóknarflokk og Samfylking og Vinstri- grænir verða látnir gjalda óvinsælda ríkisstjórnar- innar. Völvan sér Árna Sigfússon, bæjarstjóra í Reykjanesbæ, hrökklast frá völdum og hætta í stjórnmálum og setjast í stól forstjóra ein- hvers staðar á Suðurnesjum. Gunnar Birgisson gerir heiðarlega til- raun til þess að komast aftur að kjötkötlun- um í Kópavogi en það verður mikil sneypu- för því almenningur hefur engan áhuga á Gunnari. Framboð Jóns Gnarrs til borgarstjóra í Reykjavík verður með réttu talið brandari en fær nokkurt fylgi kaldhæðinna kjósenda. Ólafur F. Magnússon borgarfulltrúi mun ljúka skrautlegum ferli sínum á stjórn- málasviðinu í vor. Eftir nokkrar þreifingar mun hann hætta við fram- boð. Hann mun hverfa al- gjörlega af hinu opinbera sviði. Völvan sér hann stunda heimilislækning- ar fjarri höfuðborgarsvæð- inu, líklega á Vestfjörðum. STÓRU BLÖÐIN VERÐA AÐ EINU Með atbeina nýrra lánardrottna fækkar dagblöðum á Íslandi þegar Morgunblaðið og Fréttablaðið sameinast í lokin á næsta ári. Í raun stjórna bankarnir þessari þróun en við samrunann hverfa núverandi eig- endur beggja blaða að mestu úr sviðsljósinu og nýtt fólk tekur við. Með þessum breytingum lýkur tímabili fríblaða á Íslandi því nýtt blað verður selt í áskrift ein- göngu. Völvan sér ekki betur en þungamiðjan í þessari sameiningu sé prentsmiðja Morg- unblaðsins sem er talin verðmætasta eign- in í Hádegismóum. Völvan sér Jón Kaldal í stól ritstjóra á hinu nýja blaði við hlið einhvers sem ekki hefur gegnt því starfi áður en er þekktur og vel liðinn á sviði menningar og lista. Þessi breyting mælist vel fyrir hjá almenningi lands- ins sem kaupir nýja blað- ið í stórum stíl og hefur fulla trú á fréttaflutningi þess enda pólitískar teng- ingar að mestu horfnar. EMBÆTTISMENN Baldur Guðlaugsson mun vekja gríðarlega athygli á árinu þegar hann skýrir hispurs- laust frá starfsaðferðum í innsta hring Sjálf- stæðisflokksins fyrir um það bil áratug sem tengjast einkavæðingu bankanna. Við þetta mun alþýða manna fá aukið álit á Baldri en aðrir minna. Hann kemst á spjöld sögunnar sem fyrsti maðurinn til að sæta eignaupp- töku og fá fangelsisdóm vegna innherjaviðskipta. Sérstakur saksóknari Ólaf- ur Hauksson verður talsvert í fréttum á árinu eftir því sem handtökum, yfirheyrslum og rannsóknum á vegum embættis hans vex fiskur um hrygg. Eva Joly tengist í sýn völvunnar einu af þessum málum sem kemur fram í sviðsljósið snemma árs en í tengslum við það segir Valtýr Sigurðsson ríkissaksóknari af sér embætti. Það verður látið heita svo að hann hafi frumkvæði að því en það er fyrirsláttur. Völvan sér eitthvert undarlegt fjaðrafok á Veðurstofu Íslands sem skemmtir þjóðinni meira en þátttakendum. Málið snýst um innanhússdeilur þar sem margt er dregið inn í en að lokum lægir storminn á Veðurstofunni. BRETARNIR KOMA Breskir rannsóknarmenn verða talsvert í sviðsljósinu á Íslandi snemma árs þeg- ar þeir taka til óspilltra málanna við að rannsaka íslenskt fjármálalíf. Harka þeirra við rannsóknina verður umtöluð og sög- ur leka út af grátandi bankastjórum í yfir- heyrslum og fleira sem almenningi finnst safaríkt. Völvan sér engar niðurstöður úr rannsókn þeirra á nýju ári en eitthvað kem- ur fram sem kemur Björgólfsfeðgum afar illa, svo vægt sé til orða tekið. Það teng- ist umsvifum þeirra í Rússlandi og mun flestum þykja staðfest samstarf þeirra við mafíuna þar. FYRRVERANDI Kjartan Gunnarsson, fyrr- verandi framkvæmda- stjóri Sjálfstæðisflokks- ins, kemst í fréttir á árinu vegna innansveitarmála vestur á Rauðasandi þar sem hann á óðal sitt. Völv- an sér ekki betur en það teng- ist kirkjunni á staðnum. Einkalíf Kjartans verður einnig í fréttum með afar undarleg- um formerkjum. Skemmdarverk verða unnin á sveitasetr- um fyrrverandi útrásarvíkinga í Borgarfirði en austur í Fljótshlíð fara skemmdarvarg- ar húsavillt með hörmulegum afleiðingum og verða slys á saklausu fólki. Ásgeir Friðgeirs- son, fyrrverandi „butl- er“ Björg ólfs Thors, talar sig aftur í náð þjóðarinnar með frásögnum sínum af lífinu í návígi við útrásar- víkinga. Völvan sér þjóðina í hlátur- Nokkrir molar úr völvuspá síðasta árs: SANNSPÁ VÖLVA Nokkrir molar úr völvuspá síðasta árs sem vekja athygli fyrir nákvæma spádómsgáfu völvunnar. „Þorsteinn M. Jónsson, Magnús Ármann, Pálmi Haraldsson og fleiri nafntogaðir viðskiptasnillingar munu koma fram sem hálfgerðir bónbjargamenn á árinu og verður útganga þeirra úr viðskiptum heldur snautleg svo ekki sé fastar að orði kveðið. Jón Ásgeir Jóhannesson berst til síðustu stundar fyrir fyrirtæki sínu og hlýtur við það nokkra virðingu alþýðunnar en í árslok standa hann og faðir hans nánast aftur á sínum byrjunarreit í Bónus þar sem sigurganga þeirra hófst. Fyrir utan verslunarrekstur á Íslandi verða nær allar eignir feðganna horfnar í skuldahítir um allan heim þótt ekki verði um formlegt gjaldþrot að ræða.“ n Ekki verður annað séð en þetta sé næsta nákvæm lýsing á stöðu þeirra sem þarna eru nefndir. „Elín Sigfúsdóttir, bankastjóri Landsbankans, mun einnig segja sig frá embætti á nýja árinu.“ n Reyndist hárrétt. „Ingibjörg Sólrún Gísladóttir hættir sem formaður flokksins af persónulegum ástæðum og Össur Skarphéðinsson tekur við stjórntaumunum á ný en völvan sér þó Jóhönnu Sigurðardóttur í einhverju lykilhlutverki.“ n Þetta rættist að mestu en völvan virðist ekki hafa séð Össur og Jóhönnu í réttum stólum. „Völvan sér eitthvert hneyksli tengjast margboðaðri rannsóknarnefnd ríkisstjórnarinnar sem skoða á aðdraganda bankahrunsins. Einhver þar innanborðs segir af sér vegna þess og rannsókn málsins tefst svo að engra niðurstaðna er að vænta á nýju ári.“ n Þetta hefur komið fram. Umræður um stöðu eins nefndarmanna og tilraunir til að koma honum frá voru hneyksli og skýrsla nefndarinnar kom ekki fram eins og boðað hafði verið. „Gunnar Birgisson flækist í spillingarmál.“ n Þarf að ræða þennan spádóm eitthvað frekar? „DV heldur áfram að koma út og almennt séð styrkir það stöðu sína á nýju ári enda fer eftirspurnin eftir hlífðarlausum fjölmiðlum vaxandi.“ n Þarna hafði völvan rétt fyrir sér. „Hanna Birna Kristjánsdóttir getur sér gott orð sem skörulegur borgarstjóri og völvan sér hana í mjög jákvæðu ljósi.“ n Sennilega geta flestir verið sammála um þetta og kannanir á fylgi Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík staðfesta þessa spá. „Á árinu frestast enn ákvörðun um byggingu álvers á Bakka við Húsavík og missa margir trúna á að af því verði yfirleitt.“ n Þetta rættist. „Gísli Garðarsson heldur áfram að vekja athygli og verður á árinu talinn frægasti leikari Íslands fyrr og síðar.“ n Leikur Gísla í stórmyndinni Prince of Persia er með því stærsta sem íslenskur leikari hefur gert. „Eiður Smári Guðjohnsen heldur áfram að gera garðinn frægan fyrir Barcelona en völvan sér hann í fréttum vegna viðskipta á Íslandi sem tengjast ekkert fótbolta.“ n Nýlegar fréttir innan lands og utan af fjárhags- vandræðum Eiðs vegna meintrar spilafíknar og bruðls geta ekki flokkast undir íþróttafréttir. „Mjög þekktur listamaður úr hópi poppara deyr á árinu og verður nánast þjóðarsorg.“ n Nú er óhætt að ljóstra því upp að þegar Rúnar Júlíusson tónlistarmaður lést í lok síðasta árs var völvan búin að skila spá sinni fyrir komandi ár og því má heita ótvírætt að hún hafi séð þetta fyrir. n Rannsóknarnefnd Alþingis mun fara hörðum orðum um Davíð Oddsson, sem mun stíga upp úr ritstjórastólnum á Mogganum og gerast þáttarstjórnandi á ÍNN.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.